Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 Tilvera DV Breska ofurfyrirsætan Kate Moss hefur nú loksins séð að sér og er hætt að reykja, enda kasól- étt. Útsendari breska tískublaðsins Vogue segist hafa sé fyrirsætuna á Lundúnabamum Julie’s í fylgd nokkurra vina sinna. Tveir fyrr- um góðkunningjar Kötu voru þó fjarverandi, sígarettupakkinn og brennivínið í glasinu. Stúlkan var sem sé reyklaus og aðeins með kóka kóla í glasinu. Kate hefur annars verið alræmd fyrir partílíferni þar sem hvergi hefur verið slegið slöku við, reykt og drukkið eins og fjandinn sé laus. En nú er öldin sem sé önnur og var víst ekki annað að sjá en að fyrirsætan skemmti sér vel. Biogag‘nr>ni REUTERSMYND Magadans í Moskvu Þessar gildvöxnu konur stunduöu magadans af mikilli áfergju í tengslum viö fegurðarsamkeppni gildra kvenna í Moskvu síöasta dag júnímánaöar. Keppnin og annaö glens henni tengt var á vegum blaös unga fólksins. igíltgfiill " | Smárabíó/Sambíöin - Biack Knight; jr i Kate Moss loks hætt að reyk j a Hilmar Úr takti við tímann -=isl Valdib til fólksins Martin Lawrence í hlutverki nútímamannsins sem er á skjön viö miö- aldafólkiö. Martin Lawrence, er einhver mesti kjaftaskur kvik- myndanna. Hann fet- ar dyggilega í fótspor Eddie Murphys og er farinn að slá honum við í kjafthættinum. Þessi stanslausi vað- all getur verið ósköp þreytandi til lendar og það þarf sérstak- lega góða sögu til að vaðallinn í honum virki. Ekki er hægt að tala um handrit þar sem mig grunar að ekki sé farið mik- ið eftir þvl þegar Lawrence á I hlut. Þar sem Martin Lawrence hefur ein- hæfan tjáningarmáta þá eru það sjálfsagt aðeins hörðustu að- dáendur hans sem sætta sig við allt sem hann gerir. Þegar honum tekst best upp eins og í The Big Momma’s House þá er hann sjóðheitur húmoristi og uppfullur af prakkara- skap. Oftar hefur honum þó mistek- ist að ná til fjöldans og varla er nokkur leikari eins þreytandi og Lawrence þegar húmorinn er mislukkaður. 1 Black Knight er einstaklega áberandi hvað það háir honum að geta ekki verið öðruvísi en Martin Lawrence. Sagan er tímaflakkssaga sem hvorki er frumleg né sérstak- lega skemmtileg. Myndin reiðir sig á húmorinn hjá Martin Lawrence og hann gerir hvað hann getur til að halda áhorfendum við efnið svo úr verður nánast eins manns kvik- mynd sem stendur og fellur með því hvað vel þér líkar við Martin Lawrence. Og í þetta skiptið tekst honum ekki að ná upp rífandi stemningu. Lawrence leikur gæslumann í miðaldaskemmtigaröi sem verður á í messunni þegar hann teygir sig eftir djásni í síki sem hann er að hreinsa. Djásnið dregur hann niður í síkið og þegar hann kemur upp á yfirborðið er hann staddur í Evrópu á miðri fjórtándu öld þar sem barist er um landyfirráð. Eins og vænta má fer mikill tími í það hjá Lawrence að haga sér eins og nú- tímamaður innan um miðaldafólk. Hann ætlar fyrst og fremst aldrei að fatta að hann er ekki staddur í nýj- um kastalaskemmtigarði sem átti að fara að opna. Má segja að þarna sé um fyrsta hluta af skemmtidagskrá Lawrence þar sem gert er grín af ytri aðstæð- um sem hann telur að sé leikur. Þegar hann loks kemst að hinu sanna tekur við annar hluti af kunnáttu Lawrence. Þar gerir hann grín að þeim að- stæðum sem hann er kominn í og reynir að bjarga sér fyrir horn með þvi að þykjast ekki aðeins vera sendi- boði eins og misskiln- ingur hefur gert hann að, heldur einnig hirð- fifl. Lawrence lendir nú í ýmsum hremm- ingum, sem eru mátu- lega fyndnar til að halda áhorfandanum við efnið, en eru þegar grannt er skoðað ófrumlegar og byggðar á þekktum formúlum. Aðrir leikarar en Martin Lawrence eru nánast eins og statist- ar, snúast i kringum stjömuna eins og leikbrúður og leggja fátt til mál- anna. Hvað varðar skemmtanagild myndarinnar þá eru sum atriði sem bera það með sér að Lawrence er ekki allur þar sem hann er séður og ef hann ætlar að halda sig á toppn- um þá verður hann að gjöra svo vel að koma með nýjar og virkari hug- myndir. Leikstjóri: Gil Junger. Handrit: Darryl J. Quarles, Peter Gaulke og Gerry Swallow. Kvikmyndataka: Ueli Steiger. Tónllst: Randy Edelman. Aöalleikarar: Martin Lawrence, Marsha Tomason, Tom Wilkin- son og Vincent Regan. Bíófréttir Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum: Adam Sandler í fót- spor Gary Cooper Vinsælasta kvikmyndin í Bandaríkjunum um helgina var gamanmyndin Mr. Deeds. Um er að ræða endur- gerð klassískrar kvikmynd- ar, Mr. Deeds Goes To Town, sem Franka Capra leikstýrði og hafði Gary Cooper og Jean Arthur í aðalhlutverkum. í þeirra fótspor feta nú Adam Sandler og Winona Ryder. Mr. Deeds segir frá ungum manni sem kemur frá smábæ einum. Hann erfir óvænt vænan hlut í fjölmiðlaveldi eftir frænda sinn. Þegar hann er kominn til stórborgarinn- ar og tekinn við stjórnartaun- um þá leggur hann ofurá- herslu á að sýna kosti þess að búa í smábæ á borð við Mandrake Falls, en það er einmitt sá bær sem hann ól hann upp. Annars er það merki- legt við listann þessa vikuna hvað teiknimyndahetjur eru að gera það gott, Lilo & Stich og Hey Arnold! The Movie eru teiknimyndir og Scooby Doo og Spider-Man eru byggðar á teiknimyndahetjum. -HK ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. SÆTl FYRRl VIKA TUILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O _ Mr. Deeds 37.162 37.162 3231 © 1 Minority Report 21.590 73.424 3001 © 2 Lilo & Stich 21.515 77.086 3222 o 3 Scooby-Doo 12.362 123.950 3447 © 4 The Bourne Identity 11.197 72.902 2663 © _ Hey Arnold The Movie 5.706 5.706 2527 © 5 The Sum of All Fears 4.858 105.370 2486 © 7 Divine Secrets of the Ya-Ya.... 4.051 55.388 2167 © 9 Star Wars: Episode II 3.668 286.253 1801 © 6 Windtalkers 3.501 33.175 2529 0 10 Spider-Man 3.130 395.874 1810 © 8 Juwanna Mann 2.608 10.115 1325 © 14 My Big Fat Greek Wedding 2.002 19.340 493 © 15 Insomnia 1.101 63.706 866 © 16 About a Boy 939 38.912 696 © 12 Undercover Brother 870 37.351 802 © 13 Spirit: Stallion of the Cimarron 752 70.374 1079 © 11 Bad Company 751 28.302 825 © 17 Space Station 573 10.607 55 © 19 Importance of Being Earnest 469 4.955 208 Vinsælustu myndböndin: Misheppnaöur stríðsrekstur Hin rómaða stríðsmynd Rid- léys Scotts tyllir sér á topp mynd- bandalistans þessa vikuna. Mynd- in er byggð á sönnum atburðum og segir frá versta afhroði banda- ríska hersins frá því í Vietnam- striðinu, misheppnaða herferð inn í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, til að hertaka nokkra liðsforingja stríðsherrans, Mo- hamed Farrah Aidid. Þetta var hættuför sem átti að taka rúman hálftíma, en tók rúmar átján klukkustundir. Að herforinni lokinni var stór borgarhluti orðinn að blóðugum vígvelli. Önnur ný kvikmynd sest ofar- lega á listann er það gamanmyndin Princess Diaries sem fjallar um ósköp venjulega ameríska skólastelpu, sem fær þá tilkynningu í haus- inn að hún sé prinsessa og eigi að erfa konugsdæmi í Evrópu. í ellefta sæti er svo enn ein nýja myndin, Serendipity, sem er rómantíks kvikmynd með John Cusack og Kate Beck- insale í aðalhlutverk- um. í allt eru það sex nýjar myndir sem koma inn á listann þessa vikuna. -HK Black Hawk Down Bandarískir hermenn fá að finna fyrir því hvernig er aö berjast viö leyniskyttur. SÆTI o © © o © o © © © 0 0 © © © © 0 ® 0 © © FYRRI VIKUR VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) Á USTA _ Black Hawk Down (myndformi 1 Spy Game (sam myndbönd) 3 Domestic Distburbance (háskólabíó) 2 The Princess Diaries isam myndböndi 1 HeÍSt (SAM MYNDBÖND) 2 Zoolander (sam myndbönd) 4 Training Day (sam myndböndj 5 11 I Am Sam (myndform) 2 5 From Hetl (skífan) 3 _ Serendipity (skífan) 1 6 Behind Enemy Lines (skífan) 4 13 Riding In Cars With Boys (skífanj 2 _ Repli-Kate (sam myndböndi 1 8 The Glass House (skífan) 5 _ American Outiaws (sam myndbönd) 1 10 Bandits iskífan) 6 9 Summer Catch (sam myndböndi 3 15 Out Cold (MYNDFORM) 6 _ No Man’s Land (góoar stundir) 1 12 Corky Romano (sam myndbönd) 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.