Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Side 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 278. TBL. - 92. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
Næturhvellur
( &
^ JRM - &s£* 1
m ( - #** ' þ ■„ ■
Grenjandi rigningarstorm geröi á höfuöborgarsvæðinu í nótt og lægöi ekki fyrr en undir morgun. Allt llö
björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar var kallaö út en þakplötur, skúrar, kerrur og fánastangir fuku víöa
af staö en ollu litlum skaöa. Á myndinni sjást björgunarmenn aö störfum viö Heiöargeröi í Reykjavík á áttunda
tímanum í morgun. Sjá umfjöllun á baksíöu.
Strengur fær mikilvæga viðurkenningu
á Infostore-verslunarlausninni:
Risasamningur
við fyrirtæki
breska
íslenska upplýsingatæknifyrirtæk-
ið Strengur hefur gert stórsamning
við breska vamarmálaráðuneytið um
sölu á Infostore-verslunarkerfí fyrir
verslanir hersins um allan heim. Var
samningur undirritaður fyrir nokkru
en ekki fæst upp gefíð hversu stór
hann er i krónum talið enda liggur
það ekki endanlega fyrir fyrr en upp-
setningu er lokið. Jón Heiðar Pálsson,
sölustjóri Strengs, segir þetta þó
langstærsta samning sem gerður hafi
verið um sölu á Infostore-kerfínu er-
lendis en það er þróað af Streng. Þá er
taliö líklegt að hann geti leitt til samn-
inga vegna sambærilegs rekstrar
herja annarra landa.
Það er NAAFI (Navy, Army and Air
Force Institutes), sem er opinbert
verslunarfyrirtæki innan breska
varnarmálaráðuneytisins, sem gerir
samninginn. Hefur NAAFI valið MBS-
Navision (Microsoft Business
hersins
Solutions-Navision) og Infostore versl-
unarlausnina frá Streng til að halda
utan um verslunarrekstur í útstöðv-
um NAAFI um allan heim. NAAFI sér
breskum hersveitum fyrir þjónustu
hvar og hvenær sem hennar er þörf.
Kerfið heldur utan um alla vöru-,
birgða- og fjármálastjórnun.
NAAFI hefur starfað síðan 1921 og
hefur þjónustað breska herinn og fjöl-
skyldur hermanna. Fyrirtækið hefur
yfir 500 starfsstöðvar í 16 löndum um
allan heim þar sem Infostore-kerfi
Strengs verður sett upp. Þar starfa
yfir 4.000 starfsmenn. Þá verður það
einnig sett upp í 38 herskipum sem
eru með verslanir um borð. Það mun
m.a. þjónusta bari, klúbba, íþróttaað-
stöðu og verslanir sjóhers, landhers
og flughers. -HKr.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 2 í DAG
Metsölulisti DV:
Jói Fel bakar rithöfundana
„Mér líst alveg
rosalega vel á þessa
niðurstöðu. Nú er
maður kominn á
stall með hinum rit-
höfundunum, er
ekki settur úti í
kuldann þó ég skrifi
bók fyrir Hagkaup.
En niðurstaðan er
alveg í takt við þau
viðbrögð sem ég hef
fengið við bókinni sem hafa verið al-
veg stórkostleg, bæði frá þeim sem
hafa prufað að gera réttina í henni og
eins þeim sem hafa bara lesið hana,“
sagði Jói Fel bakarameistari viö DV í
morgun.
Bók Jóa, Brauðréttir Hagkaupa
trónir efst á metsölulista DV fyrir vik-
una 25. nóvember tU 1. desember. Met-
sölulisti DV er unnin eftir metsölulist-
um 36 verslana um allt land. Salan á
bók Jóa mælist i hundruðum eintaka
á dag og ijóst að fáar bækur ná því-
líkri sölu i upphafi aðventu, ekki síst
þegar verð hennar er jafn hagstætt.
í öðru sæti Metsölulista DV er
Röddin eftir Amald Indriðason, þá
kemur Eyðimerkurdögun eftir Varis
Dirie og Sonja eftir Reyni Traustason
í Qórða sæti.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 2 í DAG
Leitað í höll Saddams Husseins
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu
þjóðanna héldu inn í al-Sojoud, eina
af höllum Saddams Husseins íraks-
forseta, í miðborg Bagdad í morgun
til að leita þar að gjöreyðingarvopn-
um. Varðmenn við hlið hallarinnar
voru greinilega óstyrkir vegna þess-
arar óvæntu heimsóknar og opnuðu
ekki fyrir eftirlitsmönnum fyrr en
nokkrum mínútum eftir að þeir
bönkuðu upp á. Sameinuðu þjóðim-
ar hafa gefið Saddam frest tU 8. des-
ember til að greina frá öllum gjör-
eyðingarvopnum í eigu fraka.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 10 í DAG
VARÐ AÐ ÓSK SINNI í
SPURNINGU DAGSINS í DV:
Fékk árskort
frá líkams-
ræktarstöðinni
World Class
21
FRAMLAGSFORMÚLA
NBA-DEILDARINNAR:
Sú fjórtán
ára er
fremst allra