Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
19
DV
Tilvera
• T ónleikar
■Til stvrktar fátækum
Tónleikar til styrktar fátækum á islandi verða
haldnir í íþróttasal MS i kvöld og munu þar
koma fram hljómsveitirnar Alphanon, Úlpa,
Luna og Kaya ásamt tónlistarmanninum Sig-
urbi Ármann. Það er hljómsveitin Lúna sem er
hér á myndinni fyrir ofan. Dagskráin hefst kl.
19.30 og lýkur kl. 23. Miðaverð 1000 kall.
Allur ágóði tónleikanna fer í að kaupa mat
sem Mæðrastyrksnefnd mun svo sjá um að
dreifa meðal fátækra á íslandi. Allir mæti og
styrki gott málefni.
•Fyrirlestrar
■Ævi Jónasar Hallgrímssonar
Dick Ringler, prófessor emeritus i enskum
miðaldabókmenntum og norrænum fræðum
við University of Wisconsin-Madison í
Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur í tilefni af
útkomu bókar Rinlers um ævi og störf Jónasar
Hallgrimssonar. Bókin er tímamótaverk í
kynningu og rannsóknum á verkum Jónasar á
erlendri grund og afrakstur margra ára vinnu.
Við þetta tækifæri munu Ringler og Bob
Mandell, forstjóri Háskólaútgáfunnar við
háskólann í Wisconsin-Maidison, afhenda
menntamálaráðherra eintak af bókinni en
ráðuneytið hefur styrkt útgáfu hennar.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12 og er haldinn í
hátíðarsal Háskólans, aðalbyggingu, og er
öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
• Bíó
■Bió Revkiavík 8
Nú er síðasti sjens að fyrir þá sem vilja keppa
um „Bedduna" á vegum Bíó Reykjavík að láta
til sín taka. Beddan stendur fyrir bestu
neðanjarðarstuttmyndina. I kvöld er síðasti
sjens að sýna stuttmynd sína og koma henni í
Beddukeppnina en bestu myndirnar verða
valdar í janúar. Bíó Reykjavík er
samvinnuhópur kvikmyndagerðarmanna með
þaö að markmiði að byggja upp nýtt samfélag
kvikmyndagerðarfólks á Islandi. Allir þeir sem
hafa gert stuttmynd og vilja koma þeim á
framfæri fá hana sýnda hjá Bió Reykjavík.
Bíósýningar’eru alltaf fýrsta þriðjudag hvers
mánaðar. í kvöld verður sýning eins og
vanalega kl. 20 i NIÍR, Vatnsstíg 10. Aðgangur
er ókeypis.
•L i stir
■Svningar j Nvlistasafninu
Málararnir Giovanni Garcia-Fenech og JBK
Ransu eru með sýningar i gangi i
Nýlistasafninu Vatnsstíg 3, 3 hæð. sýning
Giovannis heitir Sex hausar, innandyra en
sýning Ransu Ex-Geo. Þetta er siðasta sýning
ársins og stendur hún til 12 jan. Aðgangur
ókeypis.
■Sigrún og Sören i Gallerí
Fold í Rauðu stofunni í Gallerí Fold sýna
Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen í Gleri i
Bergvik nýjar glæsilegar gerðir af glösum af
ýmsu tagi. Glösin nefnast Arktika og eru af 9
mismunandi gerðum. Þetta er i fyrsta sinn
sem hönnuð er og framleidd svo stór
glasasería á íslandi.
Lárétt: 1 tiltekinn, 4
skinn, 7 bæn, 8 óvild, 10
sælustaður, 12 áþekk, 13
handfesta, 14 skikkja, 15
reið, 16 áætlun, 18 tóm,
21 hræðsla, 22 heiður, 23
visa.
Lóðrétt: 1 skarð, 2 andi,
3 peninga, 4 hreinn, 5
loga, 6 hávaöa, 9 dugleg-
ur, 11 torveld, 16 ágjöf, 17
viðkvæm, 19 planta, 20
trýni,
Lausn neðst á síöunni.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Hann gerir það ekki endasleppt sá
gamli, vann mótið sem haldið var í
tilefni af 40 ára afmæli kandídata-
mótsins 1962. Reyndar var það seigl-
an og heppnin sem hjálpuðust að,
Viktor gamli varð aðeins hærri á
stigum en Yona Kosashvili frá ísrael
sem þó vann hann í innbyrðis skák
þeirra. Yona tapaði fyrir Jan Timm-
an, öðrum aðeins yngri ref! Hér sjá-
um við Timman innbyrða vinninginn
með það sem stundum er kaUað „fjöl-
skylduskák!
Hvítur: Jan Timman (2594)
Svart: Yona Kosashvili (2543)
Enski leikurinn. Curacao, Hol-
lensku Vestur-Indíueyjunum (8),
26.11. 2002
1. c4 e6 2. Rc3 Bb4 3. Db3 Rc6 4.
e3 Rf6 5. a3 Bxc3 6. Dxc3 0-0 7. d4
d6 8. Bd3 e5 9. Re2 He8 10. d5 e4
11. Bc2 Re5 12. Rg3 b5 13. cxb5
Red7 14. b4 Bb7 15. Bb2 Bxd5 16.
0-0-0 He5 17. Hhfl Hc8 18. f4 exf3
19. gxf3 c5 20. Kbl cxb4 21. Dxb4
Ba2+ 22. Kxa2 Hxc2 23. Kbl Hxb2+
24. Kxb2 Db8 25. Hcl Rc5 26. Hfdl
Rd5 27. Da5 Rxe3 28. Hd4 h5 29. a4
Re6 30. f4 Hc5 31. Hxc5 dxc5 32.
He4 Rdl+ 33. Kc2 Rf2 34. Hxe6
fxe6 35. Del Dxf4 36. Dxé6+ Kf8
37. Dc8+ Kf7 38. Dd7+ Kf8 39. Dd8+
Kf7 40. Dd7+ Kg6 Stöðumyndin. 41.
Dxg7+ Kxg7 42. Rxh5+ Kf7 43.
Rxf4 Ke7 44. h4 Kd6 45. h5 Rg4 46.
Kc3 Rh6 47. a5 Rg4 48. a6 1-0.
Lausn á krossgátu
'J3U OZ ‘Tin 61 ‘ume
11 ‘snd 91 '0U-I3 11 ‘IIBIE 6 ‘uAp 9 'pia s ‘snemag 1 ‘Eguipi!>(S g ‘ies z ‘4!A l :waJQOj
•jajs gz ‘euios ZZ VnSSn \z ‘UQne
81 ‘uejd 91 ‘rtlSl ‘unsj n ‘pieij £i ‘>ni Zl ‘uapa 01 ‘IIUH 8 ‘Iimi? 1 ‘Piaj t ‘ssia 1 :jjajei
DV-MYND GVA
Svangar kindur
Lífið gengur sinn vanagang í fjárhúsum yfir vetrarmánuðina. Kindurnar bíða þoiinmóðar eftir að þeim sé gefið
og eru nokkurn veginn með það á hreinu hvenær matmálstimar erur. Þá er iíka tekið hraustlega til matar eins
og sjá má á myndinni þar sem tvær kindur virðast vilja sömu tugguna.
Dagfari
Slökun
í bankanum
Ég er eins og fleiri, farinn
að borga ýmsa reikninga í
tölvunni heima, f heimabank-
anum. Eftir að hafa yfirstigið
tortryggni í garð tækninnar,
sigrast á efasemdum um að
greiðslan rataði nú rétta leið,
hefur sýslið í heimabankanum
undið upp á sig. Ég er meira
að segja löngu hættur að haka
við þann möguleika að fá
kvittun senda heim, enda
kostar hver kvittun 80 krón-
ur. í stuttu máli er heima-
bankinn himnasending. En
þess vegna er ég að rausa um
þá iðju sem mörgum leiðist,
að borga reikninga, að með
auknum þægindum sem
heimabankinn hefur í för með
sér í daglegu amstri er orðið
mun þægilegra en nokkru
sinni að gera sér ferð í bank-
ann. Ég átti erindi í sparisjóð-
inn minn um hádegisbil í gær,
2. desember. Áður var fyrsti
virki dagur mánaðarins yfir-
leitt erfiðasti dagurinn í bank-
anum. Allir búnir að fá launin
inn á reikninginn og stóðu
óþreyjufullir í löngum röðum
með gíróseðlabúntin í höndun-
um. Það var spenna í þungu
loftinu og léttur pirringur
gerði af og til vart við sig. En
nú er öldin önnur. Afgreiðslu-
salurinn var hálftómur í gær.
Skraf gjaldkera við kúnnanna
hafði róandi áhrif á mig þar
sem ég beið eftir númerinu
mínu. Aðrir sem biðu sátu hér
og þar f salnum, fengu sér
kaffi eða góndu út í loftið.
Flestir sallarólegir. Ég þurfti
ekki að bíða nema þrjár mín-
útur. Gjaldkerinn afslappaður
og brosti sínu blíðasta. Bless
og búið. Þegar nær dregur jól-
um fær maður piparkökur
með kaffinu og konfekt síð-
ustu dagana fyrir jól. Þegar
jólastressið nær yfirhöndinni
mæli ég með heimsókn í bank-
ann.
Haukur L.
Hauksson
blaðamaður