Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 52
56 Helgorblacf JO’V LAUGARDACUR 13. JÚLÍ 2002 Skrifaðu okkur Taktu þátt í póstkortaleik ESSO í sumar og þú gætir unnið glæsilegt Coleman-fellihýsi! S pliföu |SLAND;S/EKJUM ÞAÐ HEIM @ rtirw Ö PÓSTURINN Faröamálnáö Islsnds MOSÚrjáfíPB SAMCÖNCURAÐUNtrTIO inni skalég hundur heita! PEPSt Dmumaleikur m / % P€P> Vinningsferðin verður farin 8. ágúst næst- komandi en ekki 20. júlí eins og til stóð. ^ Þann20.júlf verður nafn vinningshafa tilkynnt og tjí úrval innsendra r mynda birt. Skákþátturinn____________ , Umsjón Sœvar Bjamason Heimsmeistaramót Einsteins í Dortmund stendur yfir svokölluð kandidatakepnni um réttinn til að skora á Vladimir Kramnik heimsmeistara. í dag byrja undanúrslit en helmingur keppenda hefur verið sleginn út. Sú keppni var mjög spennandi og fyrir síðustu umferð áttu allir keppendur möguleika á að komast áfram nema Þjóðverjinn Lutz, en úrslit síðustu umferðar urðu: Hópur A: Alexei Shirov - Borís Gelfand 1-0 og Christopher Lutz - Veselin Topalov 1/2 Hópur B: Evgení Bareev - Alex- ander Morozevich 1-0 og Peter Leko - Michael Adams, 1-0. Þeir Shirov og Topalov urðu jafnir og efstir í hópi A og eiga að keppa við félaga sína úr hópi B. Samkvæmt reglunum áttu þeir að keppa atskákeinvígi um 1. og 2. sætið í gær en líklega varð ekkert af því. Þeir vildu fá hvíldardag og kasta frekar evru upp á úrslitin því nr. 1 í A á að tefla við nr. 2 í B-hópi og svo öfugt. 1 B-hópi gekk meira á. Bareev var með koltapað á móti Móra en vann einhvern veginn og Michael Adams brást vonum landa sinna og tapaði ör- ugglega fyrir Leko en Adams var stigahæsti keppandi mótsins. En það er víst dagsformið sem gildir eins og í flestu öðru. Ég ætla að gera Shirov þann (Sævar) bjarnar- greiða að spá honum sigri - hann sigraði Kramnik á sínum tíma um réttinn til að tefla við Kasparov um heimsmeistaratitilinn en Kaspi sveik hann. En það er til réttlæti í heiminum á sumum sviðum! Svo er ætlunin að sam- eina titlana seinna á árinu, það er FIDE- og Einstein-titlana, og fróð- legt verður aö sjá hvort það geng- ur eftir, en ef Shirov vinnur þessa keppni og síðan Kramnik - hvað gera þeir bændur, Kaspi og Kirs- an, þá? 8 liða úrslitunum lauk þannig en keppendur tefldu 2 skákir hvor við annan í sínum hópi: Hópur A: 1-2 Veselin Topalov, Búlgaríu (2745), og Alexei Shirov, Spáni (2697), 4 v. 3. Borís Gelfand, Israel (2710), 2,5 v. 4. Christopher Lutz, Þýskalandi (2650), 1,5 v. Hópur B: 1. Evgení Bareev, Rúss- landi (2726), 4 v. 2. Peter Leko, Ung- verjalandi (2717), 3,5 v. 3. Michael Adams, Englandi (2752), 2,5 v. 4. Al- exander Morozevich, Rússlandi, 2716, 2 v. Skákarfur íslendinga 0g Einvígi aldarinnar Þann 11. júlí síðastliðinn voru 30 ár liðin frá upphafi „Einvígis aldarinnar" milli Borís Spasskís og Bobby Fischers í Laugardals- höll. Skáksamband íslands hefur ákveðið að minnast þessa viðburð- ar með ýmsum hætti og var fyrsta skrefið stigið í upphafi ársins þeg- ar efnt var til sýningar í Ráöhúsi Reykjavíkur, samhliða einvígi Hannesar Hlífars Stefánssonar og Nigels Short. Á morgun, 14. júli, á alþjóðleg- um safnadegi, verður síðan opnuð sýning í Þjóðmenningarhúsinu viö Hverfisgötu í Reykjavík, undir yfirskriftinni „Skákarfur Islend- inga og Einvígi aldarinnar“. Skák- arfur íslendinga er ríkulegur og minjar um hann hafa verið til varðveislu m.a. í Þjóðminjasafni og Þjóðarbókhlöðu, sem geymir hið ómetanlega Fiske-safn. Ýmsir gripir verða dregnir fram í dags- ljósið úr þessum áttum, auk þess sem gripir, tengdir Einvígi aldar- innar, verða sýndir. Setningin sýningarinnar hefst kl. 14 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. En við ætlum að skoða loka- viðureignir í 8 manna úrslitum í Dortmund og byrjum á fjörinu! Hvítt: Alexei Shirov (2697) Svart: Borís Gelfand (2710) Sikileyjarvörn. Kandídatakeppnin í Dortmimd (6), 11.07. 2002 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. Bxc6+ bxc6 5. 0-0 Bg4 6. h3 Bh5. Shirov dugði jafnteíli til að kom- ast áfram en er vana sínum trúr og teflir upp á flækjur. 7. e5 e6. Eftir 7. dxe5 8. Hel f6 9. d3 hefur hvítur góð færi fyrir peðið. 8. exd6 Bxd6 9. d3 Re7 10. Rbd2 0- 0 11. Re4 Rd5 12. Hel He8 13. Rg3 Bg6 14. Re4 Bc7. Svartur er í vandræðum því eftir t.d. 14. - Bf8 kemur 15. Re5. Því fórnar Israel- inn frá Hvít-Rússlandi peði í von um flækjur sér í hag. 15. Rxc5 e5 16. a3 f5 17. c4 Rf6 18. d4 e4. En peðinu er fórnað til baka til að fá einfalda og aðeins betri stöðu. Svartur verður að tefla á flækju- braut. 19. Re5 Bh5 20. Dd2 Dd6 21. Dc3 Had8 22. Be3 Örvinglun grípur nú ísraels- manninn og hann fórnar skipta- mun fyrir færi. Þetta minnir mig á sumar skákir Shirovs gegn Kasparov; hann lendir stundum í svona aðstöðu. Er þetta ekki kall- að styrkleikamunur? 22. - Hxe5 23. Rb7 Df8 24. dxe5 Hd3 25. Db4 Bxe5 26. Dxf8+ Kxf8 27. Rc5 Hd6 28. Rb7 Hd7 29. Rc5 He7 30. Habl f4 31. Bd2 Bd6 32. b4 Kf7 33. Bc3 e3 34. Bd4 Bxc5 35. Bxc5 He5 Þessari skák er í raun lokið enda fátt til varnar. Alexei er frá- bær skákmaður! 36. fxe3 f3 37. gxf3 Bxf3 38. Kh2 Be4 39. Hb2 Hh5 40. Hfl a6 41. Bd4 Bf5 42. Hf3 Re4 43. b5 axb5 44. cxb5 cxb5 45. Hxb5 g6 46. a4 Rd2 47. Hf4 Hxh3+ 48. Kg2 Hh5 49. a5 Ke6 50. He5+ Kd6 51. a6 1-0 Þessir tveir herramenn þykja tefla traust og frekar leiðinlega. En þeir tefla vel. Og þegar öðrum þeirra tekst vel upp þá tapar Eng- land ... Hvítt: Peter Leko (2717) Svart: Michael Adams (2752) Rússnesk vörn. Kandídatakeppnin í Dortmund (6) 11.07. 2002 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0- 0 Be7 8. c4 Rf6 9. h3 0-0 10. Rc3 Rb4 11. Be2 dxc4 12. Bxc4 c6 13. Bg5 Rbd5 14. Hel Be6 15. Db3 Db6. Þetta er víst allt, held ég, eft- ir bókinni. Hvítur skiptir upp i betra endatafl. Gamla seiglan hjá þessum ungu mönnum - nú eru þeir innan við þrítugt. Hvernig ætli þeir tefli um fimmtugt? Ætli ég fái nokkuð að vita það? 16. Rxd5 cxd5 17. Dxb6 axb6 18. BbS h6 19. Bf4 Hfc8 20. Re5 g5?! Upp hafið að erfiðleikum svarts? 20. - Bb4 strax er betra!? 21. Bh2 Bb4 22. He2 Re4 23. Rd3 Bf8 24. Hael Bg7 25. Be5 Bxe5 26. Rxe5 Kg7 27. Rd3 Hc7 28. Rb4 Hd8 I raun hefur ekki mikið gerst enn þá og þó: Svartur þarf að vera á varðbergi, með tvípeð og verri biskup. Leko neglir niður kóngs- vænginn líka: 29. g4 Rf6 30. Kg2 Hd6 31. f3 Bd7 32. Kg3 KfB 33. h4! Bb5. Lygn streymir Don! Nú tvístrast peðin á kóngsvæng líka og það fer að halla alvarlega und- an fæti. 34. He5 gxh4+ 35. Kxh4 Bc4 36. Bc2 Bb5 37. a3 Hd8 38. Kg3 Kg7 39. Bf5 Kf8 40. Hhl Kg7. Svartur veit ekki sitt rjúk- andi ráð! Og nú kemur riddarinn og styrkir f5-reitinn. 41. Rc2 He8 42. Re3 Hce7 43. Kf4 Bc6. Og nú kemur lokahnykkurinn. „einfach und stark!“ 44. Bc2 Bd7 45. g5. 1-0. Hótar riddaranum og eftir 45. - hxg5 46. Hxg5+ og mát- ar! Skákinenn að tafli Nokkrir íslendingar eru að tefla erlendis en gengið er upp og ofan Sigurbjörn J. Björnsson og Magn ús Örn Úlfarsson höfnuðu í 2.-5. sæti á alþjóðlegu móti í Kécker met i Ungverjalandi en þeir hlutv 5 vinninga í 9 skákum. Páll Þórar insson hlaut 3,5 vinninga. Sigur vegari mótsins var 16 ára heima maður, Tibor Reiss (2347), sen hlaut 6,5 vinninga. Reiss tapaö' aðeins einni skák, gegn Páli í 1 umferð, og gerði 3 jafntefli, þar af gegn bæði Sigurbirni og Magnúsi. Magnús hækkar um 12 stig á mót- inu en Sigurbjörn og Páll standa í stað. Að sögn þeirra félaganna vai lukkan ekki með þeim á mótinu Þeir Stefán Kristjánsson og Bragi Þorfinnsson eru að tefla á sterku stórmeistaramóti í Búdapest og gengur skrykkjótt en Halldór Brynjar Halldórsson frá Akureyri er í miklu stuði á sama móti í Búdapest en í neðri flokki. Halldór sigraði júgóslavneska skákmann- inn Laszlo Lukacsovics (2093) í 5. umferð og er annar tveggja efstu manna með 4,5 vinninga i FM- flokki. Hannes Hlífar lauk tafl- mennsku í Esbjerg í gær og gekk illa en vann þó siðustu skák.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.