Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Page 19
19 ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 2002 DV Tilvera •Uppákomur BGönguferft um Viðev i kvöld verður farin gönguferð um Viðey. Farið verður um austurhluta eyjunnar að minjum lítils en öflugs útgerðarþorps sem þar reis í byrjun síðustu aldar. Þar verður saga þorpsins rakin í stuttu máli en áætlað er að ferðin taki um klukkustund. Gamanið mun hefjast með siglingu yfir sundið með Viðeyjarferjunni kl. 19.30. Leiðsögnin sjálf er endurgjaldslaus en í ferjuna kostar 500 krónur fyrir fullorðna en 250 fyrir börn. Fólki er bent á að klæða sig eftir veðri og hafa góða skó meðferðis. •Opnanir ■Mórar í Gallerí Skugga Sýningin “Mórar/nærvídd" var opnuð í Gallerí Skugga síöustu helgi. Sýningin, sem er samvinnuverkefni Katrínar El- varsdóttur Ijósmyndara og Matthíasar M.D Hemstock tónlistarmanns, notar samspil mynda og hljóðs til að draga fram hiö dularfulla t tslensku umhverfi. I Mórum-nærvtdd leggja listamennirnir áherslu á hina sálrænu hliö minja, staða og skynjunar. Til að nálgast þessa hlið tengja þeir saman myndir og hljóð með það aö markmiði að sýningargestir upplifi stöðnun fortíðarinnar samttmis þvt að skynja framrás ttmans og eyðandi áhrif veðurs og vinda á mannvirki og bústaði. Bæði hljóð og Ijósmyndir eru teknar á ýmsum stöðum á landinu og nákvæm staðsetning þeirra er áhorfendum óljós. Ö Sýningin stendur til 14. júlí. Gallert Skuggi er opinn frá kl. 13 til 17 alla daga nema mánudaga. PPortúgölsk listakona í Gallerí Tukt Elsa Rodrigues, ung listakona frá Lissa- bon í Portúgal, opnaði um stöustu helgi einkasýningu t Gallerí Tukt. Elsa byrjaði á undirbúningi verkanna þegar hún dvaldi á íslandi á síðasta ári. Hún sýnir Ijós- myndir þar sem hún notar sjálfa sig sem efnivið til að túlka viðfangsefnin. í gegn- um linsuna reynir hún svo aö endur- spegla hvað hún hugsar og skynjar hverju sinni. Sýningin stendur til 14. þessa mánaðar og eru allir velkomnir aö líta inn og skoöa hvað fram fer. BSogið i Gallerí Hlemmi Magnús Sigurðarson opnaöi nýlega aðra einkasýningu stna t Gallerí Hlemmi. Sýn- inguna nefnir listamaðurinn Sogið en við- fangsefni innsetningarinnar liggur á svið- um næringarfræðarinnar og pappírs ákefðar (fetish). Bakgrunnur og umgjörð verksins liggur t gamalli tilvitnun þar sem RabbiAkiba (t rómverskri fangavist) sagði við uppá- haldsnemandann sinn, Stmon ben Yochai: Sonur minn, meira en kálfurinn sækist eftir að sjúga óskar kýrin eftir því að gefa. Magnús hefur haldið fjölda einka- og samsýninga, bæði hér heima og erlendis. ðllum er velkomið að Itta inn og skoða sýninguna en fólk er jafnframt hvatt til að hafa regnföt með sér. Gallerí Hlemmur er í Þverholti 5 en opið er fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Heimasíöan er galleri.hlemmur.is og eru allar nánari upplýsingar þar aö finna. ■Vatnskennd svning á ísafirði ÖNNUR, sýning fimm myndlistarmanna, var opnuð í Slunkaríki á Isafirði á laugardag. Sýningin stendurtil 14. júlí en myndlistarmennirnir sem þar sýna verk sín eru Birta Guðjónsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Guðlaugur Valgarðsson, ída Sigríður Kristjánsdóttir og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Almenningur er hvattur af sýningaraðilum til að mæta og stimpla sig inn í listalífið en grunur leikur á að þetta verði afskaplega vatnskennd sýn- ing. Lárétt: 1 frost, 4 vélræði, 7 hundur, 8 skilningarvit, 10 frumeind, 12 skop, 13 sáðland, 14 klifur, 15 læsing, 16 megna, 18 menn, 21 fiskinn, 22 tegund, 23 niska. Lóðrétt: 1 svaladrykk- ur, 2 frestaði, 3 rangla, 4 glöggur, 5 speki, 6 óhreinindi, 9 aukaspii, 11 frábrugðna, 16 okkur, 17 kvendýr, 19 fataefni, 20 rölt. Lausn neðst á síðunni. Svartur á leik! Skömmu áður en Paul Morphy hélt til Evrópu og mátaði alla þar, mátaði hann nokkra landa sína í New York. Skákhæfileikar hans voru svo mikir að undrum þótti sæta, en Morphy var einfaldlega fljótari en aörir að leika hvössustu og „innihaldsmestu" leikj- unum. Hann var frá New Orleans og Umsjón: Sævar Bjarnason tefldi því miður aðeins í fáein ár áður en hann hvarf af sjónarsviðinu. En hann skildi eftir sig merkilega sögu og skákir og menn eru enn í dag að hugsa um hvað hann hefði haft að segja í nútímameistarana. Morphy var svo sannarlega á undan sinni samtíð! Hvítt: David Meek Svart: Paul Morphy Skoski leikurinn. New York (3), 1857 1. e4 e5 2. RÍ3 Rc6 3. d4 exd4 4. c3 dxc3 5. Rxc3 Bc5 6. Bc4 d6 7. h3 Be6 8. Bb5 Rge7 9. Rg5 0-0 10. Dh5 h6 11. RÍ3 Rg6 12. g4 Rce5 13. Rxe5 dxe5 14. g5 Dd4 15. Be3 Db4 16. Bxc5 (Stööumyndin) 16. - Dxb2 17. 0-0 Dxc3 18. BxfB HxfB 19. Hacl Db2 20. Bc4 Rf4 21. Ddl Rxh3+ 22. Kg2 Rf4+ 23. Khl Db6 24. gxh6 Bxc4 25. h7+ Kxh7 26. Dg4 Dh6+ 27. Kgl Bxfl 28. Hxfl Hd8 29. a4 Hd6 30. f3 Hg6 31. Kf2. O-l. Lausn á krossgátu___________ •joa 02 ‘tie; 61 n ‘sso 91 ‘B5jno n ‘uasipr 6 ‘ureij 9 ‘}ia q ‘uuAsdJBJjs f ‘;sBjBptrep g ‘ojp z ‘so3 1 :;;pjpori ■jjnu ez ‘IJOS ZZ ‘EunsA \Z ‘JB}Á 81 ‘eijjÓ 91 ‘sb( qi ‘IjJd n ‘BJJja 8T ‘-rep 21 ‘uiojB oi ‘uofs 8 ‘jHHBJ 1 ‘5ftAS \ ‘ppBS t hlQJPi — DV-MYND GVA Gömul þjóðlelð Það eru helst hestamenn sem fara hinar gömlu þjóöleiðir sem farnar voru áöur fyrr þegar hesturinn var aöalfar- artækiö. Myndin er tekin af hestafólki sem er aö fara yfir Þjórsá neöan Þrándarholts. Dagfari Með net út í búð Börn eru ekki lengur send út í búð. Það er að minnsta kosti ekki eins algengt og á árum áður. Þessar staðreyndir komu upp í hugann þar sem ég rölti um einn stórmarkað borgarinn- ar með innkaupakörfuna á undan mér. Þróun í verslun hefur verið í átt til stærri og hagkvæmari eininga og um leið hagstæðara vöruverðs. Um þá þróun er í sjálfu sér ekki nema gott eitt að segja. En hins veg- ar er það miður að börn fara ekki lengur út í búö, fara í mesta lagi út í sjoppu eftir spólu og nammi. Þegar ég og flestir á mínu reki voru á barnsaldri voru sendiferðir út í búð fastur þáttur í tilverunni. Dag hvern roguðust börn heim með fullt net (eða tösku) þar sem plastpokarnir höfðu ekki haflð innreið sína. í netinu var mjólk, brauð, kartöflur og jafn- vel fiskur og álegg. Mjólkin var keypt í mjólkurbúðinni, kart- öflurnar og áleggið hjá kaup- manninum, fiskurinn í fiskbúð- inni og brauðið í bakaríinu. Þannig var veruleikinn í þá daga. Peningur var settur í buddu ásamt tossamiða og hverju barni var fullkomlega Ijóst að það kostaði svo og svo mikið að borða. Pund af skyri, 100 grömm af hangikjöti sneiddu í bréf, tvær hyrnur af mjólk, ein af súrmjólk, normal- brauð og kartöflur í bréfpoka, sem reyndar var neyt- endaskandall þess tíma. Og ný ýsa, hausuð og slægð. Og það var eins gott að hafa bein í nef- inu ef húsmæður í sömu er- indagjörðum áttu ekki að troð- ast fram fyrir mann í röðinni. í dag mundu reglugerðarskrif- finnar í fjarlægum löndum sjálfsagt finna upp á að flokka svona sendiferðir undir svæsn- ustu barnaþrælkun en í mínum augum er þetta einfaldlega hluti af skóla lífsins sem flest börn í dag fara á mis við. Haukur L. Hauksson blaöamaöur •V £ óke.í elekan. I guðanna bænum! Pað minnsta sem þú getur gert er að brosaí Bráðavakt Svona, brostu! betta er stor —n stund! Svona, Ýttu! járanum 6takk >myndavél upp í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.