Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Qupperneq 10
Óhætt er að segja að nýja Oueens of the Stone Age-platan Songs
for the Deaf hafi tekið rokkheiminn með trompi, enda sérstaklega
tilkomumikil og öflug plata. Trausti Júliusson rifjaði upp feril
þeirra Josh Homme og Nick Oliveri en þeir störfuðu fyrst saman í
hljómsveitinni Kyuss árið 1987.
Rokkspámenn sem taka
sig ekki of alvarlega
Ramones-manían heldur áff
Það er sitthvað forvitnilegt í boði
þessa dagana fyrir Ramones aðdáendur
þó að tveir af höfuðpaurum sveitarinn-
ar, þeir Joey og Dee Dee, séu falinir frá.
Nýlega kom út safnið Anthology - The
Chrysalis Years, en þessi 3ja diska pakki
safnar saman öllu þvíefni sem Ramones
gáfu út hjá Chrysalis, þ.á m. tónleika-
efni, en þriðji diskurinn er samfelld tón-
leikakeyrsla, 33 lög (þ.á m. öll þekktustu
lögin) og hvergi slegið af. 4. nóvember
er svo von á plötu með útgáfum annarra
listamanna á Ramones slögurum, en þar
má m.a. heyra meðferð U2 á Beat On The
Brat, Matallicu á 53rd b 3rd, Kiss á Do You Remember Rock’n Roll
Radio, Marilyn Manson á The KKK Took My Baby Away, Motor-
head á Rockaway Beach og Tom Waits á Jacky 6 Judy. Aðrir f lytj-
endur verða m.a. Red Hot Chili Peppers, Garbage, Green Day,
Rancid, The Offspring og Rob Zombie, en hann er jafnframt að
alhvatamaðurinn að útgáfunni.
Safnplötufár 1 (alþjóðlegt)
Nú fer að styttast í jóla-
köttinn og eins og vanalega
er von á safnplötum með öll-
um og ömmu þeirra. Annar
hlutinn í U2-sögunni, Best
of 1990-2000, kcmur 4. nóv-
ember og mun innihalda 16
lög, en að auki mun annar
diskur með b hliðum og
DVD með aukaefni fylgja
með fyrstu vikuna. Eftir það
verður platan einföld. Ný Best Of plata kemur frá David Bowie 21.
október og munu koma 16 mismunandi útgáfur víðs vegar um
heiminn. Það hefur verið talað um nýja tvöfalda Bítla-safnplötu,
en það er enn óstaðfest. Best of-plötur með Manic Street Pr-
eachers, New Order, Blondie, Madness, Siouxsie b The Banshees,
Cranberries og hinni nýlátnu Pulp verða líka í jólaflóðinu ásamt
smáskíf ulagasafni írsku sveitarinnar Ash. Samt er líklegt að safn
platan 40 Licks, með gómlu krumpufésunum í Rolling Stones,
seljist meira en allar þessar plötur, enda platan, sem gefin er út í
tilefni 40 ára starfsafmælis þeirra, fyrsta safnplata sveitarinnar
sem spannar allan ferilinn.
Safnplötufár 2 (innlent)
Islenskir útgefendur ætla
ekki að gefa þeim erlendu neitt
eftir í saf plötuútgáf unni nú fyr-
ir jólin. I september er von á
plötunni Roy Rogers með Halla
b Ladda sem safnar saman
þeirra bestu lögum. Upp úr
næstu mánaðamótum koma
safnplöturnar tvær með Björk
og seinna í október er von á „bara það besta“-plötum með Trú-
broti, Þremur á palli og Rfó-trfóinu, ásamt plötunni Mýrdalssand-
ur sem verður safn bestu laga hljómsveitar Bubba og Rúnars Júl,
GCD. Að lokum er það svo Megas, en á sama hátt og Rolling Sto-
nes fagna 40 ára starfsafmæli með 40 laga safni mun Megas
halda upp á 30 ára útgáfuafmæli með 30 laga safni sem spannar
allan feril hans. Af öðru endurútgef nu efni sem telja má líklegt að
lendi í mörgum jólapökkum þetta árið má nefna vandaðar endur-
útgáfur á 10 fyrstu plötum Megasar og sérstaka 20 ára afmælis-
og spariútgáfu á Stuðmanna plötunni Með allt á heinu, en á henni
verða m.a. lög úr myndinni sem ekki fóru á plötuna á sínum tíma.
Manu Chao með tónleikaplötu
Nú í vikunni kom út tónleikaplatan Radio Bemba Sound Sy
stem með fransk-spænska tónlistarmanninum Manu Chao og
hljómsveit hans, Radio Bemba, en Manu hefurverið á tónleikaferð
með sveitinni síðustu 3 ár og spilað fyrir milljónir manna í þrem
ur heimsálfum. Platan inniheldur lög af fyrstu tveimur sólóplöt-
um Manu Chao, Clandestino og Proxima Estacion Esperanza, ný
og áður óútgefin lög og svo gamla smelli frá því hann var meðlim-
ur í hljómsveitinni Mano Negra, m.a. lög eins og King Kong Five,
Casa Babylon og Mala Vida. Platan var tekin upp á tónleikum f La
Villette í París 3. og 4. sept
ember í fyrra og ólíkt mörg-
um öðrum tónleikaplötum þá
eru upptökurnar alveg látnar
halda sér, ekkert verið að
„laga“ og „bæta“ þær í stúd-
íói eftir á. Flestir þeir sem
hafa séð Manu Chao á tón-
leikum eru sammála um að
það sé frábær upplifun, m.a.
þeir fjölmörgu íslendingar
sem sáu hann á tveimur síð-
ustu Hróarskeldu-hátíðum.
gáfunni af Kyuss. Það samstarf varð að Queens Of The Stone
Age og semma árs 1998 gekk Nick Oliveri til liðs við þá.
Fyrsta platan og meistaraverkið Rated R
Fyrsta stóra platan með sveitinni hét einfaldlega Queens Of
The Stone Age og kom út hjá óháða plötufyrirtækinu Loos-
egroove Records í október 1998. Platan vakti töluverða at-
hygli og innihélt m.a. lagið If Only sem varð vinsælt á rokkút-
varpsstöðvunum vestanhafs. Ári seinna gerðu þeir félagar svo
samning við Interscope og fyrsti ávöxtur þess samnings var
platan Rated R sem kom út árið 2000 og fékk allsstaðar frá-
bæra dóma; var m.a. valin plata ársins af blaðamönnum
NME. Hemandez hætti f sveitinni áður en Rated R kom út
og síðan þá hafa Homme og Oliveri verið einu föstu meðlim-
imir, en alls konar aukamenn komið við sögu bæði á plötun-
um og á tónleikum. A nýju plötunni spila m.a., auk Homme,
Oliveri og Grohl, Paz og Anna úr A Perfect Circle, Alain Jo-
hannes og Natasha Shneider úr Eleven, Dean Ween og Blag
úr Dwarves, Chris Goss úr Masters Of Reality og Scream-
ing Trees-söngvarinn Mark Lanegan, sem reyndar kom líka
við sögu á Rated R.
Lög fyrir heyrnarlausa
Eins og áður segir hefur Songs For The Deaf fengið mjög
góðar viðtökur. Platan er nokkuð fjölbreytt þó að sándið haldi
henni saman. Hún er brotin upp með tilkynningum úr út-
varpi, sem er eins og rauður þráður í gegnum hana og gefur
henni heildarsvip. Þó að rokkið sé allsráðandi þá eru sum lög-
in með grípandi poppaðar melódíur. Platan minnir oft á frek-
ar gamaldags þungarokk en samt er víða komið við. First It
Giveth byrjar t.d. eins og Califomia Uber Alles með Dead
Kennedys, meðan Do It Again notar grunninn úr Gary
Glitter glam-rokk-smellinum Rock N Roll ... Og það sem
skín líka í gegn á plötunni er að þeir félagar taka sig ekki allt
of alvarlega. Þeir eru báðir með önnur verkefni í gangi. Josh
rekur plötufyrirtækið Rekords Rekords og er að vinna sóló-
plötu með Mark Lanegan, en á meðal annarra hliðarverkefna
má nefna Head Band, sem Casey Chaos úr Amen er í ,
Mondo Generator, sem er aukaverkefni Oliveri, og svo
hljómsveitina The Eagles (jfl ; Of Death Metal, sem er
„eins og Eagles en spilar . 'iff/ death metal", eins og
Josh orðar það svo skemmti- lega ...
„Við emm ekkert að reka menn og ráða, menn geta verið
eins lengi og þeir vilja og þeir geta líka hætt þegar þeim hent-
ar,“ segir Nick Oliveri, bassaleikari og söngvari bandarfsku
rokksveitarinnar Queens Of The Stone Age í nýlegu viðtali
þegar hann er spurður út í endalausar mannabreytingar
hljómsveitarinnar. Nick er eini fasti meðlimurinn ásamt Josh
Homme, gítarleikara og söngvara, en aðrir koma og fara án
þess að þeir félagar séu neitt að kippa sér upp við það. Á nýju
plötunni ber mikið á Dave Grohl, fynum Nirvana-trommara
og leiðtoga Foo Fighters, sem settist við settið affur og hefúr
greinilega engu gleymt þó að hann hafi spilað á gítar með Foo
Fighters undanfarin ár.
Á tónleikaferð sveitarinnar f vor spiluðu Grohl og Troy
Van Leeuwen, gítarleikari A Perfect Circle, líka, en nú hafa
þeir báðir kvatt og snúið sér að öðm, en Homme og Oliveri em
búinir að ráða fyrrum Danzig, Goatsnake og Wasted Youth-
trommarann Joey Castillo í stað Grohl og em nú á tónleika-
ferð með... And You Will Know Us By The Trail Of Dead
til þess að fylgja nýju plötunni eftir. Songs For The Deaf, sem
er þriðja plata QOTSA, hefur fengið ffábærar viðtökur gagn-
rýnenda og rokkáhugafólks út um allan heim og verður ömgg-
lega ofarlega á listum yfir rokkplötur ársins þegar árinu lýkur.
En riflum aðeins upp söguna.
Hin goðsagnakennda Kyuss
Nick Oliveri og Joshua Homme vom báðir á meðal stofn-
enda hinnar goðsagnakenndu sýmþungarokksveitar Kyuss í
Palm Desert í Kalifomíu árið 1987. Sveitin, sem í upphafi var
einnig skipuð John Garcia söngvara og Brant Bjork
trommara starfaði til ársins 1995 og sendi frá sér fjórar plötur
sem allar fengu mikið lof gagnrýnenda en nutu ekki mikillar
hylli almennings. Kyuss er ein af þessum sveitum sem ekkert
sérstaklega margir hlustuðu á þegar hún var starfandi en sem
hefur haft mikil áhrif effir að ferli hennar lauk. Kannski var
hinn almenni rokkaðdáandi ekki tilbúinn fyrir svona þunga
tónlist á þessum tíma. Oliveri hætti reyndar í Kyuss 1992 og
gekk til liðs við hina alræmdu Chicago-sveit, The Dwarves.
Eftir að Kyuss hætti ‘95 spilaði Homme með Screaming Trees,
stofhaði Gamma Rey, sem gaf út nokkrar smáskífúr, og gaf svo
út sólóplötuna Instmmental Driving Music For Felons árið
1997. Það ár byrjaði hann svo að semja tónlist með trommu-
leikaranum Alfredo Hemandez, sem hafði verið í síðustu út-
plö^udómar
Flytjandi: Schneider TIVl
Platan: Zoomer
Útgefandi: City Slang/Skífan
Lengd: 45:50 mín.
hvað fvrir skemmtileaar niSurstaða
h vern? staðreyndir
Schneider TM er aukasjálf þýska tón- listarmannsins Dirk Dresselhaus. Zoomer er önnur platan hans en sú fyrri, Moist, kom út hjá City Slang fýrir fiórum árum. Moist var instrúmental raftónlistarplata en á nýju plötunni eru öll lögin sungin. Platan inniheldur m.a. smáskífulagiö Frogtoise og lagið Turn On sem fýrrum Puppetmastaz-meðlim- urinn Max Turner rappar í. Þessi plata, Schneider TM, er enn ein sönnun þess að Þýskaland er eitt af mest spennandi popp-svæðum heims- ins I dag. Þetta er tónlist sem aðdá- endur sveita eins og Mouse On Mars og Notwist ættu að tékka á. Schneider TM notar mörg af sömu hljóðunum og „clicks & cuts“-raftónlistargengið not- ar, en hann gerir úr þeim sungin poþp- lög. Það varThe Light 3000 sem var útgáfa Schneider TM á Smiths-laginu There Is A Light That Never Goes Out sem kom Dirk á bragðið sem söngvara. Lagið, sem var á stuttplötunni Binokular, sló I gegn m.a. bæöi hjá Jarvis Cocker og John Peel (náði 8. sæti á árslista hans). Dirk segist annars vera undir hvað mestum áhrifum frá Lou Reed og furðufuglinum Daniei Johnston. Eins og Björk á Vespertine notar Dirk Dresselhaus snarkið, brakið og skröltið sem hefur verið áberandi hjá evrópskum raftónlistarmönnum í tilraunageiranum til þess að búa til popptónlist. Útkoman er frábær þó að tónlistin hér sé bæði popp- aðri og aðgengilegri en hjá Björk. Einstök plata sem sameinar það framsækna og það hefðbundna. Rott framtíðarpopp. trausti júliusson
Dirty Vegas er tríó frá Suður-London, skipað þeim Ben Harris og Paul Harr- is, sem eru hljðmþoröa- og græju- menn, og Steve Smith sem syngur og spilar á ásláttarhljóðfæri. Þeir vöktu fyrst athygli í Bandarikjunum með lag- inu Days Go By sem var notað í Mitsu- bishi-auglýsingu. í framhaldinu fór þessi þlata, sem er þeirra fýrsta, beint I 7. sæti Billboard-listans. Tónlist Dirty Vegas er léttleikandi og poppað sambland af danstónlist og rokki. Dirty Vegas eiga þ.a.l. sitthvað sameiginlegt með sveitum eins og Hapþy Mondays sem blönduöu rokki og dansi saman fyrir 10 árum. Þetta - er samt poppaðri og léttari tónlist ef eitthvaö er (þeir nota t.d. kassagítara mikiö) þannig að alveg eins mætti kalla þetta klúbbapopp. Ben Harris var áöur i house-dúóinu Bullitt, Paul Harris var fastaplötusnúð- ur á Milk Bar-klúbbnum í London og Steve Smith var áður söngvari í rokk- hijómsveitinni Higher Ground. Hljóm- sveitin hét fýrst Dirty Harry en nafninu var auðvitað breytt til þess að forðast málaferli. Þegar Paul tapaöi miklu fé í spiiavíti í London datt þeim nafnið Dir- ty Vegas í hug. Við fyrstu hlustun virkar þetta eins og útþynnt útgáfa af danstónlist, en þegar maður hlustar betur þá fer maður að meta tónlistina út frá hennar eigin for- sendum. Þetta sambland af house og kassagítarpoppi virkar á köflum þokka- lega; platan rennur ágætlega í gegn og hefur fínan hljóm. Hún er samt fullein- hæf og tekst aldrei að rista mjög djúpt. trausti júlíusson
10
f ó k u s 13. september 2002