Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2002, Side 32
 V.J* iJjii rdDDií ÍJ JdJLJjJJ J J^jJjjljíJjjJLjj Viðbótarlífeyrissparnaður Sími: 533 5040 - www.allianz.is ÞRIÐJUDAGUR 2. JULI 2002 Almannavarnir til RLS: „Kemur okkur mjög á óvart“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart. Ég held aö það lýsi því sem lýsa þarf. Við höfðum engin merki séð um að breyt- ingar væru i vændum," sagði Sólveig Þor- valdsdóttir, framkvæmda- stjóri Almanna- varna ríkisins, sprn'ð um þá vinnu og hug- myndir sem ffam hafa komið í dómsmálaráðuneytinu um að færa stofnunina til embættis Rík- islögreglustjóra. Sólveig segir að fyrir liggi að hér sé um að ræða ákvarðanir ráðuneytisins. „Ég held að fólk geti sagt sér sjálft hver viðbrögð starfsmanna eru en þetta er ákvörðun ráðuneytis. Það tekur ákvörðun um það stofnanaum- hverfi sem við lifum í og okkur starfsmönnum ber að fara eftir þvi,“ sagði Sólveig Þorvaldsdóttir. -Ótt Sólveig Þor- valdsdóttir. Ovenjumikil ölvun í nótt Óvenjumikil ölvun var i Reykja- vík í nótt og varð lögregla að hafa afskipti af fjölmörgum. Alls gistu 11 manns fanga- geymslur í nótt sem að sögn varð- stjóra er óvenjumikið ef miðað er við aðfaranótt þriðjudags. Hjá lögreglunni er helst talið að skýringanna sé að leita í því að í gær voru greiddar út bætur al- mannatrygginga og atvinnuleysis- bætur. Auk þess var almennur út- borgunardagur. Flestir þeirra sem gistu fangageymslur voru þar vegna einskærrar ölvunar en þó voru dæmi um innbrot og smá- vægilegar árásir. -rt DV-MYND JAK Fagnað í pottinum Keppnisliö Sundfélagsins Ægis fagnar hér tveimur íslandsmetum sem stúlknasveit félagsins setti í 4x50 metra og 4x100 metra boðsundi á Aldursmeistara- móti íslands sem fram fór á Laugarvatni um helgina. Eins og sjá má er mikil ánægja meö árangurinn. Sjá má umfjöllun um mótiö í DV Sporti í dag. Sterkar líkur á nýjum yfirtökutilboðum í SPRON Bankaráð Landsbanka: Engar skýringar gefnar á frestun Kosningu í nýtt bankaráð Landsbankans var í gær frestað um óákveðinn tíma. Ríkisstjórnin hafði ákveðið að boða til hluthafa- fundar og kjósa nýtt bankaráð ef 20% eignarhlutur ríkisins í bank- anum yrði seldur og eins og kunn- ugt er seldist allt upp á 15 mínút- um. Það var viðskiptaráðherra sem bað um frestun en skýringar liggja ekki fyrir. Dagskrártillaga ráðherra var þannig: „Hluthafafundur Lands- banka Islands hf. ályktar að fresta um ótiltekinn tíma kosningu í bankaráð. Til framhaldshluthafa- fundar verður boðað samkæmt ákvörðun 14. greinar samþykkta fyrir Landsbanka íslands hf.“ Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra er stödd í útlönd- um og gegnir Halldór Ásgrímsson ráðherradómi fyrir hana. Banka- ráðsmenn vilja ekki tjá sig um skýringar frestunarinnar en visa á ráðherra. DV náði hvorki tali af Halldóri né ráðuneytisstjóra við- skiptaráðuneytisins. -BÞ Tveir bankar eru í startholunum Nauteyri enn bedið niðurstöðu Fjármálaeftirlits Eldur í félagsheimili Enn er beðið niðurstöðu Fjármála- eftirlitsins um lögmæti yfirtökutil- boðs fimm stofnfjáreigenda og Búnað- arbankans i SPRON. Eins og sagt var frá í DV á laugardag munu bæði ís- landsbanki og Landsbanki íhuga að gera svipuð yfirtökutilboð í SPRON, en bíða nú átekta. Ljóst virðist að báð- ir bankarnir eru i startholunum og tilbúnir að gera yfirtökutilboð ef grænt ljós fæst frá Fjármálaeftirlit- inu. Bjarni Ármannsson, bankastjóri Is- landsbanka, sagði fýrir helgina að staðan yrði metin í ljósi niðurstööu Fjármálaeftirlitsins. Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbankans, sagði i samtali við Ríkisútvarpið að 5 stofnfjáreigenda í I Sparisjóði Reykja- I víkur og nágrennis. 1 Sagði Halldór æski- I legast að slíkt verði . j JH gert í góðri sátt við | stofnfjáreigendur. Ekki náðist i Hall- dór i morgun varö- Páll Gunnar andi það hvort slíkt Pálsson. yfirtökutilboð Landsbanka væri þegar fullmótað. Ekki náðist heldur í Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, í morgun, en stofnunin hefur 4 vikur til að afgreiða málið frá því gögn ber- ast og reynt verður að flýta því eins og kostur er. -HKr. Eldur kom upp í félagsheimilinu á Nauteyri við ísafjarðardjúp í nótt. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík barst útkall klukkan rúmlega fjögur og logaði m.a. mikið í þakinu þegar slökkviliðið kom á staðinn. Þrír reykkafarar fóru fljótlega inn í hús- ið sem var alveg mannlaust. Fljót- lega náðust tök á eldinum og gekk slökkvistarf nokkuð vel eftir það. Þakið á húsinu er ónýtt eftir elds- voðann og húsgögn mikið skemmd vegna reyks og vatns. Eldsupptök eru ókunn -vlg Bjarni Halldór J. Ármannsson. Kristjánsson. bankinn bíði eftir niðurstöðu Pjármálaeftirlitsins áður en ákvarðanir verði teknar um hvort bankinn reyni yfirtöku á sparisjóðn- um. Hann segir bankann tilbúinn að taka þátt í svipaðri yfirtöku og Búnað- arbankinn sé nú að reyna með aðstoð ÆTU ÞETTA GANGI UPP? Byltingarkenndar tannviðgerðir: segir Egill Jónsson tannlæknir 36 milljónum króna hefur verið safnað í hlutafé fyrirtækisins Globodent á Akureyri. Egill Jóns- son, hugvitsmaður og tannlæknir, sagði í samtali við DV í morgun að málið væri á viðkvæmu stigi en hann væri bjartsýnn á að dæmið myndi ganga upp. „Öll svona þróun- arvinna gengur hægt en það eru a.m.k. 99,9% líkur á að þetta gangi upp hér á Akureyri,“ sagði Egill. Egill fékk sjálfur Globodent-hug- myndina en hún snýst um bylting- arkenndar breytingar á tannvið- gerðum. Hug- myndin er að bora töluvert stóra holu í hverja tönn og fylla síðan upp með stöðluðum fyllingum úr postulíni. Litm- fyllingarinnar yrði sá sami og tannarinnar og því kallast verkefii- ið „Black is out“. Með þessu myndi komum stórfækka til tannlækna að sögn Egils og yrði fyllingin jafngóð því sem þekkist í dag en mun ódýr- ari að sögn hans. Globobent er ætl- að aö framleiða postulínsfyllingar til að gera við skemmdimar. Egill sagði að tannlæknar, verk- fræðingar og kunningjar hans væru meðal þeirra sem fjárfest hefðu í hlutafélaginu. I viðtali DV við Egil í fyrra um þetta mál sagðist tann- læknirinn vonast til að Globodent gæti orðið stórt fyrirtæki á alþjóöa- vísu og nefndi 50 milljarða króna í því efni. -BÞ Talaðu við okkur um Egill Jónsson. Auðbrekku 14, Loforð er loforð Sportvörugeröin Skipholt 5, s. 562 8383

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.