Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 4
20
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
Sport
DV
Þýski handboltinn:
Magdeburg
vann Kiel
Magdeburg vann um helgina
góöan sigur á meisturum Kiel,
30-29, á heimavelli í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Ólafur
Stefánsson var markahæstur hjá
Magdeburg með níu mörk en lið-
ið er nú í ööru sæti deildarinnar
með 12 stig.
Tuttugu mörk Guöjóns
Guðjón Valur Sigurðsson fór á
kostum í liði Essen sem bar sig-
urorð af HCBerchem frá Lúx-
emburg, 35-21, i fyrri leik lið-
anna í Evrópukeppninni. Guðjón
Valur skoraði tólf mörk í leikn-
um og var markahæstur hjá lið-
inu. Hann var litlu síðri í seinni
leiknum í gær og skoraði þá átta
mörk í sigri Essen, 39-22.
Wallau, lið Einars Arnar Jóns-
sonar, burstaði Wetzlar, 31-15, á
útivelli eftir að hafa unnið siðari
hálfleikinn, 18-6.
Wilhelshaven, lið Gylfa Gylfa-
sonar, tapaði á útivelii, 31-24,
fyrir Lúbbecke. -ósk
Franski bilaframleiðandinn Citro-
en mun taka þátt í Bretlandsrallinu
sem undirbúningi fyrir heimsmeistara-
keppnina á næsta ári en þá mun
Citroen í fyrsta sinn vera með í öllum
14 keppnum ársins. Breski ökuþórinn
Colin McRae, sem varð heimsmeistari
árið 1995, hefur ákveðið að ganga til
liðs við Citroén og mun aka fyrir liðið
á næsta ári.
Spœnska knattspyrnusambandið hef-
ur ákveðið að banna 1. deildar liðinu
Sevilla að spila Qóra næstu heimaleiki
sína á heimavelli liðsins, Sanchez
Pizjuan-leikvanginum, eftir að áhorf-
andi hijóp inn á völlinn í leik liðsins
gegn Real Betis fyrir rúmri viku og sló
markvörð Betis, Toni Prats. Forseti fé-
lagsins sagðist ætla að áfrýja banninu
og kvaðst þess fullviss að áfrýjunar-
nefnd sambandsins myndi fella bannið
úr gildi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
ólæti koma upp í leikjum þessara ná-
grannaliða því að Sevilla fékk tveggja
leikja heimaleikjabann í mars þegar
þessi lið áttust síðast við. Að auki fékk
féiagið tæplega 300 þúsund króna sekt.
Finnska landsliöið í knattspymu lék
með sorgarbönd í leiknum gegn
Aserbaidsjan í undankeppni EM á
laugardaginn í minningu sjö fómar-
iamba sprengjuárásarinnar í verslun-
armiðstöð i miðborg Helsinki á fóstu-
daginn. Það var einnig mínútuþögn
fyrir leikinn í virðingarskyni við fóm-
arlömbin.
Enska liðið Team Bath, sem er ein-
göngu skipað námsmönnum í Bath-há-
skólanum, getur oröið fyrsta háskóla-
liðið til að komast inn í aðalkeppni
ensku bikarkeppninnar síðan lið frá
Cambridge-háskólanum tók þátt keppn-
istímabilið 1879-1880. Team Bath vann
góðan sigur á Newport County, 3-0, á
laugardaginn og er aðeins níutíu mín-
útum frá því að komast í aðalkeppnina.
Það kemur í ljós í dag hverjum liðið
mætir í íjórðu umferð undankeppninn-
ar.
Enska 1. deildar liðinu Ipsuiich, sem
landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðars-
son leikur með, var um helgina synjað
um að fá að ræða við Ronnie Moore,
knattspyrnustjóra Rotherham, en félag-
ið rak sem kunnugt er George Burley
úr starfi á fóstudaginn. Forráðamenn
Rotherham eru lítið hrifnir af þessari
beiðni Ipswich en Moore sjálfur, sem
hefur farið með Rotherham úr þriðju
deildinni í þá fyrstu á fimm árum, er
meira en lítið til í að tala við Ipswich.
„Ég hef átt fimm stórkostleg ár hjá
Rotherham en þegar félag eins og
Ipswich sýnir manni áhuga þá finnst
mér það eiga skilið að maður tali við
þá,“ sagði Moore. Forráðamenn
Rotherham hafna þvi og segja að
Moore eigi þrjú ár eftir af samningi
sínum og muni halda áfram því frá-
bæra starfi sem hann hefur unnið hjá
félaginu.
Einn frœgasti leikmaóur í sögu Real
Madrid, Alfredo Di Stefano, segir að
Brasilíumaðurinn Ronaldo þurfi að
létta sig til að geta spilað með Real Ma-
drid. „Hann þarf að létta sig um fimm
til sex kíló. Hann heldur aldrei út heilt
tímabil í þessu ásigkomulagi," sagði Di
Stefano við blaðamenn um helgina.
-ósk
Auðvelt hjá HK
Eyjamenn tóku á móti HK á laug-
ardaginn en leiknum hafði verið
frestað frá því kvöldið áður vegna
veöurs.
Gestimir mættu mjög ákveðnir
til leiks, þrátt fyrir fjarveru Vil-
helms Gauta Bergsveinssonar náöu
þeir fljótlega undirtökunum og
héldu þeim allt þar til flautað var til
leiksloka.
Leikurinn fór rólega af stað og
liðin skiptust á að skora fyrstu
mörkin en gestirnir komust tveim-
ur mörkum yfir um miðjan hálfleik-
inn og héldu því til loka fyrri hálf-
leiks.
Heimamenn í ÍBV gleymdu hins
vegar hugarfarinu í búningsklefan-
um þegar þeir gengu til leiks í síð-
ari hálfleik. Gestimir áttu ekki í
miklum vandræðum með að verjast
bitlausum sóknarleik ÍBV og fengu
fyrir vikið auðveld hraðaupphlaup.
Sóknamýting Eyjamanna var afar
slök fyrstu fimmtán minútumar,
aðeins tvö mörk úr fhnmtán til-
raunum á meðan gestimir skomðu
sex og komust þar með sex mörkum
yflr, 12-18. Eftir það voru Eyja-
menn hins vegar beittari, þeir
skiptu inn minni spámönnum og
varamennimir komu mjög ákveðnir
til leiks. Eyjamenn hleyptu smá-
spennu í leikinn undir lokin þegar
þeir minnkuðu muninn niður í þrjú
mörk, 17-20, en lengra komust þeir
ekki og HK fagnaði sigri í lokin,
21-24.
Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV,
sagði eftir leikinn að fyrri hálfleik-
ur hefði verið þokkalegur framan
af.
„Svo dettum við bara í það að
skjóta i vömina hjá þeim, þeir eru
mjög hávaxnir og þess vegna ekki
sama hvemig sótt er gegn þeim.
Upp úr því fá þeir hraðaupphlaup
sem þeir vinna leikinn á. Við sýnd-
um reyndar ágætan karakter undir
lokin með að ná þessu niður en
munurinn var bara orðinn of mik-
fll. Þeir skoruðu tæplega íjörutíu
mörk í síðasta leik þannig að vam-
arleikurinn i dag var þokkalegur en
sóknarleikurinn er það sem klikk-
ar, sagði Sigurður við DV-Sport
eftir leikinn."
Kollegi Sigurðar hjá HK, Alex-
ander Amarson, var hins vegar á
því að sigurinn hefði verið nokkuð
öruggur.
„Það sat svolítið í okkur þetta
ferðalag þannig að undirbúningur-
inn fór fyrir lítið en Eyjamenn eru
með ungt og efnilegt lið sem á fram-
tíðina fyrir sér. Við vinnum þetta
má segja í upphafl seinni hálfleiks
en þá náum við að keyra vömina
saman. Vörnin var slök hjá okkur í
fyrri hálfleik. Ég hafði það alltaf á
tilflnningunni að við myndum
vinna leikinn, þó svo að Eyjamenn
hafi sótt aðeins á okkur undir lokin,
þá fannst mér þetta nokkuð öruggt,"
sagði Alexander í leikslok. -jgi
Línumaðurinn sterki hjá FH, Svavar Vignisson, sést hér á fleygiferð en Daði Hafþórsson hjá Aftureldingu reynir að
stöðva hann. DV-mynd Hari
IIIV HK21 M
0-1, 5-5, 9-11, (11-13), 11-14,12-18,17-20, 21-24.
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Robert Bognar 8/2
(14/3), Siguröur Ari Stefánsson 4/1 (18/2),
Michael Lauritsen 3 (3), Davíö Þór Óskarsson
3 (9), Kári Kristjánsson 2 (4), Siguröur
Bragason 1 (4), Sindri Ólafsson (4), Sindri
Haraldsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Bognar)
Vitanýting: Skorað úr 3 af 5.
Fiskuö víti: Sigurður Ari 2, Sindri Ólafsson,
Kári, Davíð.
Varin skot/viti (skot á sig): Viktor Gigov
11/2 (35/4, hélt 4, 31%, eitt víti yfir).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10):
Brynjar Einarsson
og Vilbergur Sverr-
isson (3).
Gϗi leiks
(1-10): 3.
Áhorfendur: 90.
Maöur leil
Arnar Freyr Reynisson, HK.
HK:
Mörk/viti (skot/viti): Jaliesky Garcia 6/2
(11/4), Samúel ívar Arnarson 6 (8), Ólafúr
Víöir Ólafsson 5 (6/1), Alexander Arnarson 2
(2), Brynjar Valsteinsson 2 (3), Atli Þór
Samúelsson 2 (4), Jón Bessi Ellingsen 1 (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Samúel 3,
Jón, Brynjar, Garcia).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 5.
Fiskuö víti: Alexander 3, Brynjar, Ólafur.
Varin skot/viti (skot á sig): Amar Freyr
Reynisson 18/2 (39/5, hélt 10, 46%).
Brottvísanir: 6 mínútur.
0-2, 2-6, 4-S, (5-11), 9-11, 9-14, 11-18, 13-18,
15-19.
Aftureldine:
Mörk/viti (skot/viti): Daöi Hafþórsson 4 (11),
Jón Andri Finnsson 3/2 (6/3), Haukur
Sigurvinsson 3/1 (10/2), Atli R. Steindórsson 3
(3), Emir H. Amarsson 1 (3), Sverrir
Bjömsson 1 (6), Ásgeir Jónsson (1), Hrafn
Ingvarsson (1), Erlendur Egilsson (5).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 3 (Haukur 2,
Atli 1).
Vitanýting: Skoraö úr 3 af 5.
Fiskuö vitU Atli 3, Daöi, Jón.
Varin skot/viti (skot á sig): Ólafur H.
Gíslason, 20/1 (38/5, hélt 10, 53%), Reynir Þ.
Reynisson, 0 (1/1, hélt 0, 0%).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Dómarar (1-10):
Hlynur Leifsson,
Anton Gylfi Páls-
son (6).
GϚi leiks
(1-10): 6.
Áhorfendur: 150.
Maður
Magnús Sigmundsson, FH.
FH:
Mörk/víti (skot/viti): Björgvin Rúnarsson
9/4 (11/5), Andri Berg Haraldsson 3/1 (7),
Magnús Sigurðsson 2 (8), Heiðar Amarsson 1
(1), Svavar Vignisson 1 (3), Araar Pétursson 1
(4), Eiríkur Jónsson 1 (5), Sigurgeir Ámi
Ægisson 1 (8), Ingólfur Pálmason (1), Ólafur
Bjömsson (1), Hjörtur Hinriksson (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Björgvin 2,
Magnús, Svavar).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 6.
Fiskuö viti: Magnús 3, Svavar 2, Sigurgeir.
Varin skot/viti (skot á sig): Magnús
Sigmundsson, 19/2 (31/4, hélt 10, 61%), Jónas
Stefánsson, 1 (4/1, hélt 0, 25%).
Brottvisanir: 10 mínútur.
Frábær vörn
- gerði útslagið hjá FH-ingum sem unnu öruggan sigur á Aftureldingu í gær
FH sigraði Aftureldingu mjög örugg-
lega, 15-19, að Varmá í Essó-deild
karla í handknattleik í gærdag. Gest-
imir voru áberandi sterkari allt frá
byrjun, léku öfluga 6-0 vöm með
Magnús Sigmundsson í fantaformi í
markinu. Baráttan og leikgleðin var
þeirra og þótt sóknarleikur liðsins hafi
ekki verið neitt sérstakur var hann þó
hátíð miðað við sóknarleik gestanna.
Þeir skoruðu aðeins fimm mörk i fyrri
hálfleik og slíkt hefur líklega ekki áð-
ur gerst hjá Aftureldingu í efstu deild.
Staðan hefði verið mun verri hjá lið-
inu hefði Ólafur H. Gíslason ekki hald-
ið sínum mönnum á floti með stórgóðri
markvörslu.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureld-
ingar, hefur líklega geflð sínum mönn-
um góða yfirhalningu í leikhléinu því
allt annað var að sjá til liðsins í upp-
hafi sfðari hálfleiks. Fyrstu fjögur
mörkin vom þeirra og stemningin og
baráttan virtist hafa farið yflr til
þeirra rauðklæddu. Það stóð þó ekki
lengi yfir. FH-ingar gyrtu sig í brók og
svömðu með þremur mörkum í röð og
gerðu í raun þá endanlega út um leik-
inn þótt mikið væri eftir. Leikurinn
nánast fjaraði út og var ekki sérlega
skemmtilegur á að horfa.
FH-ingar gerðu það sem þurfti að
gera, spiluðu öfluga vöm og áður-
nefndur Magnús var mjög góður í
markinu og þótt sóknarleikurinn hefði
ekki verið neitt augnayndi þá gekk
hann alveg nógu vel upp; góður sigur
staðreynd. Hjá Aftureldingu var Ólaf-
ur markvörður þeirra langbestur, Atli
Rúnar Steinþórsson sýndi af sér góða
baráttu og af og til sáust glæður hjá
Daða Hafþórssyni.
FH-liðið lék vel sem heOd með
Magnús Sigmundsson fremstan í farar-
broddi og þá var Björgvin Rúnarsson
öflugur. Greinilegt er að Einar Gunnar
Sigurðsson, þjálfari FH, er á réttri leið
með liðið og hann hafði þetta að segja
eftir leik: „Við vildum gjaman kvitta
fyrir tapið f bikarnum hérna um dag-
inn og það tókst vel. Þetta var ekkert
fallegur handbolti en við náðum að
vera á hærra plani og sér í lagi var ég
ánægður með vömina og markvörsl-
una. Við erum búnir að vinna mikið í
varnarleiknum og sóknarleikurinn
kemur smám saman i kjölfarið, and-
inn er góður, baráttan frn og liðið er á
uppleið, það er engin spurning," sagði
Einar Gunnar Sigurðsson. -SMS