Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 46
50
Helqarblctci DV
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Suzuki Baleno GL, 3 d., ssk.
Skr. 10/98, ek. 21 þús.
Verð kr. 790 þus.
SuzukiBalenoGLX 4d.,bsk.
Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00 ek. 45 þús.
Verð kr. 1390 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 11/98, ek. 52 þús.
Verð kr. 990 þus.
Ford Focus High-series, bsk.
Skr. 11/99, ek. 36 þús.
Verð kr. 1220 þús.
MMC Lancer GLX, bsk.
Skr. 6/01, ek. 35 þús.
Verð kr. 1130 þús.VW
Polo Comfortline, 5 d., bsk.
Skr. 7/01, ek. 40 þús.
Verð kr. 1050 þús.
Alfa Romeo, 5 d., bsk.
Skr. 11/98, ek. 34 þús.
Verð kr. 890 þus.
Isuzu Trooper 3,0. dísil, bsk.
Skr. 4/Ö9, ek. 64 þús.
Verð kr. 2490 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---///>--------------
SUZUKI BÍLAR HF.
> Skeifunni 17, simi 568-5100
Með Ameríku að
fótum sér
Þegar eru flmmtán keppnir af
sautján búnar af mótaröö For-
múlu 1 kappakstursins þetta árið
og margir eru þegar farnir að
huga að næstu keppnistíð. Sext-
ándi og næstsíðasti viðkomustað-
ur sirkustjaldsins er ekki ómerk-
ari keppnisstaður en Indianapolis
í Bandaríkjunum. Hjarta
kappakstursins í kúrekalandinu
stóra.Ý þar sem hestöflin hafa
verið tamin í aldanna rás, verður
miðpunktur athyglinnar, þó er
það ekki víst. Gengi Ferrari hefur
verið með ólíkindum þetta árið
og margir hafa talað um að vel-
gengni liðsins sé farin að minnka
áhorf um allan heim. Þrettán
keppnir hafa fallið í skaut Ferrar-
is á meðan Arrows-liðið situr enn
heima fjárvana og bíður þess að
einhver olíuprinsinn komi á
hvíta hestinum og bjargi þeim frá
sömu örlögum og Prost-liðið sál-
uga hlaut fyrr á þessu ári.
f kjölfar Prost í gjald-
þrot?
Allt frá því í júlí, er Silversto-
ne-kappaksturinn var í undirbún-
ingi, varð fyrst ljóst að Arrows-
liðið var komið í veruleg fjár-
hagsvandræði er það hafði ekki
greitt Cosworth-vélarframleið-
anda sínum fyrir vélar sínar.
Talið var að Tom Walkinshaw,
einum eiganda og stjórnanda liðs-
ins, tækist að bjarga málunum er
hann greiddi verulegar summur
úr eigin vasa til að liðinu yrði
fært að keppa á heimavelli. En
eftir að hafa „ brugöist" í tíma-
tökum í Frakklandi og hafandi
ekki keppt síðan þá að ráði lög-
fræðinga er hugsanlegt að það
komi ekki til með að keppa meira
á þessu ári eftir að það var ljóst
að þeir fara ekki til Indianapolis.
Arrows, sem nú þegar hefur tvö
stig í stigakeppninni, hefur misst
af fjórum keppnum, í Þýskalandi,
Ungverjalandi, Belgíu og á Ítalíu,
staða þess gagnvart FIA versnar
stöðugt og ekki er víst að þeir
haldi keppnisrétti sínum fyrir
næsta ár. Þrátt fyrir það hafa téð-
ar samningaviðræður verið í
gangi við hina ýmsu fjárfesta.
Það gekk meira að segja svo langt
í byrjun september að liðið mætti
til Spa-Francorchamps til að taka
þátt í Belgíukappakstrinum og
talað var um að tilkynna nýjan
fjárfesti frá Bandaríkjunum. Ekk-
ert varð þó úr að samningar yrðu
undirskrifaðir og liðsmenn fóru
sneyptir heim á leið og hafa ver-
ið beðnir að halda sig utan vinnu
og biða fyrirmæla. „Við höfum
ekki frekari fréttir að færa en
málin eru enn að þróast og við
erum i fullri vinnu að útkljá
þau,“ er haft eftir talsmanni liðs-
ins sem segir að það séu stöðug
fundahöld. Þrátt fyrir allt virðist
sem dagar Arrows séu taldir og
hringirnir sex, sem þeir Enrique
Bernoldi og Heinz Harald
Frentzen tóku í tímatökunum í
Frakklandi í sumar, hafi verið
þeir síðustu í sögu liðsins.
Of mikil velgengni?
Áður en Formúla 1 kom fyrst
fyrir sjónir íslenskra sjónvarpsá-
horfenda árið 1997 hafði þorri
landsmanna nánast enga þekk-
ingu á kappakstrinum og þekkti
hvorki haus né sporð á þeim
mönnum sem þar kepptu. Nánast
ekkert hafði verið fjallað um
þessa íþróttagrein í fjölmiðlum og
fáir þeirra sem þeim miðlum
stjómuðu höfðu trú á að þetta
sport ætti möguleika gegn vinsæl-
um boltagreinum. Annað kom al-
deilis á daginn. Með hverju árinu
sem leið urðu vinsældir Formúlu
1 í sjónvarpi meiri og meiri og
menn stóðu gapandi yfir áhorfs-
tölum. Það var líka margt sem
hjálpaði til. Stanslaus barátta og
gífurleg spenna milli tveggja
keppinauta varð til þess að þjóðin
skiptist í tvo hópa. Hákkinen- eða
Schumacher-fylgjendur. í nokkur
ár kepptust þessir snillingar um
heimsmeistaratitla sína til síð-
ustu keppni og fólk á öllum aldri
vaknaði um miðjar nætur til að
____—
fylgjast með úrslitakeppninni i
Japan. Þetta var jafnvel of gott til
að vera satt og viðbúið að það
kæmi ofurlítil lægð eftir svona
bylgju. Mika Hákkinen er hættur
og Schumacher hefur unnið þrjá
titla í röð keppnislítið og margur
eldharður Formúlu 1-aðdáandinn
farinn aö huga að garðinum í stað
þess að horfa á Ferrari hringa
alla keppinauta sína og dóla siðan
í mark. „Það ætti að banna þessa
rauðu eða taka Schumacher úr
umferð," eru algeng ummæli um
þessar mundir og ekki ómerkari
menn en Frank Williams hafa í
kimni látið hafa eftir sér orð sem
þessi. Velgengni Ferrari er að
verða vandamál Formúlunnar.
Þrettán irnnar keppnir af fimmt-
án, Schumacher emn með ellefu
sigra, heimsmeistaratitlar tryggð-
ir á miðju tímabili og Barrichello
hársbreidd frá því að tryggja sér
annað sætið á stigalistanum. Er
þetta spennandi? Það finnst ekki
öllum en Formúlan mun lifa þetta
af og þeir sem nú fylgjast með
hveiju metmu á fætur öðru falla
eins og spilaborg munu þegar tím-
ar líða mmnast þess með stolti aö
hafa orðið vitni að einu mesta sig-
urtímabili eins liðs í sögu For-
múlu 1.
Musteri kappaksturshetj-
anna
Indianapolis mun á morgun
hýsa þriðju Formúlu 1-keppni
sína í röð í einu glæsilegasta
kappakstursmusteri í heiminum
er byggt var af bilaframleiðend-
um upp úr þarsíðustu aldamótum
af stórhug sem erfitt verður að
endurtaka. Síðan hefur Indy, eins
og brautin er kölluð, verið nánast
heimastaður helgiathafna fyrir
amerískar kappaksturshetjur
Indy 500 og NASCAR og allt að
250.000 áhorfendur mæta til að
fylgjast með. Ekki er búist við
svo mörgum í stúkurnar til að
fylgjast með Formúlu 1-keppn-
inni á morgun en keppnishaldar-
ar gera ráð fyrir allt að 175 þús-
und manns og eru sáttir við.
Ástæður eru aðallega taldar vel-
gengni Ferrari og það að Formúla
1 hefur aldrei átt neitt sérstak-
lega upp á pallborðið hjá Kanan-
um i gegnum tíðina. Ekkert
bandarískt lið né ökumaður er í
Formúlunni þó fólk kannist við
menn eins og Villeneuve og
Montoya sem báðir hafa unnið
Indy 500. Saga Formúlu 1 spann-
ar nokkur ár og hýstu Dallas,
Detroit og Las Vegas nokkrar
keppnir á níunda áratugnum en
ávallt skorti áhorfendur. Rétt
eins og David Coulthard segir hér
á opnunni þá er ekki hægt að
kalla Formúlu 1 heimsmeistara-
keppni án þess að keppt sé í USA
og vona allir að Indy komi til með
að standa á keppnisdagatalinu
um ókomna framtíð." -ÓSG