Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Qupperneq 15
15 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 DV mssm HEILDARVIÐSKIPTI 1.356 m.kr. Hlutabréf 296 m.kr. Húsbréf 200 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Delta 82 m.kr. Landsbanki íslands 33 m.kr. íslandsbanki 28 m.kr. MESTA HÆKKUN o o- ©- MESTA LÆKKUN 0 Össur -3,0% 0 Delta -2,0% 0 Parmaco -1,5% ÚRVALSVÍSITALAN 1,279 - Breyting -2,26% Mikil viðskipti á föstudag Töluverð viðskipti voru í Kaup- höll Islands á fostudag, en þá lauk öðrum ársfjórðungi og þar með upp- gjörstímabili flestra fyrirtækja skráðum í Kauphöllinni. Mest við- skipti voru með hlutabréf fyrir tæpa 3,5 ma.kr. og með húsbréf fyrir um 1.7 ma.kr. Af einstökum félögum voru mest viðskipti með bréf ís- landsbanka fyrir um 1,5 ma.kr. Við- skipti urðu með bréf Kaupþings banka fyrir 688 m.kr. en SPRON, stærsti beini eigandi Kaupþings seldi af hlut sínum. SPRON átti fyr- ir söluna 12,57% en 9,35% eftir hana. Sparisjóðurinn á endurkaups- rétt á bréfunum. Úrvalsvisitalan hækkaði um 0,8% og stóð í 1.309 stigum í lok dags. Úrvalsvísitalan lækkaði um tæpt 1% 1 ársfjórðungn- um en hefur hækkað um rúm 12% það sem af er ári. Minni viðskipti í júní en undan- farna mánuði Viðskipti í Kauphöllinni námu 22.7 ma.kr. í júni sem er heldur minna en undanfama mánuði en veltan það sem af er ári nemur 161,5 ma.kr. Flugleiðir hækkuðu mest síðastliðna viku eða um 8,4% en lít- il viðskipti stóðu þó að baki þeirri hækkun. Delta hækkaði um 7,2% í vikunni í 1 ma.kr. viðskiptum en nokkur eftirspum hefur verið eftir bréfum félagsins. Framboð á bréf- um félagsins er hins vegar frekar lítið. Miklar sveiflur voru á gengi bréfa Kers á fostudaginn og var 8,5% munur á hæsta og lægsta gengi dagsins en - félagið hækkaði um 1,6% í 94 m.kr. viðskiptum. Ekta fiskur ehf J S. *6b 1016 J Utvatnaður saltfiskur, án beina, til ao sjóða. Sérútvatnaður saltpskur, án beina, til að stetkja. ______________________________________________Viðskipti Umsjón: Viðskiptabiaðið Vísitala neyslu- verðs mun hækka Greining ÍSB spáir því að vísi- tala neysluverðs muni hækka um 0,2% á milli júní og júli. Gangi spáin eftir mun vísitala neyslu- verðs hafa hækkað um 4,2% á síð- astliðnum 12 mánuöum og er þar með komin inn fyrir efri þolmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka íslands. Á þennan mælikvarða mun verðbólgan þá hafa hjaðnað um meira en helming frá áramót- um en yfir síðasta ár mældist verðbólgan 9,4%. Einn helsti áhrifavaldur spárinnar er eins krónu hækkun á verði bensíns nú um síðustu mánaðamót. Hækkun- in er að mestu til komin vegna þess að tímabundin lækkun á vörugjaidi á bensíni, sem var lið- ur í aðgerðum stjómvalda til að halda visitölunni undir rauða strikinu, hefur nú gengið til baka. Umsvifm á fasteignamarkaði virð- ast síst vera að minnka. Sést það m.a. í þróun útgáfu húsbréfa und- anfarið. í ljósi þess er því spáð að húsnæðisliður vísitölunnar hækki nú. Sumarútsölur á fötum og skóm hafa byrjað nokkuð fyrr í ár en á síðasta ári. Búast má við að áhrif þeirra til lækkunar á vísi- tölu neysluverðs verði öllu meiri núna en í sama mánuði í fyrra. Erlendar bækur lækka í verði vegna lægri virðisaukaskatts. Áhrif þessara breytinga á vísitöl- una em hins vegar lítil. í spánni er gengið út frá hækkun á verði matvöra og þá aðallega ávöxtum. Hagstofa íslands mun birta vísi- tölu neysluverðs miðvikudaginn 10. júlí næstkomandi. íslandsbanki Greining ÍSB spáir því aö vísitala neysluverðs muni hækka um 0,2% á milli júní og júlí. Vöruskipti við út- lönd enn hagstæð Vöruskiptin við útlönd voru já- kvæð um 2,6 miUjarða i mai en voru óhagstæð um 3,6 milljarða á sama tíma fyrir ári. Á fyrstu fimm mán- uðum ársins hafa vöruskiptin verið jákvæð um 10,7 milljarða en voru óhagstæð um 9,2 miUjarða á sama tíma í fyrra á sama gengi. Fyrstu fimm mánuði ársins var því vöru- skiptajöfnuðurinn 19,9 milijörðum króna skárri en á sama tíma í fyrra. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu frnim mánuði ársins var 11,1 millj- örðum eða 14% meira á fóstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávaraf- urðir voru 64% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 19% meira en á sama tíma árið áður. Aukningu vöruútflutnings má því helst rekja til aukins útflutnings á sjávarafurð- um, aðailega frystum flökum, fiski- mjöli og heilum frystum fiski. Einnig hefur útflutningur á lyfja- vörum og lækningatækjum aukist. Á móti kemur að mun minna hefur verið selt af skipum úr landi en á síðastliðnu ári. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fimm mánuöi ársins var 8,8 miiljörðum eða 9% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Að stærstum hluta má rekja samdrátt- inn til minni innflutnings á fjárfest- ingarvörum og hrá- og rekstrarvör- Gengi gjaldmiðla Frá og með 1. júlí 2002 verður lögð af opinber skráning Seðla- banka íslands á gengi gjaldmiðla þeirra landa sem hafa tekið upp evru. Þessir gjaldmiðlar eru: austur- riskur skildingur, belgísk flórína, fmnskt mark, franskur franki, grísk drakma, hoflenskt gyflini, írskt pund, ítölsk líra, portúgalskur skúti, spænskur peseti og þýskt mark. Seðlabanki Evrópu birtir á vefsíðu sinni reiknistuðla sem not- ast þegar reikna þarf út gengi eldri gjaldmiðla út frá gengi evru. um. Amerískar Vísitala byggingarkostnaðar Á undangengnum tólf mánuöum hefur byggingarkostnaöur því veriö aö hækka hraðar en markaösverð húsnæðis. Vísitala byggingarkostnaðar hækkar lúxusdýnur Tilboð Vísitala byggingarkostnaðar hækk- aði um 0,1% á mifli maí og júní í ár. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,1%. I Morgunkomi íslandsbanka er bent á að á sama tíma hefur íbúðarverð, mælt með vísitölu neysluverðs, hækk- að um 3,6%. Á undangengnum tólf mánuðum hefur byggingarkostnaður því verið að hækka hraðar en mark- aðsverð húsnæðis. Þessa þróun má rekja aflt til upphafs árs 2001 og setur það mark sitt á framlegð við íbúða- byggingar og framboð nýbygginga. Á tímabilinu frá 1997 til 2001 hækkaði íbúðaverð hins vegar talsvert umfram byggingarkostnað og jókst framlegðin við íbúðabyggingar á þeim tíma að sama skapi. Tölur um útgáfu húsbréfa vegna nýbygginga einstaklinga endur- spegla þessa þróun. Á árunum 1999 og 2000 nam fjöldi húsbréfaafgreiðslna vegna nýbygginga einstaklinga 1.800-1.900 en eftir mikla hækkun hús- næðisverðs fór fjöldi afgreiðslna í 2.280 í fyrra og tölur þessa árs benda til svipaðs fjölda í ár. Amerískar heilsudýnur á tilboði. 25% afsláttur Skiþhoiti 35 • Sími: 588-1955 DEH-P7400 fyrir MP. Kr.74.900.- Mosiet 4\50W • 3 RCA utgangur • tonja' 24 stodva rainni* MP3/OEL skjar • FM. M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.