Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 DV Al-Qaedaliöi bíöur flóttafæris. AI-Qaeda-liðar leita flóttaleiða Liösmenn al-Qeda-samtakanna, sem farið hafa huldu höfði í Afganistan eftir fall talibanastjóm- arinnar, eru nú sagðir leita nýrra flóttaleiöa út úr landinu, til að sleppa undan sérsveitum banda- ríska hersins sem leitað hafa þeirra í fjalllendi Afganistans síðustu mán- uðina. Að sögn talsmanns stjómvalda í Tadsjikistan hafa þarlendir landamæraverðir nýlega orðið varir við hópa al-Qaeda-liða nálægt landa- mærunum I Badakhshan-héraði og er óttast að þeir muni reyna að komast yfir landamæri verið að þeim þrengt. „Við emm við öllu búnir og höf- um fjölgað um helming í gæsluliö- inu, auk þess sem við höfum fengið liðsstyrk frá rússneska hemum,“ sagði Nuralisho Nazarov, yfirmaður landamæragæslunnar, og bætti við að þeir gætu í raun ekki leitað ann- að eftir að þeir voru hraktir frá landamærunum við Pakistan. Forsetinn hætti við ferðina til Ufa Kaspar Villinger, forseti Sviss, hætti í gær við að vera viðstaddur minningarathöfn i Ufa, höfuðborg Bashkostostan-héraðs í Rússlandi, sem haldin var vegna þeirra 45 barna frá borginni sem létust í flugslysinu hræðilega í síðustu viku, þar sem tvær flugvélar rákust saman yfir Þýskalandi á svissnesku flugstjómar- svæði vegna mistaka fiugumferðar- stjóra. Að sögn talsmanns forsetans var hætt við ferðina af öryggisástæð- um, þar sem borgaryfirvöld treystu sér ekki til að tryggja öryggi hans. Samgönguráðherra Sviss baðst í gær afsökunar á því að svissnesk yfir- völd hefðu í upphafi kennt flugmanni rússnesku vélarinnar um slysið og viðurkenndi mistök í flugstjórn. Innrás á Gaza-svæöiö. „Er ég að tryggja völd- in eða að deila þeim?“ - spurði Musharraf Pakistansforseti í þjóðarávarpi í gær „Er ég að tryggja völd mín eða er ég að deila þeim með ykkur?“ spurði Pervez Musharraf, forseti Pakistans, í ávarpi til þjóðar sinnar í gær og vitnaði þar í umdeildar til- lögur sínar um breytingar á stjórn- arskrá landsins sem miða að því að tryggja enn frekar völd hans. Þar er jafnvel gert ráð fyrir því að hann fái vald til að reka forsætisráðherrann og alla ríkisstjórn landsins frá völd- um, auk þess að leysa einhliða upp þjóðþingið og senda það heim sýnist honum svo. Musharraf, sem tók við völdum í landinu árið 1999, fullyrti að breytingarnar á stjórnarskránni væru nauðsynlegar til að tryggja varanlegt lýðræði í landinu, en ekki er Ijóst hvort hann ætlar að leggja þær fyrir þjóðþingið eða koma þeim á með einhliða tilskipun. Þegar Musharraf kom til valda lofaði hann þjóðinni að koma á lög- um og reglu i landinu og i gær ítrek- aði hann þá ætlun sína að uppræta Pervez Musharraf. múslímskar öfgahreyfingar sem víða hafa farið með vopnavaldi i landinu. Fyrr í vikunni hafði Musharraf boðað til þingkosninga þann 10. október nk., þeirra fyrstu síðan hann kom til valda eftir þögula upp- reisn. Áður hafði hann sett ný lög sem banna fólki sem gegnt hefur ráðherradómi í tvö kjörtímbil eða meira að bjóða sig fram, en með því kemur hann í veg fyrir að tveir helstu andstæðingar hans, þau Ben- azir Bhutto og Nawaz Sharif, fyrr- um forsætisráðherrar, geti boðið sig fram fyrir stærstu stjómarand- stöðuflokkana. Það er vilji stjómarandstæðinga að forsetinn, sem tryggði sér fimm ár til viðbótar i forsetastóli í þjóðar- atkvæðagreiðslu í aprfi sl„ víki sæti fyrir kosningamar og að óháð skip- uð ríkisstjóm sjái um framkvæmd kosninganna. Öðravisi sé ekki hægt að tryggja frjálsar og lýðræðislegar kosningar. Ólíklegt er að Musharraf verði við þeirri ósk, þar sem hann virðist ekki treysta öðmm en sjálf- um sér til að fara með völd. REUTERSMYND Rlsastórt veitingaborö Þetta glæsilega útisvið, sem er eins og risavaxiö borö á franskri veitingakrá, var nýlega smíöaö á bökkum Konstance- vatns í Þýskalandi í tilefni flutnings óperunnar La Bohéme á árlegri Bregenz-listahátíö sem hófst í gær. Þrettán milljónir manna svelta: Skelfilegt ástand á hungur- svæðunum í suðurhluta Afríku Tveir Palestínu- menn skotnir til bana á Gaza ísraelskir hermenn skutu snemma i gærmorgun tvo Palest- ínumenn, 19 ára byssumann og 22 ára lögreglumann, til bana í innrás í bæinn Deir E1 Balah á Gaza-svæð- inu. Að sögn talsmanns ísraelska hersins kom til skotbardaga þegar innrásin var gerö, en ætlunin mun hafa verið að hafa hendur í hári meints hryðjuverkamanns í bæn- um. Þá lést palestinskur blaðamaður í gær, en hann hafði orðið fyrir skoti þegar israelsk herdeild hóf skothríð á hóp óbreyttra borgara í Vesturbakkabænum Jenin kvöldið áður. Matvælastofnun Sameinuðu þjóð- anna hefur ítrekað hjálparbeiðni sína til alþjóðasamfélagsins, um 500 milljóna dollara fjárstuðning til handa þrettán milljónum sveltandi fólks í suðurhluta Afríku. Stofnunin sendi fyrst út hjálparbeini í byrjun júlí og hefur síðan aðeins fengiö lof- orð fyrir um 130 milljónum dollara upp í áætlaða þörf. Bandaríkjastjórn mun þar af hafa lofað 98 milljónum dollara. Neyðin er mikil og hefur Alþjóða heilbrigðisstofnunin nýlega varað við því að um 300 þúsund manns muni deyja hungurdauða á næstu sex mánuðum berist hjálp ekki strax, en áætlað er að flytja þurfi um millj- ón tonn matvæla á svæðið frá Malawí til Lesotho til að koma í veg fyrir algjöra neyð. Til þessa em Bretland, Kanada og Holland einu löndin sem svarað hafa Beölö eftir mat Um þrettán milljónir manna svelta heilu hungri í suöurhluta Afríku. kalli Matvælastofnunarinnar, en auk þess hefur Evrópusambandið lagt tfi verulegar birgðir fram hjá skipu- lagðri starfsemi Matvælastofnunar- innar. Að sögn Michaels Curtis, tals- manns Evrópusambandsins, er áætl- að að ESB sendi um 200 þúsund tonn af matvælum á svæðið, en þegar hafi verið send matvæli að andvirði um 90 milljónir dollara og eigi sú upp- hæð eftir að hækka I 150 milljónir dollara fyrir haustið. Að sögn talsmanna hjálparstofn- ana á svæðinu em þær birgðir sem þegar hafa borist aöeins dropi í hafið og verði ekki bmgðist við með hraði bíði fólksins ekkert annað en algjört svelti og dauöi. „Ástandiö er skelfi- legt og öragglega það alvarlegasta sem heimsbyggðin horfir fram á þessa stundina," sagði einn hjálpar- starfsmanna. 1 Powell til Asíulanda Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, mun seinna í mánuðinum halda í átta landa heimsókn til Asíu- landa og er tilgangur ferðarinnar að kanna stöðuna í deilu Indlands og Pakistans, auk þess að ræða við ráðamenn landanna um áframhaldandi baráttu gegn hryðju- verkum í heiminum. Löndin sem Powell heimsækir eru Taíland, Indónesía, Brúnei, Singapúr, Malasía og Filippseyjar auk Indlands og Pakistans. Fylgst með al-Qaeda Bandaríska CNN-sjónvarpstöðin greindi frá því í gær að ónafhgreind- ur talsmaður stjómvalda hefði upp- lýst að alríkislögreglan FBI hefði að undanfómu fylgst náið með grunuð- um samstarfsmönnum al-Qaeda-sam- takanna í nokkrum stærstu borgum Bandarikjanna, þar á meðal í Seattle, Chicago, Atlanta og Detroit. Talsmað- urinn vildi ekkert segja um fjölda þeirra sem fylgst er með, annað en það að þeir væru innan við hundrað. Að öðru leyti vildi hann ekki ræða málið. Þetta er í fýrsta skipti sem stjómvöld greina með svo ákveðnum hætti frá hugsanlegri hryðjuverkaógn innan Bandaríkjanna. Bush fékk vaxtaafslátt Talsmenn Bush Bandaríkjaforseta neituðu því i gær að forsetinn hefði feng- ið vafasöm lán á lág- um vöxum þegar hann var fram- kvæmdastjóri orku- fýrirtækisins Harken Energy Corporation á áttunda áratugnum, eins og stjómarandstæð- ingar hafa sakað hann um, en Bush mun þá hafa tekið meira en 180 þús- und dollara að láni með 5% vöxtum þegar meðalvextir voru 7,5%. Bardagar í Kasmír Yfirvöld í Kasmír segja að ind- verskir hermenn hafi skotið að minnsta kosti sjö liðsmenn aðskilnað- arsinna múslíma til bana í hörðum skotbardaga í Poonch-héraði í gær. Talsmaður hersins sagði að herdeild- in hefði verið í könnunarleiðangri þegar hún uppgötvaði fylgsni skæru- liðanna nálægt bænum Surankot og hefði bardaginn staðið lengi dags. Þá var indverskur hermaður skotinn til bana i Samba-héraði i gær, en þar skiptust indverskir og pakistanskir hermenn á skotum yfir landamærin. Samið um fangaskipti Sheikh Hassan Nasrallah, helsti for- ingi Hezbollah-skæm- liða í Líbanon, sagði í gær að viðræður um fangaskipti hefðu far- ið fram við ísraela að undanfórnu. Þýskir embættismenn munu hafa stýrt viðræðunum. Er hugsanlegt að Marwan Barghouti, helsti foringi Fatah-hreyfmgar Yassers Arafats sem verið hefur í haldi ísraelsmanna síðan í apríl, sakaður um að hafa skipulegt hryðjuverk, verði leystur úr haldi auk 100 líbanskra fanga í skiptum fyrir viðskiptajöfurinn Elhanan Tennen- baum, sem verið hefur fangi Hez- bollah-skæruliða í tæp tvö ár. Sangatte-búðunum lokað Bretar og Frakkar hafa loksins náð samkomulagi um að Sangatte-flótta- mannabúðunum við Ermarsunds- göngin í Frakklandi verði lokað og verður það gert í síðasta lagi í byijun mars á næsta ári. Hundar í sprengjuleit ísraelsk stjómvöld hafa ákveðið að hefja þjálfun hunda til að koma í veg fyrir sjálfsmorðárásir. Hundarnir verða fluttir frá Bandaríkjunum og sjá bandarískir gyöingar um að út- vega þá. Verkefhið hefur hlotið nafnið „Pups for Peace" eða „Friðarhvolp- amir“ og verða þeir þjálfaðir til að þefa uppi sprengiefhi. inamKmtiUHttaíiiftHiumiinuniuwiiuuituftHiiHHiHti-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.