Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
Fréttir
T>V
Þungaskattur í olíuverð verður seint að veruleika:
Mikið hagkvæmnismál
þvælist í kerfinu í sjö ár
- ekkert frumvarp í augsýn á yfirstandandi þingi
Ekkert lát virðist ætla að verða á
margra ára vandræðamáli varðandi
þungaskatt sem staðið hefur til að
fella inn í olíuverð. Þrátt fyrir enda-
lausa útreikninga sem sýna þjóðhags-
lega hagkvæmni slíkra aðgerða hefur
málið þvælst í kerfinu í sjö ár. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra lagði fram
frumvarp ríkisstjómarinnar um olíu-
gjald og kilómetragjald þriðjudaginn
30. apríl. Það náði ekki fram að ganga
og dagaði uppi þegar þingi var slitið.
Samkvæmt upplýsingum frá fjármála-
ráðuneytinu í gær eru nú engar áætl-
anir um að leggja frumvarpið fram að
nýju á yfirstandandi þingi.
95% vilja taka upp olíugjald
í nýrri könnun Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, FÍB, kemur fram að
95% þeirra sem tóku þátt í könnun-
inni vilja að núverandi þungaskatts-
kerfl verði afnumið og tekið upp olíu-
gjald i staðinn. Það er í raun sama fyr-
irkomulag og viðhaft er á notkunar-
sköttum af bensínknúnum bifreiðum.
Aðeins 4,4% vildu óbreytt kerfl og
5,1% hafði ekki skoðun á málinu.
I frumvarpi fjármálaráðherra frá í
vor var gert er ráð fyrir að olíugjald
yrði 36,50 á hvern lítra og komi það í
stað núverandi innheimtukerfis
þungaskatts. Samkvæmt frumvarpinu
átti að lita olíu til gjaldfrírra nota og
kílómetragjald greitt af bifreiðum og
tengivögnum sem eru að heildar-
þyngd 10 tonn eða meira.
Mál sem búið er að velkjast í kerf-
inu i áraraðir. Það lá á borði fjármála-
ráðherra á síðastliðnum vetri en
nefnd skilaði af sér skýrslu um það í
fyrrahaust. Nú eru liðin sjö ár síðan
lög um olíugjald á dísilolíu voru lögð
fyrir Alþingi og samþykkt. Það var
árið 1995 en gildistöku þeirra var
frestað i tvígang, eða þangað til þau
voru felld úr gildi árið 1998. Var ýmsu
borið við, svo sem að nauðsynleg litun
á olíu til að aðgreina olíu á bíla frá
skipaolíu væri of dýr. Sérfræðingur
sem fenginn var til landsins afsannaði
Olíugjald í stað þungaskatts
4,4%
5,1%
I Nel □ Hlutlaus
Könnun FÍB
Könnun FIB frá því á þriöjudag,
17. desember.
þessa fullyrðingu sem rakin var til ol-
íufélaganna. Máíið var síðan sett í
nefnd sem skilaði loks áliti með til-
lögu að reglugerð á síðasta ári.
í frumvarpi ríkisstjómarinnar er
gert ráð fyrir að undanþegin gjald-
skyldu verði lituð olía til nota á skip
og báta, olía til húshitunar, olía til
nota í iðnaði og á vinnuvélar, olía til
nota á dráttarvélar í landbúnaði, olía
til raforkuframleiðslu og olía á öku-
tæki sem ætluð eru til sérstakra nota
samkvæmt nánari skilgreiningu.
Óheimilt átti að vera samkvæmt
frumvarpinu að nota litaða olíu á al-
menn skráningarskyld ökutæki. Að-
eins þeim sem leyfi hafa fengið til
þess frá ríkisskattstjóra átti að vera
heimilt að bæta litar- og/eða merki-
efnum í gas- og dísilolíu samkvæmt
frumvarpinu.
Gert er ráð fýrir að tekjur til vega-
gerðar lækkuðu með tilkomu þessara
breytinga um 300 til 400 milljónir
króna á ári. Var því lagt til að því
verði mætt með hækkun á sérstöku
vörugjaldi af bensíni sem er eyrna-
merktur tekjustofn til þessa mála-
flokks. Á móti þeirri hækkun komi
hins vegar samsvarandi lækkun á al-
menna bensíngjaldinu sem nú rennur
beint í ríkissjóð.
-HKr.
Sigurjón í borg
englanna
„Það hefúr verið mikið lagt undir
við gerð þessara þátta og það hefur
raunar verið vel þess virði. Svo merka
og stóra hluti hefur Siguijón verið að
gera,“ segir Jón Ársæll Þórðarson sjón-
varpsmaður í samtali við DV. Kl. 20 á
jóladagskvöld er á dagskrá Stöðvar 2
þátturinn Sjálfstætt fólk þar sem Sigur-
jón Sighvatsson er heimsóttur, meðal
annars til Los Angeles. Vestra er fýlgst
með Siguijóni í leik og starfi - og koma
þar við sögu stórleikarar, töframenn og
kvennaflagarar. Fylgst er með Sigur-
jóni í tveimur þáttum, en hinn síðari
verður sunnudagskvöld milli jóla og
nýárs. Jón Ársæll og Steingrímur Þórð-
arson kvikmyndatökumaður hafa lengi
unnið að þessari þáttagerð. -sbs
Kuvnuerskt
c/tj i'iÁtís.rNt
Hvað á að gefa í jólagjöf?
Gefum betri heilsu því nudd gerir fólk
hraustara og veitir betri líðan.
Þess vegna býður Kínverska nuddstofan
í Hamraborg, falleg gjafakort fyrir jólin.
Það er tilvalið að gefa vinum og
ættingjum sínum betri líðan í jólagjöf.
Sanngjamt verð og vönduð þjónusta
fyrsta flokks fagmanna.
Slökunarnudd, sjúkranudd,
nálarstungur, andlitsbað og aðstoð f
átaksverkefnum.
Kínverskt nudd eða nálarstungur gagnast
vel við höfuðverk eða
svefnleysi, kvillum innvortis eða verkjum
í öxlum, mjóhrygg, baki, hálsi,
olnbogum, hnjám eða annars staðar.
Sérstök meðferð fyrir þá sem sem vilja
hætta að reykja, draga úr áfengisdrykkju,
grennast eða taka á sérstökum
verkefnum varðandi lffsstfl og heilsu.
K'Cnwei-.slers v'iwdcJstcifivii'i
Hamrpborg 20a, sími 564-6969
Spyrillinn og sjálfstæöur Islendingur
Jón Ársæll Þórðarson og Sigurjón Sighvatsson saman á gangi á stöndinni í Santa Barbara viö Kyrrahafið en þessi
staður er skammt frá heimili Sigurjóns.
Kraftur í jólaverslun
- verslunarfólk segir söluna hafa farið fyrr af stað
Verslunarfólk á Laugaveg-
inum, Kringlunni og í
Smáralindinni eru sammála
um að sala hafi farið fyrr af
stað fyrir þessi jól en í fyrra.
Æsa Bjarnadóttir, vaktstjóri
í Eymundsson, Austurstræti,
segir að mesta aukningin sé í
verslunarmiðstöðvunum en
að Laugavegurinn vinni
alltaf á fjóra síðustu daga
fyrir jól en þá fer fólk meira
i miðbæinn. „Þorláksmessa
er stærsti söludagurinn enda
koma allir í bæinn þann
dag,“ segir Æsa. Þá segir
Æsa að aukin sala frá því í
Urvalið mikiö
Verslunareigendur segja fólk meira spá í gæði en oft
áöur. Dagurinn í dag er samt mesti söludagurinn.
fyrra geti stafað af því að fleiri jóla-
bækur séu nú í ár en í fyrra og að
metsölubókum hafi fjölgað.
Ingvaldur Einarsson, sölustjóri
BT, segir einnig að sala hafi farið
fyrr af stað í ár en i fyrra. „Það hef-
ur verið mikill kraftur í sölunni og
er söluaukningin u.þ.b. 15%,“ segir
Ingvaldur. Þá segir Ingvaldur að
nóvember, sem oftast er frekar dauf-
ur, hafl verið mjög góður. BT
er alls með sex búðir og seg-
ir Ingvaldur að BT, Skeif-
unni, gangi best. „Þó ganga
búðimar í Smáralindinni og
í Kringlunni einnig mjög
vel,“ segir Ingvaldur.
Verslunareigendur í mið-
bænum, Smáralindinni og í
Kringlunni segja almennt að
sala hafi aukist og breyst í
gegnum tíðina og fólk sé far-
ið að hugsa meira um gæði
varanna en áður. Þá fmna
þeir meira fyrir því að fólk
vilji frekar kaupa föt sem
ekki eru fjöldaframleidd og
geti það verið ástæða fyrir því að
sala hafi aukist hjá smærri verslun-
um enda hafi verðmunur fjölda-
framleidds fatnaðar og annars
fatnaðar minnkað verulega. -ss
Jóhann og Helgi bestir
Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafs-
son urðu efstir og jafnir á Jólaskák-
móti Búnaðarbankans sem haldið
var á taugardag í aðalútibúi bank-
ans, Austurstræti 5. Jóhann og
Helgi hlutu 10 vinninga í 13 skák-
um. Þriðji varö Hannes Hlífar Stef-
ánsson með 9,5 vinninga. Alls tóku
14 skákmenn þátt og þar af 8 stór-
meistarar. Á myndinni sjást þeir
Margeir Pétursson og Friðrik Ólafs-
son tefia.
Keyrði á
hús og bíl
- drukkinn og dópaður
Aðfaranótt laugardags barst lög-
reglunni á ísafirði tilkynning um að
bifreið hefði verið ekið á hús við
Fjarðarstræti í bænum. Lögreglan
og sjúkralið fóru strax á vettvang og
komu að fólksbifreið sem hafði ver-
ið ekið á steinhús. ökumaður fólks-
bifreiðarinnar var einn í bílnum og
var talsvert ölvaður sem og dópaður
en í bifreiðinni fannst áhald til
neyslu kannabisefna. Maðurinn var
með nokkra áverka í andliti og gert
var að sárum hans á sjúkrahúsinu á
ísafirði. Við rannsókn málsins kom
í ljós að hann hafði, skömmu áður
en bifreiðin hafnaði á húsinu um-
rædda, ekið utan í bifreið sem stóð
mannlaus á bifreiðastæði við sömu
götu.
Bifreið mannsins er talin ónýt og
nokkurt tjón er á húsinu. Bifreiðin
mannlausa, sem varð á vegi öku-
mannsins, er óökufær eftir árekstur-
inn. Maðurinn var i haldi lögreglunn-
ar þangað til í gærkvöld er honum var
sleppt enda málið talið upplýst. -ss
Kjaradómur:
Ráðherra-
laun hækka
um 7%
Kjaradómur úrskurðaði nýlega
hverjar launhækkanir kjörinna
fulltrúa þjóðarinnar, þ.e. alþingis-
manna, ráðherra og forseta ís-
lands, skyldu vera. Kjaradómi ber
að taka mið af almennri þróun á
vinnumarkaði. Um áramótin
hækka laun á almennum vinnu-
markaði og laim opinberra starfs-
manna almennt um liðlega 3%.
Laun munu hækka um 7% frá
síðustu ákvörðun Kjaradóms en
laun forséta íslands um 3% og
verða 1.460.156 krónur á mánuði.
Laun forsætisráðherra verða
729.938 krónur, annarra ráðherra
663.694 krónur, forseta Hæstarétt-
ar 528.705 krónur en annarra
hæstaréttardómara 480.584 krón-
ur, Ríkissaksóknari fær 480.584
krónur, ríkissáttasemjari 459.586
krónur og ríkisendurskoðandi
sömu upphæð. Laun biskups ís-
lands verða 464.105 krónur, dóm-
stjóri Héraðsdóms Reykjavíkur
fær 440.713 krónur en aðrir dóm-
stjórar 398.341 krónu. Héraðsdóm-
arar fá 384.342 krónur, umboðs-
maður barna 382.468 krónur og
þingfararkaup alþingismanna
verður 368.719 krónur. -GG
Heitasta búðin íbænum !
100% mesta vöruúrval á ferm, alltfrá
magadansbúningum til éktapelsa.
Magadansbún i ngar.
Fjöldi jólatilboða
ígangi.
Otrúlegt
úrval gjafavöru.
Sigurstjarnan
í bláu húsi við Fákafen, sími 588 4545.
Opið um hdgar og öll kvöld dl jóla.
Lögregla fann hass
amfetamín og kókaín
Lögreglan á Akureyri réðst inn í
íbúð þar í bæ aðfaranótt laugardags
og lagði hald á um 20 grömm af am-
fetamíni, um flmm grömm af kóka-
íni og hassi. Sex manns voru hand-
teknir og gistu fangageymslum lög-
reglunnar um nóttina og var síð-
ustu fóngunum hleypt út um átta-
leytið á laugardagskvöld. Fólkið
sem var handtekið var á aldrinum
20 til 30 ára og segir lögreglan að eit-
urlyfjaneysla ungmenna á Akureyri
hafi aukist á síðustu árum. Ekki
fékkst uppgefið hvemig lögreglan
fékk upplýsingar um að eiturlyf
væru í ibúðinni. -ss