Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 35
LAUGAROAGUR 13. JÚLÍ 2002 Helcjarblað 3Z>"V 30 er mjög bjartsýnt, sérstaklega horfa menn til þess að framkvæmdirnar sem hafa verið í gangi klárist. Vegna þeirrar fjölbreytni sem er á svæðinu ætti það að henta öllum að koma í miðbæinn. Sama hvað fólk er að gera þá hefur það alltaf um nóg að velja hérna,“ segir Hildur Margrétardóttir listakona. Alltaf sólskin og gott veður, segir Sævar Karl. DV-mvndir Hilmar Þór Besti staður á íslandi Fáir hafa verið jafn áberandi í verslunarrekstrinum á Islandi og maður að nafni Sævar Karl Ólason. Hann hefur alltaf farið eigin leiðir og er einn virtasti verslunarmaður sem uppi er. „Við vorum víða miðsvæðis frá byrjun, sem var árið 1974, en árið 1978 fluttum við á Laugaveginn, síð- an í Bankastrætið og þar höfum við verið síðan, eða í 24 ár. Við og bygg- ingavöruverslunin Brynja erum lík- lega stöðugustu fyrirtækin hérna í miðborginni." Hvað er það sem heldur ykkur hérna við Laugaveginn? „Það er auð- vitað miðbærinn, við erum á besta stað á íslandi. Hingað koma allir sem koma til borgarinnar, hvort sem er ferðamenn eða aðrir. í miðbænum er alltaf sólskin og gott veður og hérna er alltaf mikið líf. Fyrirtækið gengur vel hérna og eru allir á sama máli um að verslunin sé mjög nýtískuleg. Þeim sem hingað koma finnst um- hverfið furðulegt og skemmtilegt í bland og það er tekið eftir því sem við gerum hér. Ég hef mjög einfaldan smekk og vel aðeins það besta, sem er miðbærinn.“ Hérna er allt mjög persónulegt, að sögn Elíasar Ilaraldssonar, fast- eignasala á Húsavík. Héma líður öllum vel Miklar framkvæmdir hafa verið í miðborginni og þær klárast inn- an tíðar og þá verður miðborgin með besta móti. Fasteignasalan Húsavik gekk nýverið til liðs við þá fjölmörgu þjónustuaðila sem eru fyrir í miðborginni en af hverju valdi Elías og starfsfólkið á Húsavík miðbæinn? „Miðbærinn hefur svo mikið að bjóða. Umhverf- ið er í miklli uppbyggingu og margir kostir í stöðunni fyrir þá sem eru að íhuga að eigna sér hús- næði í miðbænum. Okkur bauðst húsnæði víða í borginni en eftir aö hafa skoðað alla kosti þá kom ekk- ert annað til greina en Skólavörðu- stigurinn. Hérna er allt svo per- sónulegt og okkur líður vel hérna.“ ________________________-HÞG Veggjakrot setur Ijótan svip á fallega borg. Reykjavíkurborg og Harpa Sjöfn hafa nú tekið höndum saman og skorið upp herör gegn veggjakroti. ( sumar munu málarameistarar og vinnuflokkar ungs fólks mála og fegra staði sem hafa orðið fyrir barðinu á þessum sóðaskap. Við skorum á borgarbúa og fyrirtæki að taka einnig þátt í að hreinsa veggjakrot af veggjum og húsum. Með samstilltu átaki íbúa, fyrirtækja og meistara snúum við vörn í sókn. Borgin okkar á skilið að vera í sparifötunum í sumar. HorpaSjöfn VINNU! REYKJRl U Þungarokk og flóamarkaður Hátlðin hefst klukkan 13.00 á Lækjartorgi, með tónlistardagskrá þar. 13.00 - Bæjarins Bestu = Hip Hop 13.30 - Sveittir Gangaverðir = RnB 14.00 - Reaper = þungarokk 14.30 - Kimono = rokkband 15.00 - Afkvæmi Guðanna = íslenskt rapp 15.30 - Leikfélagið Ofleikur sýnir atriði úr leikritinu Johnny Casanova 15.45 - Snafu = rokksveit 16.15 - Sönghópurinn Blikandi stjörnur ásamt hljómsveitinni Rockers frá Þýskalandi 16.30 - Forgotten Lores = Hip Hop 17.00 - Leoncie skemmtir .af.sinni alkunnu snilld 17.30 - Kuai =Instrumental Rokkhljómsveit 18.00 - Sumartónlistin heldur áfram Að öðru leyti er á dagskránni risa flóamark- aður þar sem varningur frá ýmsum áttum er seldur á hlægilega lágu verði. Leiktæki og and- litsmálning fyrir krakkana, spákonur, minigolf, trúðar, trúbadorar ýmsar kræsingar, gos, nammi og fleira. Hátíðinni lýkur klukkan 19:00, Mariko og Þóra Karítas úr sjónvarps- þættinum Hjartslætti mæta á svæðiö ásamt stórhljómsveitinni Jet Black Joe sem taka mun lagið og skemmta götuhátíðargestum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.