Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 11
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 27 Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari , eftir leikinn gegn Skotum: Of miklar væntingar - ráðum ekki við að vera í hlutverki sigurstranglegra liðsins Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari íslands, var með sært stolt þegar DV- Sport ræddi við hann eftir tapleikinn gegn Skotum á Laugardalsvelli á laugardaginn. Hvernig lagðir þú leikinn upp? „Við vissum að þeir væru gífur- lega sterkir í loftinu í vörninni og því var hugsunin sú að reyna að koma boltanum á bak við varnarmenn skoska liðsins. Þess vegna stillti ég upp Helga Sigurðssyni og Hauki Inga Guðnasyni í framlínunni. Helgi átti aö vera fremstur og fá boltann í svæðin. Hann er óútreiknanlegur og þefar upp færin. Haukur Ingi er einnig gífurlega fljótur og ég er sann- færður um það að við hefðum fengið mun fleiri tækifæri ef þeir hefðu ekki skorað svona fljótt. Við náðum aldrei að koma boltan- um í þessi svæði og það má bara segja það að sendingargetan hjá okk- ur í þessum var leik var hræðileg. Við vorum að klikka á öllum tegund- um af sendingum, stungusendingum, fyrirgjöfum og jafnvel einföldustu sendingum aftarlega á vellinum. Aldrei fleiri feilsendingar „Ég held að landsliðið hafi aldrei átt fleiri feilsendingar í landsleik undir minni stjóm heldur en í dag. Það segir sig sjálft að þegar svo er þá er erfitt að vinna leiki. Við fáum mark á okkur snemma og eftir það er á brattann aö sækja fyrir okkur. Skotarnir lögðust til baka og fengu sjálfstraust. Menn yfirspenntust og þá fóru sendingarnar að klikka. Þaö sem skilur á milli er að þeir nýta fær- in en við ekki. Við fáum mörg færi í leiknum sem era betri en það sem þeir skora ann- að markið upp úr en við náum ekki að nýta þau. Við getum ímyndað okk- ur hvað hefði gerst ef við hefðum náð að jafna en það er stórt orð þetta ef. Það sem mér svíður mest er að við náðum ekki að nýta okkur það þegar markvörðurinn þeirra missti boltann í þrígang. Þá eram við ekki tilbúnir á tánum og það var svekkjandi." Frábær stemning fyrir leik Voru menn klárir í leikinn? „Stemningin inni í klefa fyrir leik- inn var frábær. Menn voru svo til- búnir í slaginn og ég horfði í kring- um mig í klefanum fyrir leikinn og hugsaði að þetta gæti ekki farið illa. Ég get ekki takið undir þá gagn- rýni manna að strákarnir hafi veriö andlausir. Ég vil frekar segja að það hafi gripið um sig vonleysi í liðinu þegar Skotar skoraðu annað markið. Það er stór munur á andleysi og von- leysi. Við vorum alveg við það að jafna skömmu áður en þeir skora annað markið og það er mannlegt að vonleysi grípi um sig. Hafói fjölmiðlaumrœöan fyrir leik- inn áhrif á lióið? „Það er ég ekki í nokkram vafa um. Ég vissi það að þessar vænting- ar væra of miklar og það er nákvæm- lega það sama og Berti Vogts sagði á blaöamannafundinum eftir leikinn. Hann þakkaði fjölmiðlum í Skotlandi fyrir þaö að taka þann pól í hæðina að skrúfa væntingamar niður og setja pressuna yfir á íslendinga sem heppnaðist alveg fullkomlega. Hér á íslandi eru væntingamar alltof miklar og kröfurnar einnig. Ég er með ungt lið í höndunum, meiri hlutinn spilaöi hjá mér í U-21 árs landsliðinu fyrir nokkrum árum. Þetta er nýtt lið, það era margir nýir leikmenn sem eru að koma inn í þetta. Viö eigum erfitt með að axla þá pressu sem fylgir því að hver einasti leikur eigi að vinnast, að annað sé skandall og sú pressa sem sett er á liðið, bæði af fjölmiðlum og almenn- ingi, er ekki að hjálpa því. Það er erfitt að þurfa að eyða orkunni síð- ustu þrjá daga fyrir leik gegn Skotum í það að telja strákunum trú um að þetta verði erfiður leikur. Ég vissi að Skotarnir ættu fullt inni og hefðu ekki sýnt sitt rétta and- lit gegn Færeyingum. Þeir þurftu að sanna sig því að við vorum gerðir að stóra liðinu. Fjöl- miðlar á íslandi verða að vera tilbún- ir að vinna með okkur í stað þess að vinna á móti og ættu að taka skoska fjölmiðla sér til fyrirmyndar í því sambandi." Læt ekki hrekja mig úr starfi Hefur þú íhugaó aó hœtta sem landsliósþjálfari? „Nei, það hef ég ekki gert. Ég er með samning út þessa keppni og ég hef aldrei verið sá maður sem hleypst undan merkjum. Það era aðr- ir sem ráða því og ef það era einhver mál sem þarf að ræða þá ræði ég það við knattspyrnuforystuna en ekki út á við. Á meðan ég er ráðinn í þetta verkefni þá sinni ég því. Ég hef aldrei fengið frið þessi þrjú ár sem ég hef stjórnað landsliöinu en ég tel samt að ég hafi gert góða hluti. í síðustu undankeppni þar sem allt var að verða vitlaust fyrir og eftir hvern einasta leik þá náðum við samt að hækka okkur um styrkleika- flokk og komast upp i þann þriðja í fyrsta sinn í sögunni. Það hlýtur aö sýna að það hefur eitthvað verið gert rétt í þeirri undankeppni. Það var og er ákveðinn minni- hlutahópur sem hefur allt á homum sér gagnvart mér en við höfum aldrei staðið betur í sögu íslenskrar knatt- spymu þannig að menn geta sjálfir séð hversu mikið vit er oft í þessari gagnrýni. Ég er í fótbolta af lífi og sál og læt ekki nokkra menn sem hafa horn í síðu mér og finna mér allt til foráttu hrekja mig burtu úr starfi sem ég elska,“ sagði Atli Eðvaldsson i samtali við DV-Sport. -ósk Sport Landsleikir undir stjórn Atla 2000-2 2000 1) 31/1 Noregur (-, NM).....0-0 2) 2/2 Finnland (-, NM) .....1-0 Ríkharður Daöason. 3) 4/2 Færeyjar (-, NM) .....3-2 Ríkharður Daðason 2 (2 víti), Bjarki Gunnlaugsson. 4) 27/7 Malta (h, vin.) .....5-0 Helgi Sigurðsson 3 (1 víti), Eyjólfur Sverrisson, Heiðar Helguson. 5) 16/8 Svíþjóð (h, NM) .....2-1 Rikharður Daðason, Helgi Sigurösson (víti). 6) 2/9 Danmörk (h, NM, HM) . 1-2 Eyjólfur Sverrisson. 7) 7/10 Tékkland (ú, HM) . ... 0-4 8) 11/10 Norður-lrland (h, HM) 1-0 Þórður Guðjónsson. 9) 15/11 Pólland (ú, vin.) .... 0-1 Árið 2000: 9 leikir, 5 sigrar, 1 jafntefli, 3 töp, markatalan: 13-10. 2001 11) 11/1 Urúgvæ (-, vin.) .... 1-2 Þórhallur Hinriksson. 12) 13/1 Indland (ú, vin.) .... 3-0 Tryggvi Guðmundsson 3. 13) 20/1 Chile (-, vin.) ...0-2 14) 24/3 Búlgaria (ú, HM) ... 1-2 Hermann Hreiðarsson. 15) 25/4 Malta (ú, HM)......4-1 Tryggvi Guömundsson, Helgi Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Þórður Guöjónsson. 16) 2/6 Malta (h, HM) ......3-0 Tryggvi Guömundsson, Ríkharður Daðason Eiður Smári Guðjohnsen. 17) 6/6 Búlgaría (h, HM) .... 1-1 Ríkharður Daöason. 18) 15/8 Pólland (h, vin.) .... 1-1 Andri Sigþórsson. 19) 1/9 Tékkland (h, HM) .... 3-1 Eyjólfur Sverrisson 2, Andri Sigþórsson. 20) 5/9 Norður-íriand (ú, HM) 0-3 21) 6/10 Danmörk (h, HM) ... 0-6 Árið 2001: 11 leikir, 4 sigrar, 2 jafntefli, 5 töp, markatalan: 17-19. 20Q2 22) 8/1 Kúvæt (-, vin.) ....0-0 23) 10/1 Sádí-Arabía (ú, vin.) . 0-1 24) 8/3 Brasilía (ú, vin.)..1-6 Grétar Rafn Steinsson. 25) 22/5 Noregur (ú, vin.) ... 1-1 Jóhannes Karl Guðjónsson. 26) 21/8 Andorra (h, vin.) . . . 3-0 Ríkharður Daðason 2, Eiður Smári Guðjohnsen. 27) 7/9 Ungverjaland (h, vin.) 0-2 28) 12/10 Skotland (h, EM) . . 0-2 Árið 2002: 7 leikir, 1 sigur, 2 jafntefli, 4 töp, markatalan: 5-12. íslenska landsliöiö hefur ekki skorað í 227 mínútur í landsleikjum og ekki i 285 mínútur í landsleikjum í undankeppni HM eða EM. Landsliðsþjálfarar íslands: Besta sigurhlutfall: Guðjón Þórðarson (1997-99) . . 56,0% Gudni Kjartansson (1980-81,1989) 50,0% Atli Eðvaldsson (2000-) ..... 46,3% Ásgeir Elíasson (1991-95) .... 45,7% Bo Johannsson (1990-91) .... 43,3% Tony Knapp (1974-77, 1984-85) 40,0% Flestum leikjum stjórnað: Tony Knapp (1974-77, 1984-85) ... 40 Siegfried Held (1986-1989) . 37 Ásgeir Elíasson (1991-95)... 35 Atli Eðvaldsson (2000-).... 27 Guðjón Þóröarson (1997-99)...25 Flestum sigurleikjum stjórnað: Tony Knapp (1974-77, 1984-85) 13 (40) Ásgeir Elíasson (1991-95) ... .12 (35) Guðjón Þórðarson (1997-99) .. 11 (25) Atli Eðvaldssson (2000-) . . 10 (27) Bo Johannsson (1990-91).. 6 (15) Guðni Kjartansson (1980-81,1989) 6 (16) Siegfried Held (1986-1989) .... 6 (37)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.