Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 18
HelQa rblaö 33 "V LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 I 8 Rokkarinn sem þagnaði Jón fór af landi brott árið 1988. „Ég var orðinn þreyttur," segir hann. „Sjónvarpið sem miðill er eins og tyggigúmmí. Það er gott fyrst en svo verð- ur það bragðlaust." Hann hélt því út til Bretlands og hóf nám í kvik- myndagerð. Þaðan fór hann til Bandaríkjanna í mastersnám og loks til Toronto í Kanada þar sem hann býr í dag ásamt pólskri unnustu sinni. Und- anfarnar tvær vikur hefur hann verið á íslandi við tökur á heimildarmynd sem ber vinnuheitið Savage cuisine. „í öllum menningarheimum er til matur sem þykir lostæti á þeim stað en viðbjóðslegt hjá þeim sem ekki þekkja til,“ útskýrir Jón rólega og maður man um leið eftir röddinni. Hann er ólíkur þeim Jóni sem maður þekkti á sjónvarpsskjánum. Þessi Jón lítur út eins og bóhem: þriggja daga skegg, kringlótt gleraugu, hárlubbi og Camel-sígarettur. „í Kína borðar fólk til dæmis apa á mjög sérstak- an hátt,“ heldur Jón áfram. „Þeir setja lifandi apa undir kringlótt borð sem er með gat i miðjunni en höfuð apans stendur upp úr. Svo höggva þeir efsta hluta höfuðkúpunnar af með sveðju og borða heil- ann, heitan og ferskan. Sumum kann að þykja þetta viðbjóðslegt en þetta er algert lostæti í Kína sem aðeins hinir auðugu hafa efni á. Ég get nefnt annað dæmi frá Kína. Þeir borða lifandi mýs sem þeir dýfa ofan í olíu svo hún renni ljúflega niður. Svo hlaupa þær um í maganum á þér á meðan þær eru enn á lífi. Þessi matur á að hafa góð áhrif á lífs- kraftinn. Skemmtilegasta dæmið um undarlegan mat kemur frá Suður-Kóreu að mínu mati. Þar veiðir fólk nýfædda kolkrabba og borðar þá lifandi. Þeir hafa hins vegar sogskálar og því verður þú að kyngja hratt svo að hann festi sig ekki í kokinu. Þetta er víst voðalega mikið sport.“ Siðustu daga hefur Jón verið að mynda matar- venjur Islendinga. Með honum í för er kanadískur leikari sem fær það verkefni að bragða á þessum undarlega mat fyrir framan myndavélina. Jón er með ferðatölvu með sér og sýnir mér afraksturinn. Myndskeiðið sýnir leikarann fylgjast með í slátur- húsinu þegar kindin er aflífuð, rist á kvið og þar fram eftir götunum. Að þvi loknu fer hann til ís- lenskrar fjölskyldu og hjálpar til við sláturgerð. Hámarkinu er náð þegar hann gæðir sér á sviða- haus og borðar augun með bestu lyst að því er virðist. „Þetta er svona „trend“ í dag,“ segir Jón. „Við sjáum þessa svokölluðu raunveruleikaþætti í sjón- varpinu eins og Survivor og Fear Factor. Þátttak- Jón Gústafsson árið 1985: Sér eftir hárgreiðslunni. Jón um hina íslensku frægð: „Þetta er kjánalegasta aðstaða sem ég hef nokkurn tímann verið í og náttúr- lega lygilega fyndin því það er ekk- ert hlægilegra en að vera frægur á íslandi." DV-mynd Hari endur eru látnir borða skordýr og tilgangurinn er að ganga fram af fólki. í mínum þætti er fólk vissu- lega að borða framandi mat en ég reyni líka aö kafa dýpra og reyni að skilja hvers vegna þjóðir hafa fundið leiðir til að matreiða mat með þessum sérstaka hætti.“ „Hvernig kviknaði hugmyndin?“ spyr ég. „Ég er búinn að ganga með þessa hugmynd lengi í maganum. Þegar ég var úti í Bretlandi voru margir félagar minir meðlimir í Greenpeace og þeir kepptust við að segja mér hvað íslendingar væru miklir villimenn. Síðar las ég grein i bresku dagblaði sem íjallaði um hráefnið sem er í ham- borgurum sem seldir eru i stærstu skyndibitakeðj- unum. Þar kom í ljós að hamborgarabufíið var í raun búið til úr öllu sem hægt er að hakka, hvort sem það voru augu, æðar eða hvað, og síðan er lit bætt út í til að þetta líti út eins og kjöt. ísland er fyrsta landið sem hann heimsækir enda ágætt fyrir hann að prófa sig áfram í landinu sem hann þekkir best og þykir vænt um eftir fjar- veruna. Svo vænt reyndar að hann hefur tekið þátt í mótmælum virkjunarandstæðinga við Austurvöll þegar Alþingi var sett. Allir vilja vera í vinningsliðinu „Þegar maður kemur svona sjaldan heim sér maður hluti sem manni finnast undarlegir þegar ég set þá í samhengi við það sem ég hef vanist úti,“ segir Jón. Þó honum finnist fólkið og landið fagurt er hann vonsvikinn með þá litlu athygli sem mót- mælin hafa fengið. „Mér finnst alveg ótrúlegt að það skuli ekki fleiri láta í sér heyra varðandi þess- ar virkjunaráætlanir. Þegar við verðum búin að byggja þessi skrímsli verður alltof seint að hætta við. Viö getum ekki kennt stjórnmálamönnum um þetta eftir nokkur ár. Við höfðum tækifæri til að láta í okkur heyra og við gerðum ekkert. Það er annaðhvort að tjá sig núna eða þegja. Ég er sann- færður um að eftir tíu ár verður þetta álver á Reyð- arfirði úrelt og við sitjum uppi með það. Mér finnst þetta mál afskaplega skrýtið þvi íslendingar virð- ast vera svo stoltir af landinu sínu og svo gera þeir þetta. Við erum að fórna sérstöðu okkar fyrir stundarhagsmuni fólks sem býr fyrir austan og misviturra stjórnmálamanna," segir Jón og það fer ekki milli mála að þetta er honum hjartans mál. „Af hverju heldurðu að hlutunum sé svona fyrir- komið?“ spyr ég. „Ég held að menn séu bara alltof uppteknir af því að vera í vinningsliðinu. Það er búið að afnema stjórnarandstöðu í þessu landi og það virðist ekki vera í tísku lengur að vera á móti. Mér skilst að Margaret Thatcher hafi sagt við Hannes Hólmstein Gissurarson að ísland væri svona æðislegt því að við værum að framkvæma allt sem hún gat ekki er hún sat á valdastóli. Ég veit fyrir víst, því ég bjó í Englandi á þessum tíma, að breskur almenningur er enn að súpa seyðið af ákvörðunum sem teknar voru á valdatíma Thatchers. Það eina sem virðist skipta máli á íslandi er hagkvæmni og gróði. Ung- lingar, börn og fólk almennt er látið sitja á hakan- um. Hvernig samfélag er það sem lætur það við- gangast að leyfa útihátiðir þar sem það er í tísku að hópnauðga stúlku? Alls staðar annars staðar í heiminum væru svona hátíðir bannaðar eftir slíkt. En viö hugsum sem svo: Ef við græðum þá er þetta í lagi. Fórnarkostnaðurinn skiptir engu máli. Það sama er að gerast alls staðar í hinu íslenska samfélagi. Ég kem heim og hitti vini og kunningja sem hafa misst allt, vinnuna, húsið og bílinn af því að fyrirtæki sem þeir unnu hjá voru að gera rekst- ur sinn hagkvæmari. Og ekki heyrist múkk í nein- um. Fyrirtækin ná sínu fram og við kinkum kolli til samþykkis." „Finnst þér minna varið í ísland eftir að þú flutt- ir út?“ spyr ég. „Alls ekki. Þess vegna er ég að æsa mig. Mér þykir svo vænt um ísland en ég get skoðað það með öðrum gleraugum. Ég á hvergi annars staðar heima en á íslandi. Hérna er allt sem ég á, minn- ingar, vinir og fjölskyldan. Það er agalegt að vera íslendingur í útlöndum, maður getur einfaldlega ekki losnað við það og ég veit að ég kem til með að koma aftur og vinna að kvikmyndum héma. Ég er nú þegar að vinna með íslendingum að minni næstu kvikmynd," segir Jón en eftir hann liggur önnur kvikmynd sem virðist hafa verið sýnd alls staðar í heiminum nema á íslandi. „Fyrir mér er heimurinn leikvöllur," segir Jón og útskýrir fyrir mér hvers vegna hann er enn bú- settur erlendis. „Mér finnst svo gott að geta gert það sem foreldrar mínir gátu ekki. Eg get farið og unnið þar sem mig langar til að vinna hverju sinni. Ég hef þetta tækifæri og ég notfæri mér það.“ Sé eftir hárgreiðslunni Jón yfirgaf sjónvarpsheiminn í raun á hátindi ferilsins. Hann hafði skömmu áður en hann fór út hannað sjónvarpsþátt sem síðar varð þekktur sem Gettu betur - spurningakeppni framhaldsskólanna. Hann var umsjónarmaður þáttarins fyrsta árið en gekk síðan út uppgéfinn á lifi sjónvarpsstjörnunn- ar. „Mig langaði aldrei til að vera nein sjónvarps- flgúra,“ segir hann. „Ég hafði farið út til Bretlands og lært útvarpsframleiðslu og þegar ég kom heim var ekkert að gera fyrir mig. Ég fór upp í Sjónvarp og þar var mér vísað á Hrafn Gunnlaugsson sem þá var nýbúinn að koma sér fyrir á skrifstofunni sinni. Ég sagði honum hvað ég kynni og hann bauð mér að búa til þrjá þætti á þessum sama degi. í lok vinnudags ætlaði hann að skoða afraksturinn og hugsa málið.“ Úr þessu kom þátturinn „Rokkararnir geta ekki þagnað“ þar sem ungar hljómsveitir fengu að spreyta sig í sjónvarpssal. Hljómsveitir eins og Greifarnir og Rikshaw stigu þar sín fyrstu skref. Eftir þetta var Jón nánast fenginn í öll tilfallandi verkefni hjá Ríkissjónvarpinu. „Þetta gerðist óvart,“ segir Jón þegar ég spyr hann hvort það hafi ekki verið draumur hans að vera nafntogaðasti sjónvarpsmaður landsins. „Ég leit á þetta sem leiklist. Ég bjó bara til þennan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.