Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002
DV
Utlönd
13
Danir teknir við formennsku í ESB:
Vonbiðlar ekki
beittir þrýstingi
Danir tóku við formennsku í fram-
kvæmdastjóm Evrópusambandsins i
gær og sögðu umsóknarlöndunum tiu
við það tækifæri að þeim yrðu ekki
settir neinir úrslitakostir um aðild á
síðustu stundu. Umsóknarlöndin gera
sér vonir um að ljúka megi aðildar-
viðræðunum í desember næstkom-
andi.
Anders Fogh Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, fékk forsmekk-
inn af því í gær hve erfitt það getur
orðið að koma samkomulagi um
stækkun ESB á koppinn.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, lagði til í gær
að umsóknarlöndunum verði gert til-
boð sem þau yrðu annaðhvort að sam-
þykkja í heilu lagi eða hafna.
Æ meiri óánægju gætir meðal ráða-
manna austur-evrópsku umsóknar-
landanna. Þeim finnst að þeir verði
þvingaðir til að samþykkja tilboð sem
frá upphafi gerir þá að annars flokks
aðildarlöndum.
Fjögur landanna ákváðú um helg-
ina að standa saman og neita að semja
um aðild með byssu beint að höíðinu.
eu2oo2,dk
REUTERSMYND
Anders Fogh Rasmussen
Danski forsætisráðherrann veröur í
forsæti ESB næstu sex mánuöina.
Helsta ágreiningse&ið er stuðning-
ur við landbúnað í nýjum aðildarlönd-
um. ESB hefur ekki enn ákveðið
hvort bændur landanna fá bein-
greiðslur eins og aðrir bændur í
Evrópusambandinu.
s
RELTTERSMYND
Rugeldar í Hong Kong
/ gær voru liöin fimm ár síöan Bretar afhentu Kínverjum aftur Hong Kong.
Fögnuöurinn var þó lítillátur þar sem efnahagur borgarinnar er í molum.
Mistök Bandaríkja-
manna dýrkeypt
i
1
REUTERSMYND
Roger King
Roger King, ofursti í bandaríska
hernum í Afganistan, ávarpaöi fjöl-
miötamenn í herstööinni Bagram í
Afganistan eftir atvikið.
Snemma í gærmorgun skutu
bandarískar herflugvélar sprengj-
um á brúðkaup í Uruzgan-héraði í
suðurhluta Afganistans. Veislugest-
ir höfðu hleypt af byssum sínum
upp í loftið eins og tíðkast í mann-
fögnuðum á þessu svæði og mis-
skildu Bandaríkjamenn það sem
árás á sig og svöruðu þvi fyrir sig.
Embættismenn í varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna segja þó
að þeir hafi orðið fyrir skotum loft-
vamabyssu en að ein sprengjan sem
þeir vörpuðu i kjölfarið hafi misst
marks. Einhverjir almennir borg-
arar höföu farist en þeir gætu ekki
staðfest að það væru veislugestimir
í brúðkaupinu.
Opinbera talan um fjölda látinna
var 40 í Afganistan í gær en þorps-
búar segja að hátt í 100 manns, mest
konur, hafi látist.
Polar 100
Polar 200
Evolution 100
Evolution 500
Vision 650
Burðarboqar
Hjólagrindur
Kajak Festinga
A5ur 4.900
Kerruhlutir
Britax
barnastólar
Kastarar
ASur 4.900
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 520 8000 • BÍLDSHÖFÐA 16 • SÍMI 577 1300 • DALSHRAUNI 13 • SÍMI 555 1019
AUSTURVEGI 69 • SÍMI 483 1800 • SMIÐJUVEGI 68 • SÍMI 544 8800
2 tonna tjakkur
FERRÖ AUGLÝSINGASTOFA