Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 14
14 Útlönd MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 írakar svara ásökunum Bandaríkjamanna um lélega skýrslu: Reiðubúnir að svara öllum spurningum Norður-Kórea fjarlægir eftirlits- myndavélar Norður-Kórea sagðist í gær vera byrjuð að fjarlægja eftirlitsmynda- vélar og annan slíkan búnað frá Sameinuðu þjóðunum sem eiga að hafa eftirlit með kjarnorkustarfs- semi landsins Alþjóða kjarnorkustofnunin sagði áð búnaður hefði verið tekinn úr sambandi í kjarnorkuverinu í Yong- byon en SÞ halda því fram að þar hafi verið búið til plútóníum sem hægt sé að nota í sprengjuodda. Bandarikin, Japan og Suður-Kórea sögðust harma þetta ástand mjög. Amir al-Saadi, forsetaráðgjafi í írak, sagði á blaðamannafundi í gær að írakar væru reiðubúnir að svara öllum þeim spurningum sem Banda- ríkjamenn og Bretar kynnu að hafa en þeir hafa gagnrýnt undanfarna daga skýrslu íraka um vopnaeign þeirra. „Við myndum jafnvel bjóða fulltrúa CLA, bandarísku leyniþjón- ustunnar, velkominn til að benda vopnaeftirlitsmönnum á þá staði sem þeir telja grunsamlega," sagði al-Saadi. Bandaríkjamenn höfðu lýst skýrslunni sem skýru broti á álykt- un Öryggisráðs SÞ og samkvæmt því höfðu þeir heimild til að ráðast inn í landið með hervaldi. Tugir vopnaeftirlitsmanna kemba nú land- ið í leit að kjamorku-, efna- eða sýklavopnum en stjómvöld í Banda- ríkjunum hafa gert deginum ljósari þá skoðun sína að þau hafl aflað nægra sönnunargagna sjálf til að réttlæta hemaðarlegar aðgerðir. Hans Blix, formaður vopnaeftir- litsnefndar SÞ, hefur gagnrýnt Bandaríkin fyrir að láta þeim ekki í té allar þær upplýsingar sem þau búa yfir en talið er að þau muni þó gefa upp allt að 5 staði sem teljast grunsamlegir. Jafnframt telja menn að Bandaríkjamenn muni ekki á næstunni láta allra viðkvæmustu upplýsingamar af hendi. Al-Saadi bætti því við að írakar mundu halda áfram að vinna með vopnaeftirlitsmönnum og að listi yf- ir iraska vísindamenn yrði afhentur áður en árið er úti. En hvort íraska ríkisstjómin myndi leyfa vísinda- mönnunum og fjölskyldum þeirra að yfirgefa landið til að svara spurn- ingum vopnaeftirlitsmanna er ann- að mál og sagði hann að leysa þyrfti ýmis mál til að það yrði að veru- leika. ísraelar hafa að undanfomu und- irbúið sig fyrir árás Bandaríkja- manna og Breta á íraka. Heræfmgar hafa verið skipulagðar með banda- rískum herdeildum og börnum kennt að nota gasgrímur. Sífellt fleiri bandarískir hermenn koma til Persaflóa og er undirbún- ingur fyrir stríðsrekstur þar mikill. GLANSANDI BÍLL GLANS TJ ÞVOTTASTÖÐ DALVEGI 22 S. 515 2722 OPIÐ MÁN.-FÖS. 8.00-22.00 ÞORLAKSMESSA. 8.00-23.00 AÐFANGADAGUR 8.00-15.00 JOLADAGUR LOKAÐ ANNARí JOLUM LOKAÐ GAMLÁRSDAGUR 8.00-15.00 NYARSDAGUR LOKAÐ Gleðiieg jól og farsælt nýtt ár REUTERS Buslaö í ísköldu vatnl Maöur baöar fjögurra ménaöa gamlan son sinn í ísköldu árvatninu nálægt Almaty í Kasakstan. Margir trúa því aö meö því aö baöa sig í köldu vatni veröi maöur heilbrigður og ónæmur fyrir kulda. Islensku spadómsspilin Spámaður.is Menn ársins hjá Time Magazine: Uppljóstrarar fá uppreisn æru Dekkjaviðgerðarsett kr. 5.990 Vagnhöfða 23 • Sími 590 2000 • www.benni.is Þrjár konur hafa verið valdar menn ársins hjá hinu virta timariti, Time, sem hefur tilnefnt mann árs- ins undanfarin 75 ár. í ár voru það uppljóstrarar innan þriggja fyrir- tækja og stofnana sem urðu fyrir valinu. Tvær þeirra, Sherron Watkins og Cynthia Cooper, komu upp um risa- bókhaldssvik í þeim fyrirtækjum sem þær unnu hjá, Enron og WorldCom, sem bæði urðu gjald- þrota í kjölfarið. Sú þriðja, Coleen Rowley, er starfsmaður FBI, banda- rísku alríkislögreglunnar, sem skrifaði 13 blaðsíðna bréf til Roberts Muller, forstjóra FBI, þar sem hún útskýrði hvemig yfirmenn hennar í Minneapolis í Minnesota, hunsuðu athugasemdir hennar og beiðni um að rannsaka Zacarias Moussaoui, einn hryðjuverkamannanna sem lét Menn ársins. til skarar skriða 11. september 2001, nokkrum vikum fyrr. Tðnne fannst látinn HTore Tonne, fyrr- verandi heilbrigðis- ráðherra Noregs, fannst í gær látinn en hans hafði verið saknað i nokkra daga. Er jafnvel talið að hann hafi framið sjálfsmorð en hann hafði verið gagnrýndur mikið fyrir að vera á biðlaunum ráðherra á sama tíma og hann gegndi ráðgjafarstörfum fyrir Kjell Rokke, norskan viðskiptafrömuð. Margir ekki í al-Qaeda Tugir fanga eru enn í fangabúð- um Bandaríkjanna í Guantanamo- flóa í Kúbu sem hafa engin tengsl við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda, segir í frétt LA Times í gær. Kosið í Litháen Valdas Adamkus fær yfirburða- fylgi í forsetakosningum landsins sem fram fóru um helgina, 40,7 pró- sent, samkvæmt útgönguspám. Hann mun því að öllum líkindum gegna starfl forseta áfram. 141 milljarður í lottói Hið árlega jólalottó Spánar fór fram í gær og fögnuðu margir þegar rúmum 141 milljarði króna var út- deilt í 19 þúsund misstórum vinn- ingum. 9 farast í Brasilíu 9 manns létust í aurskriðum I fjallabæ nærri Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Óttast er að enn fleiri hafi grafist undir aurnum. Chavez er bjartsýnn Forseti Venesú- ela, Hugo Chavez, sagðist í gær vera bjartsýnn á að rík- isstjórn hans tækist fljótt að binda enda á þriggja vikna verkfall olíuiðnað- arins í landinu sem hefur haft mikil áhrif á almenna starfsemi í landinu. Þrjú börn drepin í Kasmír Múslímskir uppreisnarmenn eru grunaðir um að hafa drepið þrjú börn í indverska hluta Kasmírhér- aðsins í gær. Sigur forsetaflokksins Flokkur Marcs Ravalomanana, sem settist í forseta- stól í Madagaskar í júli í ár eftir átök við þáverandi for- seta, vann yfir- burðasigur í þing- kosningum lands- ins sem haldnar voru fyrr í mánuð- inum. TIM-flokkurinn vann 95 af 160 þingsætum. Ábending rannsökuð Þýsk yfirvöld rannsaka nú ábend- ingu sem þeim barst þess efnis að öflug 50 manna deild al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna væri að undirbúa hryðjuverkaárásir á sendiráð, banka og alþjóðleg fyrir- tæki víðs vegar um Evrópu. Páfi talar gegn efnishyggju Jóhannes Páll páfi annar talaði gegn efnishyggju í gær, þremur dög- um fyrir jól, og minnti fólk á raun- verulega þýðingu jólanna og trúar- legt gildi þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.