Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 12
28
+
29
KR-Snæfell 80-72
Haukar-Hamar 96-104
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002
Fráköst: KR 36 (12 í sókn, 22 í vörn,
Óöinn 9), Snæfell fráköst 12 í sókn, 17 í vöm,
Hlynur 14)
Stoösendingar: KR stoösendingar (hæsti
maður), Snæfell stoösendingar (hæsti
maður).
Stolnir boltar: KR 7 (Magni 2), Snæfell
13 (Bush 4, Hlynur 4).
Tapaöir boltar: KR 14, Snæfell 17.
Varin skot: KR 3 (Magni, Steinar, Flake),
Snæfell ekkert
3ja stiga: KR 6/16 , Snæfell 6/19.
Vfti: KR 10/19, Snæfell 17/26.
Hamar hélt haus
0-9, 4-13, 8-15, (11-21), 11-24, 20-28, 32-35, (41-
44), 45-47, 55-51, (61-58), 64-64, 68-67, 71-71, 80-
72.
Stig KR: Magni Hafsteinsson 24. Darrel
Flake 20, Skarphéðinn Ingason 12, Óöinn
Ásgeirsson 11, Magnús Helgason 5,
Jóhannes Ámason 3, Amar Kárason 2,
Steinar Kaldal 2, Tómas Hermannsson 1.
Stig Snœfells:
Hlynur Bæringsson 26, Jón Ólafur Jónsson
14, Clifton Bush 13, Lýöur Vignisson 10,
Helgi Guömundsson 6, Andrés Heiðarsson
3.
Dómarar
(1-10): Jón
Bender og Ge-
org Andersen
(6).
Gceði leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur:
250.
Ma&ur leiksins:
Hlynur Bæringsson, Snæfelli
Sport
Grindavík eitt
á toppnum
- eftir fjórða sigurinn í röð gegn Tindastól í gær
Grindvíkingar sitja áfram einir á
toppnum í Intersport-deildinni eftir
84-77 heimasigur gegn Tindastól í
gærkvöld.
Grindvíkingar leiddu svo til allan
tímann og það var aðeins með fyrstu
körfu leiksins og svo í stöðunni 29-30
að gestimir komust yfir en þeir voru
þó alltaf í seilingarfjarlægð og Grind-
víkingum tókst í raun aldrei að slíta
gestina almennilega af sér.
Þaö var mikið skorað í fyrsta leik-
hluta og liðin voru eitthvað að spara
vamarleikinn framan af. Páll Axel og
Lewis voru atkvæðamiklir hjá heima-
mönnum og skiluðu sitt hvorum 7
stigunum á meðan Carter var allt í
öllu hjá Stólunum, með 11 stig. Grind-
víkingar byrjuðu svo annan leikhlut-
ann með látum og náðu 10 stiga for-
skoti um miðbik leikhlutans en
Clifton Cook kom gestunum á bragðið
aftur með 10 stigum á skömmum tíma
og munurinn orðin 3 stig.
En Lewis átti góða rispu undir lok
hálfleiksins og heimamenn voru
komnir í 9 stiga forystu í hálfleik.
Tindastólsmenn mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og gerðu 8 fyrstu
stigin og munurinn 1 stig. Þegar rúm-
ar 3 mínútur voru eftir af 3. leikhluta
var staðan jöfn, 63-63, en Grindvíking-
ar komu sér í 72-67 forystu áður en yf-
ir lauk.
Síðustu 10 mínútumar einkenndust
af mjög slökum sóknarleik þar sem
fljótfæmin réð ríkjum. Þegar tæpar 4
mínútur voru eftir var staðan 77-73 og
þeir Páll Axel og Lewis, sem höfðu
verið atkvæðamestir heimamanna,
voru ekki enn komnir á blað í leik-
hlutanum. Þá steig fram ungur leik-
maður, Jóhann Þór Ólafsson, og gerði
hann fyrst 3ja stiga körfu sem kom
heimamönnum í 80-73 og hann fylgdi
því eftir með 2
góðum körfum og tryggði sínum
mönnum 84-77 sigur með síðustu 7
stigum liðsins.
Lewis frábær í fyrri hálfleik
Hjá Grindavík var Lewis frábær í
fyrri hálfleik en týndist í þeim síðari.
Páll Axel átti góðan alhliða leik þótt
hann skoraði ekki í síðasta leikhlut-
anum og þá áttu þeir Bjarni Magnús-
son og Jóhann Þór Ólafsson góðar
innkomur af bekknum. Helgi Jónas
átti rispur en hvarf þess á milli.
Útlendingarnir voru mest áberandi
í liði Tindastóls. Carter var mjög öfl-
ugur í fyrri hálfleik og gerði þá 15 af
19 stigum sínum. Cook átti finan al-
hliða leik, sem og Andrapov, sem var
mjög sterkur í vörninni og gerði
heimamönnum oft erfitt fyrir.
-EÁJ
Sigur okkar
var fyrir öllu
„Stigin tvö eru góð en leikurinn var ekki áferðar-
fallegur. Þetta var frekar fast leikinn leikur og
sóknimar gengu ekki almennilega hjá báðum liðum
og þetta var frekar þunglamalegt á löngum köflum.
Hvaö okkur varðar þá vantaði töluvert upp á
stemningu í vamarleiknum líkt og var gegn ÍR en við
náðum að hala inn sigri og það er fyrir öllu,“ sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavikur, og var
ánægður meö sigurinn. -EÁJ
Við hlupum of
mikiö með þeim
„Við töluðum um það í hálfleik að vinna þetta
rólega niður og við vorum á áætlun þegar síðasti
leikhlutinn hófst. En þá kom nýr maður inn hjá þeim
og við tókum hann hreinlega ekki alvarlega og
strákurinn afgreiddi okkur með 7 stigrnn í röð og þar
með var sigurinn þeirra," sagði Kári Marísson,
aöstoðarþjálfari Tindastóls, eftir leik.
„Við fórum líka of oft að hlaupa með þeim og
síðustu 6-7 mínútumar var farin það mikil orka úr
okkur að við vomm hættir að setja almennilega upp
og því fór sem fór,“ sagði Kári Marísson, enn fremur
í samtali við Dv-Sport eftir leik. -EÁJ
Sport
í þetta skiptið
- vann fyrsta sigur sinn í deildinni gegn Haukum
Óvænt spenna í Frostaskjólinu í gærkvöld:
KR sterkara í lokin
Eftir þrjá tapleiki í fyrstu þrem-
ur umferðunum tókst Hvergerð-
ingum að vinna góðan sigur á
Haukum á Ásvöllum í gærkvöldi,
96-104.
Leikurinn var nánast einvígi er-
lendu leikmannana í hvora liði en
bæöi lið tefla fram frábæram út-
lendingum. Robert O'Kelley,
Hamri, átti fyrri hálfleikinn en sið-
an tók Stevie Johnson við í seinni
og bar Hauka á herðum sér.
Vandræöi meö vörnina
Hamar hefur átt í vandræðum í
vöminni það sem af er vetri og brá
Pétur Ingvarsson, þjálfari liðsins, á
það ráð að reyna fyrir sér í svæðis-
vörn. Það gekk ágætlega á köflum
og reyndi Haukar mikið fyrir utan
3ja stiga línuna í staö þess að leita
meira inn í teig.
Haukar réðu ekkert við gestina I
fyrri hálfleik og fengu á sig 60 stig,
þar af O'Kelley með 27 stig. Gest-
imir byrjuðu síðan seinni hálfleik-
inn af krafti og komust mest 19
stigum yfir, 50-69, en þá kom tók
Johnson algjörlega yfir á vellinum
og minnkaði muninn fyrir Hauka.
Hamarsmenn virtust ætla að
kasta frá sigrinum í lokin eins og
þeir gerðu á móti KR og Njarövík
en í þetta skiptið héldu menn haus
og kláraðu dæmið.
Mikil barátta var hjá gestunum
og greinilegt að menn voru að stað-
ráðnir að leggjast á eitt og vinna
fyrsta leikinn í deildinni í vetur.
Vörnin er þó enn hausverkur en
sóknin er ekkert vandamál með
O'Kelley í fararbroddi. Gunnlaug-
ur Hafsteinn gerði mikilvægar
körfur í lokin og Lárus Jónsson
drífur menn áfram.
Stevie allt í öllu
Stevie Johnson var allt í öllu hjá
Haukum og fékk að leika lausum
hala gegn svæðisvöm Hamars.
Hann nýtti sér að raðaðaði 3ja
stiga körfum ásamt því að fara
sterkur að körfunni.
Þrátt fyrir tap er ljóst að Reynir
Kristjánsson, þjálfari Hauka, hefur
búið til sekemmtilegt lið í kringum
Johnson og er með unga og efni-
lega stráka í bland við reynslu-
bolta á við Marel Guðlaugsson og
Halldór Kristmannsson.
Menn sætta sig við sitt hlutverk
í kringum Johnson og skila því
sem þeir gera best. -Ben
ÍR-iungar unnu Blika, 95-100, þegar
liðin mættust i Smáranum í gærkvöld.í
bráðfjörugum leik. Liðin voru jöfn að
stigum fyrir leikinn og því til mikils að
vinna. ÍR-ingar virtust þó betur
meðvitaðir um þessa staðreynd er
leikurinn hófst og sýndu mikinn
eldmóð og eftir að heimamenn höfðu
skorað fyrstu stigin komu sjö í röð hjá
gestunum. Sérstaklega voru Eugene
Cristhoper og Sigurður Þorvaldsson
öflugir í liði ÍR en samanlagt skoruðu
þeir félagar 24 af 29 stigum ÍR í fyrsta
leikhluta.
Blikar áttu erfitt uppdráttar gegn
sterkri vörn ÍR, voru þungir og
hugmyndasnauðir, og því var erfitt að
sjá á upphafsmínútunum að þeir yrðu
gestunum mikil hindran. Annað kom
þó á daginn.
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari
Blika, skipti sjálfum sér inn á í upphafi
annars leikhluta og leiddi endurkomu
sinna manna. Svo virtist sem
lærisveinar hans fengju aukið
sjálfstrust með Jón Arnar í hlutverki
leikstjórnanda. Friðrik Hreinsson og
Pálmi Freyr Sigurgeirsson tóku við sér
í sókninni á meðan Loftur Þór
Einarsson barði sína menn áfram í
vöminni. Sá síðastnefndi var reyndar
einnig drjúgur í sókninni en þar setti
hann 16 stig. Besti kafli Blika kom um
miðbik annars fjórðungs er þeir
breyttu stöðunni úr 28-37 í 46-44 sér i
vil. Friðrik sendi svo tvær þriggja stiga
körfur rakleiðis niður og þar með
leiddu heimamenn óvænt í hálfleik,
51-49.
Blikar virtust ætla að halda
uppteknum hætti i síðari hálfleik og
hefðu eflaust haldið áfram að stefna
hraðbyri á sigur ef Eugene
Cristhopher, skotbakvörður ÍR, hefði
ekki gripið í taumana.
Eugene hafði leikið stórkostlega í
fyrsta leikhluta en hreinlega horfið
eftir það. Hann kom hins vegar sterkur
inn í síðari hálfiekinn og bætti 18
stigum við 12 sem hann skoraði í fyrra
hálfleik auk þess að stela knettinum
fimm sinnum, oftar en ekki á
mikilvægum augnablikum. Eiríkur
Önundarson sýndi einnig mátt sinn og
megin og var einstaklega duglegur við
að fiska víti en 13 af 20 stigum hans i
leiknum komu af vítalínunni.
Að loknum þriðja leikhluta vora
gestirnir búnir að endurheimta þá tíu
stiga forystu sem Blikar unn upp fyrir
leikhlé og litu svo sannarlega ekki út
fyrir að láta hana af hendi. Liöið var að
smella vel saman þar sem varamenn á
borð við hinn smáa Ólaf Sigurðarson
og Ómar Örn Sævarsson skiluðu sínu.
Samanlagt skoruðu þeir félagar 20 stig,
áttu sex stoðsendingar og stálu
knettinum fimm sinnum, oft á
ögurstundu. Sóknarleikur Blika
byggðist aftur á móti alltof mikið upp á
Jóni Arnari sem leysti það hlutverk
reyndar furðuvel. Skotbakverðirnir
- þegar naumur sigur vannst á baráttuglöðum Snæfellingum
Fráköst: Haukar 46 (23 1 sókn, 23 í vöm,
Johnson 15), Hamar 33 (9 í sókn, 24 í vöm,
Svavar B. 7)
Stoösendingar: Haukar 22 (Sævar 7),
Hamar 14 (Lárus 6).
Stolnir boltar: Haukar 9 (Marel 2),
Hamar 5.
Tapaöir boltar: Haukar 13, Hamar 14.
Varin skot: Haukar 3 (Bojovic 2), Hamar
0.
3ja stiga: Haukar 36/13, Hamar 22/12.
Víti: Haukar 14/11, Hamar 24/18.
KR-ingurinn Darreil Flake sést hér í baráttu vib Clifton Bush og Jón Ólafur Jónsson, leikmenn Snæfells, í leik
liöanna í DHL-höllinni í Frostaskjóli í gærkvöldi.
- ÍR-ingar unnu annan sigur á fyrrum lærisveinum Eggerts þjálfara á rúmri viku og nú gátu þeir fagnað sigri
Skallagrimur3 0 3 230-246 0
Valur 3 0 3 196-275 0
Friðrik og Pálmi Freyr voru í
veigamiklum hlutverkum en samtals
skoraðu þeir rúmlega helminginn af
heildarstigafjölda heimamana.
Blikar komu þó, líkt og í öðram
leikhluta, tvíefldir til leiks í þeim
síðasta og voru greinilega ákveðnir í
að láta fyrrverandi þjálfari sinn,
Eggert Garðarsson þjálfara ÍR, ekki
fara með stigin tvö af heimavelli
sínum. Liðið sýndi mikla baráttu og
náði að minnka muninn niður 88-90
þegar rúmar þrjár mínútur vora eftir.
ÍR-ingar, með títnefnda Eugene
Cristhoper fremstan í flokki, stóðust þó
pressuna og unnu veröskuldaðan
sigur, 95-100.
-AÁ
Næstu leikir:
Keflavtk-Skallagrimur ... í kvöld kl.
19.15
UMFN-Valur.......í kvöld kl. 19.15
5. umferð
TindastóU-KR.........31. okt. 19.15
SnæfeU-Breiðablik ... 31. okt. 19.15
Valur-Haukar ........31. okt. 19.15
Hamar-Keflavík......31. okt. 19.15
SkaUagrímur-Grindavík 1. nóv. 19.15
ÍR-Njarðvík .........1. nóv. 19.15
KR vann nauman sigur á nýlið-
um Snæfells á heimavelli sínum
við Frostaskjól í gærkvöld eftir
jafnan og spennandi leik.
Snæfellingar komu mun betur
stemmdir til leiks og tók það KR-
inga þijár mínútur að skora sín
fyrstu stig. Skyttur KR-inga voru
mjög kaldar og vörn Snæfells jafn-
framt einbeitt og vel með á nótun-
um. Snæfell náði góöu forskoti í
byrjun og komst mest 13 stig yfir í
upphafi 2. leikhluta.
Darrel Flake og Óðinn Ásgeirs-
son voru þeir einu sem eitthvað
kvað að í liði KR og skoraðu þeir
18 af fyrstu 20 stigum liðsins á
meðan að allir voru að skila stig-
um hjá gestunum.
Vöm Snæfellinga gaf aðeins eft-
ir í 2. leikhluta enda voru þeir
búnir að safna fullmörgum villum.
Þeir héldu forskotinu hins vegar
út hálfleikinn og höfðu þriggja
stiga forystu í hálfleik, 44-41.
KR-ingar voru ekki lengi að
vinna upp forskotið í 3. leikhluta
og fór þar fremstur í flokki Magni
Hafsteinsson sem hafði haft sig lít-
ið í frammi til að byrja með. Ann-
ars var það barátta sem einkenndi
þennan leikhluta þar sem liðin
börðust um forystuna og munur-
inn lítill á liðunum.
KR-ingar í villuvandræöum
Sama var uppi á teningnum í 4.
leikhluta en þá var farið að draga
af Snæfellingum og bar Hlynur
Bæringsson leik liðsins uppi að
miklu leyti á eigin spýtur. KR-ing-
ar áttu einnig í vandræðum þar
sem lykilmenn voru komnir í
villuvandræði og þegar um sex
mínútur voru eftir yfirgaf Darrel
Flake völlinn með fimm villur.
Það var svo loks á siðustu
tveimur mínútunum sem KR-ingar
sigu fram úr, helst fyrir tilstilli
Magna Hafsteinssonar og Skarp-
héðins Ingasonar en Hlynur Bær-
ingsson sem átti mjög góðan leik
Robert O'Kelley, Hamri
Blikinn Þórarinn Örn Andrésson berst
hér til vinstri um boltann við ÍR-inginn
Sigurð Þorvaldsson í leik liðanna í
Smáranum í gærkvöldi.
DV-mynd Sigurður Jökull
Endurkomur Eggerts
DEiLDIN
Grindavík
KR
ÍR
Keflavík
Breiöablik
Haukar
Tindastóll
Njarövík
Snæfell 4
Hamar 4
brást skotfimin þegar mest lá við á
lokakaflanum.
Breiddin mikilvæg
Sigurinn geta KR-ingar þakkað
því að vera með reynslumeira lið
en Snæfellingar þrátt fyrir ungan
aldur flestra leikmanna þeirra. Um
þetta voru þjálfarar liðanna sam-
mála eftir leikinn og auk þess
benti Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari KR, á hve breiddin skipti
miklu máli í lokin þegar villuvand-
ræðin sögðu til sín.
Magni Hafsteinsson átti mjög
góðan leik og þeir Óðinn Ásgeirs-
son og Skarphéðinn Ingason léku
einnig vel en Óðinn var að leika
fyrsta leik sinn með KR.
Hlynur Bæringsson átti af-
bragðs góðan leik hjá Snæfelli og
þeir Lýður Vignisson og Jón Ólaf-
ur Jónsson létu mikið að sér kveöa
framan af. Snæfell hefði hins veg-
ar þurft að fá meira út úr Clifton
Bush. -HRM
2-0, 7-2, 7-9, 17-17, (23-28), 26-34, 36-38,
36-46, 39-55, 44—55, (48-60), 48^2, 50-69,
62-69, 66-75, 73-75, (76-81), 76-86, 83-92,
91-94, 91-98, 96-104.
Stig Hauka: Stevie Johnson 46, Halldór
Kristmannsson 13, Marel Guölaugsson 11,
Þórður Gunnþórsson 8, Ingvar Guðjónsson
5, Predrag Bojivic 5, Ottó Þórsson 4, Sævar
Haraldsson 2, Lúðvlk Bjamason 2.
Stig Hamars: Robert O'Kelley 41,
Gunnlaugur Hafsteinn 24, Svavar Birgisson
20, Lárus Jónsson 6, Pétur Ingvarsson 5,
Ægir Gunnarsson 4, Svavar Pálsson 4.
(1-10): 7.
Maður leiksins:
Dómarar (1-10):
Kristinn
Albertsson og
Bjami
Þórmundsson (8).
Gaói leiks