Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 16
16 Helgarblað LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 DV H.C. Andersen. Hann braust frá fátækt til frægöar. Ævintýri hans eru sígild en í byrjun var þeim tekiö af fálæti. Ævintýrið um Andersen H.C. Andersen gerðl œvlntýrl að bókmennta- greln. Hann var mjög sérstakur maður, barnslega einlœgur en um lelð hégómlegur og óttl tll að vera sjólfhœllnn. Hans Christian Andersen fæddist áriö 1805 í Óöinsvé, sonur ólæsrar þvottakonu sem kunni ekki að skrifa nafnið sitt. Faðir hans var mikill bókamaður og las fyrir son sinn og Andersen heyrði líka mikið af þjóðsögum og ævintýrum frá ömmu sinni. Faðirinn, sem var skósmiður, dó þegar Ander- sen var ellefu ára og var grafinn í fátækragröf. Móðir hans sá fyrir sér og syni sínum meö því að þvo þvotta í ánni. Á vetrum stóð hún úti í ísköldu vatninu allt upp í sex klukkutíma. Hún fór að drekka gin til að halda á sér hita og varð áfengis- sjúklingur. Þaö var áfengið sem að lokum lagði hana í gröfina þegar sonur hennar var orðinn fullorðinn maður. Andersen var fjórtán ára þegar hann fór að heiman og til Kaupmannahafnar, til að verða frægur, eins og hann sagði við móður sína. Spá- kona hafði eitt sinn sagt móður hans að dag einn yrði Óðinsvé upplýst vegna sonar hennar. Sá spá- dómur rættist áratugum seinna þegar mikil hátið var haldin í Óðinsvé Andersen til heiöurs. Barnsleg bjartsýni Andersen kom til Kaupmannahafnar fullur af bamslegri bjartsýni og viss um góðvilja ókunn- ugra. Fyrsta kvöldiö fór hann í óperuna og hreifst svo mjög af sýningunni að hann brast i grát. Aðr- ir sýningargestir hugguðu hann og gáfu honum epli. Eitt hans fyrsta verk í borginni var að berja að dyrum á heimili mestu ballerlnu borgarinnar. Hann vildi að hún útvegaði honum starf sem dansari. Hann fór úr skónum og dansaði á sokk- unum fyrir hana. Hún hélt að hann væri geðbil- aöur og lét visa honum út. Næst fór hann að heimili stjómanda Konunglega óperuhússins og söng fyrir hann með þeim árangri að maðurinn tók drenginn um tíma undir sinn vemdarvæng og veitti honum húsaskjól og fæði og sendi hann í söngtíma. Hann söng og dansaði á sviði og lenti síðan undir handarjaðri manns að nafni Jonas Collins sem útvegaði honum styrk til náms. Sautján ára gamall var hann settur í bekk með ellefu ára drengjum. Einn kennara hans bannaði honum aö skrifa skáldskap og sagöi að hann væri heimskur og enginn myndi nokkm sinni lesa það sem hann skrifaöi. Ævintýri verða bókmenntir Andersen skrifaði nokkrar skáldsögur en frægastur er hann fyrir ævintýri sin. Hann samdi 168 ævintýri sem hafa verið þýdd á rúmlega hundrað tungumál. Fyrstu ævintýri Andersens komu út þegar hann var þrítugm-. Hann skrifaði ævintýri á tímum þegar bamabækur áttu ekki að vera bömum til skemmtunar. Bamabækur þessa tíma vom ætlaðar til að fræða unga lesendur og voru venjulega í predikunartón. Andersen var fyrstur rithöfunda til að taka ævintýrið alvarlega sem bókmenntaform og semja sjálfm ný ævin- týri. Hann skráði líka sögur sem hann hafði heyrt i æsku sinni frá ömmu sinni og öðm gömlu fólki og gaf þeim sinn eigin blæ. Hann gæddi æv- intýri kímni og skrifaði fjörlegan stíl sem böm- um fannst aðgengilegur og skemmtilegur. Hann fékk ekki sérlega góða dóma fyrir fyrstu ævintýri sin sem þóttu ekki eiga erindi til bama þar sem þau væm ekki nógu uppbyggileg. Það var ævin- týrið um Litlu hafmeyjuna sem færöi honum al- þjóölega frægð en hann var ár að semja það. í sömu bók var annað sígilt ævintýri, Nýju fótin keisarans. Einlægni og sérviska Andersen var einlægur og hreinskilinn en hald- inn alls kyns sérvisku. Hann var til dæmis svo hræddur um aö vera grafinn lifandi að hann var iðulega með miða í jakkavasanum eða á nátt- borðinu sem á stóð: „Ég sýnist bara vera dá- inn.“ Hann var dauðhræddur við hunda og grunaði farþega í lestum sífellt um að ætla að myrða sig. Hann þótti afar ófríður maður, með óeðlilega langa útlimi og var klaufalegur í framkomu. Hann kvæntist aldrei en var sífellt að verða ást- fanginn. Dagbækur hans bera með sér að hann hreifst af báðum kynjum og til eru ástríðufull ást- arbréf sem hann skrifaði karlmönnum. Það var Grímur Thomson sem skrifaði fyrstu metnaðarfullu greinina um Andersen, hún var 20 blaðsíður og kom út í mars 1855. Grímur benti á að Andersen væri svo frægur erlendis að Danir yrðu að meta hann að verðleikum. Andersen var himinlifandi yfir greininni sem hann sagði afar vel samda, greindarlega og skrifaða af þekkingu og ást. Andersen var afar viðkvæmur fyrir gagnrýni. Charles Dickens gaf honum besta ráðið við gagn- rýni. Þeir voru saman á gangi þegar Andersen fór aö kvarta undan slæmri gagnrýni sem verk hans höfðu fengið og Dickens sagði: „Þú átt aldrei að lesa neitt í dagblöðum annað en það sem þú hef- ur sjálfur skrifað. Ég hef ekki lesið gagnrýni um mig i 20 ár. Ekki komast í uppnám vegna dag- blaðanna, þau gleymast á viku en bókin þín lifir að eilífu. Guð hefur gefið þér svo mikið. - Dic- kens skrifaði með fæti sínum í sandinn: „Þetta er gagnrýni, sagði hann og bætti við um leið og hann þurrkaði skrifm út, „og hún hverfur alveg eins og þetta.“ Hégómi og sjálfhælni Andersen var bamslega hégómlegur, ákaflega veikur fyrir hrósi og skjalli og gat verið sjálfhæl- inn. Anna María Livingstone, ung dóttir land- könnuðarins Livingstone skrifaði honum bréf og sagði: „Ég er svo hrifm af ævintýrunum þínum að mig langar til að koma og hitta þig en ég get það ekki svo ég ákvað að skrifa. Þegar pabbi kem- ur heim frá Afríku bið ég hann um að fara með mig til að sjá þig.“ Andersen var vanur að ganga með bréf Önnu í vasa sínum og taka það upp til að sýna gestum. Þá kyssti hann bréfið og sagði: Finnst ykkur ég ekki vera hamingjusamur mað- ur að heimurinn skuli elska mig svona mikið.“ Svo bætti hann við að faðir Önnu væri mikil- menni en ekki eins elskaður og hann væri sjálf- ur. „Þegar ég dey munu allir koma og setja blóm á kistuna mína,“ bætti hann við. Hann fékk lifrakrabbamein þegar hann var sjö- tugur og lagðist banaleguna. Hann var hræddur um að vakna lifandi í líkkistunni og bað ráðs- konu sína að skera sig á púls þegar hún héldi að hann væri látinn. Hún brosti og sagði að hann gæti gert það sem hann hefði oft gert, skilið eftir miða með orðunum: „Ég sýnist bara vera dáinn.“ Hann brosti. Tveimur dögum seinna lést hann i svefni. Furðuveröld Arthur Conan Doyle öðlaðist heimsfrægð fyrir sögur sínar um Sher- lock Holmes. Hann var líka í góðu formi í öðrum skáld- sögum, eins og The Lost World. Þar segir frá ævin- týrum fjög- urra manna sem uppgötva furðuveröld í Suð- ur-Ameríku þar sem risaeðlur, mannapar og fleiri kynjaverur ráða ríkjum. Mikil skemmtun og ósvikin spenna. Betri en Jurassic Park. Fleiri finar ævintýrasögur er að finna í sömu bók. Guð er vinur þagnorinnar. Tré, bíóm, gras vex í þögn. Sjúið stjömumar, tunglið og sólina, hvemig þau hreyfast í þögn. Móðir Teresa Allar bækur 1. Islenska vegahandbókin. Bókaút- qáfan Stönq 2. Kortabók íslands. Örn Sigurðsson ritstj. 3. Leggðu rækt við sjálfan þig. Anna Valdimarsdóttir 4. Ferðakortabók. Landmælingar ís- lands 5. Kokkur án klæða. Jamie Oliver 6. Hálendishandbókin. Páll Ásgeir Ásqeirsson 7. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason 8. Hann var kallaður Þetta. Dave Pelzer 9. Stangveiðihandbókin. Eiríkur St. Eiríksson Ljóð vikunnar Nei, smáfríð er hún ekki - eftir Hannes Hafstein Nei. smáfríð er hún ekkl og engin skýjadís, en enga ég samt þekki, sem ég mér heldur kýs. Þótt hún sé holdug nokkuð, er höndln ofursmá. Hún er svo íturlokkuð með œskulétta brá. Vlð eldbllk augna kátra skín andlit glatt og IJóst. Við hljóðfall léftra hlátra sem hrannir lyftast brjóst. Hún er svo frjáls og ítur, svo œskusterk og hraust, að hver sem hana lítur, til hennar festir traust. Og ef ég er með henni, ég eld í hjarta flnn. Það er sem blóðlð brennl og bállst hugur mlnn. Dægurflugur fanga hugann Ásgeir Friógeirsson seglr frá uppáhaldsbókunum sínum. „Uppáhaldsbækur mínar eru orðabækur. Enskar, danskar, íslenskar, ítalskar, samheitabækur, orðsifja- bækur og hvað eina. Þær hafa þjónaö mér lengi og koma mér alltaf á óvart. Engin klassísk skáldsaga er í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Það eru fremur einhverjar dægurflugar sem eiga hug minn hverju sinni. Sú síð- asta var Game Over eftir Adele Parks (Penguin Books, 2001). Hún fjallar um kald- rifjaða konu sem er fram- leiðandi sjónvarpsþátta og fær óviðjafnanlega hugmynd að raunveruleikaþætti þar sem fyrrverandi elskhugi er fenginn til að tæla tilvon- andi brúði eða brúöguma viku eða tveimur fyrir brúð- kaupsdaginn og er árangur- inn sýndur í sjón- varpsþætti fáum dög- um fyrir stóru stund- ina.. Að vonum rústa þættirnir hjónabönd- um og hamingju fjölda fólks en framleiðand- inn hefur aldrei gert það eins gott. En hún blessunin á í vandræð- um með karlmenn þó svo hún eigi ekki í vandræðum með að sænga með þeim. Og svo gerist hið óhjá- kvæmilega. Raunveru- leiki sjónvarpsþátt- anna bankar upp hjá henni í líki glæsilegs karlmanns. Þar lýstur saman pervertískri sjónvarpsveröld og klikkuðu og rugluðu einkalífi. Svoleiðis er í uppáhaldi hjá mér þetta sumarið." 10. Myrin. Arnaldur Indriðason Skáldverk 1. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason 2. Myrin. Amaldur Indriðason 3. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason 4. Lokavitni. Patricia Cornwell 5. Stúdíó sex. Liza Marklund 6. Dagbók Bridget Jones. Helen Fieldinq 7. Réttarkrufninq. Patricia Cornwell 8. Anna, Hanna & Jóhanna. Mari- anne Fredriksson 9. Dís. Birna Anna, Silja oq Oddny 10. Aska Anqelu. Frank McCourt Metsölulisti Eymundsson Kiljur 1. DIVINE SECRETS OF THE YA-YA SISTERHOOD. Rebecca Wells 2. FACE THE FIRE. Nora Roberts 3. WHISPER OF EVIL. Kay Hooper 4. „P" IS FOR PERIL. Sue Grafton 5. CORDINA'S ROYAL FAMILY. Nora Roberts

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.