Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Síða 22
22
Helgarblcið 3I>V LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002
...kíkt í snvrtibudduna
V
Augnhárabursti frá
New York
„Ég fékk þennan bursta
árið 1999 frá vinkonu minni sem var að vinn
hjá Face í New York. Burstinn hefur víða farið með mé;
dottið í götu en aldrei týnst. Ég er mjög hrifin af honum og nota ;
i allt - hann er einfaldlega frábær."
Moonflower ilmvatn
„Þetta ilmvatn er frá Body Shop. Það er mjög létt
' og ég nota það dagsdaglega. Ég er alltaf með það í vesk-
inu og nota það svona til að „freshing up“. Á kvöldin nota
ég hins vegar J¥adoré sem er aðeins þyngra."
Atrix liandáburður
„Ég er mikið í sundi og ræktinni þannig að stundum fer
ég í sturtu tvisvar á dag. Hendumar á mér eru sem sagt i QjJ
stöðugu vatnsáreiti og þá er gott að hafa handáburð til-
tækan. Ég er mjög hrifin af Atrix þar sem hann fæst alls SSh
staðar, er ekki of dyr og svinvirkar. 4
Náttúrulegt meik
„Ég mála mig af-
skaplega litið og
dagsdaglega oft ekki
neitt. Ef ég er að fara að syngja þá mála
ég mig meira og í sumar hef ég verið dugleg
að nota bleikan lit á augnlokin, það er svolítið
villt en skemmtilegt. Ég er mjög hrifin af þessu meiki
frá Lancomé. Það sem er svo gott við þetta meik er að það er ljóst
og náttúrulegt og breytir ekki mínum eigin húðlit. Það gerir mann
ekki of stífan heldur verður andlitið einungis sléttara og húðin fal-
legri.“
Fyrir rúmum 20 árum síðan komu fyrstu brúnkukremin á markaðinn.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og brúnkukremin hafa bæði
breyst og batnað. I stað þess að gefa illa lyktandi gulrótarlit á kroppinn
Spennur í hárið
„Eitt af því sem ég er alltaf með í 1S&\ ^
töskunni eru spennur. Hár-
ið á mér er svo ógeðslega
slétt þannig að mér finnst gott
að gefa lyft því með spennum. Ég er mjög hrifin af
litlum klemmum sem ég set efst í hárið og nota
til að gera svona seventeensblæ á það, það lyft-
ir andlitinu og ég fæ smá sól á ennið og nefið."
eins og kremin gerðu þegar þau komu fyrst á markað Ijá brúnkukrem
dagsins ídag líkamanum gullinn sólarblæ sem enginn getur staðist. Enn
vottar þó fyrir fordómum gagnvart þessu fyrirbæri og halda margar
konur að þær verði skellóttar og kolbrúnar ef þær beri sltk krem á sig.
DV fékk tvo förðunarfræðinga hjá Debenhams til þess að upplýsa les-
endur um sannleikann ímálinu og leyndardóma brúnkukremsins.
Söngkonan Margrét Eir Hjartardóttir er nýbúin
að stofna hljómsveit sem kallast MEir. Af því
tilefni fannst DV tilvalið að heyra hljóðið í
söngkonunni og kíkja ísnyrtibudduna hennar í
leiðinni. Hljóðið íMargréti var gott en hún ját-
aði að hún væri kannski ekki besta mann-
eskjan til þess að ræða um snyrtivörur þarsem
hún málarsig afskaplega lítið og eiginlega ekki
neitt, nema þegar hún treður upp. Spennur og
handáburð notar hún hins vegar grimmt og er
hvort tveggja alltaf að finna í töskunni hennar.
Blessuð brúnkukremin
„Margar konur virðast vera eitthvað smeykar við að
prófa brúnkukremin. Ég held að það sé bara vegna
slæmrar reynslu af þessum kremum í gamla daga þegar
þau voru að koma á markaðinn en þá varð maður eins
og gulrót á litinn af því að bera þau á sig.“ Þetta segir
Silla Páls, yfirmaður snyrtivörudeildar Debenhams, og
heldur áfram: „Ég man þegar ég var krakki þá átti
mamma brúnkukrem sem ég stalst í og varð ég appel-
sínugul á litinn eftir að hafa borið það á mig, sem var
ekkert sérlega fallegt!"
I dag er öldin önnur því á þeim 20 árum sem brúnku-
kremin hafa verið á markaðnum hafa þau gengið í gegn-
um miklar breytingar.
„Það verður enginn eins og gulrót af brúnkukremum
dagsins í dag,“ segir fórðunarfræðingurinn Elma Diego
sem stendur við hlið Sillu og handfjatlar eitt af þeim
mörgu brúhkukremum sem eru á markaðinum í dag.
Sjálf hefur hún prófað öll brúnkukremin 1 versluninni
og er greinilega hrifin af þessarri uppfinningu. Hún rétt-
ir fram handlegginn því til staðfestingar en blaðamaður
getur ómögulega séð að hann hafi fengið brúnkumeð-
ferð, svo eðlilegur er liturinn á húðinni.
Vandvirkni og hrein húð
Að konur sækist eftir lit á kroppinn eru engar nýj-
ar fréttir. Á stríðsárunum báru konur gjarnan skó-
burð á leggina og í Bandaríkjunum var hægt að fara
á snyrtistofur og láta mála leggina á sér nælonbrúna.
Það var mun ódýrara heldur en að fjárfesta í nælon-
sokkum og ekki var óalgengt að konur létu einnig
teikna línu á fótinn eins og saum á nælonsokkum.
Síðar voru það ljósalamparnir sem gáfu litinn en með
auknum rannsóknum á húðkrabbameini sækja konur
í síauknum mæli í brúnkukremin til þess að fá lit á
kroppinn.
Brúnkukrem dagsins í dag eru til á þremum mis-
munandi formum: kremformi, gelformi eða sprey-
formi. Öll eiga kremin það sameiginlegt að smjúga
undir yfirborð húðarinnar og lita efsta lag hennar,
þannig að það er ekki hægt að þvo litinn burt. Sum
kremin gefa strax lit en önnur virka á 1-12 klukku-
stundum. Hversu lengi húðin heldur litnum er ein-
staklingsbundið en þó er venjan að fólk beri á sig
einu sinni til tvisvar í viku vilji það viöhalda góðum
lit. Brúnkukremin eru til i ýmsum litaafbrigðum,
með eða án glans og jafnvel glimmeri. Bæði kynin
hafa verið að kaupa kremin enda uppfinningin mun
heilsusamlegri húðinni en ljósalampar. Þó hafa sum-
ar konur átt í erfiðleikum með að nota brúnkukrem-
in og kvarta yfir því að þær verði flekkóttar. Silla og
Elma kannast vel við vandamálið en itreka að sé far-
ið rétt að þá sé ekkert mál að nota kremin. „Það
skiptir miklu máli að hreinsa húðina vel áður en
brúnkukremið er borið á. Það er alveg nauðsynlegt
að nota skrúbb bæði á andlit og líkama til að ná dauð-
um húðfrumum og þurrkublettum burt, því þannig
kemur maður í veg fyrir að útkoman verði skellótt,"
útskýrir Silla.
Eftir að húðin hefur verið hreinsuð og þurrkuð er
kremiö borið á en ekki er verra að húðin sé þá heit
eftir góða sturtu. Ekki er nauðsynlegt að bera
bodylotion á undan þar sem flest brúnkukrem gefa
góðan raka.
„Ef maður vandar sig við að bera brúnkukremið á
sig þá ætti maður að fá góða útkomu. Algengustu mis-
tökin sem konur gera eru þau að þær eru að bera á
sig i einhverjum flýti, vanda sig ekki nóg og verða
þar af leiðandi flekkóttar. Einnig eru þær oft svo
óþolinmóðar eftir því að kremið fari að virka að þær
fara strax að bera aðra umferð á sig þannig að útkom-
an verður þar af leiðandi of dökk,“ segir Silla. Eftir
að brúnkukrem hefur verið borið á þarf að leyfa því
að þorna vel. Því er ekki sniöugt að skella sér beint í
þröng föt, hvað þá í hvítu sparinærbuxurnar. „Það er
best að setja þetta á sig á kvöldin þegar maður hefur
tima til að slappa af á baðsloppnum,“ segir Silla.
Ráð gegn brúnkumistökum
Að sögn Sillu eiga margar konur í vandræðum með að
ná góðum lit á leggina í sól, þó svo þær verði alltaf brún-
ar á handleggjunum og kroppnum. Þá sé kjörið að nota
brúnkukrem á fæturna til þess að ná jafnvægi á lík-
amann. Talið berst að því hvernig sé best að bera á sig
kremið; með höndunum, svampi eða hönskum. Þær eru
sammála því að það sé ekkert verra að nota bara hend-
umar en minna á að það þurfi að þvo þær vel á eftir.
„Aðalmálið er að vera ekkert að flýta sér og bera jafnt
lag alls staðar," skýtur Elma inn í. Hvað varðar hryll-
ingssögur af konum sem hafa orðið skellóttar og hrika-
legar ásýndar eftir notkun brúnkukrems er við hæfi að
spyrja skvísurnar í Debenhams um ráð gegn brúnkumi-
stökum.
„Þá er um að gera að skella sér í sund því klórinn étur
upp litinn," segir Elma. Það virðist ekki kræsilegt ráð að
fara flekkóttur í sund en það er samt að þeirra sögn það
sem virkar langbest til þess að losna við litinn. „Líkams-
skrúbbur virkar einnig vel,“ segir Silla og undirstrikar
enn að það séu allt önnur efni í kremunum í dag en á
diskótímabilinu og ef rétt er farið að þá sleppur maður
alveg við mistök. „Það er um að gera að prófa sig bara
áfram. Ég mæli nú ekki með því að brúðir séu t.d. að
prófa brúnkukrem í fyrsta skipti rétt fyrir brúðkaups-
daginn, það er betra að hafa tekið æfmgu áður,“ segir
Silla að lokum. -snæ