Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 2
18 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Sport Fastir starfsmenn: Jón Krisöán Sigurðsson (jks.sport@dv.is) Óskar 0. Jónsson (ooj.sport@dv.is) Óskar Hrafii Þorvaldsson (oskar@dv.is) Pjetur Sigurðsson (pjetur@dv.is) Mánudagurinn 14. október 2002 Efni DV- Sports í dag 0 Utan vallar, formúla 0 Haukar í Evrópukeppni © Essodeild karla © Essodeild karla © Essodeild kvenna © Essodeild kvenna © Intersportdeild karla 0 Kjörísbikar karla © Kvennakarfan 0 Viötal viö Atla þjálfara / Landsleikur íslands og /0 Skotlands © Viötöl viö strákana 0 Viötöl viö strákana © Viðtöl viö Skotana © Ísland-Skotland © Undankeppni EM © Undankeppni EM © U-21 árs leikurinn 0 Rallsíöa © Veiöisíða © Torfærusíöa © Fréttasíða Michael Schumacher sló enn eitt metið um helgina: (Jrslitin í Japan A pallinum i öllum kep - vann ellefta sigurinn i ár og heimsbikarinn með 67 stigum Michael Scumacher lauk keppnis- tímabilinu í Formúlu 1 með enn ein- um sigrinum, þeim ellefta á árinu, í Japan um helgina. Félagi Schumachers hjá Ferrari, Rubens Barichello, kom annar í mark og eru úrslitin dæmigerð fyrir yfir- burði Ferrari-liðsins á árinu. Schumacher lauk tímabilinu með 144 stig eða helmingi meira en Barichello sem endaði með 77 stig. í stigakeppni bílasmiða sigraði lið Ferrari með yfirburðum, fékk alls 221 stig, en lið Williams kom næst með 92 stig. Michael hefur slegið hvert metið á fætur öðru i undanfómum keppn- um og kappaksturinn í Japan var engin undantekning. Með sigrinum náði Schumacher ekki aðeins að komast í mark í hverri einustu keppni á tímabilinu heldur var hann á verðlaunapalli í þeim öllum. Það var sannarlega ótrúlegur árang- ur þar á ferð hjá Þjóðverjanum. Annars voru úrslitin nokkuð eftir bókinni um helgina en það var helst frammistaða heimamannsins Takuma Sato hjá Jordan sem lenti í fimmta sæti og náði þar með að koma liði sínu upp fyrir leið BAR íþróttadeild DV, Skaftahlíö 24 Beinn sími: ............. 550-5880 Ijósmyndir:.............. 550-5845 Fax:..................... 550-5020 Netfang:.............dvsport@dv.is og Jaguar í keppni bílasmiða. Ætla aö njóta vetr- arins „Sú stað- reynd að við höfum klárað allar keppnir sýnir hæfi- leika bifvéla- virkja liðsins. Þeir hafa ver- ið hreint ótrúlegir. Nú ætla ég að njóta vetrar- ins, slaka vel á og koma sterk- ari til leiks á næsta ári,‘ sagði Schumacher eftir kappaksturinn 1 gær. Rubins Barichello tók í sama streng. „Ég er svo stoltur og ánægður með að vera hluti af þessari fjöl- skyldu sem starfslið Ferrari er. Að sigra tvisvar í síðustu þremur keppnum árs- ins þýðir að þetta hef- ur verið frábært keppnistímabil fyrir mig,“ sagði Barichello. -vig 10-11 1. Michael Schumacher, Ferrari 2. Rubens Barrichello, Ferrari 3. K. Raikkonen, McLaren 4. Juan Pablo Montoya, Williams 5. Takuma Sato, Jordan 6. Jenson Button, Renault Lokastaða ökumanna 1. M. Schumacher, Ferrari . 144 stig 2. R. Barrichello, Ferrari ... 77 stig 3. J.P. Montoya, Williams ... 50 stig 4. R. Schumacher, Williams . 42 stig 5. D. Coulthard, McLaren ... 41 stig 6. K. Raikkonen, McLaren ... 24 stig 7. Jenson Button, Renault ... 14 stig 8. Jamo Trulli, Renault.....9 stig 9. Eddie Irvine, Jaguar.....8 stig 10-11. Nick Heidfield, Sauber . 7 stig G. Fisichella, Jordan . 7 stig 12. J. Villenueve, BAR ... 4 stig 13. T. Sato, Jordan .... 2 stig Staða bílasmiða 1. Ferrari .......221 stig 2. Williams........92 stig 3. McLaren .......65 stig 4. Renault.........23 stig 5. Sauber ........11 stig 6. Jordan..............9 stig Sigurbros Michael Schu- macher var að sjálf- sögðu sáttur eftir sfð- ustu keppnina í For- múlu eitt en hann vann elleftu keppni sína í Japan um helg- ina. Tímabiliö hefur veriö ein endalaus sigurganga hjá Schumacher og Ferrari- liöinu sem vann keppni bíla- smiða með miklum yfirburðum. Þeir Schumacher og Rubens Barrichello unnu saman 15 af 17 keppnum, þar af unnu þeir níu sinnum tvöfaldan sigur og þaö í síöustu sex keppnum keppnistfmabilsins. Reuters Utan vaílar Ef marka má orð Atla Eðvalds- sonar eftir leikinn gegn Skotum á laugardaginn þá tapaðist leikurinn gegn Skotum ekki á Laugardals- vellinum heldur í fjölmiðlum, í heitu pottunum, strætisvögnum og hvarvetna þar sem íslenska lands- liðið var umræðaefni meðal al- mennings á íslandi vikuna fyrir leikinn. „Það spilaði enginn með okkur,“ sagði Atli eftir leikinn. Atli vísaði þráfaldlega í þá staðreynd að það heföu verið skoskir fjölmiðlar sem unnu leikinn fyrir Skotana meö því að gera engar kröfur til skosku leikmannanna og þyrla ryki í augu fjölmiðla og almennings á íslandi um ágæti íslenska liðsins og skelfi- legt ástand skoska liðsins. Með þessum orðum er Atli að gera lítið úr skoska landsliðinu, sem vann leikinn af því að það var mun betra en það íslenska, og fjölmiðlamönn- um og almenningi á íslandi sem þurfa ekki að lesa það í skosku blaði eða öðrum erlendum miðlum hversu góðir leikmenn íslenska liðsins eru. Atli stóð hins vegar uppi einn gegn öllum og þurfti ekki aðeins að berjast við Skotana heldur líka ósanngjarna fjölmiðla og kröfu- harðan landslýð sem hafði þó að- eins sér til saka unnið að hafa trú á liðinu. Af hverju Atli fer þessa leið skil ég ekki. Ég trúi því ekki að það sé betra fyrir leikmenn íslenska liðs- ins að lesa og heyra það í íslensk- um fjölmiðlum hversu lélegir þeir eru og hversu mikið formstriði það verði fyrir andstæðinga okkar hverju sinni að valta yfir okkur en að heyra og lesa að allir hafi trú á þeim. Það getur varla hjálpað sál- artetrinu né sjálfstraustinu hjá leikmönnum og ekki þætti sálfræð- ingum mikið til þess koma sem hluta af uppbyggingu fyrir leik. Atli verður að finna aðrar leiðir að því að ná upp stemningu fyrir leik en að benda leikmönnum sin- um á að lesa íslensku blöðin þar sem gert er lítið úr leikmönnum liðsins í þeim eina tilgangi að æsa þá upp. íslendingar eru stoltir af leik- Óskar Hrafn Þorvaldsson íþróttafréttamaöur a DV-Sporti mmmzm mönnum sínum. Þeir hafa tröllatrú á þeim og gera þess vegna kröfur til þeirra. Ekki af mannvonsku eða til að gera þeim erfitt fyrir heldur vegna þess að þessir strákar hafa staðið sig vel með sterkum liðum í sterkustu deildum Evrópu og sýnt á stundum með landsliðinu að þeir geta unnið alla. Það að segja að skoskir fjölmiðl- ar hafi unnið með skoska landslið- inu er fáránleg fullyrðing. Það skyldi þó aldrei vera aö skoskir fjölmiðlar hefðu gefist upp á lands- liðinu og ekki með nokkru móti getað gert kröfur tU þess eftir frammistöðuna í landsleikjum að undanfomu. Fjölmiðlar á íslandi hafa hingað tU reynt að gera aUt sem i þeirra valdi stendur tU að styðja landslið- ið. Það er spurning hvað muni heyrast þegar þeir hafa misst trúna á landsliðinu. Það verður varla mikU ánægja með það. -ósk J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.