Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 27
43
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
J»-V Tilvera
Frederic Forrest 66 ára
Bandaríski leikarinn
Frederic Forrest á af-
mæli í dag. Snemma á
ferli hans leit út fyrir
að Forrest yrði ein af
stóru stjömunum. Ekki
varð af því heldur hefur hann farið í
hóp úrvalsleikara sem leika yfirleitt
ekífi aðalhlutverk heldur karakter-
hlutverk og setja sterkan svip á kvik-
myndir sem þeir leika í. Forrest byrj-
aði feril sinn á sviði í New York. For-
est á að baki Golden Globe og óskar-
stiinefningar. Einn þeirra leikstjóra
sem þykir mikið til hans koma er
Francis Coppola sem hefur fengið
hann i fjórar kvikmyndir.
Gildir fyrir þriöjudaginn 24. desember
Vatnsberinn (20, ian.-is. febr,):
I Fjölskyldan er þér
^ ofarlega í huga um
þessar mundir og það
er af hinu góða.
Gættu þess þó að vanrækja
ekki vini þína.
Fiskarnir (19. fehr.-?0. marst
Dagurinn byrjar vel
log þú verður vitni að
skemmtilegri
uppákomu fyrri
hluta dagsins.
Happatölur þínar eru 5, 9 og 23.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
fV Rónumt íkin blómstrar
næstu dögum en þú
^ skalt vera á verði og
gættu þess einnig að
særa ekki tilfinningar annarra.
Happatölur þínar eru 15, 26 og 34.
Nautið (20. apríl-20. maíl:
Þú getur gert góð
kaup í dag ef þú ert
var um þig og gætir
þess að semja ekki af
þer. Þú nýtur mikillar virðingar
í vinnunni þessa dagana.
Tvíburarnir (21. maí-2i. iúníi:
Forðastu að vera
'"uppstökkur því að
það bitnar mest á
sjálfum þér og þínu
nánasta fólki. Horfðu á björtu
hliðamar á tilverunni.
Krabblnn (??. ii'mí-??. iúin;
Þetta verður fremur
I viðburðalítill dagxn-
en þér berast þó góðar
_____ fréttir af gömlum vini.
Leggðu þig fram um að halda
friðinn á heimilinu.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
■ Vertu bjartsýnn þó
að útlitið sé svart
um þessar mundir.
Erfiðleikar eru til
þess að yfirstíga.
Happatölur þínar eru 5, 20 og 29.
IVIevian (23. áeúst-22. sept.):
Það er einhver spenna
<\V\\ í kringum þig sem
T^V^lþú veist ekki alveg af
* f hverju stafar. Sýndu
fólkinu í kringum þig
þolinmæði og góðvild.
Vogln (23. sept.-23, okt.):
í kringum þig er
óþolinmótt fólk sem
ætlast til mikils af
þér. Haltu þínu striki.
Ferðaiag gæti verið á döfinni.
Happatöltu1 þínar eru 9, 16 og 24.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
Ef fr1* á fjár-
festingu skaltu fara ró-
•lega í sakimar og vera
viss um að allir í
kringum þig séu heiðarlegir.
Happatölur þínar em 3, 10 og 31.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des );
|Þú nýtur góðs af
hæfileikum þínum á
ákveðnu sviði í dag.
Fólk kann vel að
meta ákveðni þína í vinnunni.
Happatölur þínar era 13, 27 og 38.
Stelngeitin (22. des.-i9. ian.):
^ Taktu það rólega
í dag en eyddu kvöld-
inu með góðum vinum.
•^0** Þú ert ánægður með
gang mála þessa dagana.
Happatölm- þínar em 1, 32 og 36.
Jólablót hjá ásatrúarmönnum:
Stærsta hátíð ársins
Ástatrúarmenn héldu jólablót sitt
um helgina en það er stærsta hátið
ársins í þeirra ranni. Blótið, sem var
haldið í húsakynnum félagsins á
Grandagarði i Reykjavik, hófst með
ljósaathöfn sem ætluð var börnum.
Síðan tók við borðhaid en undir því
Ungt fólk í ástatrú
Stefán Pálsson
og Steinunn Þóra Árndóttir.
var skemmt með rími, rappi og frá-
sögnum. Þar komu fram listamenn á
því sviði, svo sem Steindór Ander-
sen, Erpur og Eyjólfur Eyvindarsyn-
ir, Hilmar Örn Hilmarsson, Þorri Jó-
hannesson, Jóhanna Harðardóttir og
Eyvindur Eyþórsson. -sbs
Kinn við kinn
Sverrir Stormsker og Harpa Karls-
dóttir, áöur kona Ástþórs Magnús-
sonar friöarsinna.
Goðorðsfólk
Frá vinstri taliö: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjaröagoöi, Lára Jóna Þorsteinsdótt-
ir lögsögumaöur og Hilmar Örn Hilmarsson goöi. DV-myndir KÖ
Bíógagnrýni
Laugarásbió/Regnboginn/Smárabíó/Kringltibíó - The Lord of the Rings: The Two Towers ir it it'i.
Uppákoma á Austurvelli:
Óður til
öræfanna
Föruneytið tvístrast
Hilmar
Karisson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Fjalladrottningin var Sigurði
skáldi frá Arnarvatni kær og hjarta-
bundin eins og segir í kvæði hans.
Hið sama gildir um hóp þeirra lista-
manna sem efndi til sólstöðuhátíðar
á Austurvelli og annars staðar i
miðborginni á laugardag. Fólk og
fiöll var yfirskrift þessarar uppá-
komu en þar komu saman rithöf-
undar, tónlistarmenn, leikarar, ljós-
myndarar, myndlistarmenn og fleiri
- og sýndu og fluttu hugverk sín.
Með pabba
Hera, sem er fjögurra ára, hjúfrar
sig aö fööur sínum. í fláum heimi er
gott aö eiga skjól hjá pabba - sem
er bjargiö sem byggja má á.
Ungar valkyrjur
Þær Margrét Helga og Ragnhildur Lára
voru á Austurvelli en engum sögum fer
hins vegar afþví hver afstaöa þeirra til
virkjunarframkvæmda er.
Skáldið
Pétur Gunnarsson rithöfundur var meöal þeirra sem lögðu orð í belg á sól-
stöðuhátíöinni á laugardag.
Allt var það með einum eða öðrum
hætti til stuðnings baráttunni fyrir
verndum hálendis Austurlands þar
sem farið verður að virkja fljótlega,
ef að líkum lætur. -sbs
Annar hluti Lord of the Rings
byrjar þar sem sá fyrsti endaði. Pet-
er Jackson er ekkert að gefa mönn-
um tækifæri að sjá The Two Towers
án þess að hafa séð The Fellowship
of theRing. I lok fyrstu myndarinn-
ar tvístraðist foruneyti hringsins í
þrjá hiuta: Fróði og Sómi héldu
áfram til Mordor með hringinn,
Pípin og Kátur lentu 1 höndum óvin-
arins og Aragom, Legolas og Gimli
fara þeim til bjargar. Gandalf kem-
ur siðan til liðs við þá. Við erum
sem sagt að fylgjast með ferð föru-
neytisins á þremur stöðum. Óhjá-
kvæmiiega slítur þetta myndina í
sundur, samt ekkert meira en í
fyrstu myndinni þar sem álfar
fengu stærri hlut ásamt því að
Gandalf og Sarumon áttust mun
meira við en í öðrum hlutanum.
Allt er þetta hluti af einni stórri
sögu, einu mesta ævintýri sem
skrifað hefur verið. Eins og í fyrsta
hlutanum er það styrk leikstjóm og
útsjónarsemi Peters Jacksons sem
gerir myndina að því stórvirki sem
hún er. Ég er meira að segja kom-
inn á þá skoðun að honum hafi tek-
ist það ofurmannlega - að gera æv-
intýramynd sem slær öllum öðrum
ævintýramyndum við. Á ég þá við
tríólógíuna í heild. Fellowship of
the Rings var upplifun sem aldrei
gleymist. Þar kom Jackson á óvart.
Enginn hafði búist við slíku sjónar-
spili. Það er töluverður munur að
horfa á The Two Towers að því leyt-
inu til að hún kemur ekki á óvart.
Myndin er nánast allt sem búist var
við. Ef spurt er hvort hún sé jafngóð
er svarið: næstum því.
Ef The Fellowship of the Ring var
sterk heild þá er The Two Towers
meira sterk atriði. Hér höfum við
orrustur sem eru með því allra
flottasta sem sést hefur. Við höfum
rómantískari hetjusögu, þar sem
Aragom er á milli tveggja
prinsessa, við sjáum Pípin og Kát
vingast við skógarverur, Fróða og
Sóma með Gollum í eftirdragi. Hér
erum við komin að þeirri persónu
sem er sálin í öðrum hlutanum.
Þeir sem þekkja söguna vita að Goll-
um er örlagavaldurinn í henni,
fyrrum hobbiti sem eitt sinn var
vemdari hringsins. Hér birtist Goll-
um okkur sem ómynd af því sem
hann eitt sinn var. Með tölvutækn-
inni er í einu vetfangi hægt að um-
mynda hann úr sætu litlu skrímsli
yfir í ljótt skrímsli. Þetta fer allt eft-
ir því hvað hann hugsar. Snilldin er
mikil hjá tæknimönnum en það er
leikarinn Andy Serkis sem full-
komnar verkið. Rödd hans er ein-
stök og hef ég varla heyrt aðra eins
raddbeitingu, rödd sem fer á hrjúf-
an hátt tilfinningaskalann frá því
að vera auðmjúkur þjónn, sem kall-
ar Fróða „master", í það að geta
ekki hamið reiðina, einnig gagnvart
Fróða. Gollum er sem sagt tvískipt-
ur persónuleiki.
Annar hlutinn er Aragorns. Hann
er hetjan sem bjargar. Hann heillar
gyðjurnar tvær í myndinni. Viggo
Mortensen kemur sterkur út úr
þessum hluta sögunnar og passar
vel inn í hetjuímyndina. Hlutur
Fróða og Gandalfs er minni I þess-
um miðkafla. Það hefur þó ekki af-
gerandi áhrif á persónurnar sem
slíkar. Fróði (Elijah Wood) er hring-
berinn sem föruneytið fómar sér
fyrir, Gandalf er sterkasta persónan
í sögunni og Ian McKellan er þegar
búinn að gulltryggja ímyndina.
Arwen (Liv Tyler) er meira upp á
punt hér, það er verið að itreka
samband hennar við Aragorn. Gala-
driel (Cate Blanchett) er aðeins i
einu atriði með Fróða. Það er að
vísu mjög sterkt atriði. Þriðja kon-
an, Eowyn (Miranda Otto), er aftur
á móti í þungamiðju annars hluta,
hvort sem hún er að berjast við
Gríma (Brad Dourifi), konunginum
til bjargar, eða getur ekki leynt ást
sinni á Aragom.
The Two Towers stendur ekki að
baki fyrsta hlutanum hvað varðar
mikilfengleik. Ég er alveg viss um
að Spielberg, Lucas og Zemenicks
horfa öfundaraugum til Peters
Jacksons. Við sjáum í myndinni
mestu orrustuatriði sem sést hafa á
hvíta tjaldinu, þar sem Jackson er
herforinginn sem þrautskipuleggur
allt, hvort sem er á tökustað eða í
tölvunni, og í myndinni fáum við
best heppnuðu tölvugerðu persón-
una. Ef það er eitthvað sem háir
myndinni þá líður hún fyrir það að
vera millikaflinn. Þetta skiptir sjálf-
sagt heitustu aðdáendur Tolkiens
engu máli. Þeir gæða sér á fyrsta
hlutanum áöur en farið er í bíó og
sakna örugglega einhvers sem
Jackson hefur sleppt.
The Two Towers endar eins og
hún byrjar. Fróði og Sómi halda
áfram með hringinn á leið sinni til
Mordor og ævintýrið heldur áfram
að einu ári liðnu.
Leikstjóri: Peter Jackson. Handrit: Peter
Jackson, Frances Walsh, Philippa Boyens
og Stephen Sinclair. Kvikmyndataka:
Andrew Lesnie. Tónllst: Howard Shore.
Aóalleikarar: Elijah Wood, Viggo Morten-
sen, lan McKellan, Sean Astin, Orlandi
Bloom, John Rhys-Davis, Bernhard Hill,
Mirinda Otto, Christopher Lee og Brad
Douriff.
W
*.