Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 DV Menning 15 DV-MYND HARI Steinunn Siguröardóttir rithöfundur Semur enn eitt tilbrigðiö við ástina sem hún er snillingur í að fjalla um. Paradís er hér „Ég var að fá mér indverskan hádeg- ismat á Place Toudouze þegar ég fann hvað vantaði. Elskhuga. Alvöru elsk- huga með hjali og handayfirlagningum og öllu tilheyrandi. Að mér skyldi ekki hafa dottið þetta i hug fyrr.“ Á þessum orðum hefst nýjasta skáld- saga Steinunnar Sigurðardóttur, Hundrað dyr í golunni. Það er Bryn- hildur, aðalpersóna bókarinnar, sem fær þessa snjöllu hugmynd en verst flnnst henni að hafa ekki fengið hana fyrr. Hún er i stuttu fríi í París og þar sem dóttir hennar er væntanleg verður hún að hafa hraðan á því dóttirin er jarðbundin og myndi aldrei líða neitt svona. (11) Brynhildur hefur lifað góðu lífi og á margar ánægjuleg- ar minningar, er enn á besta aldri, full af fjöri og lífsþrótti. Það að hún skuli taka ákvörðun um að finna sér elskhuga í hvelli og hrinda ákvörðuninni í framkvæmd vekur ákveðna furðu því Brynhildur virðist sæl í lífi og hjóna- bandi. En fljótlega kemur í ljós að hún lifir í skugga gam- allar ástar. í París hellast minningarnar yfir og Brynhildur minnist mannsins sem hún kolféll fyrir á námsárunum í þessari sömu borg. Hann kenndi henni grísku, var helm- ingi eldri en hún og ómótstæðilegur! Hún eyðir dýrmætum árum í að láta sig dreyma um hann til þess eins að komast að því að hún mun aldrei eignast hann. Þá lokar hún sig af í nokkra daga uns óvæntur bjargvættur lokkar hana aftur út í sólskinið. Með honum gengur hún á vit lífsins og allt virðist vera í lukkunnar velstandi. En hugmyndirnar um það sem hún hefði getað fengið en fékk aldrei eitra bæði hennar líf og eiginmannsins og það þótt Brynhildur reyni alla tíð að kæfa hina fomu ást. Á miili hjónanna er ósýnilegur veggur sem veldur báðum hugarangri og svo fer um síðir ai) maðurinn tekur upp leið- an sið sem Brynhildur umber vegna þess að hún kennir sjálfri sér um ástandið. Þar sem hún þráir ást og rómantík fleygir hún sér umhugsunarlaust í faðm skermakaupmanns sem daðrar við hana með augunum og spilar fyrir hana á lútu. Saman eiga þau dýrlegan ástarfund en um leið ljúkast upp hundrað dyr sem fram til þessa hafa verið lokaðar og læstar. Og Brynhildur kemst að þeirri niðurstöðu að „Para- dís var veruleikinn og ég átti heima þar. Enn sem komið var.“ (137) Bókmenntir Hundrað dyr í golunni er enn eitt tilbrigðið við ástina sem Steinunn Sigurðardóttir er snillingur í að fjalla um. Bókin kallast skemmtilega á við Tímaþjófinn, fyrstu skáld- sögu Steinunnar, þar sem Alda kalda fórnar lífi sínu á alt- ari ástarinnar. Þegar elskhuginn hafnar henni tekur hún til við að næra sorg sína af miklum móði og lokar smám saman á vini og ættingja með sínu sterkasta vopni, kald- hæðninni. Og hún endar líf sitt, alein, yfirgefin og ástlaus. Brynhildur lendir í sömu hremmingum og Alda en hún vinnur sig út úr þeim vegna þess að hún er ekki jafh hörð við sjálfa sig og Alda. Hún sættir sig við sjálfa sig eins og hún er, viðurkennir mistök sín og sigrast á aðstæðum. Mis- kunnarlaus kaldhæðnin í Timaþjófnum hefur vikið og í stað hennar ríkir sjarmerandi og æðrulaus glettni. í Tíma- þjófnum er lífið sárt af því að ástin svíkur en í Hundrað dyrum í golunni er lífið gott þó ástin svíki. Hundrað dyr í golunni er bók sem sjátfkrafa stillir sér upp við hlið bestu verka Steinunnar Sigurðardóttur. Hér er skyggnst inn í dýpstu skot sálarinnar og leyndustu þrár og langanir mannsins útlistaðar í fallegri og ljúfsárri sögu sem gleður. Sigríður Albertsdóttir Steinunn Sigurðardóttir: Hundraö dyr í golunni. Mál og menning 2002. Hljómdiskar Blátt áfram og áferðarfalleg Munið að slökkvxi á kertunyui Sjáið til þess að Ijósaskreytinga r ofhitni ekki og séu ekki of nálægt brennanlegum hlutum. Það verður að segjast eins og er að diskur þeirra Óskars Guðjónssonar og Skúla Sverrissonar, Eftir þögn, kom mér allverulega á óvart, bæði hvað varðar útlit og innihald, tón- smíðar og tækni. Hér leika saman einn þekktasti tenóristi okkar hérlendis, Óskar Guðjónsson, og Skúli Sverrisson rafbassagítaristi, einn reyndasti djassleikari okkar erlend- is. Þeir leika eigin tónsmíðar, sem hljóma misvel við fyrstu hlustun. Tvíleikur á bassagitar og tenórsax þarf mikla sköpunar- gleði flytjenda (og tónsmiða) ef flutningurinn á ekki að vera einhliða og hijómurinn flatur til lengdar. 1 fyrstu hlustun var ekki laust við að maður spyrði sjálfan sig hver ástæð- an væri fyrir þessari hljóðritun - og útgáfu hennar á sölu- disk. Voru strákamir að dúlla þetta fyrir sjálfa sig eða er einhver tilgangur með þessu öllu? Ekki er auðvelt að finna svarið á umslaginu sem veitir manni aðeins einfaldar upplýsingar, þ.e.a.s. nöfh tónsmíð- anna, flutningstíma þeirra og það að „þessi tónlist [sé] upp- haflega samin fyrir fjölskyldur og vini.“ Gott og vel. Þessi setning skýrir ef til vill útlit umslags- ins, sem er einungis skreytt „fjölskyldumyndum" - senni- lega frá brúökaupi, jólahaldi, jarðarfór og tilheyrandi um- hverfi, blómum í vasa og kökuskreytingum. Enginn titill. Enginn texti. Nöfn laganna eru svo í moll við myndefnið, þ.e.a.s. anna kveður, okkar á milli, mammamma, höfnun, sætti o.s.frv. Á diskinum sjáifum er svo að finna titil hans, Eftir þögn, með smáu letri. I djassleik sem og öörum list- greinum er einfaldleikinn oftast mælikvarðinn sem skilur hið góða og áheyrilega frá miður vel heppnuðum tilraunum og tæknibrellum. Á diski þeirra Óskars og Skúla ræður ein- faldleikinn ríkjum; skýrar línur og formfóst stefjun mynda látlausa, þægilega tónlist. Flutningurinn virðist áreynslu- laus og tónsmíðamar blátt áfram. Tónn Óskars, sérstaklega eftir að hann hóf að leika á beinan saxófón, er mildur og persónulegur. Stíll hans er það sem kalla mætti „Laid back“ á útlensku - stíll sem hef- ur notið sín sérlega vel t.d. í túlkun hans á verkum Jóns Múla með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara. Þessi stíll er dálítið einlitur, það vantar oft dáfitinn kontrapunkt í flutn- inginn. Skúli sannar hér enn einu sinni að hann er í fremstu röð bassagítarista. Með margbreytilegum línum og frösum heldur hann tvíleiknum saman og gerir hann áhugaverðan, bæði í hljóm og samleik. Það er ekki ástæðulaust að Skúli nýtur mikils álits sem tónlistarmaður meðal nýbylgju- manna í New York. Eftir þögn er magnaður djassdiskur fyrir þá sem fylgjast með samtímadjassi. Það er ekki hægt að segja að tónlist þeirra félaga sé „fyrir alla“ en hún vinnur á við hverja hlustun. Ólafur Stephensen Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson: Eftir þögn. Ómi jazz 007, 2002. patr!t y™ ^ájf Rikislögreglustjórínn ORYGGISNET SECNET HL Rauði kross íslands LÖGGILDINGÁRSTOFA rítíT' SLÖKKVILIÐ HÖFUÐBORÖARSVÆÐISINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.