Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Blaðsíða 15
Hvað eiga tveir myndlistarnemar úr FB sameiginlegt annað en að bregða fyrir sér blýanti og rissa upp
nakið kvenfólk? Þeir rappa! Bent rappar meðal annars með XXXRottweiler og þeir 7berg læra og syngja
saman. Þeir eru á ákveðnum tímamótum í rappinu, það er plata á leiðinni en reyndar var þeim bannað
af Flugmálastjórn að gefa hana út á ákveðnum degi. Bent og 7berg hafa þetta að segja um málið.
Klikk-idi-klakk,
íslenskan er málið
„Flugmálastjóm talaði við Eddu
miðlun, sem gefur út plötuna okkar,
og bað um að platan væri ekki gefin út
á þessum degi. Ekki vitum við af
hverju en kannski vegna þess að hún
átti að koma út þann 11. september og
það er flugvél framan á diskinum."
Bent og 7berg eru búnir að fikta
saman við tónlist í tvö ár, Bent hefur
rappað með XXX Rottweilerhundun-
um og 7berg hefur þeytt skífum ásamt
rappinu. „Við sömdum lög og vorum
hressir. Síðan stóð til að gefa út smá-
skífu með einhverjum lögum en okkur
fannst það svo ghetto eitthvað, Skífan
og Eddan sýndu þessu áhuga og við
áttum fullt af lögum þannig að við
slógum til og ákváðum að fara með
þetta alla leið.“
Finnst Bent ekkert of mikið að rappa
með Rottiveiler og gefa út plötu með
7berg!
„Nei, alls ekki, fólk kaupir fleiri en
einn disk á ári, en ef fólk kaupir bara
einn þá á það að vera Bent/7berg en ef
tvo þá má það kaupa nýja XXX
Rottweiler'diskinn þegar hann kemur
út. Það er reyndar að koma út fárán-
lega mikið af rappplötum þessa dag-
ana. Rappið er orðið tískufyrirbæri á
íslandi, það er alveg fullt að gerast í
þessari senu.“
En af hverju núna?
„I kringum árið ‘97 þá sprakk þetta
út. Quarashi og Subterranean voru að
gera góða hluti og margir fylgdu í kjöl-
farið. Nú er rappið orðið miklu sýni-
legra en áður. Reyndar er mikið af
vondu rappi þama úti og besta tónlist
sem til er er gott hip-hop en sú versta
er vont hip-hop. Það eru alltof margir
copy-paste rapparar þama úti.“
BÝ HJÁ MÖMMU
Hvemig virkar að vera í rappsveit,
hverjir gera hvað?
„Eg (Bent) og 7berg röppum. Svo
erum við með tvo pródúsera sem búa
til takta, hanna tónlistina. Þeir heita
Tryggvi, sem er skákmaður, og Ámi,
sem vann þar til nýlega í BYKO. Síð-
an erum við með plötusnúð sem heitir
Paranoia sem er undirheimamaður
með meiru. Við (Bent og 7berg) búum
til textana við rappið sem pródúser-
amir fá. Þeir búa svo til takt í kring-
um það. Við hittumst svo og fáum
þetta til að virka."
Af tónlistarmyndböndum á MTV
að dæma þá eru allir rapparar forríkir
með gullhálsmen, á nýjum Lexus, eiga
hrúgu af mjög nánum vinkonum og
eiga kastala fyrir heimili. Eruð þið
orðnir ríkir af rappinu?
„Eg (Bent) lifi á þessu. Eg á reynd-
ar ekki bíl og bý hjá mömmu. Ef ég
þyrfti að reka bíl, leigja húsnæði og
borga bamameðlag þá gæti ég þetta
líklega ekki. „
En hvaða fríðindi fylgja þessu þá?
„Átta ára strákar koma upp að mér
(Bent) og segja að ég sé kúl og 14 ára
fullar stelpur hringja í mig og skella á
áður en þær þora að segja eitthvað, það
hjálpar manni að bústa upp egóið.“
Eruð þið þá fyrirmyndir?
„Við lítum á okkur sem eftirmyndir
en ekki fyrirmyndir. Við buðum okkur
aldrei fram sem einhverjar bamapíur
og ef einhverjir foreldrar eru á móti
okkur þá er það bara þeirra mál. V0
erum samt betri fyrirmyndir en marg-
ir þama úti. Ef það eru ekki við þá eru
það einhverjar týpur úr einhverri bíó-
mynd eða fíkniefhasalinn á horninu
sem krökkum finnst kúl af því hann
er með svo marga eymalokka og keyr-
ir um á flottum bíl. Við röppum á móti
ffkniefnum."
ÍSLENSKA ER SÉRSTAÐA
Flestar raþþsveitir syngja á ensku en
af hverju syngja XXX og Bent/ 7berg á
fslensku?
„íslenskan hefur þetta harða, klikki-
diklakk, klíkukrónubardagi, eins og
bland af rússnesku og sænsku. ls-
lenskan hefur margar myndir, beyg-
ingar og föll sem hægt er að nota. Oll
lögin okkar eru á íslensku nema eitt
vers í einu lagi sem er á ensku. „
En getur íslenskt rapp meikað það á er-
lendri grundu?
„XXX Rottweiler hefur fengið gott
plug frá erlendum blaðamönnum sem
hafa komið hingað og svo er
Rottweiler að fara til Svíþjóðar og
Finnlands í september. Það væri frá-
bært að spila í félagsmiðstöðvum og
klúbbum úti en allt meira en það eru
draumar."
Þannig að enskan er ekki málið?
„Ef við færum að syngja á ensku þá
myndum við tapa sérstöðunni."
Hvað vilja Bent og 7berg segja við
aðdáendur sína sem langar að rappa?
„Gera sinn hlut, æfa sig heima fyr-
ir framan spegil og EKKl gefa út plötu
á sama tíma og við!“
■^SSf
er>u —argir dropar
;->t þá nokfcra
{ ,jáv,;r. það ter ekkí a
•U!A \ erié ti! mvci saralKo.v
. Upp Hrf tíroans. og stöan n--tur
cru roorg ár, roargar ar runni,
mála ...
■r ntnagbs 'ítrih b.fðt tjjr.t
•U-rif stóð standa alltr ein.r--
Á'Tettsesinn se sandkasMnn. crt
ut og fOíist í það
* cevna að stttndj stu
ctnir á bári i þessu
Mer fjtnnst ngntapa ^
cn Stóan tó '1 wj'hiþmxn -dbr eins ^
fs bar-' J rXrir' sf einhverium hálfvitum
bt ^ Stiórnin . : vtd hla>n,tn á eitt au enn sero Ntr y
þeir spib bara peppara sem ntaður a a0 KA"“ -
- K, ,111 falla beirra toolUst er bara martvK
"fll ,Vk„r þtð, við þurfum engar trek.tn smn
.,.w »
7b,~tv ur Irtgttm „Mú ég rpar
Texti og Fókusmyndir: Hilmar Þór
13. september 2002 f ó k u s
15