Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Qupperneq 21
20 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 Utgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvsmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson AðstoAarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, simi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. llátíð mannúðar Jólahátíðin gengur í garð á morgun með þeim fagra og einlæga boðskap sem henni fylgir. Hátíðin minnir fólk á gildi sem lifa tíma og menn, gildi sem mörg hver virðast á nokkru undan- haldi í hraða og ati samtím- ans, gildi sem sum hver hafa gleymst í sókndirfsku manna eftir lífsins gæðum og prjáli. Efnisheimurinn freistar hvar sem farið er og orð dagsins eru miklu fremur „tilboð“ og „verðfall“ fremur en ihygli og beiðsla um samhygð og frið. Strikamerkin óma um heimsins ból. íslendingar eiga auðvelt með að týna sér í vöruúrvali og verslanamiðstöðvum. Á örfáum áratugum hefur þjóðin horfið úr illa byggðum hreysum i vönduðustu híbýli jarð- arinnar og kynnst því besta og mesta sem í boði er af þæg- indum nútímans. Þessar öfgar hafa ef til vill sett svip á þjóðina sem oft á tíðum sést ekki fyrir i ákafri og æsilegri einstaklingshyggju. Þjóðin er nokkuð upptekin af eigin skinni og er gjarnt að meta orðspor fólks eftir eignum, umsvifum og glæsileika. Á þessu harðaspani hefur íslenska þjóðin tileinkað sér marga af verstu löstum milljónaþjóðanna þar sem fátækt og örbirgð liggja inni í fúlum sundum firringarinnar. Nægir þar að nefna fíkniefnaneysluna sem vaxið hefur óskaplega á allra síðustu árum, ekki síst meðal ungmenna sem mörg hver alast upp í vimu innbrota og óeðlis og eiga vart annan bakgrunn þegar þau eru komin á fullorðinsár en tapaða og tætta æsku. Þessi hópur fólks fer stækkandi með hverju árinu sem líður. Almennt virðist harkan vera að aukast til muna i ís- lensku samfélagi og þar á meðal virðingarleysi fyrir eign- um og friðhelgi alls almennings. í leiðurum DV á þessu ári sem senn er á enda hefur oftlega mátt lesa um þessa þjóðfélagsþróun sem illu heilli er að verða æ sýnilegri á meðal fólks á hvaða tíma sólarhrings sem er. Þjófar spyrja ekki lengur að stundu og stað. Gripdeildir eru stundaðar fyrir opnum tjöldum. Síbrotamennirnir yppta öxlum og sanka að sér brotum í kippum. Fimm manns hefur verið banað á íslandi það sem af er ári. í eitt skiptið var fórnarlambið barn. Aðeins einu sinni fyrr hafa jafn margir íslendingar verið myrtir, en það var fyrir tveimur árum. Lögregla, læknar, blaðamenn og aðr- ir sem gerst þekkja til þess ofbeldis sem ríður húsum hér á landi eru sammála um að ástæða þessarar fjölgunar á manndrápum sé fyrst og fremst fíkniefnaharka; þessa skuggalegu harmleiki megi rekja til vitfirrtrar neyslu og æðisgenginnar keppni um næsta skammt. Það er undarlegt að vel innan við þrjú hundruð þúsund íbúar þessarar eyju við ysta haf geti ekki lengur verið ör- uggir um sig á gangi eftir götum borgar og bæja. Æðið sem virðist renna á marga landsmenn í drykkju og eitur- brasi siðkvöldanna er meira en svo að þvi verði jafnað við andrúmsloftið á torgum og stéttum stærstu borga heims. Reykjavík er að verða heimsfræg fyrir drykkjuskap og það ölæði sem gripur borgarbúa á sjö daga fresti allt árið um kring. Sér er nú hver landkynningin! Það er mikilvægt að gleyma sér ekki í amstri daganna. Og enn mikilvægara er að tapa ekki áttum. Það er rétt að minna á orð herra Karls Sigurbjörnssonar, biskups ís- lands, sem sagði í DV i siðustu viku að kærleikurinn væri dýrmætastur alls. „Boðskapur jólanna er alveg óháður umbúðunum,“ segir biskup og minnir á að grundvallar- þættir í perónu mannsins séu ástin, trúin og siðgæðið. Hér verður tekið undir þessi orð um leið og landsmönn- um er óskað gleðilegra jóla. Sigmundur Ernir 37 DV Skoðun Arfurinn Jólahald; svör og andsvör Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur Þegar jólahátíðin gengur í garð hverfur hugurinn ósjálfrátt til liðinna daga, einkum bernskudaganna. Það er af því að jólin eru sérstök hátíð barnanna og við lifum þau jafnan í gegnum þær minningar sem við eigum um bernskujól okkar. Við endurlifum eigin eftirvænt- ingu í gegnum tilhlökkun bamanna 1 kringum okkur og miðum ailt að því að gera þeim gleðileg jól. Jólin eru hátið bamsins, bamsins í okkur og barnanna okkar. Það undirstrika þemu hátiðarinnar um gleði, friö- semd og gjafmiidi. Við horfum á það góða í lífrnu og jákvæða og hömpum því, verðum meyr og sæt. Þakklætið breiðir sig um brjóstið og vekur notaleik. Við þökkum lifið, þökkum ástvinina og allt gott sem okkur hef- ur fallið i skaut. Þegar við settum saman bú og héld- um okkar fyrstu jól var þörf á samn- ingaviðræðum í einhverri mynd. Hvað áttum við að taka úr arfi hvors um sig? Með tímanum urðu þannig til okkar jólasiöir mismunandi fastmót- aðir. Börnin okkar munu svo taka með sér í sitt bú einhverjar þessara hefða og skila þeim áfram. Hvers konar fólk erum við? En jólasiðirnir eru ekki eini arfur- inn sem við þiggjum frá foreldrum okkar og forfeðrum. Þeir eru kannski fyrst og fremst tákn og ferj- ur sem flytja hugsjónirnar og við- „Það að ala upp böm snýst því ekki síst um að ala upp sjálfan sig. Ungt fólk með böm þarf því að gefa því gaum og láta ekki skeika að sköpuðu um það verkefni. “ horfin milli kynslóða. Þegar skoðað er kemur í ljós hversu bundin við erum þeirri innrætingu sem við hlut- um þegar við vorum í foreldrahúsum og hjá ömmu og afa. Þessa vegna er hollt að hugsa og nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þvi sem við skil- um áfram til bama okkar og afkom- enda: Hvers konar fólk emm við? 1 samskiptunum við bömin dylj- um við ekkert. Allt kemst það upp með einhverjum hætti og einhvern tima hvers konar fólk við erum, og allt hefur það áhrif í samræmi við eðli sitt. Það að ala upp böm snýst því ekki síst um að ala upp sjálfan sig. Ungt fólk meö böm þarf því að gefa því gaum og láta ekki skeika að sköpuðu um það verkefni. Það þarf að skoða vandlega arfinn sem því var látinn eftir og taka afstöðu til þess hvað af því er rétt aö bera áfram til næstu kynslóðar. Svo erum við líka oft tvö um þetta og komum hvort úr sinni átt. Við höfum dýpt- ina í myndinni vegna mismunandi sjónarhoma. Hafin yfir hversdagsleikann Umræður okkar af þessu tilefni eru oftar en ekki frjóar og einkar ábatasamar. Helst er að þolinmæði skorti til þess að komast í gegnum þær svo verulegt gagn verði af. Líka brestur oft á einurðina að láta nauð- synlegar breytingar veröa, einkar- lega á eigin háttsemi. Það er nefni- lega jafnan erfiðast að takast á við sjálfan sig. Og hvað svo með trú- ararfinn? Þegar ég ræði við verðandi brúðhjón kemst ég jafnan að því að þau hafa talsvert hugsað um hann og að hann skiptir þau máli. Hann verð- ur hugstæðastur þegar hátíð er hald- in eða þegar við eram af einhverjum ástæðum hafin yfir hversdagleikann. Jólin snúast um vonina jafnt og liðna tíð, þau birta kærleikann og innihald þeirra grundvallast á trú okkar. Gefum gaum að þessu um komandi jól. Hver var hann þessi litli sveinn í jötunni? Frelsarinn - frá hverju? Drottinn - i hvaða skiln- ingi? Mætti hugsjón hans leiða okk- ur frá því sem bindur lágt og lyfta okkur til sigurs með honum. - Gleði- leg jól! Birgir Tjörvi Pétursson lögfræöingur Fyrir tæpum tveimur vik- um fylgdist ég með tvenns konar jólahaidi í Kaupmannahöfn. Það var söngur og Ijósadýrð í Tívolí, jólaglögg og epla- skífur um stræti og torg, hlaðborð veitingastaða svignuðu undan dönskum jólamat og nóg var um að vera á Strikinu. Dönsk jólastemning í sinni bestu mynd, eftir því sem ég kemst næst. Ég gat þvi miður ekki gefið mig mikið að þessu því ég fylgdist grannt með annars konar jólahaldi. í Bella Center var boðið upp á aðild- arsamninga við ESB og vinaleg bros vestur og austur í myndavélamar. Þetta var út af fyrir sig hin notaleg- asta sýning. Þrátt fyrir að margir hefðu óttast deilur á fundinum féll allt í ljúfa löð að lokum og leiðtog- amir gátu skálað með Margréti Þór- hildi fyrir háttatíma eins og vonir stóðu til. Eyrun í Brussel Á meðan leiðtogamir fóðmuðust og kysstust í kóngsins tók ég þátt í ráðstefnum og sat fundi um Evrópu- mál í borginni. Þar hitti ég meðal annarra nokkra þingmenn Evrópu- þingsins og gafst færi á að ræða við þá, auk fólks sem starfar að Evrópu- málum í Brassel. Samtöl mín við þetta fólk staðfestu rökstuddan grun minn um að ef ísland gengur í ESB er dregið úr möguleikum ís- lendinga til að taka þátt í að móta samfélagið sitt. Kannski finnst ein- hverjum erfitt að ná eyrum ís- ..... „í fyrirspumatíma í Stórþinginu norska sagði Bondevik enn fremur eftirfarandi: „Kjósendur geta ver- ið alveg vissir um að við stöndum við það sem við höf- um lofað í þeirri stefnu sem við nú fylgjum, þ.e.a.s. að við stöndum við EES-samninginn og segjum nei við ESB-aðild. Málið er ekkert flóknara. “ lenskra stjómvalda í dag. En viljiði prófa Brussel! Langt í lýðræðið Það verður orðið ansi langt að fara til að hafa áhrif á mótun samfélagsins ef ísland er aðili að ESB. Við getum ekki látið óánægju eða ánægju okkar í ljós gagnvart framkvæmdastjóm- inni í Brassel með sama hætti og gagnvart íslensku ríkisstjóminni. Framkvæmdastjóm ESB byggist ekki á lýðræðislegu umboði og þangað er auk þess langt að fara. Við getum ekki tekið þátt í kosningum í Þýskalandi og Frakklandi til að velja þá leiðtoga sem flestu ráða innan ráðherraráðs ESB. En við munum geta kosið 3 ís- lendinga á rúmlega 700 manna Evr- ópuþing (eftir stækkun). Gallinn er sá að Evrópuþingið er einmitt sú stofn- un sem ræður minnstu í ESB. Þegar ég spurði fólkið frá Brassel: Munum við hafa einhver áhrif? var bara hleg- ið að mér. Auðvitað ekki. Kannski á einhver smáatriði, einhvem tíma. En engar grundvallarákvarðanir munu lúta okkar vilja, nema fyrir tilviljun. Það er fullkomin tálsýn að halda öðra fram. Það er vissulega rétt að það er ekkert sérstakt fyrir okkur að vera í þeirri stöðu að hafa lítil áhrif á EES- gerðir. En að leysa það vandamál með því að ganga í ESB og framselja allt vald í hendur sambandsins er eins og að ætla að slökkva eld með olíu. Rök óskast Svanfríður Jónasdóttir alþingis- maður skrifaði grein í DV á dögunum þar sem hún gerði því einmitt skóna að við myndum hafa einhver áhrif innan ESB. Ég bara botna ekkert í því hvemig henni dettur það í hug. Áhrif okkar á mótun íslensks samfé- lags geta aldrei annað en minnkað við aðild að ESB. í grein sinni veltir Svanfríður því líka fyrir sér hvort við séum jafnvel efnislega meiri aðilar að ESB nú þegar en Bretar og Danir af því að þeir hafi svo margar undan- þágur! Ékki fæ ég meiri botn í þessi skrif Svanfríðar en hin fyrri. Ég verð að óska eftir því að hún rökstyðji þetta nánar. Norðmenn kjurir í grein sinni fjallaöi Svanfríður loks um að nú væri allt að gerast í Noregi í Evrópumálum. Að Bondevik, forsætisráðherra Noregs, væri tilbú- inn að endurskoða afstöðu sína til aö- ildar Noregs að ESB. Enn fremur að viðræður Norðmanna við ESB, sem hefjast í janúar og varða EES-samn- inginn og stækkun ESB, gætu þróast út í að verða aðildarviðræður Noregs að ESB. Þarna var ég alveg hættur að skilja í Svanfríði því Bondevik sagði að málið yrði kosningamál 2005 og að hugsanlega yrði þjóöaratkvæða greiðsla um aðild fyrir 2010 í Noregi. í fyrirspurnatíma á norska Stórþing- inu sagði Bondevik enn fremur eftir- farandi: „Kjósendur geta verið alveg vissir um að við stöndum við það sem við höfum lofað í þeirri stefnu sem við nú fylgjum, þ.e.a.s. að við stönd- um við EES-samninginn og segjum nei við ESB-aðild.“ Málið er ekkert flóknara. Svar viö svari Ég tel rétt í lok þessarar greinar að nota tækifærið og svara gagnrýni á gagnrýni. í grein í DV fyrir hálfum mánuði gagnrýndi ég Eirík Bergmann Einarsson stjórnmálafræðing fyrir það að gefa sig út fyrir að vera hlut- laus sérfræðingur í Evrópumálum. Ég gagnrýndi sömuleiðis fiölmiðla fyrir að gera því skóna að hann væri hlut- laus þegar viðtöl era tekin við hann um mál sem eru pólitískt umdeild og hann hefur ákveðna pólitíska afstöðu til. Ég gerði þetta „grímulaust", eins og Eiríkur orðaði það í svargrein sinni. Eiríkur tók þessu öllu mjög per- sónulega, gagnrýndi mig og reyndi að mála mig sem „ómálefnalegan". Ég taldi þetta vera mjög málefnalega gagnrýni af minni hálfu og tel enn því hún á við rök að styðjast. Ég tók dæmi máli mínu til stuðnings og vísa tO þeirra en greinina er að finna á vef Heimssýnar (www.heimssyn.is). Ég tel að Eiríkur Bergmann Einarsson sé eins mikill stuðningsmaður aðOdar og ég er andstæðingur, sem er gott og blessað. Við getum báðir lagt gott tO málanna, eins og ég sagði í greininni minni, en veit ekki hvort Eiríkur hirti um að lesa. Afstaða okkar á ekki að útOoka okkur frá því að taka þátt í umræðunni. En þegar við viðram skoðanir okkar eigum við ekki að vOla á okkur heúnOdir heldur tjá okk- ur grímulaust. Sandkom Davíð í Ármúlanum Flestum er eflaust í fersku minni hörð gagnrýni Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra á Kaupþing í tengslum við einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins. Hafa margir haft á tO- finningunni síðan að fyrirtækið væri ekki i sérstöku uppáhaldi hjá Davíð. Starfsmenn ráku því upp stór augu í siðustu viku þegar það spurðist að hann væri væntan- legur í heimsókn í höfuðstöðvarnar i Ármúla tO þess að lesa upp úr nýrri bók sinni, „Stolið frá höfundi stafrófs- ins“. Mun það hafa verið í boði fyrirtækisins. Davíð mætti á föstudaginn var og var gerður ágætur rómur að k sandkorn@dv.is heimsókn hans, þótt ekki muni hann hafa reytt af sér brandarana eins og stundum við slík tækifæri... Bœttur skaðinn Ummæli Þvert á móti! „Það er ekkert sem segir að framboð Ingibjargar tO þings muni leyða [sic] tO verri útkomu Framsóknar og Vinstri grænna. Jafnvel þvert á móti. Ef Ingibjörg kemur hreyfingu á kjósendur býður það upp á sóknarfæri fyrir afla - líka Framsókn og Vinstri græna." Gunnar Smári Egilsson í Fréttablaðinu á föstudag, sama dag og DV birti skoðanakönnun sem sýndi aö Ingibjörg Sólrún næði kjöri í Reykjavík en Halldór Ásgrímsson ekki. Smámenni og fífl „Þenn er vorkunn, smámennunum sem þessa dagana engjast yfir þeirri ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, að gefa kost á sér í fimmta sæti framboðslista Samfylkingarinnar í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Þeim er vorkunn af því að þeir finna svo tilfmnanlega fyrir vanmætti sínum gagnvart borgarstjóra að þeir skirrast ekki við að gera sjálfa sig að fifli ítrekað í því skyni að koma í veg fyrir að þessi frambærOegasti stjómmálamaður landsins sækist eftir meiri áhrifum en borgarstjórastóUmn i Reykjavík veitir." Magnús Árni Magnússon á Kreml.is. Á framabraut „Menn mega ekki gleyma því að það er hennar ákvörð- un sem setur málið í þennan farveg. Hún ákveður að Hagyrðinga skortir ekki yrkisefhi um þessar mundir. Jóhannes Sig- mundsson brást svona við fréttum af þingframboði borgarstjóra: Imba sagði: „Ei skal víkja. “ Er nú bœði að Ijúga og svíkja. En Reykjavík fær stork í staðinn; stórlega er bœttur skaðinn. skipta á borgarstjómarstólnum og frama sem varaþing- maður Samfylkhigarinnar." Huginn Freyr Þorsteinsson á vef Ungra Vinstrigrænna. Glundroði „Um leið hlýtur borgarstjóri að sjá að vera hennar í embætti mun héðan af aðeins valda sundrungu og glund- roða. Ef henni er annt um Reykjavíkurlistann hverfur hún brátt úr stóli.“ Stefán Pálsson á Múrnum.is. Volg kveðja „Tvennt stendur upp úr við ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar. Annars vegar hef- ur hún gengið svo berlega á bak orða sinna að hún stendur sködduð eftir. Hins vegar kallar framkoma Samfylk- ingarinnar fram spumingar um hæfhi hennar tfl samstarfs við aðra stjóm- málaflokka. Þetta tvennt verður Samfylkingunni tO vandræða i komandi þingkosningum. Ingibjörg Sólrún á fullt erindi í landsmálin, en þá verður hún að fóma borgarstjórastólnum. Það hafa orð- ið þáttaskO. Nú lít ég á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem hvem annan andstæðing mirm í pólitík. Því kveð ég hana sem samherja og þakka fyrir samstarfið." Valgerður Sverrisdóttir á vef sínum. Sögulegur afleikur Ingibjargar Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi alþingismaöur Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hefur valiö að taka svonefnt baráttusæti á framboðslista Samfylking- arinnar í Reykjavík. Með því gengur hún ekki að- eins á bak orða, sem féllu fyrir fáeinum mánuð- um, heldur setur hún samstarfið innan Reykja- víkurlistans í uppnám. Óraunsætt er að hún geti stund- inni lengur haldið stöðu borgar- stjóra og leikið þannig tveim skjöld- um. Sjálfstæðisflokkurinn mun nú leita eftir samstarfi við aðra flokka um stjóm Reykjavíkurborgar og trúlegt að dagar R-listans verði brátt taldir. Fari svo byrjar Ingibjörg af- skipti sín af landsmálum á nýjan leik með sviðna jörð að baki sér, ekki ósvipað og þegar hún greiddi Kvennalistanum náðarhöggið fyrir um það bfl áratug. Ekki verður annað séð en hér sé um sögulegan afleik af hennar hálfu að ræða. Hver getur treyst stjóm- málamanni tO frekari forystu sem gengur jafn rækOega á bak orða sinna? Nóg var fyrir Samfylkinguna að hafa Össur á oddinum með þann ótrúverðuga blæ sem lengi hefur fylgt honum sem stjómmálamanni, þótt meinsæri Ingibjargar bættist ekki við í áru flokksins. Illa sviðsett leikrit Aðalskýring Ingibjargar á kúvendingu sinni nú er að brýnt sé að koma málefnum Reykjavikur sem sveitarfélags meira á dagskrá á Alþingi. „Borgarmálavettvangurinn er að flytjast sífeOt meir yfir á þing- málavettvanginn", sagði hún í fjöl- miðlum kvöldið sem hún tOkynnti um ákvörðun sína. Hvers konar rugl er þetta? Telur Samfylkingin að breyta eigi Alþingi meira en hingað tO í togstreituvettvang mOli sveitar- stjóma í landinu og hræra öOu í einn graut, sveitarstjómarmálum og landsmálum? Telja menn þá stefnu Sjálfstæðisflokksins tO eftirbreytni að hafa Gunnar Birgisson og Björn Bjamason í tvöfeldu gervi sem al- þingismenn og sveitarstjórnarmenn - og hirða jafnframt tvöföld laun? Er öO gagnrýni á kjördæmapot gleymd og grafin ef höfuðborgarsvæðið á í hlut? ÆskOegast væri að lögleiða bann við því að alþingismenn gegni öðr- um verkefnum samhliða þing- mennsku, bæði setu í sveitarstjóm- um og ráðherrastarfi. Ætli sé ekki nóg að Reykjavík hafi sem kjör- dæmi 22 þingmenn að loknum næstu alþingiskosningum, þótt ekki bætist við að borgarstjórinn í Reykjavík sé í þeirra hópi? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. - „Ekki verður annað séð en hér sé um sögulegan afleik af hennar hálfu að rœða. Hver getur treyst stjómmálamanni til frekari forystu sem gengur jafn rœkilega á bak orða sinna?“ Otrúverðugur samstarfsaðili Ingibjörg leggur á það áherslu að aflur munur sé á hvort hún skipi 1. eða 5. sæti á lista Samfylkingarinn- ar. Einnig það er tilraun tO sjón- hverfinga. Ljóst er að henni verður teflt fram í komandi kosningabaráttu sem aðaltrompi og leiðtogaefni Sam- fylkingarinnar. össur fær að vera með sem leikbrúða enn um skeið, en í reynd er hann að afhenda svilkonu sinni lyklavöldin í flokknum. Fari svo að Ingibjörg nái kjöri hefur Samfylkingunni á Alþingi bæst eindreginn talsmaður fyrir að- Od íslands að Evrópusambandinu. Einmitt Evrópumálin urðu á sínum tíma tOefni hennar tfl að skOja sig frá öðrum forystukonum í Kvenna- listanum og ganga þvert gegn yfir- lýstri stefnu eigin flokks. Nú kynnir Össur hana tfl leiks tO að undir- rstrika að Samfylkingin standi fyrir stefnu sem sé sérstaklega hliðhofl þéttbýlinu, hinu er sleppt á kostnað hvers sú áhersla muni verða. Síðustu leikfléttur forystu Sam- fylkingarinnar eru varla tfl þess fallnar að auka trú manna á flokkn- um sem landsmálaafli. Fólk sem hleypur frá hátíðlegum yfirlýsing- um getur varla vænst þess að verða tekið alvarlega þegar á reynir um samstarf. Það kæmi því ekki á óvart að sól Samfylkingarinnar færi lækk- andi í kjölfar síðustu atburða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.