Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Utlönd
X>V
Þjóðverjar gera
sér vonir um
bætt samskipti
Þýsk stjómvöld
I túlka ummæli ráða-
manna í Hvíta hús-
inu sem svo að far-
ið sé að draga úr
spennunni í sam-
skiptum ríkjanna.
Þau vildu þó ekki
I staðfesta fréttir
þess efnis í gær að Gerhard
Schröder kanslari væri að reyna að
koma á fundi með George W. Bush
Bandaríkjaforseta.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta
hússins, sagði á fímmtudag að
Bandaríkjamenn og Þjóðverjar gætu
jafnað ágreining sinn með tíman-
um. Talsmaður Þýskalandskansl-
ara, Bela Anda, kallaði orð
Fleischers skref fram á við eftir að
gagnrýni Schröders á hemaðará-
form Bush í írak ollu pirringi í Was-
hington.
ísraelum tókst
ekki að drepa
Ijðsmann Hamas
ísraelum mistókst að drepa hátt-
settan leiðtoga palestínsku skæru-
liðasamtakanna Hamas í flugskeyta-
árás á Gaza, að því er ísraelskur
ráðherra greindi frá í gær.
Hamas-liöinn Mohammad Deif,
sem stjórnar hemaðararmi Hamas,
særðist ekki alvarlega í árásinni,
sagði ráðherrann, þvert á það sem
áður hafði verið greint frá.
Tveir lífverðir Deifs létu lífið í
árásinni og um fjörutíu manns
særðust. Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, var
meðal þeirra sem gagnrýndu flug-
skeytaárásina.
Bandaríkjamenn reyndu að fá Frakka á sitt band í íraksmálinu:
Chirac lét ekki
undan þrýstingi
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti lét ekki undan þrýstingi af
hálfu Bandaríkjamanna og Breta
um nauðsyn þess að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti
nýja harðorða ályktun um írak.
Bandarikjamenn lögðu hart að
Frökkum í gær að slást í lið með
þeim. Chirac sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseta hins vegar í sim-
ann að hann væri enn andvígur
nýrri ályktun S.Þ. þar sem sjálf-
krafa væri heimilað að grípa til
valdbeitingar ef írakar færa ekki
að kröfum samtakanna.
Talsmaður Chiracs sagði að
Frakklandsforseti hefði ítrekað
stuðning sinn við eigin tillögur þar
sem gert er ráð fyrir ályktun um
óheftan aðgang vopnaeftirlits-
manna S.Þ., sem eiga að leita að
gjöreyðingarvopnum, og samvinnu
íraskra yfirvalda. Þeirri ályktun
yrði síðan fylgt eftir með annarri
þar sem valdbeiting yrði heimiluð
ef írakar byðu Öryggisráðinu byrg-
inn.
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að frekari
tafir á því að vopnaeftirlitsmenn
færu til íraks væm „ófyrirgefanleg
mistök". írösk stjómvöld lýstu því
yfir fyrr í mánuðinum að vopnaeft-
irlitsmenn fengju að koma aftur til
landsins eftir nokkurra ára hlé.
Bandariskur embættismaður er
REUTERS-MYND
Hlýtt á klerk í moskunni
íraskar konur hlýöa á klerk í mosku einni í Bagdad. Klerkurinn hvatti múslíma
um allan heim til að mæta hótunum Bandaríkjamanna í garð íraks.
væntanlegur til Moskvu í dag til að
reyna að telja rússneskum ráða-
mönnum hughvarf.
Helstu andstæðingar Saddams
Husseins íraksforseta sögðu í gær
að þeir myndu hittast í Bmssel I
októberlok til að koma sér saman
um framtíð landsins, fari svo að
Saddam verði steypt af stóli, eins og
bandarísk stjómvöld stefna að.
Bandarískar og breskar orrustu-
þotur vörpuðu sprengjum á flug-
skeytaskotpalla suður af írösku höf-
uðborginni Bagdad í gær, eftir að
íraski herinn skaut flaugum að
vestrænum flugvélum.
Vafasamur félagsskapur
John Ashcroft,
dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna og
einn ötulasti bar-
áttumaðurinn gegn
hryðjuverkum, er
sjálfur tengdur
írönskum skæru-
liðahópi sem er á
lista Bandaríkjastjórnar yfir hryðju-
verkahópa. Tímaritið Newsweek
greindi frá þessu.
Osama og Omar lifandi
Osama bin Laden og Omar klerk-
ur, andlegur leiðtogi talíbana, eru
lifandi og við góða heilsu og halda
til í Afganistan, að því er fyrrum
diplómat talíbana segir.
Misheppnaö hryðjuverk
Sprengiefni sem fannst um borð í
marokkóskri farþegaþotu í Frakk-
landi bendir til mislukkaðs hryðju-
verks en ekki sprengjuhótunar
vegna þingkosninganna i Marokkó.
Mótmælendur handteknir
Lögregla í Washington handtók á
þriðja hundrað manna sem efndu til
mótmæla gegn hnattvæðingu og
fundi sjö helstu iðnrikja heims.
Óttast um líf hundraða
Óttast er að hundruð manna hafi
drukknað þegar senegalskri far-
þegaferju hvolfdi í ofsaveðri undan
ströndum Gambíu í fyrrinótt. Ferj-
an var á leið frá sunnanverðu
Senegal til höfuðborgarinnar Dakar.
Vænkast hagur Perssons
Hagur Görans Perssons, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, vænkaðist mjög
í gær þegar slitnaði upp úr stjórnar-
myndunarviðræðum Miðflokksins,
græningja, Þjóðarflokksins og
Kristilegra demókrata.
Alveg einstakt
Jiaust
tilboð!
j §§
■55--
Gámaverð:
1.490 kr.
Gámaverð:
530 kr.
. i Cámaverð:
2.900 kr.
Rafkaup
Ljós & Lampar ■
Ármúla 24
Sími 585 28 00
Hausttilboðiö nær lika tfl:
Mosraí Mosfeísbæ, Bafbúöin Álfaskeiði Halnartitði, Geisli
Vesfmannaeyjum, Raffjjónusta Sigurclórs AY/anes Reynir
Ólafíson Keflawk, Fossraf Ssitassi. Lónið Höin, Sveinn
Guðmundsson Egísstððum, Kaupfélag Vopnfirðinga,
Johan Rönning Akureyri, Öryggi Húsavík. Rafbær SigtafirS.
Rafsjá Sauöartuók, Kaupfélagið Hvammstanga, Rsfatda
Neskaupstað. Straumur Ísattrðí, Blömsturveilir
Heiiissandi, Guðni E. Hailgríms Grundarfirði,
Kaupféiagíð Bíðnduösi. .