Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Qupperneq 10
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlið 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Frygðarfárið á skjánum Átakanlegt hefur verið að fylgjast með myndbandagerð helstu tónlistargoða unga fólksins á síðustu árum. Eftir því sem árin líða hefur fötunum fækkað. Nú er svo komið að tónlistarmaður getur varla gert ráð fyrir frægð og frama nema hann fetti sig og bretti eins og berstrípuð fata- fella framan við ágengar myndavélarnar. Öfgakenndir kynlífstilburðir virðast vera forsenda þess í dag að nýjasta dægurtónlistin komist til skila. Og má i sumum tilfellum vart sjá skilin á milli kynlífs og tónlistar. Lengst hefur þetta gengið hjá konum. Þar hefur sam- keppnin borið skynsemina ofurliði. Fari svo að áhorfandi skrúfi niður i hljóðinu og horfi aðeins á aðfarirnar á þögl- um skjánum verður ekki annað séð en listamaðurinn sé lagstur með sjálfum sér í eitt allsherjar frygðarfár. Þetta getur verið raunaleg sjón. Það er eins og konur á stjörnu- himninum séu reiðubúnar að gera allt í skiptum fyrir frægðina. Nektin er þar á næsta leiti. Myndband með fyrstu alnöktu söngkonunni er aðeins spursmál um tíma. Efalitið eru efnilegar söngkonur beittar miklum þrýst- ingi i þessa veru. Og vísast er þar sagt að frægðin kosti sitt. Plötuútgefendur og umboðsmenn vísa væntanlega til frjálslyndis í von sinni um gildan gróða. Og ekki leiðist sjónvarpsstöðvunum að sýna sællegar stunurnar sem fylgja þessari nýjustu tónlist jarðarbúa þar sem blandað er saman kræfum takti og kynlífsþjónustu. Strikin hafa færst eða verið færð. Það sem einu sinni þótti særa blygðunar- kenndina þykir nú sjálfsagt og sætt. Vinsælasta söngkona landsins bendir á þessa þróun í áhugaverðu viðtali sem birtist í helgarblaði DV fyrir viku. Þar segir Birgitta Haukdal, söngkona írafárs, nýja frygð- arfárinu stríð á hendur. Birgitta hefur komist á toppinn í islensku tónlistarlífi í fullum herklæðum og fer ekki að fækka þeim úr þessu, enda segir hún fáránlegt að blanda saman tónlist og kynlífstilburðum með þeim hætti sem gert hefur verið á undanförnum misserum. Birgittu oíbýð- ur. Og hún virðist sár fyrir hönd kynsystra sinna. „Þessi myndbönd eru ömurleg,“ segir Birgitta og bætir við: „... ég bíð bara eftir því að við verðum að syngja berrassaðar hér á íslandi.“ Söngkonan gefur tónlistar- myndböndum margra frægustu stjarnanna heldur lága einkunn. Henni sýnist aðeins ein týpa komast að í þessum harða bransa úti i heimi: „Það eru bara megabeib í mynd- böndum með sílikon og búnar að fara i alls konar meiköpp sem er sorglegt því það setur svo mikla pressu á litlu stelp- umar sem eru að horfa á sjónvarpið." Birgitta Haukdal segir í téðu viðtali við DV síðasta laug- ardag að þessi nýja tegund brókarsóttar sendi slæm skila- boð til ungra kynsystra sinna. „Mér finnst svo sorglegt að allar litlu stelpurnar skuli vera að gera allt sem er sagt i sjónvarpinu af því þeim finnst þær eiga að vera fjörutíu kíló ...“ Og listakonan segir jafnframt á öðrum stað í við- talinu: „Þegar systir mín var sex ára fann ég hvað hún varð fyrir miklum áhrifum. Það er mjög vond þróun þeg- ar sex ára börn finna fyrir svona pressu ...“ Sönkonan kveðst vonast til að þetta breytist. Öll teikn eru hins vegar á lofti um að þessi tegund tónlistariðkunar ryðji sér til rúms á islensku sviði. Þrýstingurinn er alltént fyrir hendi: „Ég fór til dæmis í viðtal um daginn þar sem ég var beðin um að vera í bikiní,“ segir Birgitta. „Ég hélt nú ekki og þrætti við þá sem sáu um myndatökuna og sagði að ég væri söngkona en ekki fyrirsæta.“ Hér talar listakona með bein i nefinu, kona sem ólíkt mörgum hef- ur ekki þurft að stynja sér leið á toppinn. Sigmundur Ernir ■ '■■■n . - i i ............... iiií'ínÍlillfíiiiiffii'iTiirik LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 DV Æpandi einsemdin legur en aðeins var farið að draga af mér andlega. Ég var þó kinn- fiskasoginn. Það sá ég þegar ég leit í spegil. Tilþreytingar var þörf. Ég ákvað að fara á veitinga- hús, hitta fólk og ná mér um leið i næringu. Greinilegur einbúi Það hvarflaði að mér að fara á fínan stað, borða dýrt og láta þjóna mér almennilega. Ég hætti við það. Vissulega gat ég fengið góðan mat með þeim hætti en þá vantaði sárlega hinn félagslega þátt. Ég gat ekki hugsað mér að sitja í lengri tíma einn, milli for- réttar, aðalréttar og eftirréttar. Enn siður treysti ég mér til þess að taka umræðu við þjóninn í upphafi máltíðarinnar, hvar ég kæmi einn inn og bæði um borð. Ég sá fyrir mér er hann byði mér sæti og spyrði af lærðri kurteisi hvort ég vildi drykk meðan beðið væri dömimnar. Ég bjóst við svip- aðri meðferð á öðrum veitinga- stöðum, jafnvel þótt þeir væru ekki í dýrasta klassa. Niðurstað- an varð hamborgarastaður. Manneldissjónarmiðin voru enn fokin út í veður og vind. I biðröð skyndibitastaðarins horfði ég á litfagrar, upplýstar auglýsingar um rétti sem í boði voru. Ég var í vafa um valið og gat ekki leitað ráða hjá neinum. Þegar að mér kom vafðist mér tunga um tönn. Afgreiðslumaöur- inn, ungur og gæðalegur piltur, mældi viðskiptavin sinn út. Þama var kominn miðaldra mað- ur í jakkafötum, greinilega ein- búi. „ Ja,“ stamaði ég fyrir framan piltinn, „ég ætla að fá eitthvað að borða.“ Þetta var greindarlegur piltur að sjá svo eflaust hefur hann gert sér grein fyrir tilgangi ferðar minnar. „Hvað má bjóða herranum?" sagði pilturinn, kurt- Mér datt í hug að fara í búðina á horninu og biðja um eina kótilettu og eitt hvítkálsblað en hœtti við. Ég þóttist muna að kótilettur kœmu ekki fœrri saman en sex í bakka. Ég er þvi óvanur að vera einn. Það er kúnst sem án efa lærist en er nokkur lífsreynsla þeim sem alla tið hefur tilheyrt mörgum, hvort sem var í foreldrahúsum eða með eigin fjölskyldu. Eldri börn okkar hjóna hafa smám saman flogið úr hreiðrinu, eins og vera ber, og þegar við bættist þessa blíðu hásumardaga að kon- an og yngri dóttir skruppu i tíu daga utanlandsferð stóð ég frammi fyrir einsemdinni. Mér fannst fyrstu dagana eins og ég væri að svíkjast undan ein- hverju. Ég beið fyrirmæla en eng- inn bað um neitt. Ég kveikti á sjónvarpi og útvarpi og hélt rásinni jafnvel þótt ég héldi mig við gufuna. Það var hvorki skipt á Stöð 2 né Popp TV. Ég var einn í heiminum og komst að því, líkt og Palli forðum, að þeirri stöðu fylgja fleiri ókostir en kostir. Reynslunni ríkari er ég sammála Palla. Það er lítið fútt i þvi að vera einn. I þeim efnum gildir hið fornkveðna, maður er manns gaman. Ein kótiletta? Hvað gerir maður einsamall í fæöuöflun? Væntanlega matbúa þeir sem vanir eru einverunni, kaupa brauð og álegg, mjólk, fisk, kjöt, grænmeti og annað það sem tilheyrir heimilishaldinu, en í smáskömmtum þó. Ég kann það ekki. Við höfum alla okkar tíð keypt í kílóavls, borið heim marga poka, fjölda lítra af mjólk, læri og hrygg, hvít- og grænkálshausa, heilar melón- ur, stóra pakka af seríosi, komflexi eða kókópuffi. Við höfum gegnum tíðina verið mörg og ekki þurft að hafa áhyggjur af afgöngum. Nú stóð ég frammi fyrir nýrri stöðu. Vissulega voru eldri krakkamir farnir og við því smám saman að venjast viðaminni heimilisrekstri en þó aldrei færri en þrjú. Þrír mynda heimili, fjölskyldu. Það er hins vegar alveg á mörkunum að einn geri það. Mér datt í hug að fara í búð- ina á horninu og biðja um eina kótilettu og eitt hvítkáls- blað en hætti við. Ég þóttist muna að kótilettur kæmu ekki færri saman en sex í bakka. Þá sá ég ekki að kaup- maðurinn tæki í mál að fletta einu blaði utan af hvítkáls- hausnum og pakka honum inn að nýju. Ég ákvað því að þrauka fyrstu helgina heima, aleinn með sjálfum mér og treysta á eldri leifar i kæli- skápnum. Ég vissi að til var hálft brauð. Það þurfti því lít- ið til að gleðja mig við þessar aðstæður. Mér var borgið þeg- ar ég fann fjórðung oststykkis og hálft pepperóni-bréf. Á því lifði ég fram á mánudag auk þess sem ég hitaði mér te. Ég harmaði ekki síðustu brauðsneiðina. Hún var nokk- uð tekin að reskjast, osturinn búinn og aðeins ein pepp- eróni-sneið eftir. Nóg var þó af tepokum. Við svo búið mátti ekki standa. Ég fór í búð. Þar gekk ég milli hillurekka og horfði augum einbúans á matvöruna. Út fór ég með pylsupakka og viðeig- andi brauð, síldarkrús mar- ineraða, rúgbrauð og hangi- kjötssalat. Ekki veit ég hvaða dóm manneldisfræðingar leggja á þetta fæði en það dugði mér í þijá daga. Þróttur eis og öllu vanur. „Hvemig er þetta?" spurði ég og benti á mynd sem sýndi hamborgara veglegrar gerðar, grænmeti, franskar kart- öflur og gosdrykk. „Þú verður áreiðanlega saddur af þessu," sagði strákurinn þolinmóður og skilningsríkur. Hann hefur ef- laust séð hve ég var tekinn í framan, ekki beinlinis af sulti heldur röngu fæðuvali. Stutt dvöl Ég greiddi piltinum uppsett verð, tók við skyndibitanum og leitaði sætis. Allt í kringum mig vEir glaðvært fólk, foreldrar með böm, imglingar sem sötmðu sjeik milli þess sem þeir stungu saman nefjum, móðir með stálpaðar dæt- ur og eldri hjón. í fljótu bragði varð ég ekki var við einstaklinga. Ekki það að ég hefði sest hjá slík- um en samt. Þetta undirstrikaði æpandi einsemd mína. Afgreiðslupilturinn hafði fylgst með ferðum mínum og sá hvar ég stóð eins og þvara, einn með ham- borgara, franskar kartöflur og þijú tómatsósubréf. Hann kallaði til mín og benti mér á lítið borð, ætlað tveimur. Ég kinkaði kolli í þökk enda átti ég óhægt um vik að vinka manninum, haldandi á borgaranum. Ég kom matarbakk- anum fyrir á borðinu, hengdi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.