Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 25 Sport Eiríkur Önundarson er hér meö bolt- ann í leiknum gegn KR sem fór fram á föstudagskvöld þar sem Eiríkur og félagar í ÍR höföu betur. DV-mynd Hari ÍR-KR 89-81 0-2, 4-7, 11-9, 19-13, 23-20, (29-28), 33-28, 33-39, 39-45, 42-48, (48-51), 56-51, 56-57, 64-57, 64-64, (70-64), 77-68, 78-74, 83-74, 89-81. Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 26, Eugene Christopher 21, Sigurður Þorvaldsson 13, Ómar Sævarsson 10, Ólafur Sigurðsson 7, Hreggviður Magnússon 4, Fannar Helgason 4, Alexandar Cumic 4. Stig KR: Darrell Flake 33, Magni Hafsteinsson 14, Magnús Helgason 13, Skarphéðinn Ingason 11, Steinar Kaldal 5, Jóel Sæmundsson 2, Tómas Hermannsson 2, Steinar Páll Magnússon 1. Dómarar (1-10): Leifur Garðars- son og Björgvin Rúnarsson (7). Gœói leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 250. Maöur Eiríkur Önundarson, ÍR Fráköst: ÍR 33 (6 í sókn, 27 í vöm, Christopher 8), KR 43 (14 í sökn, 29 í vöm, Flake 12). Stoösendingar: ÍR 16 (Eiríkur 4), KR 20 (Magni 5). Stolnir boltar: ÍR 14 (Christopher 6), KR 12 (Magni 6). Tapaöir boltar: ÍR 23, KR 24. Varin skot: ÍR 6 (Cumic 3), KR 3 (Flake 2). 3ja stiga: ÍR 17/6, KR 14/5, Víti: ÍR 33/27, KR 35/24. Hamar-Njarðvík 97-103 2-0, 8-0, 10-5, 15-9, 19-10, 22-15, 27-20, (31-23), 33-23, 40-33, 4240, 5(M5, 5^48, (54-48), 54-50, 54-54, 60-59, 62-64, 68-66, 73-71, (76-73), 76-76, 82-80, 84-86, 88-91, 90-96, 93-100, 95-102, 97-103. Stig Hamars: Robert O’Kelly 36, Gunn- laugur Erlendsson 19, Lárus Jónsson 15, Ægir Gunnarsson 9, Svavar Pálsson 6, Mar- vin Valdimarsson 5, Pétur Ingvarsson 5, Hallgrímur Brynjólfsson 2. Stig NJarðvíkur: Pete Philo 28, Friðrik Stefánsson 26, Páll Kristinsson 15, Guð- mundur Jónsson 11, Ragnar Ragnarsson 11, Sigurður Einarsson 6, Ágúst H. Dearbom 2, Halldór Karlsson 2. Dómarar (1-10): Einar Skarphéðinsson og Georg Ander- sen 5. Gœði leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 250. Maöur leiksins _____________ Friörik Stefánsson, Njarövík Fráköst: Hamar 29 (9 í sókn, 20 vöm Ægir 6), Njarðvík 49 (15 í sókn, 34 vöm, Friðrik 20). Stoósendingar: Hamar 20 (Láras 12), Njarðvik 13 (Philo 4). Stolnir boltar: Hamar 6 (Hallgrímur 2), Njarðvik 6 ( Pete 3). Tapaöir boltar: Hamar 2, Njarðvík 16. Varin skot: Hamar 5 ( Marvin 3), Njarðvík 4 (Friðrik 3). 3ja stiga: Hamar 9/25, Njarðvík 6/17. VitifHamar 29/18, Njarðvík 42/25. ÍR tók á móti KR á fóstudagskvöld og var búist viö hörkuleik þar sem bæði lið tefla fram mjög svo fram- bærilegum liðum í vetur. Leikurinn náði aldrei því flugi sem vænst var og fór hann mikið fram á vítalín- unni. Eftir að KR hafði haft yfír í háifleik þá voru það heimamenn sem reyndust grimmari í seinni hálfleik og innbyrtu sigur, 89-81. Fyrri hálfleikur var ágætur fram- an af og var mikið skorað. KR virtist ná undirtökunum en heimamenn náðu að minnka muninn í þrjú stig fyrir hlé, 48-51. Eftir slakan varnarleik í fyrri hálf- leik tóku iR-ingar sig saman í andlit- inu og bitu á jaxlinn í vöminni. KR áttu engin svör við vörn ÍR það sem eftir lifði leiks. Heimamenn gengu á lagið og sigldu tveimur mikilvægum stigum í höfn. Eftir stirða byrjun í haust unnu ÍR-ingar góðan sigur. Baráttan og hungrið var til staðar að þessu sinni en oft áður hafa ÍR-ingar mætt af- slappaðir til leiks eftir góðan sigur. Það verður fróðlegt að sjá hvort ÍR- ingar ætla að fylgja þessum góða sigri eftir eða fara að ofmeta sig. Deildin er virkilega jöfn þetta árið þar sem allir geta unnið alla og verða ÍR-ingar aö vera á tánum í 40. minút- ur í öllum leikjum. Eiríkur mikilvægur fyrir ÍR Hjá ÍR var Eiríkur Önundarson bestur og reyndist hann KR-ingum erfiður. Hann lék mjög vel á þeim kafla sem ÍR-ingar voru að skilja gestina eftir. Eugene Christopher er duglegur leikmaður sem skilaði sínu. Hann hitti illa utan af velli en nýtti vítin vel og skoraði helming stiga sinna þaðan. Hann barðist vel í vöm- inni og stal sex boltum. Alexandar Cumic lenti snemma í villivandræð- um þegar hann var að kljást við Darrell Flake og lék aðeins 11 mínút- ur. Hreggviður Magnússon er að koma til baka eftir meiðsl og á nokk- uð í land með að komast í sitt gamla form. Sigurður Þorvaldsson hafði hægt um sig aö þessu sinni en laum- aði 13 stigum. Nokkuð ráðleysi einkenndi KR í seinni hálfleik og eftir að hafa skorað 51 stig í fyrri hálfleik náði KR aðeins að skora 30 í þeim seinni og það með herkjum, þar af gerði Flake 18. Flake var drjúgur að vanda en hefur leikið betur. Bæði Magni Hafsteinsson og Skarphéðinn vom í villuvandræðum og máttu KR-ingar Ula við því. Bekk- urinn var ekki að gera mikið og fengu KR-ingar aðeins 10 stig frá varamönnum sínum. Arnar Kárason spilaði sinn fyrsta leik í vetur en setti ekki mark sitt á leikinn. -Ben Brenton frá vegna meiðsla Körfuboltamaðurinn Brenton Birmingham mun ekki leika með liði sínu Rueil á næstunni vegna meiðsla í baki. Brent- on hefur átt við bakmeiðsli að glima um hrið en núna er reiknað með að hann verði frá alla vega í einn Brenton Birming- mánuð og ham hugsanlega tvo. Brenton missti sem dæmi úr leiki með Njarðvík í fyrra vegna bakmeiðsla. Sameiginleg ákvörðun Brenton var að leika vel með franska liðinu á undirbúningstíma- bilinu og voru miklar vonir bundn- ar við hann í vetur. Hann hefur ver- ið meiddur frá því að deildin hófst í haust og alls ekki náð sér á strik. Það var því sameiginleg ákvörðun félagsins og Brentons að hann myndi taka sér frí frá körfubolta- iðkun og einbeitti sér aö því að ná sér góðum í bakinu. Hugsanlega brjósklos Viö fyrstu læknisskoðun bendir flest til þess að um brjósklos í neðri hryggjarlið sé að ræða. Brenton mun fara aftur til sér- fræðings og fá endanlega úr því skorið hvað þetta sé sem er að angra hann og hvemig verði tekið á þessum bakmeiðslum. -Ben Jón Arnór með stórleik Jón Amór Stefánsson átti frá- bæran leik með liði sínu, TBB Trier, á laugardaginn þegar liðið beið lægri hlut fyrir EWE Baskets Old- enburg, 87-73, í þýsku 1. deildinni í körfuknatt- leik. Jón Arnór skoraði 21 stig og gaf sex stoðsendingar á 32 mínútum og var langbesti maður Trier í leiknum. Jón Amór hitti mjög vel í leiknum, úr átta af fjórtán skotum sínum utan af velli og fjórum af fimm vítaskotum sín- um. Trier hefur nú leikið sex leiki í þýsku 1. deildinni og ekki enn unniö leik. -ósk Mjög gott að landa sigri - sagöi Friörik Ragnarsson, þjálfari Njarövíkinga, eftir sigur á Hamri Leikurinn fór mjög fjörlega af stað og lofaði góðu fýrir Hamars- menn, þeir náðu átta stiga forustu strax I byrjun og höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhluta, þó vora Njarð- víkingar aldrei langt undan. Staðan eftir fyrstu tíu mínúturnar var 31-23. Hamarsmenn héldu upptekn- um hætti í öðrum leikhluta og höfðu oftast frumkvæðið, staðan í hálfleik var 54-48 Hamar í vil. Strax í upp- hafi þriðja leikhluta tókst Njarðvík- ingum að jafna leikinn og komast svo yfir en Hamarsmenn gáfust ekki upp og náðu að jafna og komast yfir og vora þeir með þriggja stiga for- ustu eftir þrjá leikhluta. Jafnræði var síðan með liðunum fram í miðj- an síðasta leikhluta en þá náðu Njarðvíkingar að komast yfir og unnu að lokum með sex stiga mun, 103-97. Það er eins og Hamarsmenn nái ekki að halda út, þetta er þriðji leikurinn sem þeir tapa í deildinni og virðist sem liðið nái ekki að ein- beita sér út allan leikinn, en þetta hlýtur að fara að koma hjá þeim, því að í liðinu er mjög góðir strákar sem leggja sig alla í þetta. Þetta var mjög gott hjá Njarðvík- ingum að koma í Hveragryfjuna og ná sér í tvö stig, þetta leit kannski ekki vel út í byrjun en þeir hleyptu þó Hamarsmönnum aldrei laiigt frá sér og með góðri baráttu og seiglu höfðu þeir þetta i lokin. „Ég er ánægður að koma og vinna héma,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur, er DV-Sport hitti hann að máli í leikslok. „Ég tapaði hérna í fyrra með stjömum pi^ýtt lið og koma núna og landa sigri er mjög gott. Ég er feginn að vera búinn að koma hingað og ekki skemmir það að hafa náð að taka tvö stig hérna. Ég er ánægður með mína stráka, þeir voru að spila ágætisleik því við vissum að þetta yrði erfitt," sagði Friðrik að lokum. Bestur hjá Hamri var Gunnlaugur Erlendsson, barðist eins og ljón all- an leikinn, Robert O’Kelly náði að gera þrjátíu og sex stig og er það mjög gott en hann verður að fara að æfa vítaskotin. Láras Jónsson var líka að gera ágætishluti, aðrir leik- menn voru ekki að spila illa, langt í frá, og ungu strákarnir áttu ágæt- isinnkomu. Hjá Njarðvfk var Friðrik Stefáns- son allt í öllu, gerði þrjátíu stig, tók tuttugu fráköst og varði þrjú skot, frábær leikur hjá honum. Pete Philo, Páll Kristinsson, Guðmundur Jónsson og Ragnar Ragnarsson vora líka að spila mjög vel. -EH Formannanámskeid UMFÍ Ungmennafélag íslands stendur fyrir formannanámskeiði 1 -2. nóvember nk. Námskeiðið er ætlað formönnum eða stjórnarmönnum í ungmennafélögum. Á námskeiðinu er farið yfir hlutverk formanna og stjórnarmanna í félögum. Auk þess er farið yfir samskipti sveitarstjórna og félaga, markvissari fundi, styrkja- möguleika og fleira. í lok námskeiðs verður farið í heimsókn í íslenskar getraunir. Á námskeiðinu verður brugðið á leik og farið í óvissuferð. Skráning er í Þjónustumiðstöð UMFÍ, Fellsmúla 26, Reykjavík, eða í síma 568-2929, eða á netfang umfi@umfi.is Ungmennafélag íslands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.