Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 26
26 H&lQarblctð X>V LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 Engin jómfrú á fjöllum Rósa Björk Brynjólfsdóttir hóf sjónvarpsferilinn í fögrum listum og menningu í Mósaík en hefur síðan klifið barómeterinn, skipt út hákúltúr fgrir hálendið og er nú annar umsjónarmanna ferðaþáttarins Huernig sem viðrar íSjónvarpinu. Rósa Björk hefur varla séð Regkjavík að sumri til síðustu átta árin því vorin blása henni íbrjóst ngrri forgangsröð þar sem fjöll, melar og jöklar taka fgrsta sætið. Hún er þvíengin jómfrú á fjöllum, starfaði um árabil á vélsleðaleigu á Vatnajökli, þarsem hún fékk fjallabakteríuna, en hefur síðustu ár lóðsað Frakka ó löngum gönguferð- um um nokkur afskekktustu svæði íslenska hálendisins. Helgarblaðið ræddi við Rósu um sófadgr, karlrembu á hálendinu og útlendinga íeigin landi. ÞEGAR HELGARBLAÐIÐ HITTI RÓSU BJÖRK að máli á Austurvelli einn sólríkan morgun i vikunni virtist helst sem engir væru komnir á fætur nema grófmunstraðir túristarnir. Fyrir utan rónana náttúr- lega en árrisull fulltrúi þeirra raskaði þó hvorki morgunró Jóns né okkar með luft-trommusólói sem var svo tilþrifamikið að hefði það átt sér stað fyrir um það bil fimmtán árum og Sjón verið í nágrenninu væri tónlistarsagan eflaust önnur í dag. Með hækkandi sól í miðpunkti Reykjavíkur breytt- ist hljóðmyndin þó og færðist í aukana sem hér seg- ir: Tvær hringsólandi garðsláttuvélar, tuttugu krakka ærslafullt leikjanámskeið hlaupandi í skarðið og sam- ræður á bekk, svohljóðandi: „Ég hef þann útópiska draum að vilja vinna við að ferðast og „fjölmiðlast“ og sameina þannig tvö helstu áhugamál mín. Hvernig sem viðrar er kannski ágæt- is upphafsreitur inn í slíka heimilda- og ferðaþátta- gerð,“ segir Rósa. Má skilja þetta svo aó ef starfiö hans Sigga Hall á ERTU AÐ FARA MEÐ HERJÓLFI Á ÞJÓÐHÁTÍÐ? Brottför Frá Vest- mannaeyjum Frá Þorlákshöfn 1. ágúst 08.15 12.00 1. ágúst 16.00 19.30 2. ágúst 08.15 12.00 2. ágúst 16.00 19.30 3. ágúst 08.15 12.00 4. ágúst 13.00 16.00 5. ágúst 11.00 14.30 5. ágúst 18.00 21.30 6. ágúst 01.00 04.00 6. ágúst 08.15 12.00 6. ágúst 16.00 19.30 7. ágúst 08.15 12.00 7. ágúst 16.00 19.30 Feróir frá Umferðarmióstöóinni f Reykjavíktil Þorlákshafnar Nánari upplýsingar Reykjavfk BSÍSfmi 552 2300 Landflutningar-Samskip Sími 569 8400 Vestmannaeyjar Sími 481 2800 Fax481 2991 Þoriákshöfn Sími 483 3413 Fax 483 3924 Vegna nýrra skráningarreglna veróur að skrá nafn og kennitölu allra farþega þegar gengið er frá bókun. Nú þegar er að verða uppselt í nokkrar feróir. Ógreiddar pantanir seldar eftir 17. júlf. HERJÓLFUR Sími 481 2800 • www.herjolfur.is Landflutningar M sámskip Stöð 2 skyldi losna verðir þú meóal umsœkjenda? „Ég segi það nú kannski ekki,“ hlær Rósa. „Ég er óviss með matargerðarhlutann en eitthvað í þessa átt- ina.“ Að sjá ekki lyngið fyrir pálmunum Eftir sex þætti og sjö þúsund kílómetra hafa Rósa og ferðafélagi hennar, Vilhelm Anton Jónsson, fjallað um nágrenni Reykjavíkur, Suður-, Austur-, Norður- land og Vestfirði en nú er hafin stórsókn inn á miðj- una og stefnan tekin til fjalla, upp á hálendið. Hug- myndin með þættinum er auðvitað að kynna ísland fyrir eigin þegnum og möguleika í ferðamennsku og afþreyingu, þekkta og óþekkta, sem hinir ýmsu stað- ir hafa upp á að bjóða. „Margir gleyma oft að líta sér nær og gera ekki einu sinni ráð fyrir þeim möguleika að ferðast um eigið land. Fara frekar nánast umhugsunarlaust til sólarlanda ár eftir ár. Við viljum sýna fram á að það að ferðast um Island er gaman, auðvelt og, ekki síst, ódýrara en margur heldur. Fyrir okkur er draumur- inn sá að fólk horfi á þáttinn og hugsi: Þetta er frá- bær staður, ég dríf mig þangað um helgina. Sem sagt: Að fólk sitji ekki lengur í sófanum en bara rétt til að horfa á þáttinn en drífi sig svo á fætur og af stað. Ég hef líka mjög gaman af ferðaþáttum sem slíkum, til að mynda Lonely Planet og þannig þáttum þó þeir séu vitaskuld miklu stærra batterí en það sem við erum að gera. Við leggjum okkar þátt upp þannig að hann bjóði upp á sem mesta efnislega breidd og í honum geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem hug- urinn stendur til rólegheita eða meiri spennu og áreynslu. Annars á dagskrárgerðarfólkið, Hjördís Unnur Másdóttir og Helgi Jóhannesson, mestan heið- urinn af þættinum. Við Villi erum bara að hafa gam- an,“ segir Rósa hógvær og hlær glettnislega. Hver er skemmtilegasta upplifun þín í þáttunum til þessa? „Ég er svolítið heit fyrir sérstökum karakterum, fólki sem hefur lifað tímana tvenna ..." Nú, býr nettur Ómar Ragnarsson í þér? Rósa kímir: „Já, ætli ég verði ekki að viðurkenna þaö. Á Laugum í Sælingsdal háttar svo til að í heita pottinum þar hittast bændur úr sveitinni einu sinni í viku og ræða Laxdælu. Þarna sitja þeir, eiginlega á sama stað og Guðrún, Kjartan og Bolli á sínum tíma, og ræða söguna fram og til baka. Þetta fannst mér mjög gaman að sjá og upplifa með þeim. Eftirminni- legt var líka þegar við fengum að smakka stropuð langvíuegg á Langanesi. Okkur borgarbörnunum fannst þetta kannski ekki það besta sem við höfðum prófað en gestgjöfum okkar fannst þau algert hnoss- gæti. Þeir sögðust aldrei hafa borðað hænsnaegg, þetta væri miklu betra. Ég var reyndar heppin og lenti á sæmilegu eggi en minn ágæti ferðafélagi, Villi, kúgaðist ógurlega." Þarna má kannski segja aó þið hafiö verió eins og útlendingar í eigin landi. Þeir eru varla lentir, greyin, fyrr en landsmenn eru farnir aö keppast viö aö bera í þá skemmdan mat...? „Já, við smökkuðum líka einhverju sinni skyrhá- karl sem var mjög sérstakur á bragöið. En þetta er rétt, margir eru eins og útlendingar í eigin landi þeg- ar þeir fara úr sínu nánasta umhverfi, og gildir það eflaust um marga, eins og ég minntist á áðan.“ Utanvegatónlistin Sjö þúsund kílómetrar er dágóður slatti, um það bil fjórtán sinnum leiðin Reykjavik-Akureyri, og ef- laust fæstir þessara kílómetra á bundnu slitlagi heldur skrens í möl og þaðan af verri vegefnum. Rósa segist þó ekki verða þreytt á þeytingnum - þó henni fyndist æskilegra fyrir þá ferðafélaga sína sem ekki hafa áður farið um hálendið að sjá stóra hluta af því öðru vísi en gegnum bílrúðu - en hvern- ig í ósköpunum fara fjórar manneskjur að því að halda geðheilsunni og vinskapnum i lagi á svo mik- illi keyrslu? „Þetta hefur allt saman gengið eins og í sögu, sem betur fer,“ segir Rósa og brosir. „Það er kannski það sérstæðasta við vinnuna hingað til og ekki víst að allir gætu leikið það eftir. En við fjögur erum perlu- vinir, sem betur fer.“ Tónlistarsmekkur er nú sígilt og afar viðkvœmt sprengiefni í mannlegum samskiptum. Er ekki einu sinni rifist um hvað á aó vera í geislaspilaranum? „Nei, það eru bara allir með sitt diskasafn og svo kynnum við okkar tónlist fyrir hinum. Það er ekki eins og okkur skorti tíma til þess. Nægur tími til að pæla í gegnum þetta allt. Tónlistarsmekkurinn er ólíkur en við virðum fjölbreytileikann og sýnum hvort öðru tillitssemi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.