Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Síða 16
32
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
Sport
DV
^ Gary Naysmith, leikmaður Everton og skoska landsliðsins:
Anægður með Vogts
- Everton-maðurinn lagði upp fyrsta markið og skoraði það síðara
Markaskorarinn Gary Naysmith
var vitanlega í skýjunum með sigur
sinna manna gegn Skotum. Þetta
var þó ekki fyrsta heimsókn hans
hingað til lands en hann lék með
Hearts þegar liðið mætti ÍBV í Evr-
ópukeppni félagsliða árið 2000.
„Já, ég er mjög ánægður með okk-
ar menn í dag,“ sagði Naysmith við
DV-Sport. „Það var mikil pressa á
okkur í dag að standa okkur vel,
sérstaklega eftir jafnteflið í Færeyj-
um, og við verðum því að vera mjög
ánægðir með þennan sigur.
Við vissum að við þyrftum að
hafa mjög mikið fyrir hlutunum í
þessum leik, að ekkert væri gefið
gegn íslendingum. Sérstaklega
þurftum við að hafa auga með Eiði
Smára Guðjohnsen, sem við þekkj-
um vel til af leikjum hans í ensku
úrvalsdeildinni og vitum að hann er
mjög góður leikmaður. Og við lögð-
um upp með það að þjarma sérstak-
lega að honum þegar hann fengi
boltann án þess að það væri einhver
einn leikmaður á honum allan tím-
ann. Við þurftum bara að vera á
tánum.“
Margar nýjar hugmyndir
Fyrir leikinn var mikið rætt um
framtíð Bertis Vogts með skoska
landsliðinu en leikmennimir voru
þrátt fyrir erfitt gengi ánægðir með
hans störf.
„Hann er með sinn 4 ára samning
og því býst ég viö því að hann verði
þjálfari skoska landsliðsins í 4 ár.
Ég er mjög ánægður með hans störf,
hann er með margar nýjar hug-
myndir og hann hefur skapað mjög
gott andrúmsloft í kringum liðið og
leikmenn hafa mjög gaman af því að
mæta á æfmgar og taka þátt i þessu
með honum.“
Það hlýtur að hafa verið dýrmætt
að eiga sér að baki svona kapps-
mikla stuðningsmenn?
„Þeir eru alltaf svona og fylgja
okkur hvert sem við forum. Þeir
styðja liðið af öllu sinu hjarta og
það var sérstaklega gaman fyrir þá
að koma hingað og sjá liðið leggja
það íslenska að velli,“ sagði
Naysmith að lokum. -esá
Gary Naysmith fagnar hér marki sínu gegn íslendingum ásamt fyrirliða
skoska liösins, Paul Lambert. Reuters
Berti Vogts. landsliösþjalfri Skota. var
einbeittur á svip a rueðan a landsleik
íslendinga og Skota stoð a
laugardaginn. Vogts fagnaöi sinum
fyrsta sigri sem þjalfari skoska liösins i
feiknum og var lett eítir leikinn.
p DV-mynd ÞOK
Skotar léku frábærlega í
dag, sagði þjálfarinn
Berti Vogts eftir leik:
Viö héldum
íslendingum niðri
Vildtim snúa
viö blaöinu
„Við vorum ákveðnir í dag en
jafnframt rólegir, sem er nauösjm-
legt í alþjóðlegri knattspymu,"
sagði Steven Pressley, vamarmað-
ur Skota, við blaöamenn eftir leik.
„Sem er mjög góð blanda og ég
naut þess að spila í dag. Það sem
var þó sérstaklega mikilvægt var
að halda hreinu og þegar það tekst
á maður alltaf góðan möguleika á
sigri. Við fengum einnig með
sigrinum ákveðna uppreisn æru,
og þá kannski leikmenn eins og
Christian Dailly, sem hefur fengið
að mínu mati ósanngjama gagn-
rýni í fjölmiölum undanfama
mánuði. Hann náði svo sannarlega
aö svara fyrir sig í dag með frá-
bærri frammistöðu. Það sama má
segja um Lee Wilkie.
Við vildum sjálfír snúa blaðinu
við eftir nokkur slæm úrslit í
landsleikjum síðustu 3-4 mánaða.
En þrátt fyrir sigurinn í dag meg-
um viö ekki tapa okkur í sigur-
gleðinni heldur halda áfram að
standa okkur vel inni á vellinum,"
sagði Pressley. -esá
Ekki hægt að
biðja um meira
Lee Wilkie átti hreint út sagt
frábæran leik í vöm Skota gegn Is-
lendingum um helgina og var vit-
anlega mjög ánægður með úrslitin,
sérstaklega í Ijósi þess að síðasta
árið hefur verið mjög erfitt fyrir
hann persónulega, þar sem hann
hefúr átt mikið í meiðslum.
„Ég bjóst nú við að þeir myndu
ógna okkur meira en þeir gerðu,
sérstaklega með leikmenn eins og
Eið Smára Guðjohnsen, en hann
náöi ef til vill ekki aö sýna sitt
rétta andlit í dag og þaö var okkur
vitanlega í hag,“ sagði Wilkie.
„En vömin stóö sig vel og kom
mjög vel út á heildina litið. Sér-
staklega fyrir mig persónulega var
þaö frábært að hafa gengið svona
vel. Maður var auövitað varkár í
upphafl leiks en eftir því sem á
leið gat maður leyft sér ýmislegt
og um leið jókst sjálfstraustið jafnt
og þétt,“ sagði Wilkie.
„Ég hafði nú aldrei leikið gegn
íslensku liði áður, hvorki með fé-
lags- né landsliöi. En ég vissi að
þeir væm líkamlega mjög sterkir
og gott liö í heildina. En Berti
Vogts lagði mikla áherslu á það
fyrir leikinn að stöðva Eið Smára
Guðjohnsen, hann væri hættuleg-
asti leikmaður íslands, og að halda
pressunni uppi allan leikinn og
verjast vel. Ef það gengi eftir
myndum við ná góðum úrslitum,
sem og við gerðum. Það var hrein-
lega ekki hægt að biðja um meira
en 2-0 sigur í dag,“ sagði Wilkie í
samtali við DV-Sport eftir leik.
-esá
Á blaðamannafundi eftir lands-
leik íslands og Skota var greinilega
mjög létt yfir þjálfara skoska liðs-
ins, Þjóðverjanum Berti Vogts, sem
hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan
hann tók við liðinu fyrr á þessu ári.
„Það hefur verið frábært andrúms-
loft í kringum liðið undanfarna
viku og mig langar sérstaklega að
koma á framfæri þökkum mínum til
þeirra sem hafa fylgt okkur hingað,
bæði stuðningsmönnum og frétta-
mönnum," sagði Vogts.
„Ég er vitanlega mjög ánægður að
fara héðan frá íslandi með þrjú stig
í farteskinu. Leikmenn liðsins léku
hreint út sagt frábærlega í dag, þar
sem þeir náðu að halda stöðum sín-
um vel ásamt því að setja mikla
pressa á íslensku leikmennina. Með
þessum sigri erum við nú komnir í
fjögur stig og á fullt skrið í þessari
forkeppni."
Hann var svo spurður um sjálfs-
traust liðsins, og hvort það hefði
ekki stórbatnað við þennan sigur
eftir magurt gengi að undanfómu.
„Ég sagði í síðustu viku að það
þyrfti aðeins einn sigur til að koma
sjálfstraustinu á fullt og var þessi
sigur í dag vissulega stór og mikill
gegn þessu mjög svo sterka íslenska
liði. Ég get þó ekki tekið út einstaka
leikmenn í liðinu, þeir stóðu sig all-
ir með afburðum vel og sýndum við
hversu góðir við getum verið á al-
þjóðlegum vettvangi. Nú þurfum við
bara að halda þvi áfram í hinum
leikjum keppninnar.
Það sem er næst á dagskrá em
nokkrir æfmgaleikir þangað til við
mætum íslendingunum aftur í
marsmánuði á næsta ári.“
Þvi næst var hann spurður hvort
léleg frammistaða íslenska liðsins
hefði komiö honum á óvart.
Mikil pressa á íslendingum
„Nei, síður en svo. Það sem ég
held að hafi gerst er að skosku leik-
mennimir náðu að setja mikla
pressu á Islendingana sem varð til
þess að þeir náðu sér aldrei al-
mennilega á strik. Viö vorum mjög
einbeittir í dag, sem er lykilatriðið í
leikjum sem þessum, og strax frá
byrjun þegar við skoruðum fyrra
markið, til leiksloka héldum við
fullri einbeitingu sem gerði
gæfumuninn."
Að síðustu var hann inntur eftir
því hvort hann hefði talið að starfið
sitt væri í hættu fyrir leikinn.
„Nei, ég er með minn fjögurra ára
samning og er nú í því verkefni aö
byggja upp liðið. Það er að mörgu
að hyggja í skoskri knattspymu og
ég er rétt að byija á mínu starfi hjá
skoska knattspyrnusambandinu,"
sagði Berti Vogts eftir leikinn.
-esá