Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 DV Fréttir Falleg jólasaga varð að veruleika í kjölfar viðtals í DV: Fötluð, einstæð móðir sjíimríúJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.30 15.15 Sólarupprás á morgun 11.21 11.06 Síödegisflóö 18.59 23.32 Árdegisflóö á morgun 07.15 11.48 Veöriö í kvöld fékk milljónagjafir - eftir að starfsmenn í Eignanausti hófust handa Falleg jólasaga varö að raunveru- leika í gær þegar Hjörtur Aðalsteins- son, fasteignasali í Eignanausti, aíhenti Kristínu Ingu Brynjarsdóttur, sem er einstæð móðir þriggja bama og mikið lömuð eftir bílslys, gjafabréf fyrir miiij- ónir króna. „Ég veit ekkert hvað ég á að segja,“ sagði hún þegar henni voru afhent gjafabréfm þar sem hún dvelur á endurhæfmgardeildinni á Grensási. „Þetta er albesta jólagjöfin sem hægt var að fá fyrir utan að bömin mín skyldu komast heil úr slysinu." Hugmynd Hjartar að söfnun fyrir hina einstæðu móður kviknaði eftir að hann las viðtal helgarblaðs DV við hana í byijun nóvember sl. Hún hafði lenti í alvarlegu bílslysi undir Hafnar- fjalli í ágúst sl. og lamaðist nær alveg upp að öxlum. í viðtalinu kom glögg- lega fram að Kristín Inga býr yfir ótrú- legri hugarró og kjarki. Þá kom enn fremur fram, aö íbúðin sem hún var nýbúin að festa kaup á þegar hún lenti í slysinu, hentaði alls ekki fyrir fólk í hjólastól, því í honum kæmist Kristín Inga hvorki inn í svefhherbergið sitt né baðherbergið. Þegar Hjörtur las greinina ákvaö hann að hann skyldi leggja sitt af mörkum til að auðvelda þessari ungu, hugrökku konu tiiveruna. Hann ákvað að búa til fallega jólasögu. Hann lét ekki sitja við orðin tóm en fékk félaga sína á fasteignasölunni til liðs við sig. Þeir hófust þegar handa við leit að nýrri íbúð. Sl. fóstudag fyrir viku hóf hann svo söfnun hjá byggingavörufyr- irtækjum. „Við náðum svo miklum ár- angri á skömmum tíma að við erum eiginlega alveg orðlausir," sagði Hjört- ur. „Við vorum með fjögurra her- bergja, stóra og bjarta íbúð til sölu hér á fasteignasölunni Eignanausti, sem Sparisjóður Hafnarfjarðar átti. Hún er Mér þóttí gaman að dansa Úrklippa úr DV. Breyttar aöstæöur Aöstæöur Kristínar Ingu og barna hennar gjörbreytast viö aö eignast hús- næöi sem hentar. Myndin var tekin eftir afhendinguna í gær. F.v.: Hjörtur Aö- alsteinsson fasteignasali i Eignanausti, Birgir Þórarinsson: forstjóri Egils Árnasonar ehf., Bragi Fannbergsson og Jóna Benediktsdóttir, foreldrar Krist- ínar Ingu. Fremst á myndinni er Kristín Inga meö börnin sín þrjú, þau Kristínu Unni, Svein Braga og Brynju Björk (t.h.j. DV-MYNDIR ÞÖK Jólagjöf Kristínar Þaö var sérstök stund þegar Hjörtur Aöalsteinsson afhenti Kristínu Ingu Brynjarsdóttur jólagjöf frá fjölmörgum fyrirtækjum í gær. Kristín Inga er löm- uö upp aö öxlum eftir bílslys sem hún lenti í í sumar. Meö myndarlegu fram- lagi vildu Hjörtur og félagar létta henni og þremur börnum hennar tilveruna. hálfinnréttuð, með tveimur bílastæð- um. Við náðum góðum samningi við sparisjóðinn. Þessi íbúð verður að öllu leyti eins og klæðskerasniðin fyrir Kristínu Ingu. Þá munum við í Eigna- nausti selja íbúð Kristínar Ingu án söluþóknunar. Hún flytur ásamt böm- um sínum inn í nýju íbúðina í vor þeg- ar skóla lýkur. Ég vann við að selja byggingavörur áður en ég geröist fasteignasali. Ég gekk á röðina hjá byggingavörusölun- um með erindi mitt og fékk frábærar undirtektir.“ Þau fyrirtæki sem tóku þátt í þessari fallegu jólasögu Hjartar og félaga og styrktu málefiiið vom Egill Ámason ehf., Tengi ehf., Pípulagnaverktakar ehf., Húsasmiðjan hf., Öndvegi ehf., Slippfélagið ehf., Litagleði ehf., Reykja- fell ehf., Rafkaup ehf., Brúnás ehf., Eg- ilsstöðum, Bræðumir Ormsson ehf., Galíleo, sólargardínur og Rafsetning ehf. Með aðstoð þessara aðila verður hin nýja íbúð Kristínar Ingu sérhönn- uð fyrir hjólastól, bæði hvað varðar rými, innréttingar og hreinlætisað- stöðu. „Þetta skiptir sköpum fyrir mig,“ sagði Kristín Inga í gær. „Ég býst við að verða dagsjúklingur á Grensási í vor en fæ ekki að fara heim nema ég hafi fúllnægjandi húsnæði. Nú hef ég fengið það, þökk sé þeim sem hafa stutt mig.“ -JSS Jólatónleikar í kvöld - aðgangseyrir rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar Styrktartónleikar til stuðnings inn- anlandsdeild Hjálparstarfs kirkjunnar verða í kvöld, fostudag. Tónleikamir fara fram í Frikirkjunni og hefjast klukkan 20.00. I tilkynningu frá Frí- kirkjunni kemur fram að mikil eftir- spum sé eftir aðstoð þessi jól sem og önnur og var þessi leið valin til að styrkja gott málefhi en aðgangseyrir er 1000 krónur fyrir fullorðna og 500 fyrir börn. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til Hjálparstarfs kirkjunnar. Tónlistarfólkið sem hefur ákveðið að styrkja þetta málefni með því að taka þátt í þessum tónleikum með söng og tónlistarflutningi eru Egill Ólafsson, Bergþór Pálsson, Páll Rósin- kranz, Anna Sigríður Helgadóttir, Sig- rún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Sigrún Harðardóttir, Margrét Ámadóttir, Ivar Helgason, Skólakór Varmár- skóla, Kirkjukór Lágafellskirkju og vinir Jónasar ásamt hljóðfæraleikur- um. -ss Akureyringar styðja Kárahnjúkavirkjun Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi á fimmtudagsmorgun að styðja fyrirhugaðar framkvæmdir Landsvirkjunar við Kárahnjúka. Á fund ráðsins mættu til viðræðna Friðrik Sophusson, forstjóri Lands- virkjunar, Stefán Pétursson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs, og Bjarni Bjarnason, framkvæmda- stjóri orkusviðs. Þeir gerðu grein fyrir stöðu mála og lýstu fyrirhug- uðum framkvæmdum. Að loknum umræöum gerði bæjarráð eftirfar- andi samhijóða samþykkt: „Bæjarráð Akureyrar er samþykkt því að Landsvirkjun hrindi áformum um Kárahnjúkavirkjun í framkvæmd að uppfylltum þeim markmiðum sem fram hafa verið sett af eigendum um arðsemi af starfsemi Landsvirkjunar. Aðkoma eignaraðila verði samkvæmt lögum um Landsvirkjun." -GG VAGNHÖFÐA 23 • SÍMI 590 2000 • WWW.BENNI.IS Slydda eöa snjóél Austlæg átt, víða 3-8 m/s, en 8-13 með suðurströndinni og á Vestfjörö- um. Slyddu- eða snjóél, einkum sunnan- og vestanlands í dag. Rigning Suðaustan 10-15 og slydda eöa rigning sunnan- og vestanlands á morgun, en hægari og úrkomuminna norðaustan til. 1 Veðriðn Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur w w Hiti 0° Hiti 0° Hiti 0° «1 4“ til 4° «14° Vindur: Vindur: Vindur: 3-8™/' 3-8 nV« 3-8<n/> * * Vstusamt. Vætusamt. Vætusamt. 1 Vindiirai m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviöri >= 32,7 C:IT’T—f AKUREYRI snjóél -2 BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK KIRKJUBÆJARKL. RAUFARHÖFN REYKJAVÍK STÓRHÖFÐI BERGEN HELSINKI KAUPMANNAHÖFN ÓSLÓ skýjaö úrkoma í gr. skýjaö skýjaö alskýjaö alskýjaö skúr súld rigning alskýjaö þokumóöa skýjað -1 1 -3 2 2 -2 2 3 6 1 1 -2 STOKKHOLMUR 2 ÞÓRSHÖFN skýjaö 3 ÞRÁNDHEIMUR rigning 4 ALGARVE skýjaö 13 AMSTERDAM léttskýjaö -2 BARCELONA rigning 11 BERLÍN CHICAGO alskýjaö 2 DUBLIN rigning og súld 6 HALIFAX alskýjaö 1 HAMBORG þokumóöa -3 FRANKFURT skýjað -3 JAN MAYEN snjóél -10 LONDON mistur 3 LÚXEMBORG heiöskírt -3 MALLORCA rigning 14 MONTREAL alskýjaö -1 NARSSARSSUAQ skýjaö 8 NEWYORK rigning 5 ORLANDO léttskýjaö 18 PARÍS rigning 3 VÍN heiöskírt -8 WASHINGTON súld 10 WINNIPEG ■ alH.iiMi|áaXt.-ilMil alskýjaö iúlaifcWiaMl^frlall M1 -4 rjm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.