Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
Fréttir JOV
Feðgar í hobbíútgerð fengu allan byggðakvóta Siglufjarðar:
WBmmmr.,
Margir umsækjenda
höfðu leigt frá sér kvóta
Frá Siglufiröi.
Þann 5. desember sl. kynnti sjávar-
útvegsráðuneytið niðurstöðu sína
varðandi úthlutun á byggðakvóta til
einstakra landsvæða sem er um 1% af
heildarkvóta landsmanna. Jafnframt
óskaði ráðuneytið eftir umsóknum að-
ila er miðuðu að því að styrkja byggð
á einstaka landsvæði. Heildarfjöldi er-
inda var 554 en í mörgum þeirra stóðu
fleiri en einn aðili að baki. Umsóknir
voru flokkaðar eftir svæðum, farið
yfir þær allar og metnar í samræmi
við ákvæði reglugerðar þar sem seg-
ir m.a. að „á fiskveiðiárinu
2002/2003 skal úthluta 2000 lestum af
óslægðum botnfiski í þorskígildum
reiknað til stuðnings sjávarbyggð-
um sem lent hafa í vanda vegna
samdráttar í sjávarútvegi". Ekki
hefur öllum byggðakvóta verið ráð-
stafað á Húnaflóa, Norðausturlandi
og Miðausturlandi, eða alls 356
tonnum.
Mikla athygli hefur vakið að fyr-
irtækið Árni og Sverrir ehf. fær
þann kvóta sem til Siglufjarðar
kemur, 24 tonn. Eigendur eru
Sverrir Sveinsson, rafveitustjóri á
Siglufirði og fyrrum varaþingmað-
ur Framsóknarflokksins, og sonur
hans Ámi, sem er starfsmaður Haf-
rannsóknastofnunar sem stýrimað-
ur á hafrannsóknarskipinu Árna
Friðrikssyni. Úthlutunin vekur
mikla furðu á Siglufirði, og jafnvel
reiði hjá þeim sem enga úthlutun fá
en hafa atvinnu af sjósókn allan
ársins hring. Árni Sverrisson var
spurður um ástæðu þess að þeir
feðgar fengu úthlutunina.
„Þetta kom okkur á óvart en það er
staðreynd að margir umsækjenda eru
búnir að leigja frá sér kvóta og hafa
því ekki lagt upp afla á Siglufirði í
samræmi við kvótaeign. Líklega er út-
hlutunin í samræmi við kerfið. Við
munum landa aflanum hjá saltfisk-
verkuninni Guðrúnu Mariu á Siglu-
firði. Við keyptum fyrir tveimur
árum 6 tonna bát og erum því byrj-
endur í útgerð en keyptum einnig
þriggja tonna kvóta. Upphaflega átti
þetta að vera skemmtibátur sem gerði
okkur fært að fiska i soðið, en þetta
reyndist of dýrt gaman. En það hefur
ekki verið hægt að kaupa kvóta, nema
kaupa báta með og fara þar með út í
brask. Við leigðum nokkur tonn á bát-
inn til að drýgja tonnin sem við keypt-
um. Leiguverð er 110 krónur á kg, en
við gátum fengið 120 krónur fyrir kg
hjá fiskverkendum á Siglufirði. Við
borguðum 600 krónur fyrir varanleg-
an kvóta á sínum tíma en verðið er
komið upp í 700 krónur í dag, fáist
hann,“ segir Árni Sverrisson.
Stærsta einstaka úthlutun er til
Sandgerðisbæjar, 100 tonn og sama út-
hlutun til hreppsnefndar Hríseyjar-
hrepps f.h. fjögurra útgerða. Sú út-
hlutun ætti að duga landvinnslunni í
Hrísey allt árið um kring. Til Vest-
mannaeyja falla 41 tonn til Godthaab í
Nöf, Hlíðardals og Aðgerðarþjónust-
unnar Kútmagakots í samstarfi við
Sæhamar vegna ms. Gjafars VE. -GG
Aldrei fleiri kvedjjir ^
kveðjulestur í ríflega tólf stundir.
Vilja vín í verslanir
Um helmingur fólks 20 til 67 ára vill
að léttvin og bjór verði selt í matvöru-
verslunum. Andvíg eru 37,6%. Þetta
kemur fram í könnun sem var gerð fyr-
ir fyrir SVÞ, sem segir þetta vitna um
frjálsræði í viðhorfum til áfengissölu.
Allir á Netinu
Um 98% íslenskra fyrirtækja nota
tölvur við starfsemi sina og 92% fyrir-
tækja eru með tengingu við Netið.
Heimasíða hefur verið sett upp hjá
64% íslenskra fyrirtækja og mörg
önnur hafa áætlanir um að koma
slíkri upp.
Veðurstofustjóri:
Rauð jól fátíð
Magnús Jónsson veðurstofustjóri
segir það mjög fátítt að rauð jól séu
um allt landið, en að jafnaði séu
rauð jól á höfuðborgarsvæðinu ann-
að hvert ár. í það stefnir að desem-
bermánuður verði sá hlýjasti síðan
mælingar hófust, eða í liðlega 100
ár, og ekkert í „kortunum" sem
bendi til kólandi veðurs á næstu
dögum. Á Vestfjörðum gæti snúist
til norðvestanáttar og hitastigs nið-
ur undir frostmark sem gæti þýtt
einhvern éljagang, varla snjókomu.
„Það er ekki einu sinni mikiil
snjór í fjöllum en oftast er það
þannig að einhver hluti landsins er
hvítur, þá helst Vestfirðir eða Norð-
urland. Þess eru dæmi að það hafi
kyngt niður snjó í logndrífu á að-
fangadag, en varla nú,“ segir veður-
stofustjóri. -GG
DV-MYND SIG. JOKULL
Fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut, á móts viö Garöhelma í Reykjavík
Harður árekstur varö um sexleytiö í gærkvöld. Bílstjóri og farþegi eins bílsins voru fluttir á sjúkrahús en meiösl þeirra
voru aö sögn lögreglu talin minni háttar. Þá var barnshafandi kona flutt á kvennadeild Landspítalans.
Líkur taldar á sameiningu SÍF og SH:
Ekkert vit í öðru
en að sameinast
- segir Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður SH
Góðar líkur eru nú taldar á sam-
einingu SÍF og Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna eftir að stjómir
Ameriskur hvíldarstóll
Ótrúlega þœgilegurl
Róbert
Guöfinnsson.
fyrirtækjanna til-
kynntu á fóstudag
að ákveðið hefði
verið að hefja við-
ræður um sam-
einingu. Ástæðu
þess er m.a. að
finna í rekstrar-
umhverfi fyrir-
tækjanna, en
verslunarkeðjur
sem eru við-
skiptavinir beggja sölusamtakanna
sjá mötuneytum fyrir fiski og þau
hafa verið að stækka og vilja einnig
fá vöruna á hagstæðara verði. Þau
viija fá tryggingu fyrir því að varan
sé ávallt til hjá framleiðendum og
söluaðilum. Sameinað fyrirtæki SÍF
og SH hefur meira bolmagn til þess
að uppfylla þessar kröfur.
Einnig skapar sameining mögu-
leika á aukinni hagræðingu, lækkun
kostnaðar og þannig að auka rekstr-
arhagnað. Með stækkun aukast
einnig möguleikar á hagstæðara
lánsfé og þannig má lækka fjár-
magnskostnað.
Hvor tveggja sölusamtökin hafa
undanfarin ár verið að auka umsvifin
með því að kaupa upp erlenda keppi-
nauta, s.s. í Frakklandi, Spáni og
Kanada.
Friðrik Páls-
son, stjómarfor-
maður SÍF, segir
stöðuna vera ná-
kvæmlega þá að
þau óformlegu
samtöl sem hafa
átt sér stað upp á
_________ síðkastið hafi leitt
Friörik ti] Þess að formleg
Pálsson. ákvörðun hafi
verið tekin að
hefja viðræður um sameiningu.
Næstu skrefin séu að ákveða aöferða-
fræðina og tímarammann, en Friðrik
telur það liggja Jjóst fyrir áður en
árið er á enda.
Róbert Guðfmnsson, stjómarfor-
maður SH, sagöi á aðalfundi SH sL
vor að hann teldi að hagnaður af
sameiningu fyrirækjanna gæti
numið um 500 milljónum króna eft-
ir skatta. „Þetta hefur lengi verið
mitt áhugamál, enda hef ég séð
hvernig mál eru að þróast víða um
heim. Það er ekkert vit í öðru,“ seg-
ir Róbert Guðfinnsson.
Um er að ræða tvö stærstu
fyrirtæki landsins. Velta SÍF var
60,8 milljarðar króna á síðasta ári
og velta SH 55,4 milljarðar króna.
Næst kemur Baugur með 42
milljarða króna veltu. -GG
Europris:
Jólatré á
1000 krónur
Jólatrén í Europris kostuðu 1000
krónur um helgina. Matthías Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
Europris, sagði í samtali við DV í
gærkvöld að um 2000 tré hefðu selst.
Hann sagði trén verða áfram á 1000
krónur en opið er til 11 í kvöld og til
14 á morgun, aðfangadag. „Þessu
framtaki hefur verið mjög vel tekið
og salan góð eftir því,“ sagði Matth-
ias Sigurðsson. -ss
Tveir harðir árekstrar
Tveir harðir árekstrar urðu um á
Akureyri um níuleytið í gærkvöld.
Annar áreksturinn varð á hring-
torgi við Hlíðarbraut og Borgar-
braut þegar tveir fólksbilar skullu
saman. Engin slys urðu á fólki en
bílarnir skemmdust mikið þó svo
hægt var að keyra þá i burtu. Þá
skullu tveir bilar saman á gatna-
mótum Strandgötu og Glerárgötu.
Engin meiðsl urðu á fólki.
í þriðja sæti
ísland er í 3. sæti OECD-rikja hvað
varðar útgjöld til rannsókna og þró-
unar. Svíþjóð og Finnland eru í efstu
sætunum. I fréttabréfi Rannís kemur
fram að útgjöld til rannsókna og þró-
unar voru í fyrra 3,01% af vergri
landsframleiðslu.
Endar með yfirtöku
Verðbréfamiðlar-
ar í Lundúnum fylgj-
ast vel með fjárfest-
ingum Baugs á
breska markaðnum.
Þetta gera þeir af því
að nánast öll fyrir-
tæki sem íslending-
amir fjárfesta í end-
uðu með yfirtökutilraunum. Mbl.is
hefúr þetta eftir The Guardian.
Styrkja Reykjadal
I stað þess að senda viðskiptavin-
um jólakort færði íslandsbanki á dög-
unum Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra styrk vegna starfsemi Reykja-
dals, en þar er boðið upp á dvöl fyrir
fótluð böm og unglinga i sumarbúða-
starfi.
Vilja trúverðugleika
Reiknað er með að rekstur mála-
flokka Húsavíkurbæjar á næsta ári
verði 98% af tekjum. Fulltrúar minni-
hluta bókuðu á síöasta fundi að þetta
samþykktu þeir ekki og vilja að fjár-
hagsáætlun næstu ára verði trúverðug.
íbúum í Árborg fjölgar
íbúum í Árborg hefur fjölgað um
983 á síðustu tíu árum, eða um 19%.
Þá hefur Sunnlendingum á sama
tímabili, það er frá árinu 1992, fjölgað
um 802 eða um 3,9%. Fjölgun íbúa Ár-
borgar er því 181 umfram fjölgun á
öllu Suðurlandi. Þetta kemur fram í
nýjum mannfjöldatölum Hagstofu Is-
lands sem birtar voru fyrir helgina.
Sunnlendingar voru 21.473 fyrsta des-
ember. -sbs/NH/ss