Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Blaðsíða 26
26 Heígctrbla<3> 13V LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Sparisjóðsstjóri SPRON, Guðniuiidur Örn Hauksson, býr við Seljugerði 2 í Reykjavík. Hann er kvæntur Áslaugu Björgu Viggósdóttur. Laun Guðmundar eru upp á tæpar tvær inilljónir króna. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á fslandi og stjórnarformaður Landssímans, býr í Garða- bænum við Bæjargil 73 ásamt börnum sínum og eiginmanni, lionum Jóni Heiðari Rík- harðssyni. Rannveig er með u.þ.b. 1,2 milljónir króna í tekjur á inánuði. Hér búa eigendur Atlanta. hjónin Þóra Guðmundsdóttir og Arngrímur Jóhannsson. Hús- ið stendur við Leirutanga 6 í Mosfellsbæ. Sarnan eru þau með fjórar milljónir króna í mánaðarlaun. Heimili Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, við Skildinganes 22 í Reykjavík, er stílhrcint og fagurt. Hér býr liann ásamt Peggy Oliver Helgason. Sigurður er með tæpa 1,6 milljónir króna í laun á mánuði. Því skal haldið fram hér að islenskt veðurfar móti virðingarröð stöðutákna. íslendingar geta eiginlega aldrei verið úti að spóka sig og sýnt þar með klæða- burði, skartgripum og íhlutum hve hátt í virðingar- stiganum þeir standa. Hið óbilgjama íslenska veðurfar gerir það að verkum að menn halda sig að mestu innandyra. Þess vegna skipta hús íslendinga þá mjög miklu máli og þjóðin býr í mjög ríkmannlegum og stórum húsum samanborið við marg- ar aðrar þjóðir og almennt gera menn mikla kröfur i þessum efnum. íslendingar eiga sitt eigið húsnæði í ríkara mæli en aðrar þjóðir og það hefur stundum verið sagt að sú mann- dómsvigsla að eignast sitt eigið hús sé á Islandi ígildi her- skyldu með öðrum þjóðum. Sú hugsun að heimilið sé framlenging af eiganda sínum og hans helgasti reitur er alþjóðleg. „My home is my castle“ seg- ir frægt enskt máltæki og sýnir að heimilið eða húsið manns er helsta vígið. Af sjálfu leiðir að okkur eru hús mjög hugleikin og stærð húss og staðsetning endurspeglar efnahag og „status" eigand- ans með alveg sérstökum hætti. Stærð í fermetrum er einn þáttur en annar þáttur er staðsetning hússins sem í mörgum tilvikum hækkar verð þess margfalt. Axel Gíslason, fyrrum forstjóri VÍS, býr í þessu fallega húsi við Hæðarbyggð í Garða- bænum. í starfi sínu þénaði liann rúmar 2,2 milljónir á mánuði. Ilann er kvæntur Ilall- fríði Konráðsdóttur. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, býr í þessu húsi við Víðihlíð 6 ásaint eiginkonu sinni, Valgerði Ólafsdóttur. Hann flytur þaðan væntanlega bráðlega í Skerjafjörð- inn en það mál er i biðstöðu. Ilann liefur tæpar finnn milljónir króna í tekjur á mánuði. Híbýli Ingimundar Sigurpálssonar, forstjóra Eimskips, og eiginkonu lians, Hallveigar Hilmarsdóttur, eru mjög slétt og felld. Þau búa við Reynilund 7 í Garðabæ. Ingimundur hefur liðlega 1,6 milljónir króna í mánaðarlaun. -- Ég er húsið mitt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.