Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
11
DV
Útlönd
Jonatan Motzfeldt
Grænlenski heimastjórnarformaöur-
inn missir fylgi í kosningunum í dag.
Grænlendingar
kjósa þing í dag
Grænlendingar ganga aö kjör-
borðinu í dag til að velja sér nýtt
þing. Kosningamar eru taldar með
þeim mikilvægustu sem haldnar
hafa verið í þau 23 ár sem Græn-
lendingar hafa haft heimastjóm.
Sjálfstæði Grænlands hefur verið
eitt helsta kosningamálið.
Samkvæmt skoðanakönnun
blaðsins Sermitsiaq verður vinstri-
flokkurinn IA eiginlegur sigurveg-
ari kosninganna með rúmlega þrjá-
tíu prósent atkvæða. Helsta kosn-
ingamál flokksins er sjálfstæði
Grænlands og afnám ríkisstyrksins
frá Danmörku í áfóngum.
Talið er að jafnaðarmannaflokk-
urinn Siumut, sem hefur verið
stærsti flokkurinn, muni missa um-
talsvert fylgi vegna innanbúðará-
taka. Flokknum er einnig spáð um
þrjátiu prósentum atkvæða.
Kjörstöðum verður lokað kl. 23 að
íslenskum tíma og á kjörskrá em
þrjátíu og átta þúsund manns.
Brunaverðir af-
lýsa verkfalli
Breskir slökkviliðsmenn hafa af-
lýst fyrirhuguðu átta daga verkfalli
sínu sem hefði þýtt að herinn hefði
orðiö að svara brunaútköllum með
úreltum tækjabúnaði sínum í þriðja
skipti á einum mánuði.
Bresk dagblöð lýstu því yfir í
morgun að ákvörðun slökkviliðs-
mannanna jafngilti sigri Tonys Bla-
irs forsætisráðherra í baráttunni
við leiðtoga brunavarða.
Slökkviliðsmennimir hafa ákveð-
ið að setja launadeilu sína við yfir-
völd í gerðardóm.
Anders Fogh Rasmussen
Danski forsætisráðherrann segir
Færeyinga og Grænlendinga ekki
einu hvalveiðiáhugamennina.
Nefnd um aukna
ábyrgð Færeyja á
utanríkismálum
Dönsk stjómvöld hafa sett á lagg-
imar nefnd sem ætlað er aö gera til-
lögur rnn hvemig hægt sé að veita
Færeyingum aukna ábyrgð á eigin
utanríkismálum. Og hvalveiðar á
ekki að líta á sem séráhugamál Fær-
eyinga eða Grænlendinga.
Þetta kemur fram í svari Anders
Foghs Rasmussens, forsætisráð-
herra Danmerkur, við fyrirspurn
færeyska þingmannsins Torbjoms
Jacobsens eftir að Fogh lýsti áhuga
sínum á að Færeyingar fengju að
hafa meiri áhrif á utanríkismálin.
Að sögn færeyska útvarpsins
vildi Torbjorn meðal annars vita
hvers vegna Færeyingar og Græn-
lendingar fengu ekki formennsku í
dönsku sendinefndinni á fundi
Hvalveiðiráðsins.
„Það er rangt hjá Torbimi Jacob-
sen að áhuginn á hvalveiðum sé að-
eins í Færeyjum og á Grænlandi,“
sagði Anders Fogh Rasmussen.
Al-Qaeda lýsa ábyrgð
á Kenía-árásunum
íslömsk vefsíða birti i gær yfirlýs-
ingu, sem sögð er frá al-Qaeda-sam-
tökunum, þar sem samtökin lýsa
ábyrgð á sprengjuárásunum á ísra-
elsk skotmörk í Mombasa í Kenía á
fimmtudaginn.
í yfirlýsingunni, sem er á arabísku
og ber undirskrift stjómmálanefndar
heilags stríðs al-Qaeda, eru múslímar
einnig varaðir við því að styðja hugs-
anlega árás á Irak. „Stríðsmenn al-Qa-
eda hafa aftur látið til skarar skríða
gegn hagsmunum gyðinga á sama stað
og fyrir fjórum árum og þeir veittu
þungt högg,“ segir í yfirlýsingunni
sem vitnar til árásanna á bandarísku
sendiráðin í Nairobi og Dar es Salaam
í Tansaníu.
Bandarískir embættismenn segja
að taka beri yfírlýsinguna alvarlega,
en að þeirra sögn eru greinileg tengsl
milli árásanna í Kenía og árásarinnar
á bandarísku herflugvélina í Sádí-Ar-
abíu í sumar. Þetta er í fyrsta skipti
sem al-Qaeda-samtökin lýsa beinni
ábyrgð á hryðjuverkaárás og einnig í
fyrsta skipti sem umrædd stjóm-
málanefnd er nefnd til sögunnar.
Fórnarlömb Keníaárásarinnar borin tll grafar
ísraelsk fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar á Paradise-hótelið í Mombasa
voru borin til grafar á Peth Tikva í ísrael um helgina.
IbLbNbKA PAKIÐ:
AEG ÞVOTTAVÉL
OG ÞURRKARI
AEG Lavamat þvottavél
1400 snúninga tölvustýrð
þvottavél
AEG Lavatherm barkalaus
þurrkari með rakaskynjara
ítarlegar notenda-
handbækur á íslensku fylgja
þvottavélinni og þurrkaranum
Verðáðurkr. 183360. -
Afmælisafsláttur 20%
Nú kr. 147.000.-
Afmælispakkatilboð á
AEG eldunartækjum:
AEG veggofn B 4100-l-w. • Fjölvirkur blástursofn með klukku •
AEG keramik helluborð 6000 K-WN • AEG vifta DS 220 D-w
Verð
139.163.- Afmælisafsláttur 28%
Nú kr. 99.900.-
LÉTTGREIÐSLUR / ÞRJÁ MÁNUÐI
HJÁ BRÆÐRUNUM ORMSSON
Afmælisafslátíur
til miðvikudags 4. des
BRÆÐURNIR
© OKMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800