Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Síða 31
47 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002__________________________________________________ I______________________________________________________________________________________________íslendingaþættir Jóladagur 70 ára _________________________ Anna Jóna Óskarsdóttir, Starengi 110, Reykjavík. 60 ára___________________________ Einar Hermannsson, Kúrlandi 25, Reykjavík. Margrét ísleifsdóttir, Skriöuvóllum 9, Kirkjubæjarklaustri. Sigurbjört Gunnarsdóttir, Breiðumörk 26, Hveragerði. 50 ára_________________________ Erna Indriöadóttir, Rekagranda 2, Reykjavík. Eyvindur Ólafsson, Kleppsvegi 132, Reykjavík. Guölaugur Guðmundsson, Njaröargötu 7, Keflavík. Hjördís Sigurbergsdóttir, Fagrabergi 26, Hafnarfiröi. Kristín Bjarnadóttir, Krosseyrarvegi 14, Flafnarflrði. Ragnar Ingimundur Ágústsson, Sjafnargötu 8, Reykjavík. Sesseija Hafberg, Efstahrauni 23, Grindavík. Sigríöur Sigurðardóttir, Laugarásvegi 22, Reykjavík. Smári Þór Svansson, Kirkjustétt 11, Reykjavík. 40 ára_____________________________ Guðmundur Frímann Guðmundsson, Stekkjargrund 6, Reyöarfirði. Jón Kristján Stefánsson, Hagamel 24, Reykjavík. Sigríður Böðvarsdóttir, Fagurhlíð, Kirkjubæjarklaustri. Sigurlaug Sigurmundsdóttir, Hveratúni, Selfossi. Valur Björgvin Júlíusson, Ásvegi 1, Dalvík. I I I I I I HLEDSLU/ Hraðskiptipatróna ..sparar tíma og eykur afköst! Ármúli 17, IOB Reykjavík Sími: 533 1334 faX: 55B 0433 ið síðustu árin. Ætt Föðurforeldrar Valdimars voru Eiríkur Ágúst Þorgilsson, bóndi í Haugakoti og Útverkum í Skeiða- hreppi, í Langholti í Hraungerðis- hreppi í Árnessýslu, og Sigríöur Sigurðardóttir frá Hrygg í Hraun- gerðishreppi í Árnessýslu. Móðurforeldrar Vaidimars voru Sigurdór Stefánsson, bóndi í Götu í Hrunamannahreppi i Ámessýslu, og k.h., Katrín Guðmundsdóttir frá Kambi í Holtahreppi í Rangárvalla- sýslu. Valdimar verður að heiman á af- mælisdaginn. Valdimar R. Karlsson vélfrædingur á Selfossi í Önundaríirði, Vest- ur-ísaí]arðarsýslu, fyrrv. kennara og skrifstofumanns á Flateyri. Valdimar og Þórdís skildu. Böm Valdimars og Þórdísar eru Valgerð- ur Dís, f. 7.3. 1972, lög- maður í Reykjavík, gift Salih Heimi Porca og er dóttir þeirra Val- dís Harpa, f. 1.10. 1999; Benedikt, f. 3.2. stj ómmálafræðingur og ráðgjafi í Reykja- vík. Sonur Valdimars og Aagotar Fougner er Gunnar Snorri, f. 27.12.1966, kennari i Reykjavík. Systkini Valdimars eru Sigurdór, f. 23.12. 1942, húsasmiður á Selfossi; Sigríður, f. 27.8. 1948, aðstoðarmað- ur tannlæknis á Selfossi; Katrín, f. 23.1. 1958, húsfreyja á Selfossi; Hrafnhildur, f. 11.11.1962, leikskóla- kennari á Selfossi Foreldrar Valdimars eru Karl Ei- ríksson, f. 9.6. 1916 að Vorsabæ í Skeiðahreppi í Ámessýslu, fyrrv. verslunar- og skrifstofumaður á Sel- fossi, og Guðfinna Sigurdórsdóttir, f. 5.9. 1921 að Götu í Hrunamanna- hreppi í Ámessýslu, húsfreyja á Sel- fossi. Þau eru búsett á Selfossi og bjuggu þau lengst af á Flúðum, Ár- túni 17, þar sem Valdimar hefur bú- Valdimar Rúnar Karlsson vél- fræðingur, Ártúni 17, Selfossi, sextugur í dag. Starfsferill Valdimar fæddist í Götu í Hruna- mannahreppi í Ámessýslu, átti þar heima fyrsta æviárið en flutti þá á Selfoss þar sem hann ólst upp á Flúðum, Ártúni 17. Valdimar lauk bamaskóla 1953 og miðskóla 1955 á Selfossi, lauk próf- um frá Iðnskólanum á Selfossi og sveinsprófi í .vélvirkjun hjá KÁ 1964. Hann hlaut meistararéttindi 1975, lauk vélstjóraprófi í Vélskólan- um í Reykjavík 1966 og prófum frá rafmagnsdeild 1967. Valdimar var vélstjóri hjá Eim- skipafélagi íslands hf. á Brúarfossi 1968-70 og á Goðafossi 1970, vélvirki hjá Heklu hf. í Reykjavík 1971-74, vélstjóri á Bjama Herjólfssyni 1977-79. Þá varð hann vélfræðingur hjá Landsvirkjun, hefur starfað við Hrauneyjafoss- og Sigölduvirkjun og nú síðast einnig við Vatnsfells- virkjun. Fjölskylda Valdimar kvæntist 6.6. 1970 Þór- dísi Kristjánsdóttur, f. 26.5. 1949, d. 25.4.1995, húsmóður á Selfossi. Hún var dóttir Valgerðar Einarsdóttur, f. 19.7. 1926 að Gljúfri í Ölfushreppi, Ámessýslu, húsfreyju og verslunar- manns í Reykjavík, og Kristjáns Hálfdánarsonar, f. 3.3.1929 að Kaldá Jón Ingi Júliusson kjöt- iðnaðarmaður, Hraun- braut 37, Kópavogi, verð- ur sjötugur á aðfangadag. Starfsferill Jón fæddist í Vaðlakoti í Gaulverjabæjarhreppi og ólst þar upp. Hann lauk prófum sem kjötiðn- aðarmaður. Jón, starfaði í versluninni Bræðraborg við Bræðraborgarstíg á sínum yngri árum, starfrækti versl- unina Laugaveg 32 um nokkurt skeið og rak verslunina Kjörhúsið við Ásgarð í Reykjavík ásamt konu sinni. Síðustu árin starfaði Jón Ingi hjá versluninni Nóatúni. Jón var formaður Félags kjör- kaupmanna í nokkur ár. Hann er núverandi formaður félags Harmon- ikuunnenda, er mikill harmónikku- spilari og spilar mikið, bæði fyrir Þjóðdansafélagið og eldri borgara. Fjölskylda Jón kvæntist 24.12. 1953, Pálhildi Sumarrós Guðmundsdóttur, f. 30.5. 1935, verslunarkonu. Hún er dóttir Guðmundar Pál- sonar og Finnborgar Helgu Finnbogadóttur sem eru bæði látin. Böm Jóns og Pálhildar Sumarrósar eru Erla Lóa Jónsdóttir, maður hennar er Jó- hannes Georgsson og eru böm hennar Páll Ingi Magnússon, Magn- ús Bragi Magnússon og Jónas Atli Jóhannesson; Lúðvík Júlíus Jóns- son, böm hans eru Guðmundur Brynjar Lúðviksson og Magnús Már Lúðviksson; Finnborg Laufey Jóns- dóttir, maður hennar er Eysteinn Haraldsson og eru böm þeirra Kristinn Jón Eysteinsson, Axel Þór Eysteinsson, Bjarki Páll Eysteins- son og Eydís Lilja Eysteinsdóttir; Jón Ingi Jónsson, kona hans er Ást- björg Þóra Erlendsdóttir og eru böm þeirra Erlendur Ingi Jónsson, Davíð Öm Jónsson og Jón Ingi Jónsson; Halldór Pálmar Jónsson, kona hans er Þóra Möller og eru böm þeirra Sigrún Ósk Halldórs- dóttir, Anton Bjami Halldórsson og Ámi Þórður Halldórsson; Sigrún Stefanía Jónsdóttir, maður hennar er Oddgeir Már Sveinsson og eru börn þeirra Eysteinn Fannar Odd- geirsson, íris Anna Oddgeirsdóttir og Stefán Már Oddgeirsson. Alsystur Jóns eru Sigrún Júlíus- dóttir, búsett í Reykjavík, maður hennar var Stefán H. Sigfússon sem er látinn; Ingibjörg Júlíusdóttir, bú- sett í Borgarnesi, maður hennar er Karl Torfason. Hálfsystur Jóns: Ósk Halldórs- dóttir, búsett í Reykjavík, maður hennar er Björn Úlfarsson; Guðný Halldórsdóttir, búsett í Reykjavík, maður hennar er Diðrik 0. Hjör- leifsson; Erla Halldórsdóttir, búsett í Reykjavík, maður hennar er Gest- ur Gíslason. Foreldrar Jóns voru Július Ágúst Helgason, lést ungur, og Laufey Jónsdóttir saumakona. Fósturfaðir Jóns var Halldór Jónsson kaupmaður. Jón verður heima á afmælisdag- inn í faðmi fjölskyldunnar. Sjotugur Jón Ingi Júlíusson kjötiðnaðarmaður í Kópavogi Sextugur Símon Páll Aðalsteinsson framkvæmastjóri Golfklúbbs Borgarness Símon Páll Aðalsteins- son, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness, Klettavík 1, Borgarnesi, verður sextugur á jóladag. Starfsferill Símon fæddist í Reykja- vík, ólst upp til þriggja ára aldurs í Skrúð í Reyk- holtsdal og síðan að Lauf- skálum í Stafholtstungum. Hann var í Bamaskólanum á Varmalandi, stundaði siöan nám við Héraðsskól- ann í Reykholti, stundaði nám við Iðnskólann í Borgarnesi og lauk sveinsprófi í bifvélavirkjun 1966. Símon starfaði hjá BTB og Sæ- mundi Sigmundssyni sérleyfishafa 1968-69, flutti með fjölskyldu sinni að Laugarteig 1970 þar sem hann starfrækti verkstæði í eigu Búnað- arfélags Andakílshrepps. Símon, kona hans og samstarfs- menn stofnuðu fyrirtækið Vélabæ hf. 1980 og var fram- kvæmdastjóri þess til 1995 er hann hætti sökum heilsubrests. Símon og kona hans íluttu að Klettavík í Borg- arnesi 1997 og ári síðar hóf hann starf hjá Golf- klúbbi Borgarness þar sem hann hefur verið fé- lagi í um áratug. Hann er nú framkvæmdastjóri klúbbsins. Fjölskylda Símon kvæntist 11.9. 1965 Þuríði Jóhannsdóttur, f. 26.2. 1946, starfs- manni á skrifstofu hjá Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Hún er dóttir Jóhanns Ólafs Pjeturssonar sem lést 1994 og Kristínar Svafarsdóttur en þau bjuggu allan sinn búskap á Akranesi. Börn Símonar og Þuriðar eru Hanna, f. 11.8. 1966, húsmóðir og íþróttafrömuður á Kjalarnesi, gift Einari Þór Magnússyni bifvélvirkja og eiga þau fjögur böm; Aðalsteinn, f. 20.12. 1968, véltæknifræðingur i Borg- amesi, kvæntur Ragnheiði Ömu Þor- geirsdóttur kaupkonu og eiga þau þrjá syni; Sigurbjörg Anna, f. 24.1.1970, bú- sett í Borgarnesi, gift Birgi Viðari Halldórssyni og eiga þau tvö börn; Sunna Björk, f. 16.5.1977, leiðbeinandi á Hellissandi, gift Ólafi Auðunssyni og eiga þau eitt barn. Bræður Símonar em Erlingur Að- alsteinsson, f. 3.5.1945, bifvélavirki að Laufskálum í Staíholtstungum, var kvæntur Herdísi Hermannsdóttur og eiga þau fjögur böm; Kári Aðalsteins- son, f. 8.5. 1960, garðyrkjumeistari í Hafnarflrði, kvæntur Eydísi Sigvalda- dóttur og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Símonar: Aðalsteinn Símonarson, f. 9.11.1917, d. 1993, garð- yrkjumaður í Laufskálum i Staf- holtstungum, og Sigurbjörg Pálsdótt- ir, f. 22.7.1920, húsfreyja. Símon tekur á móti vinum og vandamönnum í félagsheimilinu Val- felli, 27.12. kl. 18.00-22.00. Stórafmæli Annar í jólum 90 ára________________________________ Sigurður Kristjánsson, tæknifræðingur og fyrrv. yflrkennari við Iðnskólann í Reykjavík, Vesturgötu 7, (áður Miklu- braut 24), Reykjavík. Flann veröur meö fjöl- skyldu sinni á afmælisdaginn. 85 ára________________________________ Jón Sigurðsson, Hvoli 1, Kirkjubæjarklaustri. 80 ára________________________________ Hjördís Óladóttir, Engimýri 12, Akureyri. Jón Sandholt Jónsson, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði. 75 ára________________________________ Þorbjörg Sigurðardóttir, Austurbrún 6, Reykjavík. 60 ára________________________________ Einar B. Gunnlaugsson, Bröndukvísl 4, Reykjavík. Einar Oddur Kristjánsson, Sólbakka, Flateyri. Helga Guðmundsdóttir, Valsholti, Borgarnesi. Jón Guðmundsson, Hlíðargötu 16, Fáskrúðsfiröi. Kristján Pétur Willatzen, Blikahólum 10, Reykjavík. Margrét Hjartardóttlr, Laufengi 108, Reykjavík. Óli Steinþór Guðlaugsson, Drápuhlið 19, Reykjavík. Þorgerður Guðmundsdóttir, Lækjargötu 11, Hvammstanga. 50 ára________________________ Ásthildur Ding, Prestastíg 6, Reykjavík. Elaine McCrorie, Tunguseli 1, Reykjavík. Friðrik Friðriksson, Jörundarholti 102, Akranesi. Hafdís Þórey Pálmadóttir, Ferjubakka 4, Reykjavík. Haukur Guðmann Gunnarsson, Fjörugranda 10, Reykjavík. Hugo Rasmus, Vlðihvammi 6, Kópavogi. Joseph Francis Tripodi, Laugavegi 33a, Reykjavík. Málmfríður Sigurvinsdóttir, Sandabraut 14, Akranesi. Ragnheiður Björnsdóttir, Skaftahlíð 11, Reykjavík. Una Jónína Níelsdóttir Svane, Norðurbrún 22, Reykjavík. Valgarður H. Sverrisson, Hjallabraut 39, Hafnarfiröi. 40 ára________________________ Elín Árnadóttir, Herjólfsgötu 10, Hafnarfiröi. Gísli Ágústsson, Engihjalla 3, Kópavogi. Guðmundur Guðmundsson, Hringbraut 69, Reykjavlk. Hulda Örlygsdóttir, Austurbraut 2, Keflavík. Ingi Eldjárn Slgurðsson, Skaftahlíð 16, Reykjavík. Kárl Magnússon, Túngötu 30, Tálknafiröi. Kimberly Ann Crocker, Möðrufelli 7, Reykjavlk. Ragnar Leifur Pálmason, Fífulind 2, Kópavogi. Sigrún Jensdóttir, Lyngbrekku 13, Kópavogi. Vilborg Benediktsdóttir, Hábergi 22, Reykjavík. Þorsteinn Kristinn Einarsson, Einholtl 5, Garði. Smáauglýsingar Allt til alls ►I550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.