Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 29
29
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
DV
Tilvera
Þorsteinn Þorvaldsson, 78 ára, tók þátt í hlaupi í Færeyjum:
Tá runnið varð ígjögnum
undirs j ó vartunnilin
„Tann 78 ára gamli Tor-
steinn Torvaldsson av
Akranesi var millum tey
mongu, sum nýttu hovi at
ganga ella at renna undir
Vestmannasundi í gjár.
Torsteinn Torvaldsson
rennur regluliga við einum
rennifelag á Akranesi, og
hann var eisini við, tá
runnið varð ígjognum und-
irsjóvartunnilin undir
Hvalfirði, sum lat upp um
summarið í 1998.
Nú tann fyrsti undirsjó-
vartunnilin í Foroyum letur
upp, hevði Torsteinn Tor-
valdsson fingið eina ferð til
Foroya í jólagávu frá sonin-
um, so hann eisini kundi
fáa hovi at renna ígjognum
tann fyrsta tunnilin her.“
Besta jólagjöfin
Svolátandi klausa birtist
í Sósialinum í Færeyjum
nýlega. Eins og hún lýsir
var Skagamaðurinn Þor-
steinn Þorvaldsson meðal
hlaupara gegnum Vága-
göngin sem opnuð voru ný-
lega. Hafði fengið ferðina í _____
jólagjöf frá syni sínum og
tengdadóttur og notaði
tækifærið til að skoða fyrsta alvöru
golfvöllinn sem Færeyingar eignast
og Hannes sonur hans hannaði fyr-
ir þá. „Þetta var algert ævintýri og
I viötali
Þátttaka Þorsteins í hlaupinu um Vágagöngin vakti mikla athygli. Hér tekur færeyska sjónvarpiö hann tali.
besta jólagjöf sem ég gat fengið,"
segir Þorsteinn, heimkominn úr
ferðalaginu. Hann getur líka verið
stoltur yfir að vera eini maðurinn
sem hlaupið hefur bæði um Hval-
fjarðargöngin og Vágagöngin við
opnun þeirra. Hann segir göngin
svipuð að lengd en brekkurnar séu
ívið meiri í Hvalfjarðar-
göngunum. „Vogagöngin
eru gríðarleg samgöngu-
bót, enda tengja þau eyj-
una Vága, þar sem flug-
völlurinn er, við
Streymoy, sem Þórshöfn
stendur á,“ segir Þor-
steinn. Hann segir um
2.500 manns hafa tekið
þátt í hlaupinu og að því
loknu hafi allir þátttak-
endur fengið hressingu
og bol.
En hvernig var honum
tekið í Færeyjum og
hvemig gekk honum að
skilja þessa frændur okk-
ar?
„Mér var tekið með
kostum og kynjum og
naut gestrisni Per Han-
sens ferðamálafulltrúa
sem bauð mér gistingu á
sínu heimili. Ég hafði nú
bara ætlað að fá mér hót-
elherbergi en Per, sem er
kunningi Hannesar son-
ar míns og Þórdísar
tengdadóttur minnar, tók
það ekki í mál. Mér gekk
___________ ekkert of vel að skilja
Færeyingana en það
bjargaðist og þeir virtust
skilja mig. Sjónvarpið tók viðtal við
mig og blöðin Sósíalurinn og
Dimmalætting líka.“
DV-MYNDIR PER HANSEN
Við Vestmannasund
Þorsteinn Þorvaldsson segir Fær-
eyjaferöina bestu jólagjöfsem hann
hefði getaö fengiö.
Þakkar golfinu þrekið
Þótt Þorsteinn eigi aðeins tvö ár
eftir í áttrætt stundar hann líkams-
rækt af miklum krafti. Hann þakk-
ar þrekið og úthaldið meðal annars
því að hafa stundað golf reglulega
frá 1965. Sjö sinnum hefur hann
hlaupið háift Reykjavíkurmaraþon,
um það vitna jafnmargir DV-pen-
ingar! Oft kveðst hann hlaupa 7-10
kílómetra á dag yfir sumartimann,
hjóla nokkuð reglulega kringum
Akrafjall og hlaupa upp á það líka
en nota sundið og tækjasalinn
meira yfir veturinn. „Þetta er nátt-
úrlega bilun,“ segir þessi eldspræki
Skagamaður og hlær. Gun
m@með m*
þegar vanda skal til veislu
aupHtaHHSunoimar
Seljabraut Reykjavfk Tryggvagötu Selfossi
Hagamet Reykjavfk Hólmgaröi Keflavfk
Breiðumörk Hveragerðl Ólafsbraut Ólafsvik
tytteber
f BMfeCCs
AotHÚorQM&eyQt
butterbau
■>