Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Síða 47
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002 Helcjo rblacf 33"V 51 Chevrolet Fleetline Aerosetan, árgerð 42. Hef gert upp draumabílinn Fjöldi fólks hefur gaman af fombílum og óhætt er að segja að skemmtilegur svipur komi á bæi og borg landsins þegar bílar í Fombílaklúbbnum mynda röð og fara saman á rúntinn. Ingimimdur Benediktsson smiður hefúr lengi haft mikinn áhuga á fornbílum og hefur ekki aðeins gert upp einn bil heldur tvo, ásamt mági sínum, Rúnari Sverrissyni. Fyrri bílinn, sem er vörubíll af gerðinni Intemational KB 5, árgerð 1946, gerðu þeir félagar upp á aðeins tveimur og hálfu ári. Bílinn fundu þeir í Kópavoginum en það var Pétur Jónsson, fyrrverandi starfsmaður Þjóðminjasafiisins, sem benti þeim á hann. „Ætli ég hafi ekki verið að fullnægja bíladellunni. Þetta var búinn að vera gamall draumur frá því að ég var stubbur," segir Ingimundur. Hann á einnig minn- ingar um sams konar bíl sem Bjössi frændi hans á Hvammstanga átti og man Ingimundur vel eftir sér i þeim bíl. „Einnig man ég að manni þótti alltaf vöm- bflaflóran á Hvammstanga spennandi,“ segir Ingi- mundur sem er frá Staðarbakka í Miðfirði en Hvammstangi er næsti kaupstaður við þann bæ. Internationalinn eða Nallinn, eins og hann er oft kallaður á heimfli Ingimundar, er eini vörabfll sinn- ar tegundar hér á landi sem gerður hefur verið upp en flestir vörabílar frá þessum tíma era af gerðinni Ford eða Chevrolet. það verkefni. Árið 1942 var fólksbílaframleiðslubann sett á í Bandaríkjunum og lá hún þvi niðri til stríðsloka. Framleiðsla hófst ekki aftur fyrr en árið 1946. Það er því mjög erfitt að fá varahluti í bflinn þar sem þeir eru einungis nokkrir af þessi árgerð.“ Draumabfllinn Engin áform um að gera upp fleiri bíla eru á dag- skrá. Hins vegar á Ingimundur gráan Citroén-bragga, árgerð 1988, á lager. „Sá bíll bíður reyndar þess að vera gerður upp. Ef til vill geri ég eitthvað í því einn daginn,“ segir Ingimundur. Rúnar, mágur Ingimundar, hefur einnig gert upp tvær dráttarvélar. Önnur er af gerðinni Bautz og er 1952 módel. Hin er af gerðinni Farmall DLD2 og er 1956 árgerð. Þegar Ingimundur er spurður að því hvaða bíl hann myndi helst vilja gera upp svarar hann að draumabíllinn hafi hann nú þegar gert upp. Intemational-bíllinn, Nallinn, var hans draumaverk- efni. Sá bíll er ekki einungis fallegur forngripur held- ur hefur hann þjónað Ingimundi og fjölskyldu hans vel. Þegar lóöin hjá Ingimtmdi og konu hans, Matt- hildi Sverrisdóttur, var gerð upp var Nallinn notað- ur til að feija timbur, mold og þökur að húsinu og reyndist vel i lóðaframkvæmdunum. Notaðir sem brúðarbflar Ingimundur er að sjálfsögðu félagi í Fombíla- klúbbnum og segir hann að margir hafi gert upp fleiri bíla en tvo. „Það er ótrúlegt hvað margir hafa verið afkastamiklir i gegnum tíðina,“ sagði Ingi- meö armi 120 cm þvermal átthyrnt borð gardhúsgögnum Allt QGQnhcilt tekk Má standa úti allan ársins hring International KB 5, árgerö 47. M r‘*Æ ift ••. 'djm^ Chevrolettinn heillaði ekki í fyrstu Seinni bílinn, sem er af gerðinni Chevrolet árgerð 1942, gerðu þeir Ingimundur og Rúnar upp á alls sjö árum. „Þegar við vorum búnir með Nallann vorum við alls ekki á því að gera upp annan bíl. Fyrrverandi eigandi Chevrolet-bílsins var þó ólmur í að selja okk- ur hann en okkur fannst hann alls ekki spennandi. Bíllinn, sem var vægast sagt mjög illa farinn og auk þess svartur að lit, var allt annað en fallegur og við vorum alls ekki hrifnir. Það sem þó heillaði var að 42-árgerðin var og er mjög sjaldgæf og þess vegna má segja að það hafi verið ákveðin ögrun að takast á við mundur. í klúbbnum era á bilinu fimm til sex hund- rað félagar og sagði Ingimundur að ekki væri nauð- synlegt að eiga bíl til að vera meðlimur. „Mikill og góður félagsskapur er í kringum hópinn og margt skemmtflegt, ótengt bílum, gert,“ segir Ingimundur. Hann hefur í ófá skipti lánað Chevrolettinn sem brúðarbíl og er það venjan þegar bflar sem þessir eru lánaðir að eigendur þeirra keyri. Aukin eftirspum er eftir bílnum enda ekki að furða þar sem hann er ef- laust meðal fallegri bíla i Reykjavik. Ingimundur sagði þó að brúðhjón ættu að íhuga að fá Nallann sem brúðarbíl. „Þau gætu staðið uppi á pallinum,“ segir Ingimundur að lokum. hönnun: PIXILL ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.