Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 Fréttir DV Maðurinn sem missti handleggina við að taka á 11 þúsund volta raflínu: Guðmundur glaður að fá dæmdar 15 milljónir - er nýbúinn að fá grædda í sig lifur í Kaupmannahöfn - einnig afleiðingar slyssins I Kaupmannahöfn með nýja lifur ígræöslan virðist hafa tekist vel og nýja líffæriö hefur aölagast eins og vonir stóðu tii. Guömundur Felix á pantaö far heim til íslands á þriðjudag. „Ég er mjög ánægður með að hafa fengið botn í málið. Þó því kunni að verða áfrýjað er þessi dómur alla vega búinn að gefa linu,“ segir Guð- mundur Felix Grétarsson, 30 ára rafveituvirki, sem missti báða hand- leggi í janúar 1998 þegar hann tók á 11 þúsund volta háspennuvir í Úlf- arsfellslínu. Orkuveita Reykjavíkur og Sjóvá- Aimennar voru í gær dæmd til að greiða honum 15 milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna slyss- ins sem þýddi afdrifarik umskipti í lífi hans. „Ég er mjög ánægður með þau sakarskipti sem dómarinn dæmir. Orkuveit- an og tryggingamar höfðu boðist til að greiða mér 2/3 af því sem ég krafðist. Með því hefði ég viðurkennt að bera 1/3 hluta sakarinnar. Á það féllst ég ekki og er því mjög ánægður með dóminn enda taldi ég mig ekki bera neina sök,“ sagði Guðmundur Felix. Hinir steíhdu eru einnig dæmdir til að greiða honum vexti rúm 4 ár aftur í tím- ann, þegar slysið átti sér stað, auk 1 mÚIjónar króna í máls- kostnað. Gera má ráð fyrir að drátt- arvextir nemi a.m.k. 3 milljónum króna. Tryggingafélagið hafði þegar greitt Guðmundi Felix 15 milljón krónur í þeim hluta málsins sem þótti óumdeildur. Var aö fá nýja lifur Þegar DV ræddi við Guðmund Felix I gær var hann á leið frá Rigs- hospitalet í Kaupmannahöfn niður í miðborgina. Á sjúkrahúsinu fékk hann nýja lifur grædda í sig fyrir einungis þremur vikum - aðgerð sem hann hafði beðið eftir lengi. Eftir slysið hefur líf þessa unga manns einkennst af miklum veikind- um og breytingum á högum. Honum var haldið sofandi i rúma tvo mán- uði og gefið mikið af ljfjum á sjö mánaða sjúkrahúslegu. Þegar líkam- inn gengur í gegnum svo mikið áfall, m.a. vegna mikils bruna sem leiðir til útlimamissis, verður mikið álag á stærstu líffæri líkamans eins og lifr- ina. Hún fór að gefa sig og virðist Guðmundur Felix nú loks hafa feng- ið bót sinna meina að því leyti sem unnt er enda var líkamsstarfsemi hans öll úr lagi gengin. Hann hefur verið með gervihandieggi frá því hann komst á fætur og fékk mátt til að takast yfirhöfuð á við slíkt: „Ég hef aðlagast gervihöndunum, maður venst þessu sjálfsagt aldrei en það er hægt að lifa með þessu og hægt að nota þetta. Eftir slysið eyði- lagðist lifrin og það hafði verið að versna og versna," sagði Guðmund- ur Felix. Framtíðin óljós En verði þetta niðurstaðan eins og dómurinn í gær felur í sér, hvort sem áfrýjað verður eða ekki, hvern- ig horfir framtíðin nú fyrir Guð- mundi Felix? „Því er erfitt að svara núna. En ætli ég reyni ekki að finna mér hús- næði og haldi svo áfram með lifið," sagði Guðmundur Felix sem er tveggja barna faðir. Hann segir skaðabótaupphæðina afstæða. Þar séu einfaldlega reikn- ingslegar forsendur byggðar á dómi. Hann segir að með hliðsjón af þeim skaða sem slysið olli honum mættu bæturnar í raun vera hærri. En Guðmundur Felix fór ekki fram á meira, hann fékk nánast allt dæmt sem lögmaður hans krafðist. Guðmundur Felix Grétarsson á pantað flug heim til íslands á þriðjudag. Ef allt gengur að óskum mun hann komast heim þá. „Þetta er búið að ganga með ólíkindum vel hér í Kaupmannahöfn. Tveir sem komu á undan mér á sjúkrahúsið til að fá nýja lifur liggja enn þá á gjör- gæsludeild, Ég gæti því varla verið heppnari.“ -Ótt Slakað á í Kaupmannahöfn Guömundur Felix ásamt foretdrum sínum, Grétari Felixsyni og Guöiaugu Þórs ingvadóttur. Þau hafa dvaliö ytra allan tímann. Vill að allt Fjármálaeftirlitið víki í Spron-málinu: Einsýnt að mönnunum beri að víkja - segir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður hefur krafist þess að allt Fjármála- eftirlitið víki í máli sem tengt er máli stofnfjáreigendanna fimm sem hafa fyrir hönd Búnaðarbankans gert tilboð i Spron. Afskipti Fjármálaeft- irlitsins snúa að því hvort heimilt sé að greiða yfirverð fyrir stofníjárhluti í Spron, en stjóm sjóðsins óskaði eftir úrskurði stofnunarinnar þessa. Bent er á aö forstjóri og aðstoðar- forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi setið í nefnd sem fjallaði um lagaumhverfi sparisjóða. Með þeim I nefndinni sátu Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Spron, og Sigurður Hafstein, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra spari- sjóða. Sá síðarnefndi sendi svo fyrr í þessum mánuði bréf fyrir hönd sambands sparisjóða til Fjár- málaeftirlitsins. Efni þess voru vangaveltur um að texti sem ekki birtist í lögum um sparisjóði frá því í fyrra ætti að gilda sem fullgild lagatak- mörkun á meðferð stofnfiár- hluta í sparisjóðum. Texta þennan var að finna í at- hugasemdum með frumvarp- tnu. „Vanhæfi forstjóra og að- stoðarforstjóra Fjármálaeftirlitsins stafar af því að þeim er ætlað að úr- skurða um deilumál sem meðnefnd- armenn þeirra eru aðilar að og hafa til hliðsjónar lögskýringar sem byggja á nefndaráliti samið af þrem- ur umræddra manna," segir í til- kynningu frá stofnfiáreigendunum fimm sem sent var til fiölmiðla í gærkvöld. „Ég tel einsýnt að mönnunum beri að víkja sæti og ég á ekki von á neinum öðrum viðbrögðum en þeim vegna þessarar kröfu,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson i samtali við DV. Hann segir að sér þyki fráleitt að sparisjóðamenn vilji að texti sem er meðfylgjandi áðurnefndum lög- um öðlist lagaígildi nú. Og að for- svarsmenn Fjármálaeftirlitsins, sem einnig komu að lagasmiðinni, úrskurði í þá veruna. „Minir menn munu ekki una þessu,“ sagði Jón Steinar. -sbs Jón Steinar Páll Gunnar Guömundur Gunnlaugsson. Pálsson. Hauksson. vegna Karl framkvæmdastjóri Karl Th. Birgis- son hefur verið ráð- inn framkvæmda- stjóri Samfylkingar- innar frá og með 1. september næstkom- andi. Björgvin G. Sigurðsson lætur af starfinu á sama tíma en hann hefur afráðið að bjóða sig fram til þingmennsku í hinu nýja Suðurkjördæmi í kosningunum. ítreka tillögur Sjálfstæðismenn ítrekuðu með bókun í borgarráði í gær tillögur sínar um að leitað yrði fleiri hug- mynda um varðveislu og sýningu fomminja í Aðalstræti svo að þær verði hluti af götumynd Aðalstrætis og notið verði þess vitnisburðar sem þær gefa um upphaf byggðar í landinu. Samþykkja álver Stjórn Alcoa samþykkti á stjórn- arfundi í gær að fela stjómendum fyrirtækisins að halda áfram við- ræðmn um byggingu nýs álvers á ís- landi. Næsta skrefið verður að ganga frá viljayfirlýsingu á milli Alcoa, rikisstjórnar Islands og Landsvirkjunar vegna verkefnisins. Besti bankinn Besti alhliða banki á íslandi. Hið virta fiármálatímarit, Euromoney, gefur íslandsbanka þessa einkunn en það veitir árlega verðlaun og út- nefnir bestu fiármálastofnanir í heiminum. „Þessi tilnefning hefur þýðingu," segir Valur Valsson bankastjóri. Framlengir varöhald Héraðsdómur Reykjavíkur fram- lengdi í dag gæsluvarðhald yfir þremur karlmönnum til 16. október. Mennirnir era grunaðir um hlut- deild í stærstu fíkniefnasendingu sem lögregla hefur lagt hald á í einu lagi. Málið snýst um smygl á 30 kg af hassi í mars sl. vetur. RÚV greindi frá. Álið hækkar krónuna Gengi íslensku krónunnar hækk- aði um 0,65%. Á Mbl.is er haft eftir sérfræðingum Islandsbanka að hækkunina megi rekja til frétta af því að stjórn bandaríska álfyrirtæk- isins Alcoa ætli að gefa grænt ljós á áframhaldandi viðræður við íslensk stjórnvöld varðandi byggingu álvers. Ber blak af VG Gísli Gunnarsson, forseti sveitar- stjómar Skagafiarð- ar, segir óeðlilegt að kenna VG einum um breytta afstöðu sveit- arfélagsins til virkj- unar við Villinganes. Hann segir orð iðn- aðarráðherra um málið bera vott um yfirlæti í garð sveitarfélagsins. Engin sprengja Hættuástandi á Keflavíkurflug- velli var aflýst undir kvöld eftir að sprengjusérfræðingar Landhelgis- gæslunnar höfðu leitað af sér allan grun um að sprengja væri í lítilli einkaþotu sem þar lenti síðdegis. Sjö manns voru um borð í þotunni. Hótelum fjölgar Hótelum mun fiölga til muna á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Talið er að minnsta kosti sex ný hótel, sem verða 3 til 4 stjömu, muni risa i borginni auk þess sem viðbyggingar eru fyrirhugaðar við tvö hótel. Ef þetta gengur eftir mun hótelherbergjum fiölga um nærfellt helming á svæðinu. Nýting hótel- herbergja hefur hins vegar staðið í staö undanfarin ár. RÚV sagði frá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.