Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002
39
PV_____________________________________________________________________________Sport
í fullum rétti
- samtök knattspyrnustjóra segja Steve Cotterill ekki hafa brotið samning við Stoke
Buttí
aðgerð
Alex Ferguson, knattspymu-
stjóri Manchester United, til-
kynnti um helgina að miðjumað-
urinn öflugi, Nicky Butt, mundi
fara í ökklaaðgerð í vikunni til
að fá sig góðan af meiðslum sem
hafa haldið honum á hliðarlín-
unni í síðustu þremur leikjum.
„Við sendum hann i mynda-
töku og því miður þarf hann að
gangast undir uppskurð. Butt er
sjöundi leikmaðurinn sem við
sendum í uppskurð á þessu tíma-
bili þannig að ég veit eiginlega
ekki alveg hvar þetta ætlar að
enda,“ sagði Ferguson. -ósk
Eberharter
byrjar vel
Austurríski skíðakappinn
Stefan Eberharter, sem bar sigur
úr býtum í samanlagðri keppni í
alpagreinum I fyrra, byrjar þetta
tímabil eins og hann endaði það
seinasta. Hann kom fyrstur í
mark í keppni í stórsvigi í
Sölden í Austurríki í gær og var
13/100 úr sekúndu á undan
Frakkanum Frederic Covili.
Svisslendingurinn Michael von
Grúnigen varð þriðji í keppn-
inni. -ósk
Guðmundur
og Halldóra
sigursæl
Víking-
arnir Guð-
mundur
Stephensen
og Halldóra
Ólafs unnu
örugga sigra
í úrslita-
leikjum
Guömundur Grand Prix-
Stephensen. móts Hag-
kaupa i borðtennis sem fram fór
í TBR-húsinu á laugardaginn.
Guðmundur vann félaga sinn
hjá Víkingi, Markús Ámason, í
íjórum lotum, 11-4, 11-4, 11-9 og
11- 9, en
hann kom
sérstaklega
frá Noregi
til að keppa
á þessu
móti.
•Halldóra
vann Krist-
ínu Hjálm-
arsdóttur úr
KR í fjórum lotum, 11-8, 11-2,
12- 10 og 11-9. Halldóra náði
einnig þeim árangri að verða í 2.
sæti í 1. flokki karla þar sem
Hjörtur Jóhannsson úr Víkingi
bar sigur úr býtum. Sunna Jóns-
dóttir úr ösp vann 1. flokk
kvenna. -ósk
HK lagði
meistara ÍS
HK bar sigurorð, 3-1, af íslands-
og bikarmeisturum ÍS í Iþrótta-
húsi Kennaraháskólans á laugar-
daginn. Leikurinn var gífurlega
spennandi og þurfti að framlengja
allar hrinumar. HK vann fyrstu
hrinuna, 25-23, þá næstu, 26-24. ÍS
minnkaði muninn með því að
vinna þá þriðju, 31-29, en HK
vann síðan fjórðu hrinuna, 25-23.
Einar Sigurðsson var stigahæstur
hjá HK með 23 stig en Einar Ás-
geirsson hjá ÍS gerði 19 stig. -ósk
Samtök knattspymustjóra í
Englandi hafa gefið út yflrlýsingu
til að eyða öllum orðrómi þess efnis
að brotthvarf Steve Cotterills,
knattspymustjóra hjá Stoke, sem yf-
irgaf félagið á dögunum til að taka
að sér þjálfarastarf undir Howard
Wilkinson hjá Sunderland, hafi ver-
ið brot á samningi hans við Stoke.
Yfirlýsingin, sem birtist á vef-
svæði samtaka knattspymustjóra í
gær hljóðar svo:
Samtök knattspymustjóra vilja,
eftir að hafa farið vandlega yftr
samning Steve Cotterill við Stoke,
taka af allan vafa um að einhverjar
reglur eða reglugerðir hafi verið
brotnar þegar hann yfirgaf félagið
til að taka að sér þjálfun hjá Sund-
erland. I samningnum segir skýrt
að hann geti yfirgefið Stoke og farið
til annars félags að eigin ósk en
greiða þurfi Stoke bætur ef slík
staða kæmi upp. Upphæð þeirrar
greiðslu kemur skýrt og greinilega
fram í samningnum."
Víst er að forráðamenn Stoke
taka þessu útspili ekki vel en þeir
vilja fá mun hærri bætur en Sund-
erland er tilbúið til að borga. -ósk
Styrkur
til HSÍ
Handknattleiksamband ísland
hefur fengið viðbótarstyrk frá
Alþjóða Ólympíunefndinni
vegna undirbúnings fyrir heims-
meistarakeppnina í Portúgal í
janúar næstkomandi. Alls hefur
HSÍ fengið um níu milljónir frá
nefndinni á þessu ári og má bú-
ast við meiri styrkjum ef lands-
liðinu tekst að tryggja sér sæti á
Ólympíuleikunum í Aþenu 2004
með góöum árangri á HM í
Portúgal. -ósk
1998
Grafarvogur
kva)
1995
Blönduós
Stykkishólmur
sjð
Lff og fjör í bæjarfélaginu?
Sjötta Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið um verslunarmannahetgina á næsta ári.
Ungmennafélag íslands óskar eftir umsóknum frá sambandsaðilum og sveitarstjórnum
um að taka að sér undirbúning ogframkvæmd 6. Unglingalandsmóts UMFÍ.
Fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Dalvik
1992 en mótin eru orftin fimm talsins. Síðasta
Ungtingalandsmót fór fram f Stykkishólmi um
verstunarmannahetgina í sumar. Næsta Ungtinga-
landsmót UMFÍ verður haldið um verslunar-
mannahelgina árið 2003. Unglingalandsmót UMFÍ
hafa jafnan verið mikil lyftistöng fyrir byggðar-
lögin þar sem þau hafa verið haldin. Kröftug
uppbygging fþróttamannvirkja hefur átt sér stað
og starf ungmenna- og íþróttafélaga eflst
Ungtingala ndsmótum UMFÍ fylgir mikið tífogfjör.
Þau eru fþróttahátfðir ogekki síður fjölskyldu-
og útihátfðir sem vekja þjóðarathygti. Á sfðasta
Ungtingalandsmóti voru um 6.000 gestir, þaraf
um tvö þúsund þátttakendur sem kepptu f fjölda
íþróttagreina. Attir ungtingar 11-16 ára geta tekið
þátt f Unglingalandsmðtinu, þvf mótið er opið
öltum fétögum, hvort sem þau eru f UMFÍ eða
ekki. Ýmis önnur atriði eru fyrir aðra atdurshópa
og þá sem ekki hafa áhuga á fþróttum.
Á Unglingatandsmðtum UMFÍ er boðið upp á
fjölbreytta dagskrá þar sem öll fjötskytdan getur
verð saman.
Umsóknum um að halda 6. Ungtingalandsmót
UMFÍ 2003 skal skitað á þjónustumiðstöð UMFÍ
að Fetlsmúla 26,108 Reykjavik fyrir 30. nóvember
2002.
UNGMENNAFELAG
ISLANDS
Halldóra Ólafs.