Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 22
38 MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 Sport DV Hér að neðan sjást þeir Anton Heiðar Pórólfsson og Jónas Vai- geirsson úr Ármanni. Anton varð ( öðru sæti á tvíslá og “] Jónas hlaut silfur fyrir gólfæf- ingar sínar. DV-myndir Teitur « *r Úrslitin á Norðurlanda- mótinu Fjölþraut 1. Helge Vammen (Dan.) . . 47,35 stig 2. George Foo (Sví.).. 45,80 stig 3. Henrik Thoresen (Nor.) . 45,15 stig 4. Joachim Olsen (Nor.) . . 44,55 stig 5. Runar Hansen (Nor.) . . . 44,10 stig 7. Anton Þórólfssson (ísl.) 42,95 stig 10. Jónas Valgeirss. (Isl.) . 42,05 stig 14. Gunnar Siguröss. (Isl.) 39,00 stig 16. Róbert Kristmannss. (Isl.) 37,05 stig 25. Teitur Reynisson (ísl.) 19,30 stig 30. Gisli Ottóson (Isl.) . . . 13,35 stig Liöakeppni 1. Noregur.......... 173,50 stig 2. Finnland..........171,40 stig 3. Svíþjóð ......... 169,40 stig 4. Danmörk.......... 167,90 stig 5. Island........... 162,55 stig Einstök áhöld Tvíslá 1. Joachim Olsen (Nor.) . . . 8,30 stig 2. Anton Þórólfssson (ísl.) 7,60 stig 3. Helge Véunmen (Dan.) . .. 6,80 stig Gólf 1. Helge Vammen (Dan.) . . . 8,50 stig 2. Jónas Valgeirsson (Isl.) . 8,35 stig 3. Timo Niemela (Fin.) .... 8,30 stig 4. Anton Þórólfssson (ísl.) 8,20 stig Stökk 1. Mathias Lee (Dan.) .... 8,425 stig 2. Oscar Svenson (Sví.) . .. 8,275 stig 3. Helge Vammen (Dan.) . . 8,150 stig 5. -6. Jónas Valgeirss. (fsl.) 8,00 stig 5.-6. Anton Þórólfsss. (ísl) 8,00 stig Hringir 1. George Foo (Sví.) ..8,10 stig 2. -3. Helge Vammen (Dan.) . 7,50 stig 2.-3. Timo Niemela (Fin.) . . 7,50 stig Svifrá 1. Runar Hansen (Nor.).... 8,15 stig 2. Helge Vammen (Dan.) ... 7,80 stig 3. Timo Niemela (Fin.) .... 7,55 stig 9. Anton Þórólfsss. (Isl.) Lauk ekki Bogahestur 1. Joachim Olsen (Nor.) . . . 8,30 stig 2. Helge Vammen (Dan.) . . . 8,25 stig 3. Marko Huhtanen (Fin.) . . 7,95 stig 9. Anton Þórólfsss. (ísl.) Lauk ekki íslendingar hlutu tvenn silf- urverölaun á Noröurlandamót- inu í fimleikum drengja sem var haldið í hinni nýju og glæsilegu íþróttamiöstöð Bjark- ar um helgina. Það voru Norðmenn sem báru mjög óvænt sigur úr být- um í liðakeppninni sem keppt var í á laugardeginum eftir spennandi keppni við Finnland og Svíþjóð, en islensku kepp- endumir ráku lestina og lentu í fimmta og síðasta sæti. Má þar aö mestu kenna um einbeiting- arleysi í tvíslá þar sem margt fór forgörðum í æfingum ís- lensku drengjanna og við það dróst heildareinkunnin mikið niður. Efstur íslensku keppendanna í fjölþraut var Anton Heiðar Þórólfsson sem hlaut 42,95 stig og hafnaði í 7. sæti. Ekki langt undan eða í 10. sæti hafnaði Jónas Valgeirsson með 42,05 stig. Daninn Helge Vammen sigr- aði í fjölþrautinni með nokkuð afgerandi hætti og hlaut 47,35 stig samtals. Annar varð Geor- ge Foo frá Svíþjóð og síðan kom Henrik A. Thoresen í þriðja sæti. Mun betur gekk í einstak- lingskeppninni á sunnudegin- um og nældu íslendingar sér í tvenn silfurverðlaun, Jónas Valgeirsson á gólfi og Anton Heiðar Þórólfsson á tvíslá. Engu munaði að Jónas næði i brons- verðlaun á svifrá en tveir kepp- endur hlutu 0,05 stigum meira en hann og endaði Jónas því í fimmta sæti. Aftur var það Helge Vammen sem stóð sig best og var hann á verðlaunapalli í öllum áhöld- um. Hann sigraði í keppninni á gólfi, hlaut þrenn silfurverð- laun og tvenn bronsverðlaun. Það má því með sanni segja að hann sé verðugur Norðurlanda- meistari. íslensku keppendumir stóðu sig með sóma en þeir sem voru í liði íslands, auk Jónasar og Antons, voru Gunnar Sigurðs- son, Gísli Ottósson, Teitur P. Reynisson, og Róbert Krist- mannsson. Daði S. Pálsson var siðan til vara. Allir strákamir koma frá Ármanni nema Viktor sem æfir með Gerplu. Tvísláin afdrifarík „Það gekk mjög vel á laugar- deginum á fjórum áhöldum en svo hröpuðum við aðeins á tveimur áhöldum, bogahesti og tvíslá, og þá sérstaklega tvíslánni. Hún tók okkur svaka- lega niður. En hin fjögur voru mjög góð,“ sagði Bjöm M. Tóm- asson, annar tveggja þjálfara ís- lenska liðsins. Hann sagði jafn- framt að greinilegt væri að ís- lendingar væru að ná hinum Norðurlandaþjóðunum hvað getu varðaði. „Þetta er klárlega jafnasta Norðurlandamót sem ég hef tek- ið þátt í og það er skemmtilegt að sjá hvað allir era orðnir svipaðir að getu. Það eru engir yfirburðir hjá neinum en það er greinilegt að Helge Vammen er sterkastur. Jónas og Anton stóðu sig vel. Jónas í úrslitum á fjórum áhöldum og Anton þremur. Það er mjög gott. Það er orðin mikil breidd hjá okkur íslendingum, komnir miklu fleiri strákar og það heldur stöðugt áfram að bætast við,“ sagði Bjöm. Það var mál manna sem lögðu leið sína á Norðurlanda- mótið að vel hefði tekist til, öll framkvæmd mótsins var til fyr- irmyndar og það er ljóst að fleiri alþjóðleg mót eiga eftir að verða í þessari glæsilegu höll, en Norðurlandamótið um helg- ina var það fyrsta. -vig ^ Anton Þórólfsson og Jónas Valgeirsson: Attum helling inni Anton Heiðar Þórólfsson og Jónas Valgeirsson úr Ármanni hlutu hvor um sig ein siifurverðlaun á Noröur- landamótinu. Þeir sögðust í samtali við DV-Sport vera sammála um að íslenska liðið hefði getað gert betur og átt helling inni. „Við hefðum alveg eins getað ver- ið með í baráttunni um gullið í liða- keppninni. Það var tvísláin og boga- hesturinn sem klikkaði,“ sagði Jónas. Anton tók í sama streng: „Ég gerði mistök á bogahesti og á svifrá sem gerðu það að verkum að ég komst ekki í úrslit en þetta era mín bestu áhöld. Við hefðum klárlega getað gert betur.“ Þeir voru þó sammála um að á sunnudaginn hefði gengið mun bet- ur og þá hefðu mistökin verið mun færri. Það sé nú bara svo að dags- formið skipti gríðarlega miklu máli í fimleikum. Anton og Jónas eru báðir 16 ára gamlir og hafa æft fimleika hjá fim- leikadeild Ármanns frá fjögurra ára aldri. Þeir segja íþróttamiðstöðina Björk glæsilega en það sé best að æfa heima í Ármanni. „Þetta er nú ekki beint hugsað sem æfingaaðstaða en þetta er alveg fyrsta flokks keppnishöll og það er gott að keppa héma,“ sagði Jónas. -vig jafnasta Norðurlandamót sem haldið hefur verið, segir íslenski landsliðsþjálfarinn a motinu: Noregur ................... 5 4 gull, 0 silfur, 1 brons Danmörk.....................8 3 gull, 3 silfur, 2 brons Finnland....................5 0 gull, 1 silfur, 4 brons Svíþjóö ....................3 1 gull, 1 silfur, 1 brons ísland......................2 0 guil, 2 silfur, 0 brons lensk silfur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.