Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Fréttir
DV
Óskiljanlegt hvernig heilleg bein fornmanna frá upphafi kristnitöku hafa geymst:
A þriðja tug 1000 ára
beinagrinda fannst
Hellleg eftir þúsund ár
Hér er GuönýZoéga beinasérfræöingur hjá ótrúlega heillegri beinagrind forn-
manns sem legiö hefur í vígöri mold í þúsund ár. Ljósmyndara fannst sem beina-
grindin glotti viö sér.
í Keldudal í Hegranesi i Skaga-
firði hafa komið i ljós heillegustu
beinagrindur sem fundist hafa í
kirkjugarði frá frumkristni hér á
landi. Undanfarna daga hefur
verið unnið að því að opna á
þriðja tug grafa sem taldar eru
frá elleftu öld, enda undir ösku-
laginu frá Heklugosinu 1103.
Verða beinagrindurnar teknar
upp og fluttar í geymslu fyrir vet-
urinn.
Þessi hluti kirkjugarðsins, sem
fylgir stafkirkju sem ekki var
áður vitað um í Keldudal, er
einmitt á þeim stað sem hjónin í
Keldudal eru að fara að reisa hús
fyrir ferðaþjónustu.
Eins og myndir DV bera með
sér er um ótrúlega heilleg bein að
ræða og ljósmyndara fannst bein-
línis að beinagrindurnar glottu
við sér úr gröfunum í gær.
Einnig mátti sjá í sneiðingum
leifar af trjáviði í kistunum.
Ragnheiður Traustadóttír forn-
leifafræðingur, sem kom i Skaga-
fjörð í vor til að stjórna uppgreft-
inum mikla á Hólum, sagði að
þessi merki beinafundur yrði
rannsakaður nánar næsta sumar,
það er sá hluti garðsins sem er
vestan kirkjunnar, en greinilega
sést neðsti hluti stoðarinnar sem
stafkirkjan var reist á.
Ragnheiður sagði að reyndar
hefði staðið til í upphafi að rann-
saka áður fornan kirkjugarð á
Hofi í Hjaltadal, næsta bæ við
Hóla, og því hefði verið óvænt að
lenda í þessum beinafundi í
Hegranesinu. Eins og greint var
frá í DV fyrir mánuði fundust
nokkrar hauskúpur í Keldudal og
var það vísbending um kirkju-
garðinn foma.
Ragnheiður segir að þrír
DVÁ1YNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Grafir fornmanna
Unniö var viö uppgröftinn í Keldudal í
gær. Fremst á myndinni eru þau Ragn-
heiöur Traustadóttir og Þór Hjaltalín en
baka tíl bændurnir í Keldudal, Guörún
Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson.
kirkjugarðar frá frumkristni hafi
verið rannsakaðir áður, og beinin
hefðu verið „smjör“ á þessum
stöðum miðað við í Keldudal.
Þeir eru á Þórarinsstöðum í Seyð-
isfirði, Neðra-Ási i Hjaltadal og
Hrísbrú í Mosfellsdal. Skýring-
una á því hvers vegna beinin
varðveittust svona vel í Keldudal
taldi Ragnheiður vera þá að eitt-
hvað í jarðveginum varðveitti
þau.
Það er fornleifavemd ríkisins
sem stendur fyrir uppgreftinum i
Keldudal og þar vinna einnig við
uppgröftinn Þór Hjaltalín, minja-
vörður á Norðurlandi vestra, og
Guðný Zoega, beinasérfræðingiu-
fornleifaverndar. Bændumir i
Keldudal, Þórarinn Leifsson og
Guðrún Lárusdóttir, tóku einnig
þátt í uppgreftinum af áhuga.
-ÞÁ
Prinsessuhryssan utan með næstu ferð
- viðræður við Buckinghamhöll um afhendinguna
Hin nýja prinsessuhryssa, Snerpa
frá Lambanesi, fer til Bretlands með
fyrstu ferð sem fellur, að sögn Pét-
urs J. Eiríkssonar, stjómarmanns
Landsmóts ehf. Hryssan verður not-
uð til þjálfunar fatlaðra bama og
þeim til yndisauka.
Hryssan var sem kunnugt er
táknræn gjöf til önnu Breta-
prinsessu og fór afhendingin fram á
landsmótinu á Vindheimamelum
síðastliðið sumar. Að vísu var önn-
ur hryssa afhent þar, hryssan
Blökk, en hún sýndi af sér ósæmi-
lega hegðun við afhendinguna og
var hún því afskrifuð og leit hafin
að öðru hrossi sem myndi henta
betur.
Pétur sagði að enn væri ekki vit-
að hvar Snerpu yrði búinn dvalar-
staður til framtíðar í Bretlandi. Við-
ræður stæðu nú yfir við Bucking-
hamhöll um það hvemig móttök-
unni yrði háttað og hvemig hryssan
nýttist sem best til þess hlutverks
sem henni væri ætlað í hinu nýja
heimalandi.
Snerpa, sem keypt var af Holts-
múlabúinu, hefur undirgengist
mjörg ströng próf með reiðhjólum,
hjólbörum og bömum og stóðst hún
þau öll með prýði.
„Þetta er mjög fallegur og góður
gripur með mikla hæfileika," sagði
Pétur. „En hún hefur einnig þá eig-
inleika að vera mjög þægileg í um-
gengni og þæg, sem er höfuðatriði i
því hlutverki sem henni er ætlaö.“
-JSS
Búist við fjölmenni
Mesta stóðréttarhelgi ársins í
Skagafirði er um helgina, Lauf-
skálarétt i Hjaltadal sem um mörg
undanfarin ár hefur verið fjöl-
sóttasta stóðrétt landsins. Búist er
við gríðarlegum mannfiölda í rétt-
ir og á tvo dansleiki kvöldsins
enda veðurspá hagstæð.
í fyrsta skipti verður haldinn
dansleikur i reiðhöllinni. Þarf að
gera nokkrar breytingar til að það
sé framkvæmanlegt. Sett verður
gólf í reiðsalinn og þar komið fyr-
ir borðum og stólum. Gólfið er úr
plasteiningum sem er smellt sam-
an og fljótlegt að leggja það og
fiarlægja. Að sögn Hafsteins Lúð-
víkssonar umsjónarmanns reið-
hallarinnnar er mjög erfitt að
áætla hvað margir muni leggja
leið sína á dansleikinn en undir-
búningurinn miðast við að þangað
komi allt að tólf hundruð manns.
Það eru Upprekstrarfélag Hóla- og
Viðvíkurhrepps og Reiðhöllin
Svaðastaðir sem halda dansleik-
inn í höllinni en Ungmennafélagið
Neisti og Hestamannafélagið
Svaði standa fyrir dansleiknum í
Höfðaborg. -ÖÞ
Níu yfirmönnum sagt upp
Eimskip mun nú um mánaða-
mótin segja níu yfirmönnum upp
störfum, aðallega stýrimönnum.
Hjördis Ásberg, starfsmannastjóri
Eimskips, segir að félagið sé að
bregðast við breyttum kringum-
stæðum. Félagið hafi nýverið gert
breytingar á skipastóli og haft
óvenjumarga starfsmenn undanfar-
iö. í raun hafi verið um aukamann-
skap að ræða eftir aö félagið seldi
tvö skip, þ.e.a.s. Lagarfoss og
Bakkafoss.
„Þetta sveiflast svona til og frá.
Við vorum með 130 starfsmenn fýr-
ir fimm árum en höfum verið með
um 150 undanfarið vegna þess að
við vorum meö aukaskip sem dróst
að selja,“ segir Hjördis.
Jónas Garðarsson hjá Sjómanna-
félagi Reykjavíkur hafði ekki feng-
ið neinar upplýsingar um það i gær
aö til stæði að segja upp óbreyttum
sjómönnum hjá félaginu. -BÞ
Drengur fyrir bíi
Ekið var á dreng á Skálaheiði á
móts við Álfhólsveg í Kópavogi
skömmu fyrir kl. fimm í gærdag.
Dengurinn var að koma úr strætis-
vagni sem staðnæmst hafði við bið-
skýli. Hann hljóp fram fyrir vagn-
inn og út á götuna. í sömu svifum
var bifreið ekið fram hjá vagninum
og varð drengurinn fyrir honum.
Drengurinn var fluttur á slysadeild
en hlaut minni háttar meiðsl. -JSS
Opii: Smiriliid iíi. - fist. kl. 11-19 • lai. kl. 11-11 • m. 13-18
Blæsibc níi. - fist. kl. 10-18 • lau. kl. 18-18
Sniralinl - Blaesibae
SÍDÍ 54515501| 5451500