Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
13
DV____________________2______________________________________________________________________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptabladiö
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 3.198 m.kr.
Hlutabréf 1.359 m.kr.
! Spariskírteini 639 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
; Sjóvá-Almennar 1.057 m.kr.
!©sh 47 m.kr.
| 0 Eimskip 42 m.kr.
MESTA HÆKKUN
o Skýrr 2,8%
0 ísl. hlbrsjóöurinn 2,3%
| O Hampiöjan 2,1%
MESTA LÆKKUN
OSÍF 7,6%
IO Íslandssími 4,7% j
O Hlbrsjóður Búnb. 3,0%
! ÚRVALSVÍSITALAN 1.320
- Breyting 0°,37%
Ernst & Young
til íslands
Ellefu löggiltir endurskoöendur
hafa stofnað nýja endurskoðunar-
skrifstofu hér á landi, Ernst &
Young hf., og er hún hluti af alþjóð-
legri keðju endurskoðunarskrifstofa
sem starfa undir heitinu Emst &
Young í 130 löndum viða um heim.
Flestir aðstandenda fyrirtækisins
störfuðu áður hjá Endurskoðendum
ehf. og Moore Stephens endurskoð-
un ehf., en bæði fyrirtækin hafa nú
hætt störfum.
Fyrirtækið Emst & Young varð
upphaflega til með samruna tveggja
gróinna endurskoðunarskrifstofa í
Bandaríkjunum, Arthur Young &
Co og Emst & Ernst, sem höfðu
starfað frá því um aldamótin 1900.
Fyrirtækið var stofnað árið 1989 og
er nú ein af fjórum stærstu endur-
skoðunarkeðjum í heimi með um
110 þúsund starfsmenn í 130 ríkjum.
Stofnendur Emst & Young hf. era
Anna Kristín Traustadóttir, Ámi S.
Snæbjömsson, Ásbjöm Bjömsson,
Friðbjöm Bjömsson, Jóhann Unn-
steinsson, Jón Öm Guömundsson,
Rögnvaldur Dofri Pétursson, Sig-
urður G. Jósafatsson, Sigurður M.
Jónsson, Sverrir Ingólfsson og Þor-
steinn Haraldsson.
Vaki-DNG:
Útlit fyrir allnokk-
urt tap á árinu
Tap varð af rekstri Vaka-DNG hf.
á þriðja ársfjórðungi að fjárhæð 29
milljónir króna. Það sem af er ári
hefur fyrirtækið verið rekið með
um 31 milljónar króna tapi. í frétt
frá félaginu kemur fram að horfur á
helstu mörkuðum séu áfram slæm-
ar og því er nú gert ráð fyrir all-
nokkra rekstrartapi á árinu í heild.
Rekstrartekjur Vaka-DNG fyrstu
níu mánuði ársins voru um 295
milljónir króna samanborið við um
333 milljónir á sama tímabili i fyrra.
Afkoma fyrir afskriftir hefur snúist
úr 27 milljóna króna hagnaði á síð-
asta ári í um 4 milljóna króna tap.
Það sem af er ári er veltufé frá
rekstri neikvætt um 34 milljónir
króna en það var jákvætt um 34
milljónir fyrstu níu mánuði síðasta
árs.
í frétt frá Vaka-DNG kemur fram
að ástand á helstu mörkuðum Vaka
DNG hefur verið erfitt, sérstaklega
á fiskeldismörkuðum þar sem
ástandið hefur verið mjög slæmt allt
árið vegna offramboðs sem endur-
speglast í lágu verði til framleið-
enda og tregðu þeirra til að fjár-
festa, m.a. í vörum eins og Vaki-
DNG býður. Ekki er búist við verð-
hækkunum á afurðum fiskeldisins
fyrr en á miðju næsta ári.
Á miðjum ársfjórðungnum var
gripið til aðgerða til að mæta niður-
sveiflunni á mörkuðum sem félagið
vinnur á. Dregið var verulega úr
starfsemi dótturfélags í Noregi, ekki
hefur verið ráðið í stað þeirra sem
hafa látið af störfum hjá félaginu og
dregið úr kostnaði víða í rekstrin-
um.
Einnig hefur ákveðin deyfð verið
yfir fiskveiðimörkuðum Vaka-DNG
erlendis þar sem óvissa um kvóta og
veiðileyfi hafa dregið úr áhuga
manna á fjárfestingum í búnaði sem
Vaki býður.
í frétt félagsins er tekið fram að
ástand á mörkuðum hefur ekki
breyst frá þriðja ársfiórðungi og
eins og áður hefur komið fram er
nú búist við að ástandið batni ekki
fyrr en á miðju næsta ári. Því er
gert er ráð fyrir að félagið verði rek-
ið með allnokkru tapi á árinu.
Metsláturtíð á Húsavík
Sláturtíö
Þótt heföbundinni sláturtíö sé nú iokiö veröur ditkum siátraö á Húsavík viku-
lega út desember og fer þaö kjöt hvort tveggja á innlendan markaö og til
Bandaríkjanna.
Slátrað var 65 þúsund fiár hjá
Sláturhúsi Norðlenska á Húsavík
á nýliðnu hausti og er það mesti
fiöldi fiár sem slátrað hefur verið
á Húsavík frá upphafi. Sala á
fersku kjöti frá Húsavík hefur
stóraukist með nýrri vinnslulínu.
Sláturtíð gekk almennt vel hjá
Norðlenska á Húsavík í haust.
í frétt frá Norðlenska kemur
fram að slátrun hófst í Sláturhúsi
Norðlenska á Húsavík 20. ágúst
með slátrun fyrir Bandaríkja-
markað. Þótt hefðbundinni slátur-
tíð sé nú lokið veröur dilkum
slátrað á Húsavík vikulega út des-
ember og fer það kjöt hvort
tveggja á innlendan markað og til
Bandaríkjanna. Sláturtíöin hefur
þannig lengst nokkuð í báða enda
frá því sem áður var þótt enn sé
mestum fiölda dilka slátrað á hin-
um hefðbundna tíma í september
og október.
Sláturtiðin gekk vel á nýliðnu
hausti að sögn Jóns Helga Bjöms-
sonar, framkvæmdasfióra Slátur-
húss Norðlenska á Húsavík.
„Helsta breytingin hjá okkur á
þessu hausti er þó sú að með nýrri
skurðarlínu í kjötvinnslunni hef-
ur stóraukist það magn af fersku
kjöti sem við sendum frá okkur og
er Nóatún stærsti kaupandi þess
kjöts,“ segir Jón Helgi Björnsson.
Aukning í
nýskráningum
bifreiða
í nóvember voru nýskráðar 425
fólksbifreiðir í landinu en í sama
mánuði í fyrra voru þær 394. Þetta
er fimmti mánuðurinn í röð sem ný-
skráning bifreiða eykst en fram
undir mitt ár hafði verið samdrátt-
ur í nýskráningum nær samfellt frá
upphafi árs 1999. Frá miðju ári er
búið að nýskrá 2.825 fólksbifreiðar,
samanborið við 2.465 á sama tíma-
bili í fyrra. Aukningin er 14,6%.
Tölumar bera það með sér að hæg-
ur vöxtur kunni að vera að myndast
í einkaneyslu.
Samtök birtingar-
húsa stofnuö
Gengið hefur verið frá stofnun
Samtaka birtingahúsa (SAB). Til-
gangur samtakanna er að vinna að
því að auka hæfni aðildarfyrirtækja
til að veita faglega og virðisaukandi
þjónustu, að vekja athygli á nauð-
syn faglegra vinnubragða við gerö
birtingaáætlana, að stuðla að og
greiða fyrir þróun fiölmiðlarann-
sókna á íslandi og að koma fram
fyrir hönd aðildarfyrirtækjanna
gagnvart öðrum hagsmunaaðilum á
vettvangi markaðslegrar boðmiðl-
unar, opinberum aðilum og hlið-
stæðum samtökum erlendis.
í tilkynningu frá samtökunum
segir að þau muni stuðla að opnum
og heilbrigðum auglýsingamarkaði
- meðal annars með því að beita sér
fyrir gerð siðareglna fyrir birtinga-
hús þar sem kveðið er á um hlut-
verk birtingahúsa við gerð birtinga-
áætlana, skyldur birtingahúsa gagn-
vart viðskiptavinum sínum og
gjaldtöku fyrir veitta þjónustu.
Aðild að samtökum birtingahúsa
geta átt hver þau fyrirtæki sem hafa
að meginstarfsemi að sérhæfa sig í
gerð birtingaáætlana fyrir aug-
lýsendur og nota til þess gögn úr
viðurkenndum fiölmiðlarannsókn-
um. Forsvarsmaður SAB er Ólafur
Þór Gylfason, aðferða- og tölfræð-
ingur (MSc), framkvæmdastjóri
Birtingahússins ehf.
Flugleiðir og Grandi inn i Urvalsvísitöluna?
Tvær breytingar munu að öllum
líkindum verða á Orvalsvísitölu
Kauphallarinnar frá og með 1. janú-
ar næstkomandi. Delta og Ker
munu falla út úr vísitölunni, en
Delta hefur sameinast Pharmaco og
viðskipti með bréf Kers hafa ekki
verið nægjanlega tíð sl. 12 mánuði.
Flugleiðir og Grandi munu taka
sæti þessara félaga, samkvæmt
könnun Greiningar íslandsbanka er
birtist i Morgunkomi í gær. Kaup-
höllin mun tilkynna um nýja sam-
setningu Úrvalsvísitölunnar í kring-
um 10. desember.
Könnun Greiningar byggir á að-
ferðafræði Kauphallarinnar, en
samsetning Úrvalsvísitölunnar er
endurskoðuð í júní og desember ár
Ruglel&lr og Grandi komin inn í Urvalsvísitöluna?
hvert. Þegar valið er inn í vísitöl-
una er í fyrsta lagi tekið mið af við-
skiptum með bréf félaga á Aðallista
og í öðru lagi horft til markaðsvirð-
is. Af þeim 20 félögum á Aðallista
sem tíðust viðskipti eru með á 12
mánaða tímabili (nú er miðað við 1.
desember 2001 til 30. nóvember 2002)
eru það 15 stærstu félögin að mark-
aðsverðmæti í lok tímabilsins sem
mynda Úrvalsvísitöluna næstu sex
mánuði á eftir (frá 1. janúar 2003).
NLP-kennsla NLP-ráðgjöf
Viltu ná stjórn á:
meðvirkni, kvíða, streitu, mataræði, sjálfsmati?
Viltu finna og virkja þína eigin hæfileika?
Höfum opnað skrifstofu að Suðurlandsbraut 6, 2. hæð.
Ingibjörg Gunnarsdóttir MPNLP
GSM: 898-1010 nlp@simnet.is
Rögnvaldur Guðbrandsson MPNLP
GSM: 895-2321 rogginn@mmedia.is
Brœðumir Ormsson verða 80 ára íþessari viku.
Komdu og fáðu þér sneið afkökunni.
Fjöldi vörutegunda með 20% afmælisafslætti!
OKMSSON
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800