Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 18
I 8 Helqarblað H>V LAUCARDACUR 13. JÖUf 2002 Birgir Þórðarson, bóndi á Ríp, ásamt tveimur sonum sínum ungum við kaffiborðið í eldhúsinu á Ríp. Það var Ragnheiður Ólafsdóttir húsfreyja sem stóð fyrir eldhúsi en fjölskyldan er í sárum eftir að lunginn úr bústofn- inum var skorinn vegna salmonellu. Vágesturinn á Ríp ÞAÐ GERÐUST SKUGGALEGIR en sögulegir at- burðir á bænum Ríp í Hegranesi í Skagafirði í byrjun júní á þessu sumri þegar sauðfé í haganum sýktist af því sem seinna var skilgreint sem hættulegt afbrigði af salmonellu. Engin veira veldur meiri búsifjum í hvers konar eldi en hin fjölmörgu afbrigði salmonellu og flestum stendur eðlilega mikill stuggur af slikum vágestum. Þótt salmonellu hafi orðið vart í búsmala á íslandi áöur og hún greinst í sviðahausum i slátur- húsum þá var þetta í fyrsta sinn sem hennar varð vart í lifandi sauðfé. Sett var flutningsbann á allan búsmala á Ríp og um tíma ríkti hálfgert umsáturs- ástand á landareigninni þegar fáir voguðu sér að stíga fæti þangað og Rípurbændur horfðu upp á ærn- ar drepast í haganum eina af annarri meðan beöið var niðurstaðna úr rannsóknum og sýnatökum. Niöurstaðan varö sú að fella stóran hluta bústofns- ins til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sýking- arinnar. Það voru alhlífaðir björgunarsveitarmenn af Sauðárkróki sem fengu þann starfa að aðstoða Rípur- bónda og menn hans við að fella afurðamesta hlutann af sauðfjárstofninum en ræktunarstarf hans var róm- að. Flestir sem halda skepnur eða eiga gæludýr geta gert sér í hugarlund hve erfíður starfi það hefur ver- ið að smala til slátrunar um hásláttinn og ekki var bóndinn öfundsverður af þessu drungalega dagsverki í mýrinni fyrir neðan bæinn á Ríp. Það var í kjölfar þessara drungalegu daga sem DV heimsótti Birgi Þórðarson, bónda á Rip, og Ragnheiði Ólafsdóttur húsfreyju. Á Ríp þáðum við kafFiveiting- ar og hlaðborð að hefðbundnum sveitasið og ræddum við bónda um atburðina í mýrinni í júní. Kvótinn minnkar og minnkar Ríp er föðurleifö Birgis og þar er hann fæddur og uppalinn á þessum fornfræga sögu- og kirkjustað og er reyndar meðhjálpari safnaðarins. Hann og Ragn- heiður eiga þrjá syni, einn sem farinn er til náms í Reykjavík en tveir eru bamungir heima, sólbrenndir snáðar sem máttu sjá á eftir heimalning sínum undir hnífinn þegar niðurskurðurinn fór fram. Þegar Birgir og Ragnheiður tóku við búi á Ríp var kvótinn á búinu 609 ærgildi. Það hefur í gegnum tíð- ina skroppiö saman af niðurskurði, þrengingum og uppkaupum og tilraunum til loðdýraeldis. í dag eru 230 ærgildi á Ríp en 450 fjár voru þar á fóðrum sl. vet- ur. Það þýðir að búið er að framleiða talsvert meira en það hefur kvóta fyrir. Þess utan hefur Birgir bóndi nokkurt hrossahald, segist eiga 28 hross. Jörðinni fylgja engin sérstök hlunnindi önnur en smávægilegur veiðiréttur í Héraðsvötnum sem ekki er nýttur en undanfarin ár hefur Birgir reynt að drýgja tekjur búsins með því að selja mold og þökur en á því varð nokkur samdráttur í sölu í kjölfar sýk- ingarinnar. „Það eru margir hræddir og halda að salmonellan fylgi þökunum en það er rangt.“ Kindurnar dauðar í haganum - En hvað var það sem gerðist? „Það sem gerðist var einfaldlega það að einn dag- inn þegar við komum á fætur lágu margar kindur dauðar í haganum hérna niður á eylendinu sem við köllum. Þetta virtist hafa verið snöggur dauðdagi. Lömbin lifðu hins vegar og meðan þetta gekk yflr drapst ekki eitt einasta lamb. Skýringin mun vera sú að lömbin drukku ekki vatnið heldur mjólkina," seg- ir Birgir. Hann hringdi þegar í stað á dýralækninn sem kom innan klukkutima og fjöldi sýna var tekinn og send- ur í rannsókn suður. Að jafnaði tekur slík rannsókn fimm til sex daga áður en niðurstöður liggja fyrir en þjóðhátíðardagurinn tafði fyrir og biðin varð lengri. Það þurfti varla mikla vísindaþekkingu til að sjá að eitthvað alvarlegt var á seyði og fljótlega kom einnig Sigurður Sigurðarson yfirdýralæknir í hlað á Ríp og tók sýni og kannaði aðstæður. „Hann gat unnið þótt það væri þjóðhátíð," segir Birgir. Á meðan héldu kindurnar áfram að drepast í hag- anum og það eina sem Birgir bóndi gat i raun gert var að fylgjast með og halda tölu á þeim og gefa vís- indamönnum skýrslur gegnum simann. Engar upplýsingar „Við lásum síðan í blöðunum að þetta væri alvarleg salmonellusýking sem gæti jafnvel verið hættuleg fólki og sú skæðasta sem komið hefði upp á íslandi." Þaö var síðan landbúnaðarráðuneytið sem tók þá ákvörðun að grípa ætti til niðurskurðar á Ríp. Þá haföi þetta ástand varað í um 10 daga og lengst af verið algert flutningsbann á allan búsmala til og frá bænum. Þá fékk Birgir bóndi tilskipun um að ætti að skera þótt engin frekari fyrirmæli fylgdu um það hvernig standa ætti að slíkum niðurskurði og enginn embættismaður gæfi sig fram til að fylgja téðri tilskipun eftir. „Ég gerði mér strax grein fyrir þvi að þetta væri eitthvað alvarlegt og hleypti engri skepnu út úr þessu tiltekna hólfi. Mér finnst undarlegt að ég fékk aldrei neinar leiðbeiningar um það hvernig ætti að bregðast við þessu og aflaði mér sjálfur upplýsinga um það hvernig væri best að sótthreinsa og hvaða efni væru best fallin til þess. Ég varð alltaf að taka mínar ákvarðanir sjálfur. Ég úðaði allt sem kom úr mýrinni með sterku sótt- hreinsunarefni og það fór aldrei neinn þarna niöur eftir nema ég. Það hefur sennilega bjargað því að þetta fór ekki víðar. Við fengum aldrei upplýsingar um það hvort okkur heimilisfólki stafaði hætta af þessu eða hvað ætti að gera til að forðast það. Enginn nágranna okkar fékk neinar upplýsingar heldur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.