Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Qupperneq 16
28
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
Skoðun DV
Áttu erfitt með að vakna
á morgnana?
Nonni klipp:
Það fer eftir erfiöi næturinnar.
Hrólfur Baldursson klippari:
Ég er óeðlilega fljótur að vakna, en
annað má segja um konuna.
Jóhanna Frímann klippari:
't Nei, en það er hins vegar hörku-
vinna að vekja Braga,
manninn minn.
Helga B. Haralds klippari:
-> Ég á mjög erfitt með að vakna á
morgnana, ég er engin
morgunmanneskja.
Bára Kristgeirsdóttir klippari:
Það er hrikalegt að vakna á
tilsettum tíma.
Gísli Sigurðsson forstöðumaður:
Nei, ég vakna á undan fugtunum.
Lögum um fasteignasölur er ábótavant svo ekki sé meira sagt:
Ung hjón féflett
um 1-2 milljónir
GunnarJónsson
skrifar:
SíðastLiðið vor var ris-
íbúð í 40 ára húsi í
Reykjavík seld á fast-
eignasölu sem maður
hélt að væri virt fyrir-
tæki. í söluyfirliti kemur
fram hver lygin annarri
verri. Þessa íbúð keypti
saklaust barnabarn mitt.
Eftir að flutt var í íbúð-
ina var ég kallaður til,
nýkominn frá nokkurra
mánaða dvöl á Spáni, en
afinn er reyndur bygg-
ingameistari frá 7. og 8.
áratugnum.
Söluyflrlitið sagði raf-
lögn nýlega yfirfama,
staðreyndin var að illa
gekk að halda rafmagni á íbúðinni
vegna útleiðslu og aðeins hafði ver-
ið endurnýjuð raflögn í stofu en allt
annað i raflögn og þar á meðal raf-
magnstafla voru upprunaleg og
löngu komið að endumýjun á öllu
rafkerfi íbúðarinnar og þar á meðal
rafmagnstöflu. Byggingarefni var
sagt vera steinn, en reyndin var
önnur. Rishæöin var úr timbri og
klædd með álklæðningu. Söluyfirlit
sagði að gler væri endumýjað, stað-
reyndin var að aðeins höfðu verið
endurnýjaðar tvær rúður í stofu,
annað gler var gamalt mixað gler. í
söluyfirliti sagði að íbúðin væri 78
fermetrar en loksins þegar eigna-
skiptasamningur fyrir húsið lá fyr-
ir, kom í ijós að íbúðin er aðeins
64,5 fermetrar.
„Nú er Ijóst að unga fólkið
hefur verið féflett um 1-2
milljónir króna við þessi
íbúðarkaup af óprúttnum
sölumönnum fasteignasöl-
unnar og fyrrverandi eig-
anda Íbúðarinnar.“
Nú er ljóst að unga fólkið hefur
verið féflett um 1-2 milljónir króna
við þessi íbúðarkaup af óprúttnum
sölumönnum fasteignasölunnar og
fyrrverandi eiganda íbúðarinnar.
Það stefnir í löng málaferli sem
vafalítið munu verða ungu hjónun-
um kostnaðarsöm.
Þetta gerist þrátt fyrir öll lögin og
reglugerðirnar um fasteignasölur og
fasteignasala. Það sem nauðsynlega
þurfti að standa í þessum lögum er
þar ekki af ókunnum ástæðum. Það
var talað mn skúrka 1 þessari at-
vinnugrein á 7. og 8. áratugnum en
verri eru þeir í dag ef marka má
þetta.
Lágmarkskrafa er að sá sem gerir
söluyfirlit fyrir fasteignasölu sé
byggingafróður maður, helst reynd-
ur byggingameistari, en ekki krakki
sem nýbúinn er að hleypa heimdrag-
anum. Sömuleiðis verður skráður
fasteignasali að vinna við fyrirtækið
en ekki úti í bæ á lögmannsstofu. Þá
ættu sölumenn að hafa lokið námi
frá skóla fyrir fasteignasala. Ráð-
herra þarf að bretta upp ermarnar,
þarna er pottur brotinn.
Ótrúlegar árásir á fólkið
Edda Sveinbjörnsdóttir
skrifar:
Ég get ekki lengur orða bundist
yfir aðforunum og aðdróttunum
gegn ræktendum á hundabúinu ís-
hundum í Dalsmynni. Ég á tvo
hunda þaðan og hef aldrei orðið vör
við óþrifnað eða þrengsli þar. Það er
alltaf hægt að hringja eða koma og
fá ráð hjá þeim, sama hvaða dag
vikunnar það er. Ég veit að þetta er
mjög samheldin fjölskylda sem gef-
ur sig öll í að gera það besta fyrir
dýrin.
Þegar komið er að goti er tíkin
tekin í sérstakt herbergi í íbúðar-
húsinu og þar er vakað yfir henni
þar til allt er um garð gengið. I
ágúst sl. tók Ásta tík inn i svefnher-
bergi til sin og tíkin gaut í rúmið
„Fólkið þar er allar stundir
yfir dýrunum og hugar að
velferð þeirra og á ekki skil-
ið þetta endalausa skítkast
frá Hundarœktarfélaginu
og öðrum. “
hennar. Ég skil ekki þessa grimmd
og afbrýðisemi sem er í gangi gegn
Ástu og fjölskyldu hennar. Er það
kannski vegna þess að þessir aðilar
hafi eitthvað að fela og þurfi að
beina athygli fólks eitthvert annað?
Ég veit að í Dalsmynni er allt
skúrað, stíur þrifnar og hundadall-
ar hreinsaðir á hverju einasta
kvöldi. Fólkið þar er allar stundir
yfir dýrunum og hugar að velferð
þeirra og á ekki skilið þetta enda-
lausa skítkast frá Hundaræktarfé-
laginu og öðrum.
Að lokum óska ég þess að Ásta og
fjölskylda hennar fái að starfa í
friði, ég óska þeim alls hins besta í
framtíðinni og vona að þau starfi
áfram á sömu braut.
í Dalsmynni
Hundabúið í Dalsmynni
Fjölskyldan sætir ótrúlegum árásum.
Garri
Rimlarugl
í fréttum fyrir helgi kom fram að fjárframlög
til fangelsisins á Litla-Hraimi hafi verið af svo
skomum skammti að þar varð að loka heilli
deild i vor og ekki sér fyrir endann á þeirri lok-
' un. Þetta þýðir að 22 fangapláss hafa verið ónot-
uð i fleiri mánuði. Ríflega eitt hundrað manns
eru á biðlista eftir afplánun, þar af margir sem
dæmdir hafa verið fyrir alvarleg brot. í fangels-
um, t.d. á Akureyri, ægir saman alls kyns fong-
um, þeim sem ekki hafa greitt sektir og hinum
sem framið hafa alvarlegustu glæpi. Ofan á 100
manna biðröðina bætist síðan 500 manna
biðlisti, beiðnir frá lögreglustjóraembættum
landsins um afplánun vegna ógreiddra sekta.
Glæpur og refsing
Garri hefur talið að fyrst heimild er fyrir því í
lögum að refsa fyrir hin og þessi brot eigi að
^ beita þeim refsingum eins fljótt og auðið er til að
sambandið miili brotsins og refsingarinnar rofni
ekki. Menn átti sig á því fyrir hvaö þeim er refs-
að. En kerfið er svo þunglamalegt og fjárvana að
menn eru að taka út refsingu löngu eftir að af-
brot er framið, jafnvel iöngu eftir að þeir hafa
snúið af villu síns vegar og gert tilraun til að
gerast heiðvirðir borgarar. Hinir, sem engan
áhuga hafa á löghlýðinni hegðun, geta haldið
áfram að brjóta lögin, óáreittir fyrir fangelsis-
málastofnun. Allt þar til að pláss losnar og kallið
um afplánun kemur. Við bætist að fangar sem fá
reynslulausn en breyta í engu líferni sínu frá
því fyrir fangavist fá einnig aö valsa um óáreitt-
ir, í það minnsta þar til „sakaferill hinn seinni"
er orðinn svo langur að starfsmenn lögreglu,
dómstóla og fangelsis hrasa bókstaflega um
hann.
Reynt að gleyma
Af þessu öllu má ráða að það virðist töluverð-
ur lúxus að vera krimmi á Fróni. Þekkt er að
mönnum er sleppt eftir yfirheyrslur og þeir
halda áfram að sýna sömu hegðun og kom þeim
í yfirheyrsluna. Eftir dómsuppkvaðningu getur
liðið heillangur timi þar til afplánun hefst. Á
meðan gefst kostur á að brjóta enn frekar af sér.
Og sleppi menn út í reynslulausn virðist engu
skipta hvemig þeir hegða sér. Þeir þurfa að hafa
brotið stíft af sér í næstum ár til að kerfið bregð-
ist við. Það virðist engu skipta hvemig menn
hegða sér. Það er kaldhæðnislegt þegar hugsað
er til þess hversu afdrifaríkar afleiðingar af
hegðun brotamanna geta verið fyrir fórnarlömb-
in. Þær láta ekki bíða eftir sér eins og fangelsis-
kerfið. Þeirra gætir strax og þær eru miskunnar-
lausar. Dapurlegt er til þess að hugsa að loks
þegar kemur að fullnustu refsingar glæpamanna
eru yfirgnæfandi líkur á að þeir hafi fyrir löngu
gleymt til hvers verið er að loka þá inni. Á með-
an eru ófá fómarlömbin að hamast við að reyna
að gleyma tilefni refsingarinnar til þess eins að
geta lifað eðlilegu lífi - utan múranna.
(\xrri
Ávextirnir
Ekki alltaf upp á það besta.
Af ávöxtunum skul-
uð þið þekkja þá
Neytandi hringdi:
Af ýmsum ástæðum neyti ég ávaxta
af kappi. Þeir em hollustufæða sem ég
vil ekki vera án. Gallinn er hins veg-
ar sá að ávextir í verslunum hér á
landi eru oft afleitir. Ég vil ekkert
fullyrða en tel þó sennilegt að við
séum ekki að kaupa úrvalsávexti til
landsins. Oft eru þetta grjóthörð aldin
sem aidrei verða að mannamat ein-
hverra hluta vegna. Hver vill tfl dæm-
is glerharða plómu eða avókadó sem
er eins og handsprengja, eldsúrar app-
elsínur eða innanrotin epli? Á erlend-
um ávaxtamörkuðum er allt önnur
vara í boði. Af ávöxtunum skuluð þið
þekkja þá segir í góðri bók og Silli og
Valdi höfðu þetta slagorð á sínum
tíma, þegar ávextir fengust reyndar
sjaldan. Vandið nú innkaupin og þá
munu landsmenn borða miklu meira
af ávöxtum.
Eiríkur féll í freistni
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Þær eru margar freistingarnar í
heimi hér og sannarlega féll Eiríkur
Bergmann Einarsson fyrir einni
þeirra með því að reyna að tæla Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur úr borgar-
stjóraembætti. Allir vita að Ingibjörg
Sólrún tók það skýrt fram að hún sæti
út þau fjögur ár sem hún var kjörin. í
öðrum löndum væri þessu atviki lýst
sem pólitísku samsæri. í framhaldinu
verður Eiríkur Bergmann að íhuga
framhaldið, til dæmis hver á að verða
næsti borgarstjóri. Kannski ætlar
hann að tæla Björn Bjamason í emb-
ættið? Ekki legðist ég gegn því en ljóst
er að Eiríkur má vara sig.
Hegnið flugfylli-
byttunum
Ki-istinn Sigurðsson skrifar:
Flugfyllibyttum á að refsa harðlega.
Því miður vill dómsmálaráðuneytið
ekki refsa illþýði því sem er með
drykkjulæti og ofbeldi í millilanda-
flugi. Þá verða blöðin að koma til og
annast um refsinguna, birta myndir
af illþýðinu, heimilisfang og stöðu. í
sumum löndum fá slíkir óþokkar 10
til 20 ára fangelsi og hið sama ætti að
giida hér. Þetta pakk ógnar áhöfnum
og flugfarþegum þannig að saklaust
fólk er í lífshættu.
Travolta
Nennti ekki að tala við íslendinga.
Travolta lýsti
frati á ísland
Ung stúlka hringdi:
Ég fór með vinkonu minni í flug-
stöðina þegar John Travolta lenti þar
í ágúst. Við urðum fyrir vonbrigðum
með að hann kom ekki út úr vélinni
sinni og talaði ekki við nokkum
mann, nema þá kannski einn starfs-
mann. Þótt seint sé vil ég að Travolta
komi aftur og tali þá við sína aðdá-
endur. Mér fannst hann lýsa frati á ís-
land með þessari framkomu. En svona
eru þessir stóra kailar víst.
DVl Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf tii: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reylgavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.