Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 39
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 HelcjorblcuS X>V 43 Ungur heimshornaflakkari hefur snú- ið aftur til sinnar afskekktu heima- bgqgðar og tekst á hendur það uerk- efni að laða ferðamenn að fáfarn- Að selja þögnina asta horni landsins. Það má segja að hann sé að regna að selja þögnina. Sigfús Ólafsson hefur komið átján sinnum til Kúbu en inun oftar út á Langanes enda er það hans heimabyggð. Hann ætlar að koma Þórshöfn á kortið sem paradís ferðamanna á íslandi. DV-mynd Teitur ÞAÐ HLJÓMAR MJÖG SKUGGALEGA að hafa lifi- brauð af því að selja sína heimabyggð en ungur maður sem DV ræddi við var samt mjög áhugasamur um verk- efni sín og tilbúinn að selja. Hann heitir Sigfús Ólafsson og er heimshornaflakkari og heimalningur í senn. Starf Sigfúsar er fólgið i því að vera ferðamálafulltrúi fyrir Þistilfjörö og Langanes. Hann er ekki með öllu ókunnur á þessum slóðum þar sem hann er ættaður frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Tveir frægustu synir Gunn- arsstaða eru Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og leiðtogi Vinstri-grænna, og Jóhannes Sigfússon, stór- bóndi og hagyrðingur, sem þar býr. Sigfús er hins vegar sonur Kristínar sem er systir Jóhannesar og Steingríms. Það er áreiðanlega gott veganesti um þessar slóðir að vera ættaður frá Gunnarsstöðum. Sigfús er enginn sérstakur heimalningur því hann fór tvítugur til Mexíkós sem skiptinemi og nam þá tungu þarlendra en spænska er þriðja útbreiddasta tungumál heimsins. Hann hefur ferðast vítt og breitt um heiminn, ekki síst í starfi sínu sem flugþjónn hjá Atlanta og hafði lengi bækistöð i Madríd og flaug til Kúbu en Sigfús hef- ur tekið nokkru ástfóstri við það land og heimsótt það ótal sinnum bæði í starfi og einkaerindum. Hann fer sem fararstjóri til Kúbu í nóvember og verður það í nítjánda sinn sem hann kemur þangað. Enginn umboðsmaður Castrós Þarna er ákveðin samsvörun sem felst í því að eins og fleiri ættmenni hans er Sigfús harðsvíraður og sann- færður sósíalisti og Kúba er eins og margir vita annað af tveimur kommúnistaríkjum heims sem enn er við lýði en Norður-Kórea mætti teljast hitt. „Ég hrífst af stjórnmálum í Suður-Ameríku og var enn einarðari vinstrimaður eftir dvölina þar en áður. Kúba er einstakt fyrirbæri sem menn annaöhvort elska eða hata. Ég er mikið spurður hvort ég geti verið vinstrimað- ur eftir að hafa dvalið á Kúbu. Málið er ekki svona ein- falt og ég er enginn sérstakur umboðsmaður Castrós. Það er margt ákaflega gott við stjórnarfarið þar en þar eru líka mjög slæmir hlutir." Fyrir utan að flakka hefur Sigfús unnið mörg sumur á sumarhótelum svo segja má að hann þekki ferðaþjónust- una frá ýmsum hliðum en auk alls þessa er hann með próf sem leiðsögumaður og hefur starfað við það bæði hérlendis og erlendis. Þess vegna má segja að hann hafi verið sjálfkjörinn sem ferðamálafulltrúi á sínum heima- slóðum enda fékk hann fulltingi sveitarstjórnarmanna til starfans. Við þetta mætti síðan bæta að Sigfús hefur leikið með hljómsveit sem heitir því undarlega nafni Tvö dónaleg haust. „Mitt starf er eiginlega fyrst og fremst að kynna svæð- ið og koma því á kortið,“ segir Sigfús þegar hann á leið um ritstjórn DV í einni af tíðum kaupstaðarferðum sín- um en Sigfús talar um að „skreppa" norður á Þórshöfn sem mun vera um níu tíma akstur frá Reykjavík og er sennilega sá þéttbýlisstaður á íslandi sem liggur fjærst höfuðborginni. Kátir dagar við heimskautsbaug Dagana 19.-21. júlí næstkomandi verður haldin hátíð á Þórshöfn undir nafninu: Kátir dagar. Þetta er í annað skiptið sem þessi árlega hátíð er haldin eftir að hafa sprottið upp úr sérlega vel heppnuðum afmælishátíða- höldum staðarins árið 1996. Það er eðli málsins sam- kvæmt Sigfús ásamt harðsnúinni undirbúningsnefnd sem ber hitann og þungann af þessu uppátæki en í dag- skrá er minnst á ýmsa forvitnilega hluti eins og kassa- bílaralli, sveitaball með svita og hita, útimarkað, dorg- veiðikeppni, kajakasiglingu, útsýnisflug, fitnesskeppni og torfærukeppni á dráttarvélum. „Þetta er arfur frá gamalli tíð þegar fáir torfærujepp- ar voru til í héraðinu og þá vildu menn reyna með sér í torfæruakstri á traktorum og Willysjeppum." Þarna verður hægt að sjá sýnishorn af bæði hámenn- ingu og lágmenningu kjósi menn að flokka upplifanir sínar i þau box því það verður hægt að fara á klassíska tónleika í kirkjunni á Þórshöfn meðan á Kátum dögum stendur. Sigfús segir að sveitaböll á Þórshöfn séu eins „orig- inal“ og sveitaböllin voru. „Þau gerast ekki upprunalegri. Þarna eru allir aldurs- hópar.“ Stofninn í gestum á hátíð eins og þessari eru brott- fluttir Þórshafnarbúar og Þistilfirðingar en á þeim er enginn hörguli eðli málsins samkvæmt. Sigfús segir þó að hátíðin eigi að höfða til allra þeirra sem vilja komast út úr mesta umferðarhraðanum á þjóðvegi eitt. Við spurðum ferðamálafulltrúann ffölhæfa hvaða stoð- um mætti renna undir ferðamannaþjónustu á þessum af- skekktu slóðum. „Okkar fjársjóður er Langanesið og nágrenni þess. Við bjóðum upp á jeppaferðir út á Langanes og það mun verða hægt að aka alla leið út á Font. Þarna er hægt að komast út á hjara veraldar. Þarna endar Island og þess vegna á þessi staður engan sinn líka.“ Sigfús segist vera bjartsýnn þótt við uppbyggingu á ferðaþjónustu sé á brattann að sækja. „Það sem við þurfum fyrst að yfirvinna eru fordómar Islendinga gagnvart þessu svæði. Þetta er ekkert meira út úr en Herðubreiðarlindir eða Askja. Þeir ferðamenn sem eru búnir að fá nóg í bili af bullandi hverum og jökl- um og vilja sjá lífið við hafið eiga að koma til okkar. Björgin á Langanesi og Rauðanes iða af lífí.“ Líf utan þjónustusvæðis Þótt það hljómi ef til vill eins og undarleg markaðs- setning þá er það auglýst sem kostur að símasamband sé slæmt. „Þarna fmna menn frið og ró og eru sannarlega utan þjónustusvæðis. Við höfum sagt í gríni að ef síminn þinn hringir úti á Langanesi þá færðu endurgreitt," segir Sig- fús og viðurkennir að þótt einhver segi að þarna sé ekk- ert að sjá þá snúist ferðamennska um upplifun og aug- ljóslega er verið að selja þögnina í þessu tilviki. „Þú kemur kannski í Landmannalaugar og þar eru þúsund manns á stórum jeppum sötrandi bjór með hundana geltandi úti um allt. Þetta er ekki svona hjá okkur og þeir sem eru orðnir þreyttir á þessu og vilja njóta þess að vera út af fyrir sig eiga að koma norður. En þetta verður ekki svona lengi því við ætlum að koma þessu svæði á kortið." Jeppaslóðin út á Langanes hefur lengi verið á lista hjá ferðamönnum yfir grófustu og seinförnustu slóðir sem er að finna í byggð. Stendur ekki til að laga veginn eitt- hvað? „Það er verið að vinna í því og ég tel að það hafi ver- ið unnið afrek á dögunum þegar rúta frá Teiti Jónassyni fór akandi í Skoruvík og sýndi þar með að þetta er hægt. Það er núna verið að setja sex milljónir i það að laga veg- inn og hann ætti að vera sæmilega jeppafær á eftir." Leyndarmálið Rauðanes Sigfúsi verður einnig tíðrætt um að Rauðanes sem er skammt frá Þórshöfn sé eitt af hest varðveittu leyndar- málum íslenskrar náttúru en Rauðanes er bæði skoriö sundur af hellum og dröngum sem sérstakt væri að sigla innan um og auk þess er fulgalíf mikið og fjölbreytt nátt- úra. Sigfús segir að framtíðardraumurinn sé að bjóða upp á reglulegar siglingar að Rauðanesi en í dag er ein- ungis hægt að nálgast það fótgangandi. En er ferðamannaþjónustan framtíðaratvinnuvegur á landsbyggðinni? „Það er ekki nokkur vafi. Ég er sannfærður um að vetrarferðamennska á eftir að aukast mjög mikið úti á landi og ferðamennska rennir stórlega styrkum stoðum undir búsetu á landsbyggðinni. Greinin er að skapa gjaldeyristekjur sem eru ígildi stóriöju. Við erum hér með iðnaðarráðherra sem hleypur út um allan heim við að elta uppi álver á meðan ferðamálin eru lítil skúffa í samgönguráðuneytinu. Stóriðja og ferðamennska eru auðvitað andstæður þeg- ar menn eru uppi með jafn stórfelld áform og við Kára- hnjúka en oft geta þessar atvinnugreinar farið saman. Ég efast um að menn myndu aka norður í Þistilfjörð til að skoða þar einhverja stórkostlega stíflu. Það er að minnsta kosti ekki sú ásýnd sem ég vil sjá á landinu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.