Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 17
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002
HelQarblað I>V
~7
Vágesturinn
á Ríp
Birgir Þórðarson, bóndi á Ríp íSkaqafirði, missti
hátt á sjötta hundrað fjár íjúní. Sumt drapst úr
salmonellusýkingu en marqt skaut Birgir sjálfur í
mýrinni i/ið túnfótinn oq fargaði ígám. Hann talar
við DV um það hvernig kerfið brást honum íþessu
erfiða máli, hverniq sauðfjárbændur hafa verið
hlunnfarnir og íhuqar framtíð sína ísveitinni.
• Sjá næstu opnu
BJARTUR í SUMARHÚSUM, sú fræga söguhetja Hall-
dórs Laxness í Sjálfstæðu fólki, sagði eitthvað á þá leið að
þrjóskasta skepna jarðarinnar væri sauðkindin. Það mætti
snúa örlitið út úr þessari kenningu skáldsins og halda því
fram að sauðfjárbóndinn væri örugglega þrjóskari en
sauðkindin.
Sauðkindin er griðarlega harðger skepna og lifir af úti-
göngur, ormaveiki, harðindi, svelti og jafnvel draugagang
ef marka má Sjálfstætt fólk. íslenski sauðíjárbóndinn hef-
ur þolað flestar þessar plágur með búsmala sínum gegnum
aldirnar. en hin síðari ár hefur hann staðið af sér harðindi
af mannavöídum éins óg sölutregðu á lambakjöti, verðfoll
á afurðum, kvótasetningu í landbúnaði og flatan niður-
skurð. Sumir segja að afleiðingarnar séu þær að ef ein-
hvers staðar sé til fátækt á íslandi þá sé hún í íslenskum
sveitum á litlum sauðfjárbúum og Hallgrímur Helgason
rithöfundur sagði einhvers staðar að á íslenskum sauðfjár-
búum væri hið raunverulega íslenska gettó.