Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Helgorhlaö IOV
27
,Ég gef einföld ráð því þá er líklegra að fólk fari eftir þeim.“ DV-mynd E.Ól
Fer eftir sínum
eigin ráðum
Bandaríski rithöfundurinn Victoria Moran
hjálpar fólki að láta drauma sína rætast.
Hún gaf blaðamanni DV nokkur ráð og sagði
honum íleiðinni frá ferli sínum, spjalli við
Paul McCartney og af hverju konur lesi bæk-
urnar hennar en ekki karlar.
„Ég segi fólki hvernig þaö geti tengst sinni
innri visku,“ segir Victoria Moran, höfundur
bókanna Láttu ljós þitt skína og Fegraðu líf þitt.
Bækurnar innihalda ráð um hvernig þú getir
komið skipulagi á líf þitt og þar af leiðandi náð
þeim markmiðum sem þú setur þér. Þetta eru
ekki háfleygar predikanir heldur einföld heil-
ræði eins og búa um rúmið sitt og fara í bað á
laugardögum. „Ég gef einföld ráð þvi þá er lik-
legra að fólk fari eftir þeim,“ segir Victoria og
brosir á mjög bandarískan hátt.
„Þarf virkilega að minna okkur á þetta?“ spyr
ég.
„Já,“ svarar Victoria. „Við erum alltaf að flýta
okkur og stundum finnst okkur eins og líf okkar
sé eilíf óreiða. Þegar þú byrjar daginn á því að
slaka á í tíu mínútur með þvi t.d. að búa um
rúmið og fá þér gott kaffi þá tekurðu þessa
minningu með þér i vinnuna. Ég hef farið víða
um heiminn og alls staðar eru þessi daglegu
vandamál að einhverju leyti eins. Við höfum
ekki tíma til að njóta lífsins. Við viljum vera
bestu mæðurnar, við viljum hjálpa vinum okkar
en við viljum líka eignast peninga. Hvert sem ég
fer í heiminum verð ég vör við þessa togstreitu."
Einfoldu ráðin sem Victoria gefur eiga smátt
og smátt að gera manneskjunni kleift að uppfylla
alla sína drauma. „Þú vilt fá ýmislegt út úr líf-
inu en móðir þín segir kannski við þig: „Þú ert
í dásamlegu starfi, átt yndisleg börn og eigin-
mann sem gerir hvað sem er fyrir þig.“ Ég vísa
þessu á bug. Ef þú reynir ekki að láta drauma
þína verða að veruleika ertu að fara á mis við
lífið. Sumir eiga sér drauma og hugsa sem svo
að þeir séu ekki nógu gáfaðir til að láta þá verða
að veruleika. Ég segi við þetta fólk að það á sér
einungis drauma af því að það getur látið þá ræt-
ast. Ég hef tvisvar sinnum farið í uppskurð á
hnjám og þess vegna dreymir mig ekki um að
verða ballettdansmær en draumur minn var að
gera það sem ég er að gera núna, þ.e. að sitja
hérna á kaffihúsi í Reykjavík og halda fyrirlest-
ur um bækurnar mínar.“
„Ferðu eftir þínum eigin ráðum?“ spyr ég.
„Ég reyni það en auðvitað er ég ekki fullkom-
in. Ég reyni t.d. að slaka á fyrstu tíu mínútur
dagsins og ég skrifa dagbók. Fólk þarf ekki að
fara eftir öllu sem ég segi. Dóttir mín fer bara
eftir þeim ráðum sem henta henni og ég held að
það sé algilt. Fólk tínir úr bókunum það sem
hentar hverju sinni.“
Karlmenn þora eltki að kaupa bækumar
mínar
Einhverra hluta vegna eru það fyrst og fremst
konur sem lesa bækur eins og Victoria skrifar.
„Það skrifa mér margir karlmenn sem hafa lesið
bækurnar mínar og spyrja mig af hverju ég
skrifi ekki bækur fyrir karla. Staðreyndin er sú
að níutíu og sex prósent þeirra sem kaupa svona
bækur eru konur og þeir karlmenn sem skrifa
mér eru eflaust mjög hugrakkir því flestir
myndu ekki láta sjá sig með svona bók i fartesk-
inu. Ég held hins vegar að þessar bækur eigi al-
veg erindi til karla og margar konur segja mönn-
um sínum frá því sem þær eru að lesa. Þannig
að karlar lesa bækurnar óheint þó að þeir kaupi
þær ekki.“
„En af hverju kaupa konur þessar bækur?“
spyr ég.
„Ég held að ástæðurnar séu tvær. í fyrsta lagi
þá gera konur öðruvísi kröfur til lifsins en karl-
ar. Karlmenn eru frekar sáttir ef þeir eru í góðu
starfi og í góðu sambandi. Fyrir margar konur
er þetta einungis grunnurinn að öllu hinu sem
hægt er að gera í lífinu og þær vilja góð ráð sem
leiðbeina þeim til að ná þessum markmiðum. I
öðru lagi þá líður mörgum konum mjög illa. Ég
átti við offituvandamál að stríða i mörg ár og
mér leið skelfilega því það eru gerðar mjög skýr-
ar kröfur til kvenna um það hvernig þær eigi að
líta út. Margar konur eru í sömu sporum og ég
var í. í mínum bókum er ég ekki endilega að
reyna að bæta konur heldur er ég frekar að segja
þeim að þær séu finar og flottar í dag.“
Paul McCartney breytti lífi mínu
Victoria er fædd í Missouri í Kansas og byrj-
aði snemma að skrifa. Fjórtán ára gömul skrif-
aði hún um tónlist fyrir unglingatímarit og
draumur hennar var að taka viðtal við Bítlana.
„Ég fór á minn fyrsta blaðamannafund með Bítl-
unum þegar ég var fjórtán ára gömul og síðan
aftur ári síðar. Þar hitti ég umboðsmann þeirra
og okkur varð ágætlega til vina. Svo flutti ég til
London og þar hittumst við aftur og hann hauð
mér að taka viðtal við sjálfan Paul McCartney á
kaffihúsi í London sem ég þáði að sjálfsögðu. Ég
hitti Paul og hann bauð mér í glas og við spjöll-
uðum lengi saman. Þessi reynsla kom mér í
skilning um að ég gat gert hvað sem var i lífinu.
Það voru milljón stelpur alls staðar í heiminum
sem vildu vera i mínum sporum en mér tókst
þetta. Ég tók eitt skref í einu og komst að lokum
þangað sem ég vildi. Grunnurinn að þessu er að
trúa á sjálfan sig.“
Foreldrar Victoriu voru báðir útivinnandi
sem var mjög óvenjulegt í Kansas fyrir fjörutíu
árum. „Sú manneskja sem mest áhrif hafði á mig
var fóstran mín. Hún þekkti trúarbrögð viðs veg-
ar um heiminn og þannig öðlaðist ég mjög víð-
tækan skilning á hugmyndaheimi fólks sem var
af ólíku bergi brotið. Faðir minn var læknir og
vann í hverfi þar sem margir kynþættir voru
saman komnir og við vorum oft við giftingar eða
jarðarfarir hjá fólki með mjög ólíkan menning-
arlegan bakgrunn. Ég segi stundum að ég hafi
verið alin upp hjá Sameinuðu þjóðunum," segir
Victoria brosandi.
Hún fékk sinn skerf af erfiðleikum í lífinu en
foreldrar hennar skildu þegar hún var ung. Móð-
ir hennar flutti með öðrum manni til Spánar og
hún ólst upp hjá föður sínum í Bandaríkjunum.
Á sumrin heimsótti hún móöur sína og kynntist
þar lífsháttum á Spáni. „Sautján ára flutti ég að
heiman og fór til Bretlands. Aðallega út af Bítl-
unum en lika vegna þess að ég vildi standa á eig-
in fótum. Það er svolítið sniðugt að á leið minni
til Bretlands millilenti ég í Keflavík. Þannig má
segja að fyrsta landið sem ég kem til einsömul sé
ísland. Ég man alltaf eftir því hvað mér þótti ís-
land sérstakur staður. Þegar fólk spyr mig hver
sé mest framandi staður sem ég hef komið á
svara ég hiklaust ísland - mér fannst eins og ég
væri á tunglinu."
-JKÁ