Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 13. JÚLf 2002
Helgarblaö JOV
fs með dýfu Það er ekki úr vegi að nota góða veðrið sem hefur leikið við borgarbúa undanfarið og gera sér dagamun. Stelpurnar úr Landsbankanum skelltu sér á
Austurvöll og fengu sér ís með dýfu til að kæla sig niður. DV-mynd Hilinar Þór
Hugmyndaflugið látið ráða
Ótrúlegar
undirtektir
í gleðinni í Magnaðri miðborg í Reykjavík um helg-
ina lætur Jafningjafræðslan að sér kveða og heldur
sína árlegu götuhátíð á laugardag. Þetta er í fjórða
sinn sem efnt er til hátíðar af þessum toga, en meðal
dagskráratriða eru fjölbreytt tónlistaratriði og einnig
verður flóamarkaður þar sem hægt verður að kaupa
fjölbreyttan varning af ýmsum toga fyrir næsta hlægi-
legt verð.
„Skipulagning götuhátíðarinnar hefur gengið fram-
ar öllum vonum og við höfum fengið alveg ótrúlega
góðar undirtektir," segir Ingibjörg Dögg Kjartansdótt-
ir, framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, í samtali
við DV. Hátíðahöld Jafningjafræðslunnar fara fram á
Lækjartorgi og hefjast klukkan 13 í dag og standa
fram til klukkan 19. Á þeim tíma verður Austurstræti
lokað fyrir umferð að Pósthússtræti.
Tónlist og flóamarkaður
Dagskrá götuhátíðarinnar er fjölbreytt að sögn
Ingibjargar. Tónlistaratriðin standa saman af leik
hljómsveita sem flytja rapp, gleðipopp, þungarokk „...
og fleira í þeim dúr. Að minnsta kosti ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Ingibjörg Dögg. Um
flóamarkaðinn segir hún að ýmiss konar vamingi,
ekki sist fatnaði, hafi verið safnað til hans og hafi
undirtektir verið afar góðar. Almenningur og þá ekki
síst verslunareigendur hafi veriö afar örlátir.'
•••-: ■ v,Alit verðflp þetta tUfþéásláðbfla úkkar'átaþfiogíhð
„ÞAÐ ER AÐ FÆRAST Æ meira líf i miðborgina og
hún er sem aldrei fyrr að verða hjarta Reykjavíkur,"
segir Jón Haukur Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Magnaðrar miðborgar. í dag, laugardag, og næstu
fjóra laugardaga til viðbótar verður efnt til margvís-
legra uppákoma í miðborginni, samhliða lengdum af-
greiðslutíma verslana. Þær verða velflestar opnar frá
kl. 11 að morgni og fram til 17 síðdegis.
Trúbadorar og götulist er yfirskrift Magnaðrar
miðborgar í dag. Hljóðfæraleikarar verða á ferð um
alla miðborgina, trúðar skemmta, basarar verða á
götum úti og andlitsmálarar skreyta æsku borgarinn-
ar fögrum litum. „Það sem við hvetjum fólk sérstak-
lega til er að koma niður í bæ með hljóðfæri og vera
alveg ófeimið að spila og syngja fyrir gesti og gang-
andi. Jafnvel fá fólk til að kasta til sín smáaurum.
Fólk á einfaldlega að láta hugmyndaflugið ráða og
koma með sínar eigin leiðir til að lífga upp á borg-
ina,“ segir Jón Haukur.
Með þessum hætti verður hver laugardagur með
„Hvernig værum við í rauninni stödd án miðborgar-
innar og þeirrar menningar sem hún býður upp?“
segir Jón Haukur Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Magnaðrar miðborgar sem hefst í dag, laugardag.
sínu sérstaka sniði. Það er auglýsingastofan DBT
sem skipuleggur Magnaða miðborg, en helstu upp-
ákomur gleðinnar eru á Laugavegi, Skólavörðustíg,
Hverfísgötu, Lækjartorgi, Grófinni og helstu nær-
liggjandi svæðum. Samstarfsaðilar DBT í þessu verk-
efni eru Reykjavíkurborg, Þróunarfélag miðborgar-
innar, Laugavegssamtökin og DV en í blaðinu verður
kynnt hverju sinni hver sé dagskrá hvers laugar-
dags.
„Markmið þessa alls er að efla miðborgina, nú á
þeim tímum þegar samkeppni í verslunarrekstri á
höfuðborgarsvæðinu fer vaxandi og stóraukiö versl-
unarrými utan þess er að koma til sögunnar. Það er
full þörf á því að vekja upp umræðu um hvernig við
værum í rauninni stödd án miðborgarinnar og án
þeirrar menningar sem hún býður upp á. Góðu heilli
finnst mér að miöborgin sé að verða æ líflegri og
skemmtilegri, ekki síst á góðviðrisdögum eins og
þeim sem hafa verið hér í Reykavík að undanfórnu.“
-sbs
„Á góðviðrisdögum er gaman að sitja á kaffihúsunum niðri í bæ, enda draga þau og margir fleiri staðir í mið-
borginni til sín sífellt fleira fólk,“ segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hjá Jafningjafræðslunni hér í viðtalinu,
mínu mati hefur Jafningjafræðslan verið í sókn að
undanförnu. Þar kemur til að við höfum breytt svolít-
ið um aðferðir og áherslur. Við leggjum nú aðalá-
hersluna á fræðslu og almenna uppbyggingu sjálfs-
myndar í samvinnu viö Geðrækt. Viö reynum að vera
á jákvæðu nótunum þó að við séum náttúrlega að
vinna að forvömum gegn misnotkun á áfengi og
vímuefnum," segir Ingibjörg.
Flottur og fullur af lífi
Jafningjafræðslan hefur aðsetur í Hinu húsinu við
Pósthússtræti í Reykjavík; gömlu lögreglustöðinni.
Það er því í hjarta miðborgarinnar sem þessi hreyfing
æskufólks á sér samastað í tilverunni. „Ég bý í mið-
borginni og er alltaf hrifnust af þeim borgarhluta.
Mér finnst hann ótrúlega flottur og fullur af lífi. Á
góðviðrisdögum er gaman að sitja á kaffihúsunum
niðri í bæ,. enda. draga þau\ og'margir. fleirkataðiisiíne
miðborginni til sín sífellt fleira fólk.“
U M lUWt