Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
21
DV
Tilvera
Brendan Fraser 34 ára
Brendan Fraser er af-
mælisbam dagsins.
Mestri frægö hefur
hann náð í Mummy-
myndunum tveimur.
Inn á milli stórmynd-
anna hefur hann leikið
metnaðarfull hlutverk, meðal annars í
Gods and Monsters og The Quiet
American. Fraser er fæddur í Indiana-
polis og ferðaðist um víða veröld á
æskuánmum með foður sínum sem
vann við ferðaþjónustu. Hann smitað-
ist af leiklistarbakteríunni í London
og gekk siðan í leiklistarskóla í
Seattle áður en hann fór að vinna fyr-
ir sér með leiklistinni.
muuiaiim iz.
)>'
1
nokkuð erfli
Gildir fyrir miövikudaginn 4. desember
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.t
. Hætta er á að fólk sé
' of upptekið af sínum
eigin málum til að
samskiptin gangi vel.
Astarmálin ganga þó vel þessa
dagana.
Rskarnir (19. febr.-20. mars):
I Þú færð margar góðar
Ifréttir í dag. Félagslíf-
— r ið er með besta móti
f en þú þarft að taka þig
á í námi eða starfi.
Hrúturlnn (21.. mars-19. aprih:
, Dagurinn verður frem-
'ur rólegur og vanda-
málin virðast leysast
_ af sjálfu sér. Kvöldið
verður ánægjulegt í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Nautlð (20. apríl-20. maí):
Það gengur ekki allt
. upp sem þú tekur þér
fyrir hendiu1 í dag.
___ Taktu gagnrýni ekki
nærri þér. Happatölur þínar eru
4, 9 og 23.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúni):
Þú skalt nýta þér þau
'tækifæri sem gefast
eins vel og þú getur.
Dagurinn gæti orðið
i erflður en þú færð styrk
frá góðum vini.
Krabblnn (22. iúní-22. iúlí>:
Þú uppskerð eins og
| þú sáir og ættir þvi að
' leggja hart að þér í
dag. Taktu þér þó frí í
I gerðu eitthvað skemmti-
legt.
Ljónlð (23. iúH- 22, ágúst);
. ímyndunarafl þitt er
’ fljótt í dag og þú ættir
að nýta þér það sem
best. Þú þarft að
treysta á sjálfan þig því samvinna
gengur ekki sem best.
Meyjan (23, éaúst-22^sepl.):
Þú ert eirðarlaus og
þarft á upplyftingu að
>^i^l>.halda. Gerðu þér daga-
^ r mun ef þú hefur tök á
því. Happatöiur þínar eru 8,13 og
24.
Vogin(23. sept-23. okt.l:
Þú ert ekki hrifinn af
þvi að fólk sé að skipta
sér of mikið af þér. Þú
ert dáhtið spenntur og
þaíft að reyna að láta spennuna
ekki ná tökum á þér.
Sporðdreklnn (24, okt.-2i. nóv.):
Þú getur lært margt af
öðrum og ættir að líta
ytil annarra varðandi
tómstundir. Þú verður
virkur í félagslífinu á næsttmni.
Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.l:
iTil að forðast misskilning
Pí dag verða upplýsingar
að vera nákvæmar og þú
veröur að gæta þess að
vera stundvís. Annars er hætta á að
mikil togstreita skapist á miili fólks.
Stelngeltin (22. des.-19. ian.):
Seinni hluti vikunnar
verður hagstæðari fyr-
ir þig og dagurinn
verður fremur við-
burðalítill. Farðu varlega varð-
andi öll útgjöld.
vuciii izö. se
Jólagjöfin
Þaö getur borgaö sig aö svara spurningu dagsins! Björn afhendir Hjördísi Öldu kortiö.
DV-MYND E.OL.
Óskaði sér líkamræktarkorts í spurningu dagsins í DV:
Sjálfsagt að gefa jólagjafir
- segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class
„Mig langar í líkamsræktarkort i
World Class,“ var svar Hjördísar
Öldu Hreiðarsdóttur við spumingu
dagsins sem birtist í DV 21. nóvem-
ber sem var: Hvað langar þig í jóla-
gjöf? Þetta las meðal annars Björn
Leifsson, framkvæmdastjóri World
Class á íslandi, og gjafmildin bloss-
aði upp í honum. Hann kaUaði Hjör-
dísi Öldu á sinn fund og afhenti
henni hvorki meira né minna en
árskort í líkamsrækt, þannig að
hún datt svo sannarlega í lukkupott-
inn.
Hjördís Alda er nemi í Mennta-
skólanum við Sund og kveðst hafa
verið ein af fáum úti á gangi skól-
ans þegar útsendari DV vatt sér að
henni með spuminguna. „Þetta var
það fyrsta sem mér datt í hug að
óska mér. Ég æfði í World Class í
Grafarvogi í sumar og fannst það
rosalega gaman en eftir að skólinn
byrjaði hef ég ekki haft efni á því,“
segir hún. Aðspurð segir hún ekki
nóg að sprikla i íþróttasal MS í leik-
flmitimunum. „Ekki til að halda sé
í formi," segir hún brosandi og bæt-
ir við. „Aðstaðan er líka svo frábær
í World Class.“
Bjöm Leifsson segir svipað tilvik
hafa komið upp fyrir fjórum árum.
Þá hafi einn þátttakenda í spum-
ingu dagsins óskað sér hins sama og
hann sent þeirri stúlku þriggja
mánaða kort í pósti.
„Ég hafði ekki hugmynd um það
fyrr en þessi ósk kom upp núna að
sú stúlka er farin að starfa hjá fyr-
irtækinu og hefur æft hér frá því ég
sendi henni kortið," segir hann og
kveöst strax hafa verið ákveðinn í
að gleðja Hjördísi Öldu þegar hann
sá svar hennar í DV.
„Ég tók blaðið umsvifalaust til
hliðar. Það er sjálfsagt að gefa jóla-
gjafir," segir hann. -Gun.
Tónleikar í Iðnó:
Jörð bifast
í kvöld verða tónleikar í Iðnó þar
sem koma fram tvær hljómsveitir,
Jörð bifast og Call him Mr. Kid.
Jörð bifast er skipuð þeim Agli Jó-
hannessyni gítarleikara, Sigurði
Hrelli hljóðsmið og slagverksleikar-
anum Steve Hubback sem leikur á
slagverksskúlptúra sem hann sjálf-
ur smíðar. Tónlist tríósins er að
og Mr. Kid
þeirra sögn lífræn og umhverfis-
væn. Call him Mr. Kid er hugarfóst-
ur hins þekkta gítarleikara Kristins
H. Ámasonar. Á tónleikunum flytur
hann ásamt aðstoðarfólki nýtt efni
af geisladiski sem kemur út á veg-
um Thule-útgáfufyrirtækisins í
þessari viku.
Jörð bifast
Siguröur Hrellir, Egill Jóhannsson og
Steve Hubback.
Jordan tekur upp
illdeiluþráðinn r
Silíkon-gellan
Jordan hefur aft-
ur tekið upp
þráðinn I iUdeil-
unum sínum við
fyrrum krydd-
píuna Victoríu
Beckham og
gagnrýnir hana
nú fyrir að hafa
ekki fætt börnin sín með eðlilegum
hætti heldur látið taka báða
drengina, þá Brooklyn og Romeo,
með keisaraskurði.
Sjálf átti Jordan sitt barn, soninn
Harvey, með eðlilegum hætti og segir
að Victoria ætti að skammast sín
fyrir að þora ekki að gera slíkt hið
sama. „Það sæmir ekki sannri konu
að þora ekki og það er alveg kominn
tími til að Victoria geri eitthvað með
eðlilegum hætti svona til tilbreyt-
ingar," sagði Jordan.
Þetta þykir koma úr hörðustu átt
úr munni silíkon-gellunnar og er nú
beðið með miklum spenningi eftir
viðbrögðum fyrrum kryddpíunnar.
Pete Sampras
ordinn pabbi
Hollywood-leikkonan Bridgette
Wilson fæddi í síðustu viku eigin-
manni sínum, tennisstjömunni Pete
Sampras, son og er hann fyrsta bam
þeirra hjóna. Móður og bami heilsast
vel að sögn talsmanns þeirra hjóna
og hefur drengurinn þegar verið
vatni ausinn og heitir Christian
Charles Sampras.
Þau Pete og Bridgette kynntust
fyrst í kvikmyndahúsi í Los Angelses
fyrir þremur árum, en þau gengu í
það heilaga fyrir tveimur árum.
Var athöfnin haldin með mjög
innilegum hætti í bakgarði tennis-
stjömunnar og kom hann brúðinni á
óvart með því að fá vin sinn Elton
John til þess að flytja hjartnæmt
píanóverk sem tók heila klukkustund
í flutningi en Elton lauk
uppákomunni með því að flytja
brúðhjónunum ástaróðinn Can You
Feel the Love Tonight.
Frá afhendingu gjafarinnar
Setbergsfélagar á myndinni eru Steinþór Eyþórsson, Siguröur Axelsson,
Matthías G. Pétursson, Guöjón Smári og Hallmann Óskarsson. Heimilisfólkiö
heitir Guömundur Ottó Þorsteinsson, Gunnar Örn Erlingsson og Dagbjört Þór-
leifsdóttir ásamt Þórhildi Svanbergsdóttur forstðöuþroskaþjálfa.
Kiwanisklúbburinn Setberg:
Færðu sambýli
tölvubúnað
Það var bros og eftirvænting sem
skein úr andlitum heimilisfólksins í
sambýlinu að Markarflöt 1 í Garðabæ
þegar félaga úr Kiwanisklúbbnum
Setbergi bar að garði nýverið. Erindi
Setbergsfélaga var að afhenda form-
lega tölvu, prentara, pappír og aðra
fylgihluti til sambýlisins - en tölva
heimilismanna var orðin lúin og södd
lífdaga.
Þórhildur Svanbergsdóttir, for-
stöðuþroskaþjálfari sambýlisins, hafði
sett sig í samband við Kiwanisklúbb-
inn Setberg og óskað eftir styrk til
tölvukaupanna. Setbergsfélagar gengu
þegar í málið og við frágang tölvu-
kaupanna var leitað aðstoðar hjá
fyrirtækjunum Nýheija og Prent-
smiðjunni Odda sem bæði studdu
myndarlega við verkefhið.
Alls búa fimm manns í sambýlinu
að Markarflöt og buðu heimilismenn
Kiwanismönnum að skoða húsið þeg-
ar gjöfm hafði verið afhent. -aþ
m. grind
Queen 153 x 203
Skipholti 35 • Sími 588 1955