Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 22
-» 38
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
Sport
i>v
Lagnir með netin
Á stóru myndinni hér til vinstri má sjá þegar laxinn er kominn í
netiö og þá var um aö gera aö hafa snör handtök aö ná fiskinum
úr því sem fyrst. Aö neöan má sjá netiö dregið eftir hylnum og
skömmu seinna komu laxar í þaö. DV-myndir G. Bender
Undir lok veiðitímans veiddust
margir vænir laxar í klakveiðinni í
Breiðdalsá i Breiðdal og sá stærsti
var 25 pund.
Margir 20 punda og ennþá fleiri frá
15 upp í 20 pundin. Sá stærsti, 25
punda fiskurinn, var oröin leginn og
hefur líklega verið 27-29 pund þegar
hann mætti í ána fyrr í sumar.
Eitthvað hefur sést af vænum löxum
en þeir hafa ekki náðst þó ýmsar að-
ferðir hafi verið reyndar.
->
_í
- gekk vel í Staðarhólsá í Dölum en henni er nú lokið
Stangaveiðifélag Reykjavikur opn-
aöi nýjan vef fyrir skömmu en mjög
fáir sprettir hafa verið á vefnum síð-
an hann var opnaður aftur.
Landssamband stangaveiðifélaga ítrekar varnaðarorð sín:
Varað við sjókvíaeldinu
- fjölmiðlar vöktu athygli opinberra eftirlitsaðila á því að lax hefði drepist
Stjórn Landssambands
stangaveiðifélaga ítrekar varn-
aðarorð sín vegna hættunnar
sem stafar af sjókvíaeldi á
norskum laxi við íslands strend-
ur.
Til stendur að yfirvöld veiti
fiskeldisfyrirtækinu Sæsilfri í
Mjóafirði formlega áminningu
fyrir brot á ákvæðum starfsleyf-
is síns þegar það með ólögmæt-
um hætti urðaði lax sem drepist
hafði í sjókvium í slæmu veðri.
Veröa aö gera fleira
En yfirvöld verða að gera fleira.
Brot Sæsilfurs staðfestir að opin-
bert eftirlit með starfsemi sjókvía-
eldis hér við land verður að vera
mun strangara en verið hefur.
Fjölmiölar á verðinum
Fjölmiðlar en ekki fiskeldisfyrir-
tækið sjálft vöktu athygli opinberra
eftirlitsaðila á því að lax hefði drep-
ist og verið urðaður í heimildar-
leysi. Sæsilfur braut ekki aðeins
reglur starfsleyfisins, það misnot-
aði sér einnig traust stjórnvalda
sem gáfu því leyfi til rekstrarins
þrátt fyrir áköf mótmæli málsmet-
andi manna, félaga og stofnana sem
viija vernda íslenska laxinn. Stjóm-
völd þurfa í ljósi þessa atburðar að
endurskoða þetta traust. Framferði
fyrirtækisins sýnir að LS hafði fulla
ástæðu til að vara við sjókvíaeldinu
fyrirfram.
Sjóeldi berst i bökkum
Sjóeldi á norskum laxi hér við
land berst í bökkum. Samkeppni er
hörð, markaðssetning fjárfrek og
vísbendingar em um að vaxtar-
hraði laxins sé minni hér en hjá
helstu keppinautunum úti í heimi.
Stjóm LS óttast að i shku rekstrar-
umhverfi sé freistandi að fara á
svig við reglurnar, t.a.m. um til-
kynningar til stjórnvalda, ef þær
geta falið í sér aukinn kostnaö fyrir
fiskeldiö. Sfjórn LS vonast því tU að
þessar tilraunir verði gefnar upp á
bátinn sem fyrst og áður en verður
stórslys sem valdið getur úrkynjun
í islenska laxastofninum. G.Bender
Hrygna fyrir framtíðina
Örn Sigurhansson sést hér til hægri með fallega hrygnu sem
á eftir að koma Staðarhólsánni til góða seinna meir en
klakveiðin tókst vel í ár. DV-myndir G. Bender
Stangaveiðifélagið þarf greinilega
að fá einhvem til að halda utan um
síðuna svo nýjar fréttir komi inn á
hana helst daglega og jafnvel oftar.
Veiðisíða
vakti athygli
fyrr í sumar,
það er Agn.is,
sem Guðni
Ágústsson opn-
aði með við-
höfn. Eitthvað
hafa höfundar
hennar flosnað
upp og gæði
síðunnar
minnkað til Guðni
muna. son.
Ágústs-
Gœsaveiðin hefur gengiö vel og
margir fengið flna veiði enda eins gott
að stunda þann veiðiskap meðan
hægt er, því ekki er víst að sama fjör-
ið verði þegar rjúpnaveiðin byrjar eft-
ir fáa daga. Mjög lítið hefur sést af
fugli eins og kemur fram héma á síð-
unni.
Ein laxveiðiá hefur vakið athygli fyr-
ir góða veiði í sumar. Það er Laxá í
Nesjum en veiðimenn hafa fengið flna
veiði í henni í sumar. Af einum frétt-
um við sem lenti í skemmtilegri bar-
áttu við 16 punda lax sem tók maðk-
inn hjá veiðimanninum sem hafði
betur.
Litið hefur frést af veiðibókum fyrir
þessi jól, nema Stangaveiðiárbókin,
en lítið meira. Eitthvað er byijað að
vinna bók um Svartá og Blöndu en
hún á ekki að koma út fyrr en eftir
einhver ár, jafnvel þrjú.
Agnar byssusmiður Guðjónsson er
víst kominn á nýjan stað. Hann var í
Nanok en hefur hætt þar. í næsta ná-
grenni viö Sportvörugerðina í Skip-
holti hefur hann komið sér fyrir en
þeir í Sportvömgerðinni munu víst
aðstoða hann eftir þörfum.
Veiðin í Miðfjarðará var miklu betri
núna í sumar en fyrir ári en hún á
langt í land með að ná sínu gamla
formi. Veiðifélagið Lax-á hefur leigt
ána og mun víst eftir okkar heimildum
gera það aftur næsta sumar. Lax-á leig-
ir flestar veiðiár landsins eins og stað-
an er núna. -G.Bender
„Veiðiskapurinn gekk vel
hjá okkur, við fengum þá íiska
sem við þurftum, fjórar
hrygnur og tvo hænga,“ sagði
Örn Sigurhansson er við hjá
DV-Sport hittum hann og fjóra
röska veiðimenn við
Staðarhólsá í Dölum fyrir
fáum dögum. Klakveiðin í
ánni var þá úti þetta árið með
góðum árangri.
Fleiri fiskar
Klakveiðin hefur staðið yfir
í veiðiánum síðustu daga með
ágætum árangri víðast hvar og
flestir fengið þá fiska sem þeir
htifa þurft.
„Það voru fleiri fiskar hérna
í hylnum, eina hrygnu fengum
við sem var búin að hrygna
fyrir nokkru og síðan voru
fleiri laxar hérna,“ sagði Örn
um leið og hann dró inn netið.
Klakveiðinni var lokið í
þessari veiðiá, seinna um
daginn var haldið í
Hrútafjörðinn og þar veiddist
meðal annars 23 punda lax í
Ármótahylnum.
-G. Bender.
Veiðivon